Morgunblaðið - 30.07.2016, Page 27

Morgunblaðið - 30.07.2016, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016 Það er með sorg í hjarta sem ég skrifa þessi orð til að minnast hennar móður minnar sem var svo mikill harðjaxl og dugnaðarforkur en samt svo undurblíð og umhyggju- söm. Mamma var mjög stolt af því að vera húsmóðir. Hún sinnti því starfi vel og móðgaðist sáran þeg- ar sagt var að þessi eða hin konan væri „bara“ húsmóðir. Þegar mamma gifti sig þótti eðlilegt að hún hætti í hárgreiðslunáminu. Hlutverk kvenna var að sinna heimili, eiginmanni og börnum. Það var líka alveg full vinna á þeim árum að vera húsmóðir. All- ur matur var eldaður frá grunni, þrisvar sinnum á dag og oft tví- réttað, allur þvottur var hengdur út til þerris og straujaður áður en hann fór aftur í skúffur og skápa, börnin áttu að vera hrein og kurt- eis og heimilið allt skínandi og stífbónað. Mamma lét þó ekki þar við sitja heldur annaðist hún einn- ig allt viðhald á húsinu og hannaði og ræktaði upp garðinn sinn. Mamma var líka mikil handa- vinnukona. Allt lék í höndum hennar, hún prjónaði, bróderaði og mundaði saumavélina. Hún sneið og saumaði kjóla, buxur, blússur og jakka, hvað sem okkur langaði í. Alltaf fékk maður nýtt dress fyrir jólin og annað á 17. júní og eitthvað fleira þess á milli líka. Ég man eftir því eitt sinn þegar ég var unglingur og var að fara í útilegu að ég rétti henni með stuttum fyrirvara lopa og uppskrift að peysu og bað hana vinsamlegast að prjóna hana fyrir næstu helgi. Ekkert mál. Því var reddað eins og öllu öðru. Alla tíð voru börn í kringum mömmu. Hún var mikil barna- gæla og það var enginn sem hafði eins gott vald á að hugga annars óhuggandi ungbarn. Þegar hún var búin að koma sínum fjórum börnum á legg, þá komu barna- börnin, hvert á fætur öðru, 15 talsins, á um það bil 25 árum og hún tók meira eða minna þátt í uppeldi þeirra allra. Hún var okk- ar einkavöggustofa og brúaði bil- ið þar sem fæðingarorlofi sleppti þar til leikskólar tóku við. Auk þess var hún alltaf tilbúin að passa ef við þurftum af einhverj- um ástæðum að bregða okkur af bæ. Mamma var mjög listræn. Hún naut þess að hlusta á góða tónlist Margrét Katrín Valdimarsdóttir ✝ Margrét KatrínValdimars- dóttir fæddist 6. júní 1926. Hún lést 10. júlí 2016. Útför Margrétar Katrínar var 21. júlí 2016. og gat spilað bæði á píanó og gítar. Sér- staklega nutu börn- in þess að sitja með henni þegar hún spilaði og söng með þeim. Hraustari mann- eskju hef ég aldrei þekkt. Það voru því mikil viðbrigði þeg- ar fyrsta áfallið kom fyrir um fjórum ár- um síðan og mamma varð skyndi- lega ósjálfbjarga. Hún tók samt veikindum sínum af miklu æðru- leysi, aldrei var hægt að sjá á henni óþolinmæði eða vonbrigði og aldrei kvartaði hún. Yndislegu starfsfólki Hrafnistu í Hafnar- firði þakka ég þá natni, umhyggju og virðingu sem þið sýnduð móð- ur minni síðustu árin, þegar þrek hennar sjálfrar var uppurið. Elsku mamma mín, nú er kom- ið að kveðjustund. Ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína. Ég þakka þér fyrir að vera alltaf til staðar fyrir okk- ur og fyrir samferðina í gegnum lífið, en nú skilur leiðir. Ég er viss um að hvar sem þú nú ert, þá er þar örugglega glampandi sólskin, hlæjandi börn, litrík blóm og hug- ljúf tónlist. Þín Ólafía (Óla). Margrét tengdamóðir mín var fædd og uppalin í Ytri-Njarðvík. Foreldrar Margrétar voru bæði af Snæfellsnesinu, Sigríður móðir hennar úr Stykkishólmi, en Valdi- mar faðir hennar úr Dölunum. Eiginmaður Margrétar var Guð- jón Steingrímsson hæstaréttar- lögmaður. Börnin urðu fjögur; Steingrímur, Valdís Birna, Þórdís og Ólafía Sigríður. Eftir að Mar- grét varð ekkja aðeins 62 ára gömul hélt hún heimili sem fyrr á Ölduslóð 44, þar til hún fluttist að Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir tæp- um þremur árum. Margrét og Guðjón tóku mér ákaflega vel þegar ég kom inn í fjölskylduna. Fyrstu búskaparár okkar Þórdísar bjuggum við í kjallaraíbúð hjá þeim. Það voru góðir tímar. Börnin okkar hænd- ust að ömmu sinni sem var hvetj- andi og hjálpsöm og þau tengdust henni sterkum böndum. Margrét var listræn, málaði á postulín, var með vefstól á heimilinu og óf fal- legan vefnað. En fyrst og fremst var hún músíkölsk og hafði sterka ástríðu fyrir tónlist. Hún spilaði á gítar og píanó og söng m.a. í Pólý- fónkórnum. Áhugi hennar á tón- listarsviðinu spannaði allt rófið. Klassísk tónlist, nútímatónlist, dægurtónlist, allt. Þau Guðjón voru dugleg að sækja tónleika og leikhús. Eftir lát Guðjóns hélt Margrét uppteknum hætti. Tón- list var henni í blóð borin og slíkt losnar maður ekki við. Það var henni ánægjuefni að barnabörnin sóttu sér tónlistarmenntun og hún mætti á tónfundi og tónleika hjá þeim og sýndi þannig hug sinn í verki. Þau Margrét og Guðjón byggðu sér sumarbústað í landi Svarfhóls í Svínadal. Þar voru þau alltaf er stundir gáfust. Við Þórdís og börnin nutum þar gest- risni þeirra. Þá eru líka minnis- stæðar utanlandsferðirnar. Fyrst til Spánar með þeim hjónum og síðar ferðalög bæði innanlands og utan með Margréti eftir að Guð- jón lést. Með henni fórum við tvisvar til Þýskalands, til Edin- borgar og til London að samfagna þegar Margrét dóttir okkar út- skrifaðist þaðan úr tónlistarnámi. Fjölskylda mín og Þórdísar var alla tíð í miklu samneyti við Mar- gréti. Hún heimsótti okkur tíðum og við hana, við borðuðum saman, fórum á tónleika, í ferðalög og fleira. Við Margrét deildum ekki stjórnmálaskoðunum, og stund- um var tekist á. Hún hafði sterkar skoðanir, trú sjálfstæðisstefn- unni, en ég á hinum kantinum. En það kom ekki í veg fyrir vænt- umþykju okkar hvort til annars, enda fjölskylduböndin sterk og þau gildi sem þar ríktu voru hafin hátt yfir þras hversdagsins. Margrét tók ung bílpróf og fór allra sinna ferða. Fór með vinkon- um í ferðalög og ók meira að segja hringinn kringum landið á áttræðisaldri. En fyrst og fremst var Mar- grét góð manneskja, glaðlynd og áhugasöm um fjölskyldur barna sinna, sífellt vakandi yfir velferð þeirra, kærleiksrík og óþreytandi í að sinna þeim sem best hún gat. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við Þórdís og fjölskylda okkar kveðjum Margréti með söknuði og þökkum kærleiksríka vegferð. Sigurður Björgvinsson. Upphaf, meginmál og niðurlag. Þannig er víst ævi okkar allra þótt kaflarnir séu stundum í vit- lausum hlutföllum en amma fékk öll árin sem við óskum okkur flest. 90 ára í júní, heilinn farinn að bilast eitthvað en augnaráðið skýrt eins og það hafði alltaf ver- ið. Viðkvæm en hörð af sér með hökuna upp. Háir hælar, pils og nælon, krosslagðir fætur og eleg- ant. Málaði húsið, keyrði bíl, eld- aði eins og Michelin-kokkur. Stóð fast á sínu, stundum svo fast að aðrir höfðu aðeins um það eitt að velja að gefa eftir en sanngirni og heiðarleiki voru í forgrunni og tryggðin var útgangspunktur í álitsgjöf. Fólk var ekki mikils virði ef það lagði það ekki á sig að standa við gefin loforð. Hún var næm og fínni blæ- brigði tilverunnar skildi hún bet- ur en flestir. Tónlist, vefnaður, postulínsmálning, ballett. Hún hafði unun af þessu öllu. Vildi hafa listina fallega og sanna og helst þannig að hún lyfti manni upp til himna. Burberry-frakki og spæjara- hattur. Svartur minkapels og skinnhúfa. Klassísk tónlist á vín- ylplötum, gítar og píanetta í stof- unni. Pabbi hennar útgerðarmað- ur í Keflavík og mamma hennar af efnafólki í Stykkishólmi en beið í festum í sjö ár meðan eiginmað- urinn tilvonandi, kominn úr fá- tækt, safnaði peningum og byggði hús. Á heimilinu voru vinnukonur og vinnumenn en börnin tóku þátt og enginn var merkilegri en ann- ar. 18 ára hljóp amma í skarðið fyrir skipskokk og með háseta- hlut eftir túrinn var hún líklega hæst launaða kona landsins. Afi minn, Guðjón Steingríms- son hæstaréttarlögmaður, var lengi vel formaður Lögmanna- félags Íslands og þau ferðuðust víða í tengslum við hans störf. Bæði nutu þess að sjá heiminn og setja hlutina í stærra samhengi en heimilið og börnin voru í for- grunni og próf frá Húsmæðra- skóla Reykjavíkur bjó hana vel undir ævistarfið. Amma var hógvær og vildi ekki þvælast fyrir neinum en stoltið gat aftur á móti þvælst fyrir henni sjálfri. Stundum var staðið upp í bíó þegar fimm mínútur voru liðnar af myndinni ef upp- hafsatriðið gaf til kynna að áframhaldandi seta myndi veð- setja mannorðið. Þegar Bítlarnir voru sýndir í bíó í Reykjavík mætti hún aftur á móti á sýningu með silkislæðu um höfuðið og sól- gleraugu. Tvær vinkonur saman sem nutu tónlistar í hvaða formi sem var og vildu kanna málið áð- ur frekar en að láta aðra dæma fyrir sig. Í barnabörnunum rættust margir þeirra drauma sem hún sjálf hafði lagt á hilluna eins og flestar konur af hennar kynslóð gerðu um leið og þær gengu í hjónaband en hún var laus við eft- irsjá og fann hæfileikunum nýja farvegi. Fólkið sitt elskaði hún meira en lífið sjálft og samveran með fjölskyldunni var það sem skipti hana mestu máli alla tíð. Upphaf, miðja og niðurlag renna saman í eitt. Amma var södd lífdaga þegar komið var að leiðarlokum en með minningun- um verður hún alltaf og eilíflega hluti af tilverunni. Stórkostleg manneskja, örlát, gjafmild, skemmtileg og kát. Fyrir allt saman, ástina, tím- ann og atlætið frá upphafi og til enda verð ég alltaf og ævinlega þakklát. Hvíl í friði elsku amma. Margrét Júlíana Sigurðardóttir. Elsku afi, nú ert þú farinn til ömmu sem þú saknaðir svo sárt, aðeins þremur árum á eft- ir henni. Æ, þetta er svo sárt. Margar minningar ryðja sér til rúms meðan tárin fylla augun og gæti ég fyllt heila bók með góð- um minningum um þig, elsku afi. Besta minningin mín er hvað það var gott að skríða upp í þinn Þórir Atli Guðmundsson ✝ Þórir Atli Guð-mundsson fæddist 20. október 1933. Hann lést 9. júlí 2016. Þórir Atli var jarðsunginn 20. júlí 2016. mjúka faðm sem alltaf tók á móti manni og skeggið sem kitlaði hálsinn, þar var sko gott að vera alveg sama hvað maður varð gamall. Laugarvatn kem- ur upp í huga mér þegar ég rifja upp gömlu góðu dagana með þér og ömmu. Þar bjuggum við næstum því hlið við hlið og var gott að geta labbað yfir til afa og dundað með honum í búðinni. Svo eru nátt- úrulega minningarnar frá bens- ínstöðinni beint á móti KÁ á Sel- fossi fyrir „nokkrum“ árum. Þegar ég var í pössun hjá þér og ömmu á Selfossi og ég labbaði til þín í bensínstöðina til að segja „hæ“ og fékk alltaf prins póló í laumi. Þú varst alltaf að hnýta flugur því veiði var þitt áhugamál. Ég man hvað það var gaman að leika sér inni í herberginu þínu í Úthaganum og þykjast hnýta flugur og ég tala nú ekki um þegar þú kenndir mér svo að hnýta mína eigin flugu. Þú veiddir meira að segja á fluguna sem ég gerði fyrir þig, elsku afi, þótt hún hafi ekki verið nein aflakló. Svo var komið að því að flytja á Eyrarbakka í litla fallega húsið ykkar. Þar áttuð þið amma góð ár saman og við með ykkur. Barnabarnabörnin komu svo loksins og voru þau litlir sól- argeislar í þínu lífi. Þau eru nú orðin sjö talsins og var gaman að sjá hvað þú hafðir gaman af því að hafa þau í fanginu eins og okkur barnabörnin þín. Þú komst í öll afmæli barnanna minna og fékkst þú alltaf gott knús frá öllum hér þegar þú mættir, það var bara ekki annað hægt en að knúsa þig, þennan mjúka góða faðm. Síðustu ár hefur þú farið mik- ið á húsbílnum þínum að veiða, sem var nú þitt uppáhald. Oft veiddir þú lax sem síðan rataði í munn okkar afkomenda þinna, enda besti fiskur sem veiddur hefur verið. Þú fékkst að fara við veiði í húsbílnum þínum, elsku afi. Nú getið þið amma dansað saman og veitt alla þá fiska sem ykkur langar í, saman. Elsku afi, takk fyrir æðislegar minningar sem aldrei gleymast. Þín er sárt saknað. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Ingibjörg Aðalsteinsdóttir. ✝ Bjarni fæddist14. apríl 1937. Hann lést á heimili sínu í Kaupmanna- höfn 28. júní 2016. Foreldrar hans voru Lena Bjarna- dóttir frá Stykk- ishólmi og Róbert Bender. Bjarni ólst upp hjá móður sinni í Stykkishólmi og síðar í Reykjavík. Þegar Lena, móðir Bjarna, giftist Guðmundi Jónssyni frá Litla-Bæ á Gríms- staðaholti fluttust þau mæðg- inin þangað og með tímanum eignaðist Bjarni sex systkini, þau Guðbjörgu, Braga, Kristinn, Eddu Sjöfn, Elísabetu og Haf- stein. Síðar fluttist fjölskyldan á Bú- staðaveg 103 í Reykjavík. Bjarni lærði til fram- reiðslumanns í Tjarnarkaffi og starfaði við iðnina í Naustinu, Fram- sóknarhúsinu og Þjóðleikhús- kjallaranum. Bjarni var þrí- kvæntur og eignaðist fimm börn, þau eru: Sigurbjörg, Ing- unn Lena, Bjarni, Jóhanna Katr- ín og Jóhannes. Bálför Bjarna hefur farið fram í Kaupmannahöfn og verð- ur aska hans flutt til Stykkis- hólms. Mig langar að minnast bróður míns, Bjarna Benders Róberts- sonar, í örfáum orðum. Bjarni var myndarlegur maður, glaðvær og örlátur. Hann var orðhagur, hnyttinn í tilsvörum, hann var gleðimaður. Ég minnist hans úr æsku minni sem spennandi stóra bróður sem færði okkur ýmis æv- intýri í formi gjafa og sjaldséðra ávaxta, t.d. voru perur ekki hvers- dagsmatur á Grímsstaðaholtinu. Bjarni fluttist til Kaupmanna- hafnar þegar hann var 35 ára og starfaði þar við fag sitt um hríð. Það var gaman að heimsækja hann þangað og voru móttökurnar höfðinglegar, stórar steikur með besta meðlæti og servíetturnar í hátíðarbroti en hver er sinnar gæfu smiður og það gefur víðar á bátinn en við Grænland. Bjarni bróðir fékk sinn skammt af ágjöf um ævina. Þegar aldurinn færist yfir og heilsan bilar hendir það oft stór- lynda menn að draga sig til hlés og það gerði hann. Þá vill vinahóp- urinn þynnast fljótt en þeir sem eftir standa verða óendanlega verðmætir og þeim ber að þakka. Sven Arve, þakka þér fyrir þá tryggð og vináttu sem þú sýndir Bjarna bróður allt til dauðadags. Hólmgrímur Svanur Elísson, frændi okkar, sem aldrei brást honum, þakka þér. Vertu sæll, kæri bróðir. Bragi H. Guðmundsson. Bjarni Bender Róbertsson Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, HELGI ELÍASSON, Miðvangi 98, Hafnarfirði, verður kvaddur frá Fjörukránni í Hafnarfirði fimmtudaginn 4. ágúst klukkan 14. . Erla B. Bessadóttir, Bessi H. Þorsteinsson, Agnes Jóhannsdóttir, Sigurrós Elíasdóttir, Örvar, Tinna, Kristján, Eva Rós, Sindri og fjölskyldur. Móðir okkar og amma, SIGRÍÐUR EYÞÓRSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 3. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á reikning leikhópsins Perlunnar, 0137-26-18529, kt. 561188-1579. . Börn og barnabörn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudaga. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjón- armenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.