Morgunblaðið - 30.07.2016, Page 19

Morgunblaðið - 30.07.2016, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016 Æfingin skapar meistarann Þessir kafarar voru að æfa sig í Ásvallalaug í gærmorgun en ætli sundlaug sé ekki öruggasti staðurinn til að æfa sig á áður en myrk hafdjúpin taka við? Ófeigur Fyrir nokkrum dögum bárust fréttir af fyrirhugaðri byggingu á stóru einkareknu sjúkrahúsi í Mos- fellsbæ sem viðist að mestu leyti eiga að vera í eigu erlendra fjár- festa. Óhjákvæmlegt er, við svona fréttir, að velta fyrir sér marg- víslegum mögulegum áhrifum nýrr- ar starfsemi sem þessarar á bæði heilbrigðis- og efnahagskerfi hér- lendis. Heilbrigðiskerfið á Íslandi Íslendingar hafa lengi verið stolt- ir af heilbrigðiskerfi sínu. Þar hefur ríkt jöfnuður og ágætt aðgengi að þjónustunni. Gott viðmót heilbrigð- isstarfsfólks og góður árangur í al- þjóðlegum samanburði hafa enn frekar ýtt undir þessa skoðun landsmanna. Vissulega hefur gefið hraustlega á bátinn undanfarin ár og heilbrigð- iskerfið eins og ýmis önnur starf- semi í ríkisrekstri átt í miklum vanda eftir efnahagshrun. Það horf- ir hins vegar til betri vegar og virð- ist hafa náðst þverpólitísk breiðfylk- ing um mikilvægi endurreisnar heilbrigðiskerfisins. Hér er um afar mikilvægt samfélagsmál að ræða, ekki síst þar sem hlutfall aldraðra og þar með þeirra sem þurfa mest á þjónustunni að halda fer hratt vax- andi. Hérlendis er starfrækt eitt há- skólasjúkrahús sem sinnir alhliða læknisþjónustu fyrir alla landsmenn og sinnir auk þess þjálfun nýrra heilbrigðisstarfsmanna. LSH er þó ekki stórt á alþjóðlegum mæli- kvarða og kannski svipað að stærð og landshlutasjúkrahús á Norð- urlöndum. Það hefur tekið áratugi að byggja upp þá þjónustu sem veitt er á sjúkrahúsinu en það vekur jafnan athygli erlendis hve fjölþætt þjónusta er í boði hér á landi þrátt fyrir smæð þjóðarinnar. Hjartalækningar á Landspítala Á hjartadeild LSH er boðið upp á mjög fjölbreytta þjónustu, þar með talið flest hásérhæfð inngrip vegna hjartasjúkdóma. Til að mynda er boðið upp á 24 klukkustunda vakt alla daga ársins á hjartaþræðinga- stofu til að meðhöndla bráða krans- æðastíflu. Þetta hefur meðal annars leitt til þess að meðferð við þessum alvarlega og algenga sjúkdómi er hérlendis með því sem best gerist samkvæmt skýrslum frá OECD. Þá hafa brennsluaðgerðir vegna hjart- sláttartruflana verið mjög vaxandi þáttur. Þessi starfsemi er þó mjög viðkvæm. Til þess að gera fámennur hópur lækna, hjúkrunarfræðinga og lífeindafræðinga sinnir þessum sér- hæfðustu verkefnum og allir gegna þar mjög mikilvægu hlutverki. Síðustu ár hefur verið gert átak innan hjartalækninga í að bæta mönnun innan sérgreinarinnar. All- margir yngri sérfræðingar með mis- munandi bakgrunn og öfluga sér- þekkingu hafa bæst í hópinn, og er mönnun hjartalækna nú mjög góð. Enn fremur hafa hjúkrunarfræð- ingar og allt annað starfsfólk sem hefur sinnt sjúklingum á legudeild- um hjartalækninga, Hjartagátt og hjartaþræðingastofum verið einvala starfslið sem samhent vinnur að lausn flókinna vandamála á hverjum einasta degi. Sú reynsla og teymis- nálgun sem við það skapast er afar mikilvæg. Verulegt átak hefur einn- ig verið gert í að bæta tækjabúnað hjartalækninga, til að mynda hafa tvær nýjar hjartaþræðingastofur verið teknar í notkun á síðustu þremur árum, og er tækjakostur hjartadeildar nú almennt mjög góð- ur. Kannanir benda til að sjúklingar séu almennt ánægðir með þjón- ustuna hvort sem er á Hjartagátt, legudeildum hjartalækninga eða hjartaþræðingadeild. Erlendir ferðamenn sem fá hér meðferð hafa einnig almennt verið mjög ánægðir með þá alúð sem þeir mæta og læknisþjónustuna sem þeir fá. Mjög góður árangur hefur náðst und- anfarna mánuði í að stytta biðlista í hjartaþræðingar og það er lyk- ilverkefni að fækka á löngum bið- lista eftir brennsluaðgerðum vegna takttruflana. Á þeim vettvangi hef- ur mikið verið lagt í að bæta mönn- un, laga aðstöðu og fá fjármagn til að fjölga aðgerðum verulega. Þetta hlýtur að vera öllum ánægjuefni og eru frekari áform um að efla þjón- ustu við hjartasjúklinga á LSH. Áform um nýjan einkaspítala Undanfarna daga hafa borist af því fréttir að til standi að reisa stórt einkasjúkrahús í Mosfellsbæ. Þar stendur, eftir því sem fram hefur komið, til að bjóða upp á þjónustu vegna hjartasjúkdóma. Mjög margt er hins vegar óljóst hvað þessa starfsemi varðar sem og eignarhald þessa sjúkrahúss. Eins vekur um- fang hugmyndanna furðu en þau áform sem forsvarsmenn þessa verkefnis hafa áður kynnt voru minni í sniðum. Því er ljóst að þetta verkefni er nú af allt annari stærð- argráðu og vekur það upp fjölmarg- ar spurningar til viðbótar um raun- verulegar fyrirætlanir þeirra sem að því standa. Gefið hefur verið upp að til að byrja með verði sjúklingarnir eink- um erlendir heilsuferðamenn sem verði fluttir til og frá landinu til meðferðar, en erfitt er að sjá að slíkt sé öruggt til að byggja á til frambúðar og eins er mjög óljóst hvers vegna Ísland hefur orðið fyrir valinu. Sömuleiðs er óklárt hvað gerist ef eitthvað kemur upp á í að- gerðum eða sjúklingar fá alvarlega fylgikvilla meðferðar. Munu þeir verða sendir á LSH til frekari með- ferðar? Hver mun bera kostnaðinn af því, ef svo verður? Það hefur ekki verið skýrt frá því hvaðan þessir sjúklingar munu koma né hverjir eiga að starfa á sjúkrahúsinu en áætlað er þó að eigi að vera um eitt þúsund starfsmenn. Komið hefur fram að ekki verði sér- staklega falast eftir íslensku starfs- fólki en erfitt að sjá að hægt sé að reka stórt sjúkrahús hérlendis allt árið um kring, með eingöngu að- fluttu erlendu starfsfólki. Ljóst er að það er útilokað að manna tvö stór sjúkrahús á suðvesturhorninu með þeim fjölda heilbrigðistarfs- manna sem nú eru í boði hérlendis. Við teljum því að svona umfangs- mikil ný starfsemi gæti orðið veru- leg ógn við heilbrigðiskerfi sem er á viðkvæmum stað í endurreisn- arferli. Íslenskt heilbrigðiskerfi er einfaldlega ekki aflögufært um einn einasta starfsmann, eins og staðan er í dag. Rætt er um að þeim Íslendingum sem hugnast og hafa ráð á að greiða fyrir þjónustu á nýju einkareknu sjúkrahúsi muni standa hún til boða. Þetta skapar auðvitað mögu- leika á að þeir efnameiri muni sitja við annað borð en aðrir. Það stefnir þeim jöfnuði sem er svo mikilvægur í heilbrigðiskerfinu okkar í voða. Það væri gjörbreyting á íslenskri heilbrigðisþjónustu og stangast illi- lega á við þá hugmyndafræði sem er undirstaðan að velferðarkerfinu okkar. Það vekur jafnframt athygli okkar að viðkomandi munu sækjast eftir ríkisstyrkjum til fram- kvæmdanna vegna þess hve um- fangsmiklar þær munu verða. Undirbúningur fyrir byggingu nýs Landspítala er í fullum gangi. Fyrirhugað er að framkvæmdir hefjist fljótlega og er bygging nýs sjúkrahótels á Landspítalalóðinni reyndar þegar hafin. Hvaða áhrif hefur það á fyrirhugaðar fram- kvæmdir á LSH og jafnvel á efna- hagslegan stöðugleika hérlendis ef ráðist er í tvær stórar spítalabygg- ingar samtímis? Niðurlag Það er afar mikilvægt að okkar mati að hér verði stigið mjög var- lega til jarðar. Ber jafnlítið sam- félag og okkar stórt einkasjúkrahús til viðbótar við þjóðarsjúkrahúsið? Við hyggjum að flestir Íslendingar vilji hafa áfram aðgang að öflugu heilbrigðiskerfi, þar sem mögulegt er að bjóða upp á fjölþætta og sér- hæfða þjónustu í umhverfi þar sem aðgengi er gott og óháð efnahag. Slíku kerfi ber að hlúa að sem horn- steini í okkar samfélagi. Eftir Davíð O. Arnar, Ingibjörgu J. Guðmundsdóttur og Karl Andersen. » Við teljum því að svona umfangsmikil ný starfsemi gæti orðið veruleg ógn við heil- brigðiskerfi sem er á viðkvæmum stað í end- urreisnarferli. Davíð O. Arnar Höfundar eru yfirlæknar á hjartadeild Landspítala. Stendur heilbrigðiskerfinu ógn af fyrirætlunum um nýtt einkasjúkrahús fyrir útlendinga? Ingibjörg Guðmundsdóttir Karl Andersen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.