Morgunblaðið - 05.07.2016, Side 25
taka út úr mér tennurnar eins
og hann gerði.
Hann var gríðarlega stoltur
af öllum sínum afkomendum og
fylgdist vel með öllu sem gerð-
ist hjá okkur og hafði mikinn
áhuga á okkar áhugamálum.
Hann spurði mikið og hafði
gaman af að fá að taka þátt og
verða vitni að sigrum okkar á
hinum ýmsu sviðum.
Nóni afi var miklu meira en
afi minn. Hann var einn af mín-
um bestu vinum. Við þurftum
ekkert endilega að tala þó við
værum saman. Það var nóg að
sitja bara hjá honum eða fá eitt
af hans þéttu og traustu faðm-
lögum og ég vissi að það yrði
allt í lagi.
Ég er þakklát fyrir þennan
síðasta vetur sem við áttum
saman þegar ég bjó loksins
svona nálægt honum og ömmu.
Við spjölluðum um ýmislegt og
áttum margar gæðastundir og
Hinrik kynntist honum vel og
hann var alltaf svo ánægður
með Nóna, afa sinn.
Síðustu daga hefur verið gott
að fara til ömmu, skoða myndir,
rifja upp gamlar minningar og
vera í faðmi fjölskyldunnar eins
og afa leið best. Auðvitað er
skrýtið að afi sé ekki þar í
stólnum sínum en samt hef ég
fundið svo sterkt fyrir nærveru
hans að ég veit að hann er þar
og fylgist með okkur. Og ég
veit líka að hann mun alltaf
fylgjast með okkur úr Para-
dísarlandi þar sem hann ríður
nú um grænar grundir og syng-
ur og dansar eins og honum
einum var lagið á meðan við
yljum okkur við minningarnar
af honum syngjandi og dans-
andi með okkur hérna á þessari
jörð.
Takk fyrir allt afi. Sjáumst
seinna.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(GGH)
Þín,
Kolbjörg.
Þá ertu farinn frá okkur,
frændi kær, þú varst orðinn vel
fullorðinn en söknuðurinn er
samt svo sár. Margar eru minn-
ingarnar þar sem við bjuggum
á sama heimili mín bernskuár,
en þú varst ekki maður margra
orða svo ég stikla á stóru. Ein
minning er alveg greypt í huga
mér, þegar þú slasaðist á
íþróttamóti á Laugum – það
sem mér fannst það hryllilegt.
Þú varst góður íþróttamaður og
mikill áhugamaður um allar
íþróttir, hvattir mig og styrktir,
stattu þig, stelpa, voru þín orð.
Þegar þú komst heim frá Am-
eríku eftir að hafa unnið þar
um tíma fannst mér þú vera
svo frægur bara eins og allir
þessir leikarar sem voru þaðan
og ekki skemmdi allt sælgætið
og ameríska tyggjóið, maður
minn hvað það var mikil hátíð.
Að dansa við þig var alveg há-
punkturinn enda dansherra
góður, stríðinn varstu en ég lét
þig nú yfirleitt ekki eiga hjá
mér, eins og þegar þú sagðir
við mig: haha greyið, kemst
ekki á landsmótið, átt ekki fyrir
búningi – þú gefur mér hann þá
bara svaraði ég og það gerðir
þú eins og ýmislegt fleira. Þú
varst svo hamingjusamur og
montinn þegar þú sýndir mér
frumburðinn þinn, ég gleymi
aldrei hvað þið Inga geisluðuð
af hamingju. Ég er þakklát fyr-
ir svo margt, elsku Nóni minn,
ekki síst samverustund okkar í
fyrrasumar þar sem við tjáðum
hvort öðru tilfinningar okkar.
Minning þín lifir.
Elsku Inga, Bryndís, Hinrik,
Friðrik og fjölskyldur, elsku
mamma mín og aðrir aðstand-
endur, ég votta ykkur mína
dýpstu samúð og bið minn æðri
mátt að styrkja og styðja okkur
nú og ætíð.
Guðrún Arnhildur
Benónýsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016
Félagsstarf eldri borgara
Boðinn Þriðjudagur: Handavinnustofan opin frá 9-15 og bridge og
kanasta kl 13.
Garðabæ Bútasaumur kl.13. Bónusrúta kl.14.45, heitt á könnunni í
Jónshúsi frá kl .9.30, meðlæti selt með síðdegiskaffinu frá kl.14-15.50.
Gullsmári Myndlist kl. 9, Ganga kl. 10, Kanasta kl. 13.
Hárgreiðslustofa og Fótaaðgerðastofa á staðnum, Allir velkomnir!
Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi
og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi
kl. 9.45, matur kl. 11.30. Kaffi kl. 14.30, fótaaðgerðir, hársnyrting.
Púttvöllurinn er opinn á opnunatíma stöðvarinnar,
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45, upplestur
kl.11, ganga m.starfsmanni kl.14. Uppl í s 4112760
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl.07:15.
Tölvunámskeið í Valhúsaskóla kl.10:00. Kaffispjall í króknum kl.10:30.
Botsía í salnum í Gróttu 13:30.
Vitatorg Spilum félagsvist í dag Allir eru velkomnir
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
Mikið úrval
Póstsendum
Hlýtt í
ferðalagið
Ullar- og
silki-
nærfatnaður
Teg: 6054 Mjúkir og þægilegir
„ballerínuskór“ úr leðri og skinn-
fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 36 - 42
Verð: 13.950.-
Teg: 6054 Mjúkir og þægilegir
„ballerínuskór“ úr leðri og skinn-
fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 37 - 42
Verð: 13.950.-
Teg: 6053 Mjúkir og þægilegir
„ballerínuskór“ úr leðri og skinn-
fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 36 - 42
Verð: 14.685.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
lokað á laugardögum í sumar.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Raðauglýsingar
✝ Gróa Svan-heiður Árna-
dóttir fæddist á
Hverfisgötu 40 13.
apríl 1930. Gróa
lést 19. júní 2016 á
Hrafnistu þar sem
hún dvaldi síðustu
árin.
Hún var einka-
barn hjónanna Jón-
ínu Ingibjargar
Jónsdóttur, f. 23.7.
1896, d. 6.10. 1954, og Árna
Teitssonar, f. 18.11. 1886, d.
2.3. 1964.
Gróa var gift Páli Ingimars-
syni, f 25.11. 1928, d. 11.12.
1996. Þau skildu. Börn þeirra
eru: 1) Ingibjörg Pálsdóttir, f.
26.11. 1951, hennar maður er
Kjartan Kjartansson, f. 3.10.
1947. Börn þeirra
eru Soffía Sig-
urrós, Þór og Árni
Már. Þór lést í
frumbernsku 1977.
Kjartan á eina
dóttur af fyrra
sambandi, Önnu. 2)
Árni Pálsson, f.
18.4. 1960, og hans
kona Þuríður G.
Ingvarsdóttir, f.
30.6. 1956, þeirra
dóttir er Alma Hrund. Barn
Árna af fyrra sambandi er Elí-
as Ingi og dætur Þuríðar af
fyrra sambandi eru Margrét
Bettý og Jóhanna Björg. Barna-
barnabörnin eru orðin 14.
Gróa verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 5.
júlí 2016, klukkan 13.
Elsku amma.
Ég mun aldrei gleyma tíman-
um sem við eyddum saman þeg-
ar ég var yngri. Göngutúrunum
um Hafnarfjörð þar sem þú
sagðir mér hvar hinir og þessir
höfðu búið, þó að ég hefði oftast
ekki hugmynd um hverjir það
væru. Endalausum ferðum í
Kolaportið í strætó, það var
sjaldnast nokkuð keypt, þar sem
við fórum bara til að finna af-
mælisdiskinn minn. Ég gleymi
aldrei hvað þú varst rígmontin
þegar ég kom í heimsókn eftir að
þú fannst hann. Þú varst svo
stolt af því að vera komin með
alla diskana fyrir fæðingarár
allra barnabarnanna þinna. Ég á
minn ennþá.
Það er þér og Kolaportsferð-
unum okkar að þakka að ég lærði
á strætókerfið sem hefur bjarg-
að mér oftar en einu sinni.
Ég mun sakna þess að spila
við þig rommí, þótt að allir hafi
sagt að þú hafir svindlað þá tók
ég aldrei eftir því.
Ég elska þig og sakna þín.
Alma Hrund Árnadóttir.
Gróa Svanheiður
Árnadóttir
✝ Þórný Jóns-dóttir fæddist
á Reyni í Mýrdal 7.
september 1954.
Hún lést á Líknar-
deild Landspítal-
ans í Kópavogi
þriðjudaginn 28.
júní 2016.
Foreldrar henn-
ar eru Jón Sveins-
son fæddur 2. apríl
1927 og Erla Páls-
dóttir fædd 9. september 1929.
Systkini Þórnýjar eru 1)
Páll, fæddur 12. apríl 1953.
Hann á þrjá syni og fimm
barnabörn. Maki M. Sigríður
Jakobsdóttir. 2) Margrét, fædd
17. febrúar 1956. Maki Sig-
urjón Árnason. Þau eiga þrjá
syni og fimm barnabörn. 3)
Sigurlaug, fædd 17. júní 1957.
Maki Ólafur Helgason. Þau
eiga 3 börn og sex barnabörn.
4) Sveinn, fæddur 1. nóvember
1959. Maki Jóna Svava Karls-
dóttir. Þau eiga fjögur börn og
þrjú barnabörn. 5) Jónatan
Guðni fæddur 27.
júlí 1962. Maki
Valgerður Guð-
jónsdóttir. Þau
eiga þrjú börn og
eitt barnabarn. 6)
Guðrún, fædd 25.
júlí 1963. Hún á
þrjú börn. Maki
Jón E. Einarsson.
7) Einar, fæddur
28. mars 1965.
Maki Ágústa Bárð-
ardóttir. Þau eiga tvö börn. 8)
Guðbjörg, fædd 18. febrúar
1968. Maki Gauti Gunnarsson,
látinn 15. nóvember 2013. Þau
eiga fjögur börn.
Þórný ólst upp í foreldra-
húsum á Reyni í Mýrdal. Fimm-
tán ára gömul fluttist hún að
Sólheimum í Grímsnesi, þar
sem hún átti heima til æviloka.
Þar var hún virkur þátttakandi
í samfélaginu og vann ýmis
störf svo sem í garðyrkju og á
vefstofu. Haustið 2015 greind-
ist hún með krabbamein sem að
lokum dró hana til dauða.
Kveðja frá íbúum Sólheima
Okkar góða vinkona, Þórný
Jónsdóttir, er fallin frá, einstök
kona sem hefur í áratugi verið stór
hluti af lífi okkar á Sólheimum.
Sterkur persónuleiki sem vissi
hvað hún vildi og vildi ekki. Þórný
hefur alla tíð gengið til allra verka,
hvort sem það var í skógrækt, við
hannyrðir eða við kertagerð. Hún
tók þátt í starfi íþróttafélagsins,
skátafélagsins og leikfélags.
Ferðir innanlands og til út-
landa, það skipti ekki mál hvað var
gert, ávallt var Þórný glæsileg,
brosmild og stutt var í hláturinn
og þegar Þórný hló þá var það
smitandi.
Þegar Þórný fór að tala um
Reyni í Mýrdal, þaðan sem hún
var, þá breyttist Þórný í per-
sónuna Mimmu og talaði um sína
vönduðu foreldra, um hundinn
sem hún átti heima og um öll dýr-
in.
Síðustu mánuði glímdi Þórný
við erfið veikindi og tókst á við þau
af æðruleysi, við söknum vinkonu
okkar.
Við minnumst Þórnýjar með
þakklæti og söknuð í huga og biðj-
um góðan Guð að blessa hana og
varðveita. Aðstandendum vottum
við innilega samúð.
Fyrir hönd íbúa Sólheima,
Guðmundur Ármann
Pétursson.
Þórný Jónsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar