Morgunblaðið - 30.07.2016, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 3 0. J Ú L Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 177. tölublað 104. árgangur
UMHYGGJA
OG BLÍÐA
Í HÖNNUN
YNGSTUR TIL
AÐ RJÚFA 200
FUGLA MÚRINN
ALEX Á STOKKSEYRI 12ÖLD BARNSINS 39
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fnjóskadalur Búist er við að hefðbund-
inn gangagröftur hefjist innan skamms
Enn stendur yfir gröftur í gegnum
misgengissprungu við Fnjóskadals-
stafn Vaðlaheiðarganga. Vatnsleki
hefur valdið töfum en Valgeir Berg-
mann, framkvæmdastjóri Vaðla-
heiðarganga, býst við því að hægt
verði að hefja hefðbundinn ganga-
gröft þeim megin ganganna seinni
hluta ágústmánaðar.
Gangagröftur Eyjafjarðarmegin
gengur á hinn bóginn sinn vana-
gang. Verktakar vinna einnig að því
að byggja upp veg frá Fnjóskárbrú
að gangamunnanum. Í þessum
áfanga verður aðeins unnið við und-
irlag vegarins en hann verður ekki
tengdur hringveginum að sinni.
Miklir haugar af efni sem ekið hefur
verið úr göngunum setja svip á um-
hverfið. »6
Hefðbundinn ganga-
gröftur geti hafist
seinni hluta í ágúst
Löggæslukostnaður
» Heimild er í lögum um inn-
heimtu löggæslukostnaðar
vegna skemmtana.
» Deilt er um lögmæti inn-
heimtu fyrir bæjarhátíðir.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Nokkuð misjafnt er eftir landshlut-
um hvort lögregla krefji sveitarfélög
um greiðslu löggæslukostnaðar
vegna bæjarhátíða. Sveitarfélög á
Suðurnesjum virðast ekki hafa verið
krafin um slíka greiðslu en ÍBV var
krafið um fjórar milljónir króna fyr-
ir löggæslu á síðustu Þjóðhátíð.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vest-
mannaeyja, segist mótfallinn þessu.
„Við erum mjög ósátt við að þetta
skuli leggjast svona þungt á bæj-
arhátíðir á landsbyggðinni, en þegar
um er að ræða hátíðir á stórhöfuð-
borgarsvæðinu, þá greiðir ríkið
það,“ segir Elliði. Þetta er nánast
eins og það væri rukkað fyrir heilsu-
gæslu á landsbyggðinni en ekki í
borginni.“
Akraneskaupstaður var til að
mynda jafnan krafinn um milljón
króna vegna löggæslu við Írska
daga, eða þar til lögregluembættin á
Vesturlandi voru sameinuð í eitt.
„Við náðum samkomulagi við nýja
lögreglustjórann um að við myndum
ekki greiða þennan kostnað,“ segir
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.
Ósamræmi hjá lögreglunni
Fjögurra milljóna króna krafist vegna löggæslukostnaðar á Þjóðhátíð Sveit-
arfélög á Suðurnesjum ekki krafin um greiðslu vegna hátíða á borð við Ljósanótt
M Innheimta án samræmis »4
Morgunblaðið/Golli
Forseti Ólafur Ragnar Grímsson hefur verið forseti
Íslands frá 1996. Guðni tekur við af honum á mánudag.
Embættistíð Ólafs Ragnars Grímssonar forseta spannar tvo
áratugi af lífi þjóðarinnar. Þegar hann var settur í embætti
1996 var Guðrún Katrín Þorbergsdóttir heitin honum við hlið
sem forsetafrú.
Þjóðin fékk síðar að kynnast Dorrit Moussaieff sem Ólafur
gekk að eiga 2003. Langri forsetatíð fylgja ótal augnablik sem
fest hafa verið á filmu. Í Sunnudagsblaði er farið yfir við-
burðaríkan feril Ólafs Ragnars Grímssonar í máli og myndum
en embættistíð hans lýkur formlega á miðnætti á sunnudag.
Þá taka handhafar forsetavalds við þar til kl.16 á mánudag
þegar Guðni Th. Jóhannesson tekur við embætti forseta Ís-
lands og sest í kjölfarið að á Bessastöðum ásamt eiginkonu
sinni, Elizu Reid, og börnum þeirra. »11 og Sunnudagur
Tuttugu ár á Bessastöðum
Ólafur Ragnar lætur af
embætti og Guðni tekur við
Hnúfubakur skemmti farþegum um borð í hvala-
skoðunarbátnum Níelsi Jónssyni suður af
Hauganesi við Eyjafjörð á dögunum. Hvalurinn
stökk í um klukkustund og lamdi sporði og
bægslum í hafið þess á milli. „Hann var bara um
þrjátíu metra frá okkur og stökk í heilan klukku-
tíma. Það var æðisleg stemning um borð,“ sagði
Bernódus Óli Einarsson, leiðsögumaður, sem tók
myndina.
Skemmti áhorfendum með sporðaköstum
Ljósmynd/Bernódus Óli Einarsson
Hnúfubakur sýndi sínar bestu hliðar í Eyjafirði
Veiði hefur
verið góð og fisk-
urinn vænn í
Laxá í Dölum í
sumar. Haraldur
Eiríksson leið-
sögumaður segir
sumarið hafa
verið ævintýri
líkast og á meðan
vatnsleysi hefur
háð flestum ám í
Dölum og á Vest-
urlandi hefur sá vandi ekki gert
vart við sig í Laxá. „Áin er í rosa-
lega góðu standi, hún er kjaftfull af
laxi,“ segir Haraldur. »14
Laxá í Dölum sögð
kjaftfull af laxi
Góð veiði Vel hef-
ur gengið í Laxá í
Dölum í sumar.
Í nýrri skýrslu sem innra eftirlit
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur
sent frá sér kemur fram að fyr-
irgreiðsla sjóðsins við nokkur ríki
innan Evrópusambandsins á síðustu
árum er mun meiri en við önnur og
vanþróaðri ríki. Þannig er það rakið
að á árunum 2011 til 2014 hafi 80%
alls þess lánsfjármagns sem sjóð-
urinn veitti til þeirra 189 ríkja sem
eiga aðild að honum runnið til
þriggja ríkja. Þar er um að ræða
Grikkland, Írland og Portúgal.
Þannig hafi stuðningur við hvert
þessara ríkja numið tuttugufaldri
þeirri fjárhæð sem kvóti stofnunar-
innar gerir ráð fyrir að þau eigi
rétt á. Reglur sjóðsins gera ráð fyr-
ir því að þegar þjóðríki njóti fyr-
irgreiðslu sjóðsins skuli hún aldrei
nema meira en tvöföldum kvóta yfir
hvert 12 mánaða tímabil og í heild-
ina sexföldum kvótanum yfir þann
tíma sem aðstoðin stendur yfir.
Í skýrslunni er útlistað hvernig
starfsmenn AGS hafi verið undir
pólitískum þrýstingi af hálfu Evr-
ópusambandsins og þeirra sem ljá
sjóðnum lánsfjármagn til aðgerða
sinna. »16
Evruríkin hafa notið
forgangs hjá AGS