Morgunblaðið - 05.07.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fyrri hluta árlegs lundaralls á veg-
um Náttúrustofu Suðurlands lauk á
sunnudaginn var. Lundarallið hófst
16. júní og því lauk 3. júlí. Tólf
lundavörp hringinn í kringum landið
voru heimsótt en þeirra verður vitj-
að tvisvar í sumar. Könnuð var ábúð
og klak eggja með holumyndavél.
Með ábúð er átt við hlutfall þeirra
lundaholna sem orpið er í. Lundinn
liggur á eggi sínu í 42 daga og er
kannað hve hátt hlutfall eggja hefur
klakist þegar könnunin er gerð.
Einnig var reynt að endurheimta
dægurrita sem lundar hafa borið í
eitt ár eða tvö. Dægurritarnir skrá
upplýsingar sem hægt er að nota til
að ákvarða staðsetningu fuglanna
og fylgjast þannig með ferðum
þeirra. Á grundvelli þeirra upplýs-
inga hefur m.a. tekist að finna út
hvar vetrarstöðvar lundans eru.
Rallið hófst í Vestmannaeyjum
16.-17. júní. Næst var farið í Dyr-
hólaey þann 21. júní. Ábúðin á báð-
um stöðum reyndist vera svipuð eða
65% og 66%. Klak var ekki hafið í
lundabyggðum í Eyjum eða í Dyr-
hólaey þegar þeirra var vitjað.
Ábúðin í Ingólfshöfða var aðeins
um 57%, þar sem hún var 70% í
fyrra, og klakið þar var orðið 12%
þann 21. júní. Nokkuð var um yf-
irgefin egg en einnig voru komnar
pysjur og lundar að bera í þær síli.
Lundabyggð í Papey hvarf
Papey hafði látið nokkuð á sjá frá
því í fyrra. Sjór gekk þar á land í
stórviðri um síðustu áramót og sóp-
aði m.a. hluta af lundabyggðinni við
lendinguna á haf út. Þar með fimm
af rannsóknarholunum í eynni þar
sem bjuggu sjö lundar sem skört-
uðu dægurritum. Ábúðin var 78%
og klakið var orðið 73%. Talsvert
var af sílisfugli. Elsti unginn sem
sást þann 22. júní var þá orðinn um
15 daga gamall sem benti til þess að
varpið hefði hafist óvenju snemma.
Í Papey tókst að ná 13 dægur-
ritum og þar af voru nokkrir frá
2014 sem geyma tveggja ára gögn.
Í Hafnarhólma í Borgarfirði
eystra var 73% ábúð og klakið var
68%. Mikið var af sílisfugli og þar
náðust þrír lundar með dægurrita.
Gott ástand var hjá lundanum í
Lundey á Skjálfanda. Ábúðin þar
var há, eða 90%, og klakið 52%.
Mikil var af sílisfugli. Ábúðin í
Grímsey reyndist vera 85% og klak-
ið var orðið 50%. Þar náðust 18
dægurritar af lundum, þar af tveir
tveggja ára gamlir. Einnig fengu 20
lundar nýja dægurrita. Mikil áta
hefur verið norður af Grímsey og
mikið af fugli í æti, þar af nokkrir
tugir ef ekki hundruð sjósvalna.
Ábúð lunda í Drangey á Skaga-
firði var 85% og klakið var orðið
25% sem benti til þess að varpið þar
hefði farið seint af stað.
Í Grímsey á Steingrímsfirði var
ábúð lundans mjög há eða 92% og
klakið var 72%. Mikið sást af lunda
með æti fyrir pysjur.
Í Vigur í Ísafjarðardjúpi var ábúð
mæld á tveimur stöðum. Hún
reyndist vera 90% og klakið var
86%.
Ástandið í Akurey á Faxaflóa,
rétt utan við Örfirisey, var mjög
gott. Þar var 85% ábúð, klak
var 41% og nokkuð sást af sílis-
fugli.
Yfirferðinni lauk í Elliðaey á
Breiðafirði 3. júlí. Þar var
ástand lundans ágætt, líkt og á
nálægum svæðum. Ábúð var
81%, klak 79% og nokkuð
var um sílisfugl, það er
lunda sem voru að
bera síli í pysjur.
Lundabyggðir landsins heimsóttar
Fyrri hluta árlegs lundaralls er lokið Ástand varpsins er verst við suðurströndina Betra
ástand við Vestur-, Norður- og Austurland Lundavarp lítur betur út við vestanvert landið en áður
Morgunblaðið/Einar Falur
Lundar Lundastofninum farnast misjafnlega vel við landið. Varpið virtist fara vel af stað við Austur-, Vestur- og
Norðurland. Tíminn mun svo leiða í ljós hversu afkoman verður góð og hve margar lundapysjur komast á legg.
Ástand lundans reyndist al-
mennt vera gott frá Papey í
austri og norður og vestur um
landið og allt suður í Faxaflóa.
Lundanum farnast ekki jafn vel
við suðurströndina.
Dr. Erpur Snær Hansen,
sviðsstjóri vistfræðirannsókna
hjá Náttúrustofu Suðurlands,
sagði ánægjulegt að sjá að
lundanum virtist nú ganga bet-
ur en oft áður við vestanvert
landið. Ástandið er hins vegar
alvarlegra við suðurströndina. Í
Vestmannaeyjum hefur full-
orðnum fuglum fækkað vegna
náttúrulegra affalla og það al-
varlega er að ungfuglar hafa
ekki komið í staðinn. Ungfuglar
sjást varla og það ógnar framtíð
stofnsins. Ástæðan er sú að
lundavarp hefur misfarist að
mestu flest ár frá 2003.
Hremmingar lundastofnsins
virðast m.a. tengjast breyt-
ingum hjá sandsílinu, sem er
mikilvæg fæða lundapysjanna.
Hafrannsóknastofnun er að
hefja á ný sandsílarannsóknir á
Selvogsbanka og í Faxaflóa.
Marlene Dupraz frá
Frakklandi sem er að
rannsaka lundalús fór
með lundaralls-
mönnum í Lundey á
Skjálfanda. Henni
gekk vel að safna lús-
um og tíndi rúmlega
helming þeirra af
leiðangurs-
mönnum!
Farnast verst
við suður-
ströndina
LUNDINN VIÐ ÍSLAND
Dr. Erpur
Snær Hansen
Ingólfshöfði
Papey
Akurey
Hafnarhólmi
Elliðaey
Lundey
Grímsey
Grímsey
Vigur
Drangey
DyrhólaeyVestmannaeyjar
Lundarallið 2016
„Þetta gerðist þannig að vörubíll
sem var að flytja efni í flugbrautina
ók inn á akstursbraut flugvéla í veg
fyrir flugvél,“ segir Guðni Sigurðs-
son, upplýsingafulltrúi Isavia, en það
óhapp átti sér stað á Keflavíkurflug-
velli nýlega að þota þurfti að hemla
þegar vörubíll keyrði í veg fyrir hana
á akstursbraut.
Var í efnisflutningum
Verið er að endurnýja norður-suð-
ur flugbrautina á vellinum og vörubíl
sem var að flytja efni í brautina var
ekið inn á akstursbraut sem flugvél-
ar nota til að aka frá flugbraut og yf-
ir að flugstöð. Ökumaður vörubílsins
virðist ekki hafa gert flugturni vart
við sig og flugmenn vélar sem var að
koma eftir akbrautinni vissu því ekki
af honum og þurftu að hemla snögg-
lega til að lenda ekki í árekstri.
Umferð stjórnað úr flugturni
Umferð ökutækja á flugvallar-
svæðinu er stýrt nákvæmlega úr
flugturni. Vörubílar sem vilja nota
akstursbrautir flugvéla fá heimild til
þess úr turni ef hvorki er lending né
akstur áætlaður á henni. Mannleg
mistök virðast hafa valdið því að
vörubíllinn fór inn á brautina án
heimildar, með ofangreindum afleið-
ingum.
Búið að skerpa á reglum
„Reglurnar eru þannig að þau
ökutæki sem fara inn á flug- og akst-
ursbrautir verða að hafa sérstakt
leyfi frá flugturni.Búið er að fara yfir
atvikið og ræða sérstaklega akstur
innan svæðisins. Það er búið að taka
á þessu hjá okkur og Íslenskum að-
alverktökum sem sjá um verkið.
Einnig er búið að merkja betur akst-
ursleiðir sem notaðar eru í tengslum
við verkið,“ segir Guðni. Málið er lit-
ið alvarlegum augum enda lá við að
stórslys ætti sér stað. elvar@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Flugstöð Akstursbrautirnar liggja
frá flugstöðinni að flugbrautunum.
Vörubíll keyrði í veg
fyrir flugvél á braut
Bifreiðin var í efnisflutningum
Var ekið inn á akbraut flugvéla
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Taktu
bílinn með
til Færeyja og Danmerkur 2016
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
Bókaðu
núna!
Bókaðu
snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir
í sumar.