Morgunblaðið - 30.07.2016, Síða 2

Morgunblaðið - 30.07.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Unglingalandsmót UMFÍ var sett á Skallagríms- velli í Borgarnesi í gær þegar Helgi Guðjónsson, íþróttamaður Borgarfjarðar 2015, tendraði landsmótseldinn við setningarathöfnina. Mótið hefur farið afar vel af stað og eiga mótshaldarar von á allt að tíu þúsund gestum. Landsmót sett í sól og blíðu í Borgarnesi Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Fjöldi keppenda og áhorfenda verða á Unglingalandsmóti UMFÍ um verslunarmannahelgina Jóhannes Tómasson johannes@mbl.is Tvö tilboð bárust mennta- og menn- ingarmálaráðuneytinu, annars vegar frá Tónlistarskóla Reykjavíkur og Tónlistarskóla FÍH, og hins vegar frá Tónlistarskóla Sigursveins og Tón- listarskóla Kópavogs, um að taka að sér rekstur á nýjum listframhalds- skóla á sviði tónlistar sem tekur til starfa í haust. Skólinn verður sá fyrsti sinnar tegundar. „Skólarnir sem skil- uðu inn tilboðunum eru allir í fullum rekstri og þeir sem við gerum samn- ing við halda sinni starfsemi áfram á nýjum grunni þó að formið breytist hjá þeim,“ segir Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra. Getið er um skólann í samkomulagi sem gert var 13. apríl á milli mennta- og menningarmálaráðuneytis, innan- ríkisráðuneytis og fjármálaráðuneyt- is af hálfu ríkisins og Sambands ís- lenskra sveitarfé- laga um stuðning við tónlistarnám. Annar þáttur samkomulagsins var að ríkissjóður myndi greiða ár- legt framlag til sveitarfélaga í verðtryggðan jöfnunarsjóð sem er dreift til tónlist- arskóla um allt land. Illugi segir að jöfnunarsjóðurinn muni halda sér. „Nú er gert ráð fyrir því að 200 nemendur fari í nýjan skóla, sem þýðir að framlagið fyrir hvern nemanda eykst þar sem ríkið tekur að sér 200 nemendur sem fá ekki úr jöfnunarsjóðnum.“ Búist er við því að nemendurnir komi víðs vegar að af landinu og fer kennslan fram á framhaldsstigi með áherslu á tónlistarkennslu. „Við ætl- um að semja við einkaaðila ekki á ósvipaðan hátt og ríkið semur við Verzlunarskóla Íslands. Þar er skóli með megináherslu á viðskipti og verslun, og hér höfum við framhalds- skóla sem leggur megináherslu á tón- list,“ segir Illugi. Öll svið tónlistar Boðið verður upp á tónlistarnáms- braut og miðað er við að í skólanum verði boðið upp á kennslu á öllum sviðum tónlistar. Lögð er áhersla á að nemendur ljúki stúdentsprófi og því er gert ráð fyrir að í skólanum verði boðið upp á kennslu almennra náms- greina eða að hann verði í samstarfi við opinbera eða viðurkennda fram- haldsskóla sem myndu þá sinna al- menna hluta framhaldsskólanámsins. Í báðum tilboðunum var gert ráð fyrir að gerður yrði samstarfssamningur við framhaldsskóla. Mennta- og menningarmálaráðu- neytið gaf út almenna útboðskynn- ingu á rekstri framhaldsskólans. „Á bak við bæði tilboðin standa rót- grónar stofnanir og þess vegna var útboðskynningin almenn. Við vorum bara að kalla eftir fagaðilum, sem koma síðan með hugmyndir að náms- skipulagi,“ segir Illugi en þeir rekstr- araðilar sem samið verður við munu sjá um að móta námsskrá skólans. Matsnefnd gaf einkunn Bjóðendur kynntu tillögur sínar fyrir matsnefnd mennta- og menning- armálaráðuneytisins á kynningar- fundi vikuna 27. júní - 1. júlí. Mats- nefnd sendi síðan niðurstöðu sína til mennta- og menningarmálaráðherra, sem tekur síðan endanlega afstöðu til þess við hvern verður samið. 200 nemendur í nýjum skóla  Nýr listframhaldsskóli verður settur í haust  Skólinn verður sá fyrsti sinnar tegundar  Tvö tilboð bárust  Framlög til tónlistarskóla um land allt aukast Illugi Gunnarsson „Það má segja að kjaradeilunni ljúki eða hún byrji upp á nýtt þegar dóm- ur Hæstaréttar fellur,“ segir Sigur- jón Jónasson, formaður Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra. Hann segir nýlega dómsátt gerð- ardóms gerða með fyrirvara um að flugumferðarstjórar muni áfrýja lagasetningu Alþingis um vinnudeilu þeirra til Hæstaréttar. „Það verður forvitnilegt að sjá hvernig þessi mál þróast, hvort að ríkið geti endalaust verið að setja lög á vinnudeilur. Þessi ríkisstjórn hefur verið afar dugleg við að stöðva vinnudeilur með lagasetningu. Við hjá verkalýðshreyfingunni verðum bara að halda áfram að berjast, við megum ekki láta þetta viðgangast,“ segir Sigurjón. Vaktir flugumferðarstjóra eru því fullmannaðar núna. Það kom sér vel síðastliðinn miðvikudag þegar bilun kom upp í flugstjórnarmiðstöðinni, þaðan sem flugumferð í kringum landið er stýrt, með þeim afleiðing- um að beina þurfti flugvélum, sem voru í alþjóðlegu flugi, frá íslenska flugstjórnarsvæðinu. Niðurstaða væntanleg í ágúst Sigurjón segir dómsmálið vera í flýtimeðferð og vonast eftir niður- stöðu í ágúst en ekki verður greitt eftir nýju dómsáttinni fyrr en nið- urstaða dómsmálsins liggur ljós fyr- ir. Héraðsdómur komst að þeirri nið- urstöðu að lagasetning Alþingis stæðist stjórnarskrá. Ef Hæstiréttur staðfestir þá nið- urstöðu gildir dómsáttin til ársloka 2018 en hún byggir á kjarasamningi sem flugumferðarstjórar höfnuðu í atkvæðagreiðslu. Ef Hæstiréttur fellir lagasetningu Alþingis úr gildi er dómsátt gerðardóms marklaus þar sem gerðardómur var skipaður með lagasetningunni. Gerist það færist kjaradeila flugumferðarstjóra aftur á byrjunarreit og hefja þarf kjaraviðræður að nýju. elvar@mbl.is Áfrýja dómi til Hæstaréttar Morgunblaðið/Ernir Stjórnun Flugstjórnarmiðstöðin þjónustar flug í kringum landið.  FÍF telur laga- setningu Alþingis hafa verið ólögmæta „Já, það eru fleiri hælisumsækjend- ur í júlímánuði í ár en í júlí í fyrra, í dag eru komnar 34 umsóknir í mán- uðinum en í fyrra voru komnar 22 umsóknir á þessum tíma,“ segir Kristín María Gunnarsdóttir, stað- gengill forstjóra Útlendingastofn- unar. Eins og Morgunblaðið hefur sagt frá afgreiddi Útlendingastofnun nærri jafnmargar hælisumsóknir á fyrstu sex mánuðum ársins 2016 og allt árið 2015. Fimmtíu og þremur einstaklingum var veitt hæli eða önnur vernd á Íslandi en þar af voru Írakar fjölmennastir eða sautján talsins. Í gær upplýsti Kristín María í samtali við Morgunblaðið að 34 um- sóknir hefðu bæst við í júlímánuði. 274 umsóknir um hæli hafa verið lagðar fram nú þegar árið er rúm- lega hálfnað en í fyrra voru umsókn- irnar yfir allt árið 86. Kristín María segir að fjölgun hælisleitenda hafi verið nokkuð jöfn. „Síðasta haust kom flóðbylgja yfir Evrópu, við höf- um fengið að finna fyrir þessu aðeins seinna en hin löndin eins og er oft með okkur út af staðsetningu og öðru.“ borkur@mbl.is Fjölgun hælisum- sækjenda  Í júlí hafa 34 hæl- isleitendur komið Á vef Akranesbæjar segir að á fundi bæjarráðs í fyrradag hafi verið farið yfir bréf frá Sæljóni, félagi smábáta- eigenda á Akranesi. Í bréfinu er skerðingu um 200 tonn á D-svæðinu, sem nær frá Höfn í Hornafirði að Mýrum, mótmælt harðlega. Bæj- arráð tekur undir þessar áhyggjur og sendi sjávarútvegsráðherra bók- un: „Bæjarráð Akraness lýsir því yf- ir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að minnka aflamagn á strandveiði- svæði D, frá sveitarfélaginu Horna- firði að Borgarbyggð, um 200 tonn fyrirvaralaust. Slík vinnubrögð eru með öllu óásættanleg og er þess krafist að ráðherra endurskoði reglugerð um strandveiði fyrir fisk- veiðiárið 2015 til 2016 og auki veiði- heimildir á strandveiðisvæði D til fyrra horfs,“ segir í bókuninni. Mótmæla skerðingu á D-svæði Vel gengur að veiða grálúðu í net um þessar mundir. Netabáturinn Erling KE-140 hefur verið á grá- lúðuveiðum fyrir norðan Kolbeins- ey í sumar og hafa þær veiðar gengið afar vel. „Grálúðan hefur verið nokkuð erfið viðureignar í ár. Það hefur ekki gengið vel að veiða hana í troll en það hefur gengið ágætlega að veiða hana í net,“ segir Kristján Vilhelmsson, útgerð- arstjóri Samherja. Erling KE hefur landað rúmlega 270 tonnum af grálúðu á Dalvík í júlímánuði og er væntanlegur til hafnar á sunnudagsmorgun og því gæti heildarafli í júlí farið yfir 300 tonn ef vel gengur. Kristján segir veiði í júlí almennt hafa verið góða en mest hefur veiðst af þorski og karfa. Erfitt sé þó að koma karfanum í verð eftir að lokað var fyrir útflutning til Rússlands. „Við fluttum 26% af út- fluttum karfa til Rússlands svo það bítur að missa þann markað. Mark- aðurinn fyrir karfa í Suður-Evrópu er mjög lélegur,“ segir Kristján. elvar@mbl.is Góð netaveiði á grálúðu í sumar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Veiði Erling hefur landað rúmlega 270 tonnum af grálúðu á Dalvík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.