Morgunblaðið - 30.07.2016, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt
strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?
„Drottinn, miskunna þú fólk þitt.
Drottinn, fyrirgef þú hina miklu
grimmd,“ ritaði Frans páfi í minn-
ingarbók er hann í gær heimsótti
Auschwitz-Birkenau útrýmingar-
búðir nasista í Oswiecim í Póllandi.
Frans páfi gekk um búðirnar án
hefðbundins fylgdarliðs, s.s. örygg-
isvarða og kardinála. Fór hann m.a. í
gegnum hið fræga hlið búðanna, en
yfir því standa orðin: „Arbeit macht
frei“, „Vinnan gerir yður frjálsa“.
Að því loknu átti Frans páfi fund
með nokkrum eftirlifandi föngum og
hitti hann hópinn við vegg sem nas-
istar nýttu áður til þess að stilla upp
fólki fyrir aftökur.
„Ég vildi krjúpa á kné fyrir fram-
an hann, en hann tók mig í arma sér
og kyssti mig á kinn,“ sagði hin 86
ára Janina Iwanska. Við hlið hennar
stóð hinn 99 ára gamli Alojzy Fros.
Hann segist enn muna eftir þeim
degi er hann kom fyrst til Auschwitz.
„Rétt eftir að ég kom sá ég, í gegn-
um opnar dyr, nakin lík í metrahárri
hrúgu eins og trjáboli. Ég mun aldr-
ei gleyma þessu.“
Liðin eru 71 ár frá því að sovéskir
hermenn náðu búðunum á sitt vald.
„Fyrirgef þú hina
miklu grimmd“
AFP
Auschwitz Frans páfi gengur inn fyrir hið fræga hlið útrýmingarbúðanna.
Nýtt tankskip
bandaríska sjó-
hersins, sem nú
er í smíði, mun
bera nafnið
USNS Harvey
Milk. Er það gert
til að heiðra
minningu stjórn-
málamannsins
Harvey Milk sem
m.a. er þekktur
fyrir baráttu sína fyrir réttindum
samkynhneigðra vestanhafs.
Sem ungur maður var hann í sjó-
hernum og tók m.a. þátt í Kóreu-
stríðinu á sínum tíma. Árið 1977 tók
hann sæti í borgarstjórn í San
Francisco og varð fyrstur stjórn-
málamanna í Bandaríkjunum til að
greina frá því opinberlega að hann
væri samkynhneigður.
Hann var árið 1978 myrtur ásamt
borgarstjóranum George Moscone.
Milk var 48 ára er hann lést.
BANDARÍSKI SJÓHERINN
Herskip nefnt eftir
baráttumanni
Harvey
Milk
sem misst hafa börn sín vegna ofbeldis og
hafa stofnað hreyfingar til að vernda börn
annarra? Hann gleymir okkur öllum.
Bandaríkjamenn segja ekki: „Ég einn get
lagað það,“ við segjum: „Við lögum þetta
í sameiningu,““ sagði Clinton í ræðu
sinni.
Vísar hún þar til ræðu auðkýfingsins
sem flutt var á flokksþingi repúblikana.
En þar sagði Trump: „Enginn þekkir
kerfið betur en ég, sem er ástæða þess að
ég einn get lagað það.“ khj@mbl.is
„Við lögum þetta í sameiningu“
Hillary Clinton gerði harða hríð að Donald Trump í ræðu sinni á flokksþingi
Hillary Clinton
„Bernie, framboð þitt veitti milljónum
Bandaríkjamanna innblástur. Málstaður
þinn er málstaður okkar,“ sagði Hillary
Clinton, forsetaefni demókrata, í ræðu á
flokksþingi demókrata í fyrrinótt. Hún hef-
ur nú brotið blað í stjórnmálasögu Banda-
ríkjanna með því að verða fyrst kvenna í
240 ára sögu landsins til að verða fram-
bjóðandi stórs flokks í forsetakosningum.
Clinton vék einnig að Donald Trump,
forsetaefni repúblikana, og fór heldur
hörðum orðum um hann.
„Ekki trúa neinum sem segir: „Ég
einn get lagað það.“ Þetta voru í alvöru
orð Donalds Trump í Cleveland. Og þau
ættu að hringja viðvörunarbjöllum hjá
okkur öllum. Í alvöru talað? – Ég einn …
get lagað það. Er hann ekki að gleyma
hermönnum í fremstu víglínu; lögreglu-
og slökkviliðsmönnum, sem hlaupa í átt
að hættunni; læknum og hjúkrunarfræð-
ingum sem annast okkur; kennurum sem
breyta lífi okkar; frumkvöðlum sem sjá
tækifæri í öllum vandamálum; mæðrum
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta er eina sjúkrahúsið sem sér-
hæfir sig í fæðingum og umönnun
barna í norðvesturhluta Idlib. Til-
kynnt hefur verið um mannfall og
bíðum við eftir staðfestum tölum.“
Svona hljómar tilkynning Barna-
heilla þar sem greint er frá loftárás
sem gerð var á sjúkrahús í Sýrlandi í
gær. Fregnir af mannfalli voru mjög
óljósar í gær, en minnst tveir voru
þá sagðir látnir og nokkrir særðir.
Fréttaveita AFP segir sjúkrahús-
bygginguna vera mikið skemmda.
Mannréttindasamtökin Syrian
Observatory for Human Rights
segja sjúkrahúsið, sem er í bænum
Kafar Takharim, vart starfhæft eftir
ódæðið, en bærinn er í höndum upp-
reisnarmanna.
Vígamaður mögulegt skotmark
AFP greinir frá því, og vitnar til
heimildarmanns sem ekki vildi koma
fram undir nafni, að skotmark loft-
árásarinnar hafi verið vígamaður í
íslamistahreyfingunni Jabhat Fateh
al-Sham. Er sá sagður hafa verið að
heimsækja konu sína og nýfætt barn
þeirra á sjúkrahúsið.
„Það var hann sem var skotmark-
ið. Hann var að hitta konuna sína,
sem var nýbúin að eignast barn,
þegar sprengjurnar féllu,“ segir áð-
urnefndur heimildarmaður við
AFP.
Fram til þessa hafa starfsmenn
sjúkrahússins veitt íbúum á svæð-
inu mikilvæga þjónustu, en í hverj-
um mánuði hafa komið þangað um
1.300 konur og fæðast þar um 300
börn.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
sjúkrahús verður fyrir sprengju-
regni í Sýrlandi. Þannig skemmdust
t.a.m. fjögur minni sjúkrahús og
blóðbanki á einum sólarhring í borg-
inni Aleppo, stærstu borg landsins.
Vígamenn Ríkis íslams lögðu ný-
verið undir sig þorpið Buyir í norð-
urhluta Sýrlands. Voru í kjölfarið
minnst 24 almennir borgarar þar
teknir af lífi. Buyir er um 10 kíló-
metra norðvestur af borginni Man-
bij, sem hefur verið á valdi Ríkis ísl-
ams undanfarin ár. Borgin er nú
umkringd sýrlenskum hersveitum
og geisa þar harðir bardagar.
Árás gerð á sjúkrahús
Sprengjur féllu á fjölsótt sjúkrahús í bænum Kafar Takharim í Sýrlandi Spít-
alinn sérhæfir sig í fæðingum og umönnun barna Vígamenn tóku þorpið Buyir
AFP
Eyðilegging Myndin er sögð tekin skömmu eftir árásina og sýnir m.a. skemmdir á sjúkrahúsinu og fólk þar við.
Nýjustu skoð-
anakannanir
vestanhafs sýna
að mjótt er á
mununum á
fylgi forseta-
frambjóðend-
anna tveggja;
þeirra Hillary
Clinton og
Donalds Trump.
Vefsíðan Real Clear Politics
birti í gærkvöldi niðurstöður
nokkurra kannana sem gerðar
voru í gær, daginn eftir að Clin-
ton var formlega útnefnd forseta-
efni Demókrataflokksins. Nið-
urstöðurnar eru nokkuð
mismunandi, t.d. sýnir könnun
Reuters-fréttastofunnar forskot
Clinton sem mælist með 40% fylgi
á móti 35% fylgi Trumps.
Samkvæmt annarri könnun,
sem dagblaðið LA Times lét gera,
er Trump aftur á móti með 47%
fylgi og Clinton 41%. Þegar með-
altal kannana sem gerðar voru í
gær er reiknað út er niðurstaðan
sú að fylgi þeirra er hnífjafnt.
NÝJAR SKOÐANAKANNANIR
Mjótt á mununum