Ægir - 01.01.2016, Side 16
16
Skipstjórar á Beiti NK eru
Sturla Þórðarson og Tómas
Kárason. Sá síðarnefndi var
hæstánægður með skipið og
fullur tilhlökkunar að reyna það
á veiðum þegar Ægir ræddi við
hann. Hjá fyrri eigendum var
skipið á veiðum á kolmunna,
síld, makríl og fleiru suðvestan
og sunnan við Írland.
„Þetta er auðvitað nánast
nýtt skip, enda hefur það aðeins
verið í rekstri í eitt ár. Til að
mynda hefur það ekki enn verið
reynt á nótaveiðum þannig að
slíkt verður fyrst reynt hér á Ís-
landsmiðum,“ segir Tómas en
hann segir stærðina auðvitað
stærstu viðbrigðin frá eldri Beiti.
„Já, skipið er talsvert stærra
og allur búnaður um borð er
mjög öflugur. Sem dæmi þá eru
þrjár flottrollstromlur á móti
tveimur á hinu skipinu, hér eru
tveir nótaleggjarar á móti ein-
um á því skipi, spilin eru líka
mjög kraftmikil samanborið við
það sem við þekktum áður. Síð-
an erum við með síðutromlu á
þessu skipi en afla er dælt frá
síðu, tvöfalt RSW kælikerfi,
tækjabúnaður í brú er mjög öfl-
ugur, þrjú astik og þannig
mætti áfram telja. Í stuttu máli
er hægt að segja að hér um
borð sé yfirstærð af öllu þannig
að það er ekki bara stærðin á
skipinu sjálfu sem skiptir máli
heldur ekki síður hversu vel það
er búið,“ segir Tómas en segja
má að það eina sem þurfti að
gera var að taka veiðarfæri um
borð en þau koma frá Hampiðj-
unni.
Engin köll eða handapat!
Aðbúnaður fyrir áhöfn segir
Tómas að sé eins og best verð-
ur á kosið, stórir einstaklings-
klefar með salerni og sturtu.
Miðað er við að í áhöfn verði 8
manns þegar fiskað er í flottroll
og fjölgað um tvo menn á nót-
inni.
„Við komumst auðveldlega
af með þessa stærð af áhöfn þó
skipið sé stórt. Bæði er öllu
mjög vel fyrir komið um borð
gagnvart vinnuaðstöðunni og
síðan er hér um borð, líkt og í
eldra skipinu, kerfi sem gerir að
verkum að allir í áhöfn eru sam-
tengdir á talrás í gegnum
hjálmana þegar unnið er á
dekki. Inn á þá rás tengjumst
við í brúnni og þannig má segja
að við vinnum allir saman líkt
og við værum hér við borð uppi
í brú. Engin hróp og köll eða
handahreyfingar, brak eða
brestir eins og var í talstöðvun-
um. Í þessu felst mikið öryggi
fyrir alla um borð og léttir störf-
in mikið. Að mínu mati er þetta
eitt af stóru skrefunum í örygg-
ismálum sjómanna á síðustu ár-
Tækjabúnaður er af öflugustu gerð, hvert sem litið er um borð.
Í matsalnum. Miðað er við að 8 verði í áhöfn á togveiðum en 10 á nóta-
veiðum.
Vel búnir einstaklingsklefar með baðherbergi eru í skipinu.