Morgunblaðið - 30.07.2016, Side 8

Morgunblaðið - 30.07.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016 Brexit hefur ekki haft mikiláhrif í Bretlandi þrátt fyrir hávaða heimsendaspámannanna, en það er ekki þar með sagt að það hafi engin áhrif haft innan Evrópu- sambandsins. Framkvæmda- stjórn þess hefur nú ákveðið að láta ekki verða af því að refsa Portúgal og Spáni fyrir að hafa ítrekað rekið ríkissjóð með halla umfram 3% af landsframleiðslu.    Skýringuna gaf Pierre Mosco-vici, fjármálaráðherra sam- bandsins, sem sagði efasemdir Evrópubúa um ESB þýða að sam- bandið þurfi að stíga varlega til jarðar.    En þetta er svo sem ekki í einaskiptið sem ESB brýtur eigin reglur. Fyrr á árinu var til dæmis slakað á gagnvart Ítalíu og Frakk- landi, enda vandi ESB ekki nýr af nálinni og víðtækari en Brexit.    Ástæðan fyrir því að Frakklandslapp undan reglunum var þó ekki vandi ESB heldur það viðhorf að reglurnar gilda ekki um for- ysturíkin. Þannig gaf Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmda- stjórnarinnar, eftirfarandi skýr- ingu í maí sl. þegar Frakkland var losað undan reglunum: „Af því að það er Frakkland.“    Allir vita sem vilja að aðrarreglur gilda um áhrifaríki sambandsins en önnur, en það er sjaldgæft að það sé viðurkennt með svo afdráttarlausum hætti.    Og það er athyglisvert að nú sénánast búið að aftengja regl- urnar alfarið af ótta við upplausn sambandsins. Jean-Claude Juncker Nú njóta fleiri fríð- inda en Frakkland STAKSTEINAR Veður víða um heim 29.7., kl. 18.00 Reykjavík 16 skýjað Bolungarvík 9 skýjað Akureyri 11 léttskýjað Nuuk 15 heiðskírt Þórshöfn 11 súld Ósló 17 rigning Kaupmannahöfn 20 skúrir Stokkhólmur 24 heiðskírt Helsinki 22 léttskýjað Lúxemborg 22 léttskýjað Brussel 22 rigning Dublin 19 léttskýjað Glasgow 18 heiðskírt London 21 rigning París 24 léttskýjað Amsterdam 20 rigning Hamborg 23 skýjað Berlín 25 léttskýjað Vín 26 léttskýjað Moskva 28 heiðskírt Algarve 22 skýjað Madríd 38 heiðskírt Barcelona 29 heiðskírt Mallorca 31 heiðskírt Róm 28 heiðskírt Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 21 léttskýjað Montreal 18 léttskýjað New York 25 rigning Chicago 25 skýjað Orlando 33 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 30. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:31 22:39 ÍSAFJÖRÐUR 4:13 23:06 SIGLUFJÖRÐUR 3:55 22:50 DJÚPIVOGUR 3:55 22:14 hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177 Eigum úrval af Mál pilts sem fannst nakinn á götu í miðbæ Reykjavíkur að- faranótt þriðju- dags er á við- kvæmu stigi, að sögn lögregl- unnar á höf- uðborgarsvæð- inu. Lögreglan vill ekki gefa upp hvort grunsemdir séu um að piltinum hafi verið mis- þyrmt, að því er kom fram á Rúv- .is. Fatnaður piltsins fannst skammt frá honum. Grunur leikur á að honum hafi verið byrluð ólyfjan. Enginn hefur verið yfirheyrður í tengslum við málið og er lögreglan að kanna eftirlitsmyndavélar á svæðinu. Pilturinn, sem er 17 ára banda- rískur ferðamaður, hafði verið á kaffihúsi en síðar um nóttina sá leigubílstjóri hann nakinn úti á götu og var hann í framhaldinu fluttur á Landspítalann til að- hlynningar. Mál 17 ára pilts á við- kvæmu stigi  Lögregla kannar eftirlitsmyndavélar Lögregla Málið er á viðkvæmu stigi. Vikan fyrir verslunarmannahelgi er jafnan ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Í fyrra komu um 127 þúsund viðskiptavinir í Vínbúð- irnar þessa viku og alls seldust um 719 þúsund lítrar af áfengi. Til samanburðar komu rúmlega 109 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar í síðustu viku, þ.e. vikuna 18.-23. júlí, og þá seldust um 504 þúsund lítrar af áfengi. Það sem af er vikunni, þ.e. mánu- dag til fimmtudags, höfðu verið seldir 398 þúsund lítrar af áfengi og er það 14% meira magn en sömu vikudaga í fyrra, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu ÁTVR. Reynslan sýnir að flestir við- skiptavinir koma í Vínbúðina föstu- daginn fyrir verslunarmannahelgi sem er jafnan einn annasamasti dagur ársins. Í fyrra komu 41 þús- und viðskiptavinir þann dag. Flest- ir viðskiptavinir koma á milli kl. 16 og 18, eða allt að 6.500 viðskipta- vinir á klukkustund. Þar sem álagið er mest er algengt að grípa þurfi til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum. Búist er við að fjöldi viðskiptavina verði svipaður nú og í fyrra. Í Vínbúðunum er opið samkvæmt venju um verslunarmannahelgina á föstudegi og laugardegi en lokað sunnudag og mánudag. sisi@mbl.is Mikil örtröð í vínbúðum landsins  Í fyrra komu um 127 þúsund viðskiptavinir vikuna fyrir verslunarmannahelgi Morgunblaðið/Billi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.