Morgunblaðið - 05.07.2016, Side 11

Morgunblaðið - 05.07.2016, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála úrskurðaði þann 30. júní sl. að framkvæmdir við Kröflulínu 4 skyldu stöðvaðar til bráðabirgða, meðan nefndin tæki kæru Land- verndar og Fjöreggs til skoðunar. Bráðabirgðastöðvun fram- kvæmda við Kröflulínu nær ekki til framkvæmdarinnar í heild, ein- göngu þess hluta sem nær yfir Leirhnjúkshraun. Taldi nefndin að Leirhnjúkshraun félli undir þau ákvæði náttúruverndarlaga sem veita tilteknum svæðum sérstaka vernd. Gæti valdið töfum Kristján Þór Magnússon, sveitar- stjóri Norðurþings, segist óttast að úrskurðurinn hafi áhrif til seink- unar á framkvæmdum við kísilver á Bakka. „Þetta vonuðum við að gerð- ist ekki. Það er þétt tímalína í verk- efninu og allt eins og þetta getur sett hana úr skorðum,“ segir Krist- ján Þór, sem segist þó ekki hafa forsendur til að meta nákvæmlega hvaða áhrif úrskurðurinn hafi á Bakka. Landsnet er framkvæmdaraðili við Kröflulínu 4, en í skriflegu svari frá fyrirtækinu segir að fram- kvæmdir við línuna séu hafnar, en þó ekki á því landi sem um ræðir, þ.e. Leirhnjúkshrauni. Fram- kvæmdum við línurnar verður hald- ið áfram, þar sem framkvæmdaleyfi eru í gildi, en ekki liggur fyrir hvort úrskurðurinn mun leiða til tafa á framkvæmdum við Bakka. Lands- net hefur í kjölfar úrskurðarins haft samráð við alla þá sem að verkefn- inu koma Ánægður með úrskurðinn Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar, segist ánægður með úrskurðinn. „Þarna er verið að draga út svæði þar sem löggjafinn hefur sagt: Þetta er verðmætt náttúruvernd- arsvæði. Nefndin segir í raun að það þurfi að fara varlega þarna,“ segir Guðmundur Ingi. Í kæru Landverndar segir að framkvæmdin hafi ekki verið end- urmetin frá því að fallið hafi verið frá hugmyndum um byggingu ál- vers á Bakka. Í tilkynningu frá Landvernd segir að málsatvikum í dómum Hæstaréttar er vörðuðu Suðurnesjalínu 2 svipi til málsatvika í máli Kröflulínu 4. Ekki hafi farið fram mat á því hvort leggja megi strenginn í jörðu, líkt og bar að gera í máli Suðurnesjalínu 2. Framkvæmdir stöðvaðar við Kröflulínu 4  Gæti tafið framkvæmdir á Bakka  Landvernd fagnar stöðvuninni Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bakki Framkvæmdir eru vel á veg komnar á Bakka, en þar rís kísilver. Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Tilgangurinn er að draga úr umferð hópferðabíla um þröngar götur og íbúðabyggð og samtímis að auðvelda ferðamönnum að finna stoppistöðv- arnar, draga úr óvissu og setja þetta í skilmerkilegra ferli,“ segir Jón Hall- dór Jónasson, upplýsingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg, en borgin hefur hafist handa við að afmarka sérstak- ar rútustoppistöðvar víðsvegar um miðborgina. Var verkefnið unnið í samráði við Samtök ferðaþjónust- unnar til að auðvelda ferðamönnum að komast í og úr hópferðabílum eftir að takmarkanir voru gerðar á umferð hópferðabíla um íbúðabyggð í mið- borginni Að sögn Hildar Gunnlaugsdóttur, verkefnisstjóra borgarhönnunar hjá Reykjavíkurborg, er verið að merkja tólf rútustoppistöðvar í miðborginni og þegar eru komnar upp stöðvar hjá Tjörninni, Ráðhúsinu, Ingólfstorgi, Hörpu, Safnahúsi, Hnitbjörgu, Vest- urgötu, Kvosinni, Hallgrímskirkju, Hlemmi og við Höfðatorg. Stæðin verða gjaldskyld „Það er verið að sníða reglugerð innan borgarinnar um gjaldskyldu en rútustæðin verða gjaldskyld,“ segir Hildur. Það verði unnið í samráði við hagsmunaaðila og ferðaþjónustunni gefið færi á að venjast notkun stæð- anna áður en gjaldskyldan hefst. Þá er gert ráð fyrir að hver rúta stoppi aðeins í fimm mínútur á stoppistöðinni. „Það var ósk frá rútu- fyrirtækjum sem töluðu um að fimm mínútur væri hentugur tími,“ bætir hún við en hugmyndin sé sú að ferða- menn séu mættir á stoppistöðina þegar rútan komi og séu því tilbúnir. „Bara eins og þegar þú tekur strætó.“ Helstu kvartanir íbúa hafa lotið að því að rútur séu lengi í lausagangi að bíða farþeganna og er verið að stemma stigu við því með tímamörk- unum. Þörf á betri merkingum „Til að þetta nýtist almennilega þá finnst okkur að það mætti ganga ör- lítið lengra og merkja þetta betur en við höfum rekið okkur á að stæðin séu full af venjulegum og bílaleigu- bílum,“ segir Einar Bárðarson, rekstrarstjóri Ferðaskrifstofu Kynn- isferða, um nýjar rútustoppistöðvar borgarinnar. Telur hann rúturnar ekki þurfa lengri tíma en fimm mínútur í stæð- inu hverju sinni en Kynnisferðir hafi einnig verið í samstarfi við hótel og gistiheimili svo ferðamaðurinn mæti þeim á miðri leið. „Þannig styttum við stoppin okkar og gætum að innri þolmörkum samfélagsins.“ Morgunblaðið/Ófeigur Rútustoppistöð Borgin hefur hafist handa við að merkja stæði fyrir hópferðabíla á tólf stöðum í miðborginni. Rútur stytta stoppin í sérmerktum stæðum  Vilja draga úr umferð hópferðabíla um þröngar íbúðagötur Útsalan í fullum gangi Lytos X-Climb Útsöluverð 9.998 Verð áður 24.995 Stærðir 36-46 Leður Tepor dry filma veitir 100% vatnsheldni Sóli: Vibram Innsóli: Ortholite Þyngd: 443gr (í stærð 42) SMÁRALIND www.skornirthinir.is Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Buxna- leggings kr. 5.900 Str. S-XXL Laugavegi 53 | Sími 552 3737 www.dimmalimmreykjavik.is Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 DIMMALIMM Útsalan er hafin - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.