Morgunblaðið - 05.07.2016, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 187. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. „Svik, skipulagsleysi og …
2. Fowler sendi Eiði Smára skilaboð
3. Miðarnir komu ekki frá UEFA
4. Konur landsliðsmanna með …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Munnhörpuleikarinn Þorleifur
Gaukur og bassaleikarinn Colescott
Rubin koma fram á tónleikum Jazz-
klúbbsins Múlans á Björtuloftum
Hörpu í kvöld kl. 21. Með einstakri
hljóðfæraskipan kanna þeir heim
djassstandardanna með músíkalskar
samræður í fyrirrúmi.
Þorleifur Gaukur
og Rubin á Múlanum
Gítarleikarinn
Arnaldur Arnar-
son kemur fram á
fimmtu og síð-
ustu tónleikunum
í tónleikaröðinni
Þriðjudagskvöld í
Þingvallakirkju í
kvöld kl. 20. Á
efnisskránni eru
verk eftir m.a. Gaspar Cassadó, Toru
Takemitsu, Þorstein Hauksson og
Mario Castelnuevo-Tedesco. Tónleik-
arnir standa í um klukkustund og er
aðgangur ókeypis en frjáls framlög
vel þegin.
Arnaldur leikur á
gítar í Þingvallakirkju
Jón Stefánsson organisti hefði orð-
ið sjötugur í dag hefði hann lifað. Eins
og fram kom í blaðinu í gær efna vinir
hans til söngstundar í félagsheimilinu
Skjólbrekku í Mývatnssveit í kvöld kl.
20. Á sama tíma verð-
ur blásið til söng-
stundar í Lang-
holtskirkju, fyrir
þá sem staddir
eru í höfuðborg-
inni. Ættjarðarlög
verða sungin og eru
allir hjartanlega vel-
komnir.
Jóns einnig minnst
í Langholtskirkju
Á miðvikudag Breytileg átt 3-8 eða hafgola. Bjart með köflum en
líkur á síðdegisskúrum, einkum sunnanlands. Hiti víða 9 til 15 stig.
Á fimmtudag Norðaustlæg átt, 3-8. Skýjað að mestu norðaustan-
og austanlands en annars bjartviðri. Hiti 6 til 18 stig, hlýjast SV-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Breytileg átt 3-8, skýjað með köflum eða
bjartviðri, en sums staðar skúrir síðdegis. Hiti 6 til 17 stig.
VEÐUR
ÍBV og Þór/KA voru tvö
fyrstu liðin til þess að
tryggja sér sæti í undan-
úrslitum Borgunarbikarsins
í knattspyrnu kvenna í gær.
ÍBV vann stóran sigur á liði
Selfoss á sama tíma og
Þór/KA vann Fylki með
minnsta mun, 1:0.
Íslandsmeistarar FH eru
einnig öruggir um sæti í
undanúrslitum bikarkeppni
karla. Þeir unnu lánlausa
Þróttara, 3:0. »2
ÍBV og Þór/KA
í undanúrslit
„Það er náttúrulega búið að ræða
það aðeins á síðasta ársþingi sam-
bandsins og það er alveg ljóst að
peningarnir munu skila sér til baka til
hreyfingarinnar á einn eða annan
hátt. Nú eru fram undan löng upp-
gjörsmál,“ segir Klara Bjartmarz,
framkvæmdastjóri KSÍ,
sem hefur eins og
aðrir starfsmenn
Knattspyrnu-
sambandsins
verið í miklum
önnum í kringum
EM í fótbolta í
Frakklandi síð-
ustu vikur. »4
Hreyfingin mun njóta
góðs af velgengninni
Leikstjórnandi Íslandsmeistara
tveggja síðustu ára í handboltanum,
Gróttukonan Eva Björk Davíðsdóttir,
hefur skrifað undir samning við
norska úrvalsdeildarliðið Solna
Håndbold. Eva Björk verður þar með
fjórða íslenska handboltakonan til
þess að leika í norsku úrvalsdeildinni
á næsta keppnistímabili. Hún segir
draum vera að rætast. »1
Eva Björk leikur í Noregi
á næsta keppnistímabili
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Áhöfnin á Húna II er nú stödd í
Færeyjum, þar sem norrænir
strandmenningardagar verða
haldnir í vikunni. Ákvað áhöfnin að
koma til hafnar fyrr en áætlað var
svo hægt væri að horfa á leikinn
mikilvæga við Frakka og munaði
litlu að áhöfnin næði upphafsspark-
inu. „Við komum til Klakksvíkur
kortéri fyrir leik og var boðið í
heimahús hjá vini til að horfa á leik-
inn,“ segir Þorsteinn Pétursson,
betur þekktur sem Steini Pje, en
hann er varaformaður Hollvina-
samtaka Húna II.
Steini segir að Færeyingarnir
hafi allir verið á bandi Íslands. „Það
er gaman að koma hingað til Fær-
eyja, þeir eiga svo mikil tengsl við
Ísland, og greinilega mikill hlý-
hugur gagnvart Íslendingum.“
Hann bætir við að við sem þjóð get-
um staðið stolt upp frá leiknum þó
að úrslitin hafi ekki verið okkur
hliðholl. „Auk þess sem við áttum
inni eitt víti!“ segir Steini og hlær.
Þéttskipuð dagskrá
Dagskráin hjá Húna II er þétt
skipuð næstu daga, en áhöfnin stóð
í gærkvöldi fyrir kaffisamsæti í
Klakksvík, þar sem á boðstólum var
íslenska mjólkurkexið, kleinur og
annar þjóðlegur matur. Með í för
eru þau Þorvaldur Skaftason og
Erna Sigurbjörnsdóttir, en þau
forðuðu Húna á sínum tíma frá því
að enda á áramótabrennu. Þau
munu syngja og spila íslensk sjó-
mannalög og segir Steini að þeir
sem geti muni taka undir, og
kannski líka hinir. „Það yrði lítill
söngur í skóginum ef bara bestu
þrestirnir myndu syngja!“
Í dag verður svo lagt af stað til
Fuglafjarðar, þar sem aftur verður
slegið upp í veislu áður en lagt er af
stað til Þórshafnar, en þar verður
efnt til hópsiglingar með Fær-
eyingum og öðrum Norðurlanda-
þjóðum. Hin eiginlega strandmenn-
ingarhátíð hefst síðan á föstudaginn
í Vogum. Norræna strandmenn-
ingarhátíðin er árviss viðburður,
sem haldinn var í fyrsta sinn í
Húsavík árið 2011, en Norðurlanda-
þjóðirnar skiptast á að halda hana.
Þetta er í annað sinn sem Húni II
tekur þátt í hátíðinni, en báturinn
sigldi til Óslóar fyrir tveimur árum
og tók þátt í hátíðinni þar.
Mættum horfa til Færeyja
„Þarna hittist áhugafólk um
strandmenningu, skip og báta og
siglingar,“ segir Steini, en Íslenska
vitafélagið hefur haft veg og vanda
af þátttöku Íslands í hátíðunum.
„Þarna verður fólk að kynna breið-
firska menningu, meðal annars
bátasmiður frá Breiðafirði, og ýmis-
legt fleira verður um að vera,“ segir
Steini, sem á von á því að hátíðin
verði vel sótt. „Það er mikill áhugi á
öllu svona í Færeyjum, þeir lifa
mikið í gegnum þessa strand- og
bátamenningu og við mættum horfa
til þess hvernig þeir viðhalda stoltir
sögunni og menningunni,“ segir
Steini að lokum.
Náðu í höfn kortéri fyrir leik
Norrænni strand-
menningu hampað
í Færeyjum
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Áhöfnin á Húna II Norræn strandmenningarhátíð er nú haldin í fimmta sinn. Áhöfn Húna II er þar fulltrúi Íslands.
Húni II Skipið var smíðað á Akureyri árið 1963 og er 130 tonna eikarbátur.