Ægir - 01.01.2016, Blaðsíða 30
Japanski tækjaframleiðandinn Furuno Electrics hélt á dögunum
vikulangt námskeið hjá umboðsaðila sínum hér á landi, Brimrún
ehf., en það fyrirtæki var stofnað árið 1993 um sölu og þjónustu á
Furuno tækjum fyrir skip og báta. Til námskeiðsins boðaði Furuno
fulltrúa frá umboðsaðilum sínum í Evrópulöndum, auk starfs-
manna Brimrúnar hér á landi. Sveinn K. Sveinsson, sölustjóri Brim-
rúnar, segir mikil tímamót og viðurkenningu felast í því að fá slíkt
námskeið hingað til lands en meginefni þess var fræðsla um nýj-
ustu tækni í dýptarmælum og sónartækjum frá Furuno. Sveinn seg-
ir að þar séu á ferðinni þabyltingarkenndar framfarir, sér í lagi
hvað varðar möguleikana á stærðar- og tegundagreiningu á fiski.
„Námskeið sem þessi, þar
sem farið er djúpt í þá tækni
sem nýtt er í tækniþróun Fur-
uno, sækja einungis þeir sem
starfa við sölu og þjónustu á
Furuno í Evrópu en fyrir okkur
hjá Brimrún var auðvitað mjög
dýrmætt að því var valinn stað-
ur hér á landi og hjá okkur,“
segir Sveinn en leiðbeinend-
urnir frá Furuno voru Rika Shi-
raki og Masato Yamamoto sem
eru hátt sett í tækni- og vöru-
þróun japanska framleiðand-
ans.
Chirp-tæknin opnar nýja heima
Eins og áður segir var Furuno
með námskeiðinu hér á landi
að fylgja eftir nýjustu línu sinni í
dýptarmælum og sónartækj-
um. Aðalatriðið að baki þessari
kynslóð tækja er svokölluð
chirp-tækni sem nýtt er í
merkjasendingum frá botn-
stykkjum á skipunum en tíðni
þeirra og nákvæmni leggur
grunninn að þeim upplýsing-
um sem hægt er að lesa úr
merkjunum. Hvað hringsónar-
inn varðar fæst meiri nákvæmni
í upplýsingum um svæðið allt
umhverfis skipið og víðara svið
en tæknin nýtist ekki síður í
dýptarmælunum og getu þeirra
til að greina bæði fisktegundir
og stærð fisks með meiri ná-
kvæmni en í boði hefur verið
fram að þessu.
„Þessi senditækni auk fram-
þróunar í reiknigetu tölvubún-
aðarins, skjáupplausn og fleiru í
tækjunum, skilar þeim árangri
að hægt er að sjá mun betur
einstaka fiska, greina stærðir og
tegundir. Þetta á við um t.d.
greiningu á hlutfalli makríls og
síldar í torfum, svo dæmi sé tek-
ið og á botnfiskveiðum er hægt
að greina hvort um er að ræða
smáfisk eða ekki í fisktorfum.
Þessar upplýsingar skipta skip-
stjórnendur mjög miklu máli,“
segir Sveinn.
Furuno kynnti nýjustu tækni-
nýjungar sínar með námskeiði
hjá Brimrún á Íslandi
Rika Shiraki, annar tveggja leiðbeinenda frá Furuno á námskeiðinu í Brimrún, fer hér yfir tæknina og virkni nýju tækjanna frá japanska framleið-
andanum.
T
æ
k
in
í b
rú
n
n
i
30