Morgunblaðið - 05.07.2016, Síða 24

Morgunblaðið - 05.07.2016, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 ✝ Jón AðalsteinnJónsson fædd- ist á Halldórsstöð- um í Reykjadal 9. janúar 1925. Hann lést á dvalarheim- ilinu Hlíð, Akur- eyri, 18. júní 2016. Foreldrar hans: Jón Friðriksson, f. 25. nóvember 1899, d. 30. júlí 1990, og Friðrika Sigfús- dóttir, f. 5. mars 1896, d. 10. mars 1971. Systkini hans voru Sigrún, f. 1923, látin, Sigríður, f. 1928, látin, Valgerður, f. 1929, hún býr á Hömrum í Reykjadal, Unnur, f. 1933, lát- in, Þórdís, f. 1934, látin. Eiginkona hans er Elín Inga Jónasdóttir f. á Helluvaði, Mý- vatnssveit, 29. október 1934. Foreldrar hennar voru Jónas Sigurgeirsson, f. 4. desember 1901, d. 18. október 1996, og Hólmfríður Ísfeldsdóttir, f. 16. júlí, d. 22. ágúst 1996. Fósturdóttir Jóns og dóttir Elínar Ingu er Bryndís Arna einn son, Úlf Má. Börn Hinriks og Kolbrúnar eru Kolbjörg Katla, hennar sambýlismaður er Daníel S. Magnússon og á Kolbjörg einn son, Hinrik Pál, Jóndís Inga og Sæþór Már. Friðrik Þór, f. 4. nóvember 1972. Sambýliskona hans er Sigríður Skarphéðinsdóttir, f. 17. desember 1970. Börn Frið- riks eru Silja Rún og Sunna Sif. Jón Aðalsteinn, Nóni eins og hann var venjulega kallaður, fæddist á Halldórsstöðum í Reykjadal og bjó þar fyrstu þrjú árin, síðan á Hömrum í Reykjadal. Hann kvæntist El- ínu Ingu, eða Ingu eins og hún er ævinlega kölluð, 26. desem- ber 1967. Bjuggu þau á Laug- um, lengst á Hólavegi 4 „Hellubæ“ þangað til þau flutt- ust á Mýrarveg 111 á Akureyri haustið 2012. Hann vann við bústörf á Hömrum, ýmis störf á veturna, t.d. starfsmaður á Kleppi, hjá hernum á Keflavíkurvelli, kokkur á sjó en lengst af við múrverk í fjöldamörg ár þang- að til hann tók við húsvörslu Íþróttahússins á Laugum 1986, þar sem hann vann til starfs- loka. Útför hans fer fram frá Gler- árkirkju í dag, 5. júlí 2016, klukkan 13.30. Reynisdóttir, f. 19. september 1961. Börn Bryndísar og Guðjóns Guðlaugs- sonar eru Davíð Ingi, hans sam- býliskona er Katr- ín Fjeldsted, sonur hennar Gunnar Elías, Elísabet Ýr og Reynir Már. Nú- verandi sambýlis- maður hennar er Garðar Ægisson, f. 30. ágúst 1957. Börn Garðars eru Stefán Ragnar, Ægir, Sigurður Þór, Helga Björg og Aron Freyr. Barnabörnin eru tvö, Nadía Mist og Garðar Ingi. Synir Jóns og Elínar Ingu eru Hinrik Már, f. 29. nóvember 1967. Sambýliskona hans er Kolbrún María Sæmundsdóttir, f. 24. mars 1966. Börn Hinriks fyrir sambúð eru Hafliði, hans sambýliskona er Sunna K. Jóns- dóttir og eiga þau tvo syni, Elmar Nóna og Erni Mána, og Rakel, hennar sambýlismaður er Jón Þ. Reynisson og eiga þau Elsku Nóni afi. Ótal minningar og myndir renna um hugann og veita mér yl. Eitt er það þó sérstaklega, sem grípur mig, og mig langar að þakka þér fyrir. Samt var það kannski ekki stórmál í þín- um augum, vegna þess að það var þér eðlislægt. Í hvert ein- asta skipti sem ég hitti þig (sama þó það væri kannski í annað eða þriðja skipti sama daginn), þá heilsaðir þú mér eins og ég væri mikilvægasta manneskjan sem gengi þessa jörð. Að gefa svona innilega og elskulega af sér er ekki algengt og ég fylltist hamingju og stolti í hvert einasta sinn. Þakklætið fyrir að fá að vera afastelpan þín mun ekki dvína svo lengi sem ég lifi. Eftir þú lætur mér loga í hjarta. Þann sama er lifði í brjósti þér. Farinn, en lifir, um framtíð bjarta, í okkur og blænum sem hlýjar mér. (RH) Elska þig. Rakel Hinriksdóttir. Hæ afi, ég veit ekki hvort Morgunblaðið er sent upp til himna, en hvort sem það er sent eða ekki þá veit ég að þú munt sjá þetta. Elsku afi minn, sama hvers ég óska mér og hversu oft ég klíp í mig í von um að þetta sé bara draumur og að ég muni vakna eftir smá stund er ekkert sem ég get gert til að fá þig til baka. En ég ætla samt að þakka fyrir allar stundirnar sem ég átti með þér, sem voru góðar. Þú varst til dæmis einn af þeim fáu sem gátu kitlað mig þangað til ég pissaði næstum í mig, og þegar ég kitlaði þig kom fyndnasti hlátur í heimi sem ég mun aldr- ei gleyma. Og öll ólsen ólsen- spilin sem við spiluðum. Ég átt- aði mig aldrei á því hvernig þú fórst að því að vera svona fljót- ur í hugarreikningi og muna alltaf hvert ég var komin í spilinu áður en ég sprakk í sprengju-ólsen, sem er örugg- lega skemmtilegasta spil sem ég hef spilað. Ég ætla nú ekki að þylja upp allar skemmtilegu stundirnar okkar, enda myndi það taka heila bók. Afi minn, ég vil bara að þú vitir að ég elska þig og mér þykir rosalega vænt um þig og þú varst og ert besti afi sem hugsast getur og lofaðu mér einu, að þótt það sé fjör á himnum, aldrei gleyma mér því ég mun aldrei nokkurn tímann gleyma þér, afi. Þótt ég sjái þig ekki mun ég alltaf sjá þig fyrir mér í stólnum þínum skellihlæj- andi og hressan eins og þú varst alltaf. Og mundu að þú fórst ekki einn, þú tókst hluta af hjörtum okkar með þér, afi minn. Sunna Sif Friðriksdóttir. Elsku, elsku afi minn. Það er sárt að geta aldrei spjallað við þig aftur. En ég er þakklát fyrir síðasta spjallið okkar. Og öll þar á undan. Það er sárt að geta aldrei knúsað þig aftur. En ég er þakklát fyr- ir síðasta knúsið okkar. Og öll þar á undan. Það er sárt að geta aldrei kúrt með þér aftur. En ég er þakklát fyrir síðasta kúrið okkar. Og öll þar á und- an. Það er sárt að fá aldrei aft- ur koss frá þér á kinnina mína. En ég er þakklát fyrir síðasta kossinn frá þér. Og alla þar á undan. Það er samt kannski ekki rétt að segja að ég geti aldrei spjallað við þig aftur, aldrei knúsað þig aftur, aldrei kúrt með þér aftur og aldrei fengið koss frá þér aftur. Því ef ég vil nálgast þessa hluti aftur, þá þarf ég bara að loka augunum, hugsa til þín og þá mun ég finna fyrir þér í hjartanu mínu, afi minn. Og það get ég gert hvar sem er, hvenær sem er. Þú og orðið ást voruð eitt. Þú ert mín fyrirmynd í mörgu, en sérstaklega þegar kemur að ást. Þú komst eitt sinn til mín og sagðir „þú verður að velja vel“. Ég vissi ekki alveg hvert þú varst að fara. Svo kom hjá þér „eins og ég“ og bentir á ömmu. Þetta voru ekki mörg orð. En mikil voru þau. Á þessu augnabliki setti ég mér það markmið að elska eins og þú afi. Ég ætla að elska eins og þú elskaðir ömmu. Ég ætla að elska börnin mín eins og þú elskaðir börnin þín. Ég ætla að elska barnabörnin mín eins og þú elskaðir barnabarnabörnin þín. Ég ætla að elska barna- barnabarnabörnin mín eins og þú elskaðir barnabarnabarna- börnin þín. Því ef þú elskaðir eitthvað, þá elskaðirðu það af öllu þínu hjarta. Og hjartað þitt var svo stórt og fallegt að það var nóg pláss fyrir mikla ást. Þú kenndir mér að það mik- ilvægasta í lífinu er að elska. Að elska og vera elskaður er það sem gerir okkur rík. Takk fyrir að kenna mér það og allt hitt sem þú hefur kennt mér. „Ég elska þig, afi minn“ voru mín síðustu orð til þín. „Og ég elska þig“ voru þín síðustu orð til mín. Þú og ég afi, þú og ég. Söngur þinn hljómar ekki lengur í eyrum okkar, afi, en hann hljómar í hjörtum okkar allra og það mun hann ætíð gera. Þín litla nafna, Jóndís Inga Hinriksdóttir. Lítil stelpa hendist upp tröppurnar og inn um dyrnar í Hellubæ. Inni blasir við bakið á afa sem stendur við vaskinn. Söngur karlakórs ómar um húsið og undir tifar veggklukk- an stóra. Við erum loksins kom- in til Ingu ömmu og Nóna afa á Laugum, þar sem alltaf var hægt að finna upp á einhverju nýju til að gera: Hlaupa upp í heiði, söðla steinana í garðinum og fara í útreiðartúr á þeim, brasa í kjallaranum, lífga við fugla eða bara hanga í snúr- ustaurnum. Svo ótalmargt brölluðum við og alltaf var afi að fylgjast með eða brasa með okkur og segja okkur sögur af sér og sínum hetjudáðum. Mér fannst a.m.k. allt sem hann gerði vera hetjudáð. Og minn- ingarnar um afa eru svo ótal- margar og myndirnar í huga mér um hann eru einnig marg- ar, en undir þeim öllum hljóm- ar karlakór, hann situr og rýnir í Hraunkotsættina eða Byggðir og bú eða hann situr með mér og raular eitthvert lag og segir mér sögur inn á milli. Sterk er einnig myndin af honum við eldhúsvaskinn eða við eldavél- ina að sjóða hafragraut í morg- unverð. Þessi tilteknu dæmi held ég mikið upp á. Hann var mikill fjölskyldu- maður og unni allri fjölskyld- unni heitt. Hann hafði einstakt lag á okkur barnabörnunum og í seinni tíð á langafastrákunum sínum. Ef við systkinin vorum þreytt og pirruð eftir langan dag og erfitt að ná sér niður var yfirleitt nóg að setjast í fangið á afa og það færðist ró yfir allt. Hann sönglaði kannski einhverja vísu og hélt þétt ut- anum okkur. En hann var þó yfirleitt til í grínið líka og hann kunni lagið á okkur. Ég veit ekki hversu oft ég reyndi að Jón Aðalsteinn Jónsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi. Það verður einmanalegt hérna án þín en við vitum öll að þú verð- ur hérna með okkur allan tímann, að fylgjast með okkur og leiðbeina okkur. Þú ert eins og tunglið, sama hversu mikið myrkur er nærð þú alltaf að skína. Þín verður sárt saknað. Silja. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, SÓLMUNDUR JÓNSSON frá Ársól, Akranesi, Lóulandi 7, Garði, lést á heimili sínu miðvikudaginn 29. júní. Útförin fer fram frá Útskálakirkju miðvikudaginn 6. júlí klukkan 13. . Sigríður Stephensen, Ingibjörg Sólmundardóttir, Loftur Sigvaldason, Sigrún Sólmundardóttir, Haraldur Magnússon, Sigurborg Sólmundardóttir, Hans Wíum, Jón Sólmundarson, Sigurbirna Ágústsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, JÓHANNA TRAUSTADÓTTIR POULSEN, lést á Landsjúkrahúsinu í Þórshöfn, Færeyjum, þriðjudaginn 28. júní. Jarðarförin fór fram í Færeyjum, laugardaginn 2. júlí. . Sjúrður Poulsen, María K. Jónsdóttir, Guðlaugur Bergmundsson, Kári Guðlaugsson. Elsku besti pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, FINNBOGI GÍSLASON, fyrrverandi skipstjóri, lést á Landspítalanum í faðmi fjölskyldunnar þann 29. júní sl. Útförin verður gerð frá Neskirkju 8. júlí klukkan 15. . Kristín Finnbogadóttir, Axel Friðriksson, Sigurður Finnbogason, Herdís Finnbogadóttir, Ólafur G. Guðlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, ANNA LOVÍSA JOHANNESSEN, Vesturgötu 41, Reykjavík, lést á Landspítalanum 4. júlí. Útförin verður auglýst síðar. . Jóhannes Johannessen, Laufey Johannessen, Ólafur Garðarsson, Haraldur Johannessen, Svava Björk Hákonardóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, MAGNÚS SNÆLAND SVEINSSON, áður til heimilis að Fjarðarseli 4, Reykjavík, nú, Smyrilshólum 4, Reykjavík, lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi aðfaranótt 30. júní. . Lilja M. Sigurvinsdóttir, Kristjana Magnúsdóttir, Guðmar S. Magnússon, Tómas Gísli og Esmeralda Lísa Sveinbjörnsbörn, systkini og vinir hins látna. Bróðir okkar, VIGFÚS F. JÓNSSON, fyrrverandi fangavörður, Boðaþingi 8, Kópavogi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans 29. júní. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 8. júlí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. . Herdís, Jónía, Þorbjörn og Erla Jónsbörn. Ástkær móðir, amma, langamma og langlangamma, HALLDÓRA MÁRUSDÓTTIR, Bræðraborg, Hofsósi, lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, síðastliðinn laugardag. Útförin fer fram frá Hofsóskirkju föstudaginn 8. júlí klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir. Fyrir hönd aðstandenda, . Sigurður Ingólfsson og Ingólfur H. Kristjánsson Bróðir okkar, mágur og frændi, HALLGRÍMUR SYLVERÍUS HALLGRÍMSSON, Bræðraborgarstíg 55, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Háskólasjúkrahússins í Stavanger fimmtudaginn 23. júní. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 8. júlí kl. 13. . Kristín Hallgrímsdóttir, Helgi Már Alfreðsson, Gísli Hallgrímsson, Hrefna Andrésdóttir, Gunnar Hallgrímsson, Helga Hallgrímsdóttir, Júlíus Aðalsteinsson, Guðrún Hallgrímsdóttir, Alfreð Hallsteinsson, Ásgeir Hallgrímsson, Rósa Marteinsdóttir og systkinabörn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.