Morgunblaðið - 30.07.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
majubud.is
„Við erum að reyna að fá meira út úr
hverju kílói sem við seljum. Fram-
legðin er alla leið niður keðjuna,“ seg-
ir Ólafur Stefánsson, fjármálastjóri
Primex á Siglufirði. Fyrirtækið hefur
keypt rekstur SeaKlear í Evrópu
ásamt vörumerki og viðskiptasam-
böndum.
SeaKlear er umhverfisvænt
hreinsiefni fyrir sundlaugar. Virka
innihaldsefni þess er kítósan sem
framleitt er af líftæknifyrirtækinu
Primex á Siglufirði. Samkvæmt upp-
lýsingum fyrirtækisins er með notk-
un þess hægt að minnka notkun kem-
ískra efna og klórs um allt að 40%.
Það er notað í sundlaugar og heita
potta og Ólafur bendir á að það henti
sérstaklega vel í rafmagnshitapotta.
„Þetta er eðlilegt skref fyrir okkur,
að komast nær viðskiptavinunum. Við
höfum tæki og aðstöðu til að fram-
leiða lokaafurðina,“ segir Ólafur.
Hreinsiefnið verður selt áfram
undir merkjum SeaKlear, hér á landi
og í Evrópu. Tandur hefur annast
dreifingu hér á landi og verður svo
áfram. Ólafur segir stefnt að aukinni
sölu, bæði hér og erlendis. „Við höf-
um trú á þessari vöru. Hún virkar
vel,“ segir Ólafur.
Kítósan er mikið notað í fæðubót-
arefni og matvæli, ekki síst til megr-
unar og þyngdarstjórnunar. Ólafur
segir að síðustu ár hafi verið mikil
aukning í notkun þess við sára-
meðhöndlun og er það orðinn stærsti
markaðurinn ásamt fæðubótarefnum.
Þá er lyfjaiðnaðurinn að skoða þetta
efni alvarlega um þessar mundir.
helgi@mbl.is
Fá meira út úr hverju
seldu kílói af kítósan
Ljósmynd/Primex
Afurðir Stjórnendur Primex kynna
stoltir vörur sínar á sýningu.
Primex kaupir
sölufyrirtæki
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ekki er verið að slaka á öryggis-
kröfum varðandi mönnun skipsins
heldur taka tillit til veðurfarsins á
sumrin,“ segir Ólafur William Hand,
upplýsingafulltrúi Eimskips sem
rekur Vestmannaeyjaferjuna Herj-
ólf.
Innanríkisráðherra hefur ákveðið
að færa ferjuleiðina á milli Vest-
mannaeyja og Landeyjahafnar úr
hafsvæði B yfir í svæði C. Það þýðir
að óbreyttu að Herjólfur getur flutt
fleiri farþega á tímabilinu frá 1. maí
til 30. september án þess að fjölga í
áhöfn. Hámarksfjöldi farþega eykst
úr 390 í 525 sem miðað við fimm
ferðir á dag þýðir 600-700 farþega
aukningu. Óþarft er að taka fram að
bíladekkið stækkar ekki þannig að
ekki er hægt að taka fleiri bíla í ferð
en verið hefur.
Segir Ólafur að flutningur bíla
verði áfram flöskuháls. Hann hvetur
ferðafólk til að skilja bíla sína eftir í
Landeyjum eða jafnvel taka Strætó
þangað. Yfirleitt sé óþarfi að vera
með bíl í Vestmannaeyjum. Vel sé
hægt að ganga þar um.
Undanþága veitt um
verslunarmannahelgar
Um borð í Herjólfi er björgunar-
búnaður fyrir 535 farþega auk
áhafnar.
Tólf eru í áhöfn Herjólfs. Ólafur
vekur athygli á því að skipið hafi
haft undanþágu frá reglum um há-
marksfjölda farþega um verslunar-
mannahelgar. Svo sé einnig nú. Þá
sé fjölgað um fimm í áhöfninni auk
þess sem auka mannskapur sé feng-
inn frá björgunarsveitum til að
stjórna umferð og aðstoð við að
koma farangri um borð. Hann segir
að aðstæður séu sérstakar um þessa
helgi, meiri gleði en aðrar helgar, og
því sé þetta gert.
Eftir sé að koma í ljós þegar nýjar
reglur innanríkisráðuneytisins taki
gildi hvaða skilyrði verði sett varð-
andi mönnun á sumrin í framhald-
inu.
„Að fenginni reynslu hafa stjórn-
völd séð að það væri alveg gerlegt að
hafa þetta fyrirkomulag allt sum-
arið,“ segir Ólafur og bendir á að
veðurfarið sé með þeim hætti á þess-
ari siglingaleið.
Ekki rætt um fleiri skip
Eimskip á farþegaskip sem notuð
eru til ferjusiglinga og hvalaskoð-
unar á Breiðafirði. Þau mega vera í
Vestmannaeyjasiglingum á sumrin,
eftir að nýju reglurnar taka gildi.
Ólafur segir að engin athugun hafi
verið gerð á því hvort grundvöllur sé
til að reka slík skip til hliðar við
Herjólf. Skipin þjóni ákveðnu hlut-
verki nú og Breiðfirðingar yrðu ekki
ánægðir með að vera ferjulausir.
„Það er mörgum hugmyndum kast-
að fram. Við hlustum á allar tillögur
en ákvarðanir eru ekki teknar nema
af vel ígrunduðu máli. Það hefur
ekki verið gert varðandi þessa nýja
stöðu,“ segir Ólafur.
Ekki slakað á
öryggiskröfum
varðandi mönnun
Fjölgað í áhöfn Herjólfs vegna und-
anþágu um verslunarmannahelgar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Annir Stórt sýnishorn af bílaflota landsmanna má sjá við Landeyjahöfn um
verslunarmannahelgi. Margir þjóðhátíðargestir geyma bíla sína þar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfsmenn Ósafls eru enn að grafa
sig í gegnum misgengissprunguna
við Fnjóskadalsstafn Vaðlaheiðar-
ganga en þar lekur vatn inn í göng-
in. Valgeir Bergmann, fram-
kvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga,
reiknar með að hægt verði að hefja
hefðbundinn gangagröft þeim meg-
in seinni hluta ágústmánaðar.
Vinna í misgenginu
Á meðan gangagröfurinn Eyja-
fjarðarmegin gengur sinn vanagang
er talsvert um að vera Fnjóskadals-
megin. Verktakinn er að vinna sig í
gegnum misgengissprunguna sem
valdið hefur miklum töfum á gang-
agreftrinum. Valgeir áætlar að þeir
séu búnir með um fimm metra af
fimmtán. Lausu efni er mokað í
burtu, loft og veggir styrktir með
steypu og grind, til varnar því að
meira efni komi niður. Þetta er gert
varlega af öryggisástæðum.
Þegar starfsmennirnir verða aft-
ur komnir í fast berg verður hægt
að taka þráðinn upp frá því sem frá
var horfið um miðjan apríl 2014 þeg-
ar vatn fór að fossa úr misgeng-
issprungunni. Reiknar hann með því
að það verði seinnihluta ágústmán-
aðar.
Skeringar og fyllingar
Nú vinna verktakar einnig að því
að byggja upp nýjan veg frá
Fnjóskárbrú að gangamunnanum.
Það kallar á heilmiklar skeringar og
fyllingar og tilheyrandi tilflutning á
efni. Í þessum áfanga verður aðeins
unnið við undirlag vegarins, hann
verður ekki tengdur við hringveginn
að sinni.
Miklir haugar af efni sem ekið
hefur verið úr göngunum setja svip
á umhverfið. Við það mun vonandi
bætast mikið efni þegar gangagröft-
ur kemst aftur á skrið. Valgeir segir
að jafnað verði meira úr efninu,
meðal annars í hvilft sem er við inn-
keyrsluna að gamla barnaskólanum
á Skógum.
Starfsmenn verktakans sem vinn-
ur að verkefninu í Fnjóskadal eru í
löngu fríi um verslunarmannahelg-
ina. Erlenda gangagengið sem bor-
ar og sprengir frá Eyjafirði vinnur
allan sólarhringinn, eins og verið
hefur.
Ljósmynd/Valgeir Bergmann
Vegagerð Nýr vegur kemur frá Fnjóskárbrú að gangamunnanum. Unnið er í fyllingum undir væntanlegan veg.
Unnið í misgengi og
vegagerð í Fnjóskadal
Vonast til að göngin fari að lengjast
að austanverðu í ágústmánuði
Á meðan aðeins er grafið úr
Eyjafirði lengjast Vaðlaheið-
argöng aðeins um 30 til 40
metra á hverri viku. Þau eru orð-
in rúmir 5,6 kílómetrar sem er
liðlega 78% af heildarlengdinni.
Hiti í berginu Eyjafjarðar-
megin er enn til trafala en Val-
geir Bergmann framkvæmda-
stjóri segir að hann minnki eftir
því sem gangamenn komast
fjær hitasvæðinu.
Þegar byrjað verður að bora
og sprengja að austanverðu
ætti að komast kraftur í verkið
og reiknar Valgeir með að göng-
in lengist þá samtals um nálægt
100 metra á viku. Það þýðir að
gangagengin ættu að mætast
fyrir jól. Eftir það tekur við fjór-
tán mánaða vinna við frágang
og ættu göngin því að verða
tilbúin snemma árs 2018. Það er
rúmu ári síðar en áætlað var í
upphafi.
Lengjast um
30 m á viku
ENN HÆGAGANGUR