Morgunblaðið - 30.07.2016, Síða 22

Morgunblaðið - 30.07.2016, Síða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016 Bæði jörðin og maðurinn eru í heilsu- kreppu og nýjustu sjúkdómsfaraldrar, samkvæmt Alþjóða- heilbrigðismálastofn- uninni, eru lífsstíls- sjúkdómar. Útfrá sjónarhóli náttúru- lækninga og græðara má glögglega sjá að einn aðalorsakavald- urinn er lággæðafæði sem alls- nægtaþjóðfélagið býður upp á. Það er tilbúin, næringarsnauð og ónáttúruleg fæða, oftar en ekki hlaðin aukaefnum. Annar lífsstíls- vandi er áhersla á lausnir með dýrum lækningum og dýrum lyfj- um. Dæmi um lággæðafæðuna er morgunkorn af ýmsum gerðum, unnar mjólkurvörur, brauð, kex og drykkir í flöskum eða fernum. Í slíkri fæðu er viðbættur sykur í margskonar útgáfum með misjöfn- um heitum, sem ruglar fólk í rím- inu sem vill reyna að skoða og skilja innihald þess sem það borð- ar. En þó svo upplýsingar um óhollustuna megi sjá víða, meðal annars á síðu Landlæknis, þá virð- ist almenningur oft og tíðum týnd- ur í upplýsingaflæðinu. Framboðið á lággæðavöru er þar að auki svo mikið og aðgengilegt. Næringar- snauða og efnaviðbætta fæðið er oft ódýrara og hægt að fá meira magn af pakkamat en af grænmeti og ávöxtum, fyrir sama pening. Unga fólkið er í sérstakri áhættu með að falla fyrir lággæðafæðinu vegna verðlagsins og bragðsins. Taugasérfræðingurinn Gomez- Pinilla birti samantekt úr tugum rannsókna sem sýndu fram á nei- kvæð áhrif af lélegu fæði á tauga- kerfið, meðal annars á heila- starfsemi, og mikilvægi góðrar næringar. Fram kom að fitusýrur komi í veg fyrir einbeitingarskort og styrktu minni auk þess að draga úr líkum á þunglyndi og öðrum geðrænum vandamálum. Neytendur lággæðafæðu og skyndibita eiga á hættu að fá ekki næga næringu. Þó þú fyllir mag- ann og seðjir bragðlaukana þá uppfyllir þú ekki næringarþörfina og líkaminn kallar eftir meira magni af fæðu en áður. Dr. Aseem Malhotra, hjarta- læknir, hélt nýlega fyrirlestur hér á landi og fjallaði um skaðsemi sykurs og ábyrgð stjórnvalda. Syk- urinn er hinn mesti skaðvaldur fyrir hjarta og æðakerfi en ekki hörð fita eins og lengi hefur verið haldið fram. Í máli hans kom fram að á meðan hundrað krónum er varið til forvarna er um fimm hundruð þúsund krónum eytt í að kynna og auglýsa sykurinn og ruslfæð- ið. Dr. Aseem vann að því að fá yfirvöld í Bretlandi til að leggja aukinn skatt á sykur til að draga úr neyslunni. Á Íslandi hafa skattar á sykur og sykraðar vörur verið lækkaðir. Sívax- andi heilsuleysi og sjúkdómar eru afleiðing af lífsstíl og stjórnar- háttum og þjóðfélagi sem tekur þátt í, og samþykkir, að fæðan sem er í boði sé samansett efna- súpa, hlaðin sykri, sætuefnum og aukefnum – þjóðfélag sem styður að verslanir séu uppfullar af eftir- líkingum af mat. Það eru líka sjálfsalar með sælgæti og gos- drykkjum á sjúkrahúsum þar sem afleiðingar lággæðafæðunnar blasa við okkur. Að halda að sí- fellt meira fé í leit að nýjum lyfj- um og meiri lyfjum sé lausn, eru ranghugmyndir. Lyf við lífsstíls- sjúkdómum eru mjög skammsýn lausn. Lyfjaiðnaður er einn eftir- sóttasti iðnaður nú til dags vegna gróðans sem hann gefur. Það virðist vera auðvelt með hjálp vís- indanna að selja heilbrigðisyfir- völdum þá hugmynd að hin og þessi lyf séu nauðsynleg til að bjarga heilsunni. Það er löngu kominn tími til að horfa á aðrar lausnir, einfaldar lausnir og ódýrar, án eiturefna: Að kenna fólki að lifa heilbrigðara lífi. Þannig getum við sparað þjóðfélaginu dýra læknisþjónustu. Stjórnvöld gætu einnig hjálpað al- menningi með því að minnka framboð og aðgengi að lággæða- fæðu, alveg eins og gert er við tóbak. Sykurinn er nýjasta fíknin, hann veikir börnin okkar, ung- linga og fullorðna og fólk verður ekki aðeins líkamlega veikt af sykri og lággæðafæði, heldur einnig andlega. Auknar skatta- tekjur af sykri og ruslfæði mætti nota til að efla fræðslu og for- varnir. Er sykur of ódýr og lausnir of dýrar? Eftir Lilju Oddsdóttur » Bæði jörðin og mað- urinn eru í heilsu- kreppu vegna lág- gæðafæðis. Það er tími til að horfa á aðrar lausnir. Að kenna fólki að lifa heilbrigðara lífi. Lilja Oddsdóttir Höfundur er skólastjórnandi Heilsu- meistaraskólans og skráður græðari. Út er komin bókin: Úr lausblaðabók ljóð- ævi. Höfundur er Ingv- ar Gíslason, fyrrverandi alþingismaður og ráð- herra. Ingvar varð góð- kunningi minn ágætur, virtur þingmaður, kurt- eis maður en einarður, ljúfmenni um leið. Ég veit ekki hvort umsögn af þessu tagi hlýtur náð enda engin bókmennta- fræði á bak við, aðeins einlæg tilfinn- ingin. Ég varð blátt áfram það hrifinn af þessum ljóðum og ljóðaþýðingum að ég setti á blað fáeinar línur með til- vitnunum í bókina þar sem stíllinn er oft knappur en segir mikið samt. Hamingja Langt niðrá hafsbotni í lokaðri skel liggur hamingja þín engum til aðgöngu öðrum en þér formuð sem fágæt perla. Öll frekari orð óþörf eða þá smáljóðið um ör- lög þorpsins, örlög sem við þekkjum svo vel. Þorpið Lætur sig þrauka þorpið og þröngt milli fjalla í giljóttu brattlendi. Útmálað í ábúð- armiklum skáldsögum bíómyndum upp á síðkastið ættlaust áfangi farenda á leið suður. Og svo hugsar Ingvar til Páls Ólafs- sonar í stökunni: Á Hallfreðarstöðum. Þegar aftur vaknar vor verður líf um Blána. Stæltum fótum stíga spor Stjarna, Löpp og Grána. Að lokum í stuttri grein, hreimfag- urt og vermandi: Hörpuljóð Um dalaból af velli fönnin víkur, og vakna í fölu túni grænar nálar, er vorið hallann hörpulitum málar og hendi mjúkri golan landið strýkur. Í daufum sálum doðamyrkri lýkur og dáðir vakna þær sem áður sváfu, því vorsól eflir dug og gleðigáfu, hún gjöfum deilir mild og engan svíkur. En laus af garða ærin jarmar ör, hún á sér draum um frelsi upp til heiða að annast lömb og lifa góða vist. Svo ólm til fjalla álftin þreytir för, þar óskalöndin fanga haná og seiða. Og senn mun nóttin sólarvörum kysst. Hugumhlýjar þakkir hljóttu, Ingvar. Megi sem flestir nema og njóta. Um Lausblaðabók Ingvars Gíslasonar Eftir Helga Seljan »Ég varð hrifinn af þessum ljóðum og ljóðaþýðingum. Helgi Seljan Höfundur er fv. alþingismaður. Málefni innflytjenda eru tíðrædd á Íslandi og fer umræðan harðn- andi. Einir vilja loka landinu, aðrir opna það, en flestir líklega ein- hvern milliveg. En í þessu sem öðru eru þeir sem yzt á plankanum standa mest áberandi og gildir það um báða enda. Höfum í huga að helsti hvati til að taka á móti flóttafólki hlýtur að vera mannúð. Það þýðir ekki endilega að þeir sem streitast á móti eða setja var- nagla skorti mannúð. Frekar að henni sé beint annað. Vitanlega eru til vond- ar manneskjur en upp til hópa erum við flest blanda mannúðar og grimmd- ar þó kveikjurnar séu mismunandi. Að kalla hvert annað ónöfnum eða telja til úrhraka vegna skoðana er óvænleg leið til árangurs og gerir lítið annað en að ýta undir öfgar. Þegar kemur að mót- töku flóttafólks held ég flesta vilja sýna mannúð og taka þátt í alþjóðlegri ábyrgð. Á Íslandi erum við heldur ekkert mjög mörg og gætum hæg- lega nýtt fleiri hausa og hendur. Við hljótum að geta komið okkur sam- an um tiltekinn fjölda flóttafólks árlega með gagnkvæmum réttindum og skyldum. Við hljótum að vilja hraða umsóknar- ferli hælisleitenda og samræma með- gjöf þeirra og kvótaflóttafólks. Og varla viljum við rífa upp með rótum fólk sem er að hasla sér völl eða með börn í skólum. Hvað þá heldur að fjöl- miðlaumfjöllun sé ráðandi um gæfu fólks. Eitt er að taka á móti fólki, annað hvernig það samlagast. Í því er sjálf- gefið að læra af reynslu annarra þjóða og þó fámennið á Íslandi gefi svigrúm er það einnig heftandi. Þannig er Ís- land friðsælt, opið samfélag þar sem mannréttindi eru almenn og fordómar á undanhaldi. Þessum ávinningi vilj- um við ekki fórna, jafnvel ekki fyrir mannúð, eða hvað? Málefni innflytjenda brenna á okk- ur eins og öðrum siðmenntuðum þjóð- um, hófstillt umræða væri góð byrjun því hún dregur fram það besta í fari hvers og eins. Um málefni innflytjenda Eftir Lýð Árnason »Helsti hvati til að taka á móti flótta- fólki hlýtur að vera mannúð. Það þýðir ekki endilega að þeir sem setja varnagla skorti mannúð. Lýður Árnason læknir Höfundur er læknir. Umræður um spít- ala í Mosfellsbæ eru dæmigerðar um ofsa- viðbrögð og sleggju- dómsáráttu okkar Ís- lendinga þegar ný- breytni ber á góma. Áður en menn vita um hvað þessi hug- mynd snýst eru menn risnir upp á afturfæt- urnar til að bölsótast, ráðast á hugmyndina og finna henni allt til foráttu. Persónuárásir eru ekki langt und- an. Skjóta á frumkvöðulinn svefn- þorni og flytja hann nauðugan á Grænlandsjökul til að bíða þar ör- laga sinna. Í gegnum moðreykinn grillir í ótta við að fá gott fordæmi inn í landið. Það myndi rústa íslensku velferðar- kerfi. Hesthús væri betra. Væri ekki betra að menn drægju andann í gegnum nefið og athuguðu málið ró- lega. Nýr stór spítali fjármagnaður af erlendu fé gæti stórbætt okkar heil- brigðiskerfi ef rétt er á málum hald- ið. Fyrstu spítalarnir á Íslandi voru erlendir, franskir spítalar og Landa- kotsspítali. Ný þekking myndi flytjast inn í landið, stækka þyrfti læknadeildir háskól- anna og efla hjúkrunar- menntun. Setja þyrfti meira fjármagn í heil- brigðiskerfið, sem löngu er orðið ljóst. Menn hafa tala um 11% af þjóðarframleiðslu í því sambandi. Í einu dagblaðanna stendur eitthvað á þessa leið: Og við viljum ekki sjá sér- staka spítala, þar sem hægt er að greiða fyrir bestu þjónustu meðan lakari þjónusta er í boði hjá sjúkra- húsum í opinberri eigu. Einmitt. Svona sjúkrahús mega ekki sjást hér á landi. Hesthús. Allt annað mál. Upplýst hefur verið að Íslending- ar geta fengið þjónustu spítalans ef þeir borga fyrir hana. Þetta telja menn að muni rústa íslensku vel- ferðarkerfi og jöfnuði þess. Þetta er auðvitað mikill misskiln- ingur. Flestir sjúklingar spítalans verða erlendir og þurfum við því ekki að hafa áhyggjur af því hvernig þeirra lækning er fjármögnuð. Þurfi Íslendingar að leggjast inn á þennan spítala verður kostnaðurinn greidd- ur af Tryggingastofnun ríkisins og jöfnuður okkar þjóðfélags haldinn í heiðri. Það er Tryggingastofnun sem á að tryggja jafnræði á milli landsmanna í velferðarkerfinu, ekki spítalarnir. Tryggingastofnun greið- ir kostnað sjúklinga sem þarf að senda á erlenda spítala (jafnvel dýra ameríska spítala í einkaeigu). Er nokkuð verra að þessi erlendi spítali sé uppi í Mosfellsbæ? Það sem menn óttast er að yfir- völd geti ekki fjársvelt útlendinga- spítalann eins og íslenskar heilbrigð- isstofnanir og komið í veg fyrir að hann borgi starfsfólki sínu laun, sem eru samkeppnisfær við laun í ná- grannalöndum okkar, en án þess á íslenskt velferðarkerfi ekki nægi- lega framtíð fyrir sér og verður í sí- felldu basli. Þetta telja menn að muni rústa íslensku heilbrigðiskerfi, en gæti raunin ekki orðið alveg þver- öfug? Gleymum hesthúsunum í bili. Útlendingaspítalinn Eftir Jóhann J. Ólafsson Jóhann J. Ólafsson » Í gegnum moðreyk- inn grillir í ótta við að fá gott fordæmi inn í landið. Höfundur er stórkaupmaður. Húsið er 60 m2 að grunnfleti kjallari, hæð og ris. Birt flatarmál 109 m2. Húsið stendur á 409 m2 leigulóð í eigu Fjallabyggðar. Upplýsingar í síma 897 6963. Eyrargata 31, Siglufirði er til sölu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.