Morgunblaðið - 30.07.2016, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.07.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Fuglaskoðurum landsinsþótti alveg magnað umliðna helgi þegar einn úrþeirra röðum, Alex Máni Guðríðarson, 19 ára, setti Íslandsmet í fjölda séðra fuglategunda á Íslandi – eins og þeir segja á sínu fuglamáli. Ís- landsmet að því leyti að hann er sá yngsti sem náð hefur þessum áfanga hér á landi og sló um leið met Gunn- ars Þórs Hallgrímssonar fuglafræð- ings, sem vantaði aðeins tíu daga í tvítugt þegar hann rauf 200 fugla múrinn árið 1999. Eins og vera ber er fjöldi téðra fuglategunda færður til bókar hjá flækingsfuglanefnd, sem gengur úr skugga um að ekki séu brögð í tafli. Ljósmynd og greinargóð lýsing fuglaskoðarans eru sönnunargögn sem nefndin leggur til grundvallar. Sem ástríðufullur fuglaskoðari er Alex Máni vel í sveit settur þar sem hann býr á Stokkseyri, því óvíða á landinu er meira fuglalíf. „Áhugi minn á fuglum og fugla- skoðun vaknaði þegar ég var smá- strákur að gefa fuglunum í garðinum heima á veturna. Síðan kynntist mamma stjúpa mínum, Hlyni Ósk- arssyni, vistfræðingi og miklum áhugamanni um fugla, í næsta húsi bjó og býr enn Jóhann Óli Hilm- arsson fuglafræðingur og svo var afi minn heitinn, Geir Valgeirsson, einn- ig mjög áhugasamur um fugla. Allir áttu þeir þátt í að kynna mér fugla og glæða hjá mér áhugann, aukinheldur sem afi kom mér út í ljósmyndun, en við fórum oft saman að mynda fugla,“ segir Alex Máni, sem setti sér það markmið fyrir tveimur árum að sjá 200 fuglategundir áður en hann yrði tvítugur. Alex Máni veit um fjóra fugla- skoðara sem hafa séð meira en 300 tegundir á Íslandi. „Flestir halda annars vegar Íslandslista og hins vegar heimslista,“ upplýsir hann og jafnframt að á sínum heimslista séu um 500 tegundir, enda skoði hann fugla hvar sem hann drepi niður fæti í heiminum. Í essinu sínu í lægðunum Á Íslandi eru um 80 varpfuglar og samkvæmt síðustu tölum hafa sést hér tæplega 400 fuglategundir, flestir Rauf 200 fugla múrinn með snæuglu Ef spurt er um fugla er ekki komið að tómum kofunum hjá Alex Mána Guðríðarsyni, 19 ára, frá Stokkseyri. Hann er á stöðugum þeytingi með ljósmyndavélina sína í fuglaleit og er fljótur að rjúka af stað ef hann fréttir af fugli sem hann hefur ekki séð áður. Um liðna helgi sá hann sinn 200. fugl á Íslandi og er sá yngsti sem náð hefur þeim áfanga. Fuglaflækingsnefnd hefur þegar fært séðan, téðan fugl til bókar. Opinn Beyoncé-danstími undir leið- sögn Margrétar Erlu Maack verður kl. 17 í dag, laugardag 30. júlí, í Kram- húsinu. Tíminn kostar 2.000 krónur og rennur ágóðinn til Stígamóta. Tíminn er miðaður að byrjendum, en lengra komnir eru ekki síður sagðir geta haft gaman af. Farið verður yfir grunnatriði í ýms- um rassahristum og annarri tækni sem Beyoncé er þekkt fyrir. Að sjálf- sögðu verður dansað við tónlist dív- unnar, en blandað er saman eldri tón- list hennar og nýrri. Margrét Erla er fótafim og kann ýmislegt fyrir sér í danslistinni. Hún hefur kennt Beyoncé-dansa um nokk- urt skeið, einnig magadans, hinn seiðandi dans frá Mið-Austurlöndum, Bollywood-kvikmyndadans frá Ind- landi, burlesque, sem er kabarett- skemmtidans fyrir fullorðna og diskódans svo fátt eitt sé talið. Á Facebook-síðu um viðburðinn er þátttakendum bent á að koma með þægileg en töff föt og innanhússskó. Þá tekur Margrét Erla fram að í lagi sé að mæta þunn(ur). Dívudansinn dunar í Kramhúsinu Opinn Beyoncé-danstími til styrktar Stígamótum Morgunblaðið/Freyja Gylfadóttir Danstækni Margrét Erla Maack kennir danstækni dívunnar Beyoncé Knowles. Reuters Verkfærasalan - Síðumúla 11 - 560-8888 - www.vfs.is Frábær verð! 99.900 Verð Bandsög 100mm Stærð blaðs 1470x13mm. Geta í 90° 100x150mm. TT 388001 129.900 Verð Bandslípivél 75x2000mm Öflug bandslípivél með 3.000W mótor. Band 75x2000mm TT389001 Fuglaskoðari Alex Máni Guðríðarson hefur farið víða í fuglaleit. Flórgoðar Græningi Silkitoppa Rósamáfur Ljósmyndir/Alex Máni Guðríðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.