Morgunblaðið - 30.07.2016, Síða 28

Morgunblaðið - 30.07.2016, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016 Elsku pabbi og tengdapabbi. Við fjölskyldan eigum eftir að sakna þín sárt en við höf- um mikið af góðum minningum til að varðveita. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Hjartans þakkir fyrir allt, elsku pabbi. Þín Sigurlaug og Árni Ómar. Flestöllum sumrum á uppvaxt- arárum mínum, eða til 16 ára ald- urs, var ég svo lánsamur að fá að eyða með afa Ingvari og ömmu Siddý í Sólheimum. Ég var alltaf mættur norður í Sólheima um leið og skóla lauk að vori og fór svo aftur suður rétt áður en skóli hófst aftur að hausti. Ávallt tóku afi og amma mér vel og fékk ég að taka þátt í öllum þeim verkefnum sem verið var að sinna á hverjum tíma, hvort sem það var heyskapur, girðinga- vinna, vitja um net eða eitthvað annað. Afi var ávallt að kenna mér eitthvað nýtt, kenndi mér m.a. að keyra bíl, en það var fljót- lega eftir að ég náði niður á ped- ala á traktornum. Ingvar Þorleifsson ✝ Ingvar Þor-leifsson fædd- ist 17. mars 1930. Hann lést 8. júlí 2016. Útför hans fór fram 15. júlí 2016. Okkur afa kom ávallt mjög vel sam- an, vorum góðir vin- ir og minnist ég þess aldrei að hann hafi skammað mig þó eitthvað hafi misfar- ist eins og gengur og gerist eða ef hlutir voru ekki verið gerðir eins vel og ætlast var til. Eitt skiptið sem við vor- um í girðingavinnu þá gleymdi ég að setja traktorinn í handbremsu eftir að afi hafði beðið mig um að henda til sín girðingarstaur. Ég stökk af traktornum og henti staur til afa en ekki vildi það bet- ur til en svo að traktorinn rann af stað niður af veginum og í gegn- um girðinguna sem við vorum búnir að vera að vinna við að laga. Ég hélt niðri í mér andanum frá því að ég sá traktorinn byrja að renna af stað og þangað til hann staðnæmdist, bjóst við að verða skammaður en afi hló bara að þessum klaufaskap. Í sveitinni hjá afa og ömmu var ávallt rólegt og notalegt and- rúmsloft, oftast sama rútína alla daga. Yfirleitt fór ég ásamt ömmu í fjósið að mjólka en afi fékk að sofa lengur. Eftir það var komið inn í morgunkaffi, þar var afi að drekka morgunkaffið sitt og ákveðið var hvað ætti að gera í dag. Svo voru unnin verkefni fram að hádegismat. Eftir mat var hlustað á fréttir og veður og svo dottað í smástund, afi í sóf- anum inni í símaherbergi og ég inni í stofu. Svo var farið út og unnið fram að kaffitíma, haldið áfram að vinna eftir kaffi, mjólkað og borðaður kvöldmatur. Á kvöld- in var svo horft á sjónvarpið og dagurinn endaði með smá kvöld- kaffi. Skemmtilegast fannst mér samt þegar það voru einhverjir gestir í sveitinni, þá var oft setið langt fram á kvöld og fullorðna fólkið spjallaði um alla heima og geima og hlustaði ég ávallt á sam- ræður afa og gesta með mikilli at- hygli og hló með. Ég var alltaf svo stoltur af því að eiga afa sem var hreppstjóri, fannst það flottasti titill sem hægt væri að hafa og fékk ég stundum að sinna embættisverkum með honum eins og að bjóða upp óskil- ahross. Mér þykir óendanlega vænt um minningar mínar um afa og sveitina okkar sem er svo yndis- leg og stendur alltaf undir nafni í hjarta okkar sem höfum verið svo heppin að eyða tíma þar. Ávallt þegar ég kem norður í sveitina þá finnst mér eins og ég sé að koma heim. Nú er afi kominn á vit for- feðra sinna eftir að hafa legið inni á spítala í talsvert langan tíma. Söknuður okkar er mikill en minningin um góðan mann mun lifa. Þakklæti mitt er mikið að hafa fengið að kynnast honum og að hann hafi verið afi minn. Snorri Freyr Árnason. Elsku afi. Takk fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Við vitum að nú ertu kominn á góðan stað og þú svífur án efa um í Sól- heimum, sveitinni þinni sem þú unnir svo vel og vildir helst ekki yfirgefa. Ég á eina minning, sem mér er kær: Í morgundýrð vafinn okkar bær og á stéttinni stendur hann hljóður, hann horfir til austurs þar ársól rís, nú er mín sveit eins og Paradís. Ó, hvað þú, Guð, ert góður. Ég á þessa minning, hún er mér kær. Og ennþá er vor og þekjan grær og ilmar á leiðinu lága. Ég veit að hjá honum er blítt og bjart og bærinn hans færður í vorsins skart í eilífðar himninum bláa. (Oddný Kristjánsdóttir) Við kveðjum þig nú í bili, elsku afi, megi guð geyma þig. Þínar afastelpur, Tinna og Thelma. Sem hluti af námi mínu við Bændaskólann á Hvanneyri var að fara í verknám á einhvern bóndabæ. Það kom í hlut Ingvars og Sigríðar á Sólheimum að taka mig í verknám og láta mig spreyta mig við hin ýmsu verk til sveita. Verknámið varði í 90 daga og í mínu tilfelli hefði það alveg mátt vara lengur, því í Sólheimum leið mér vel. Fyrsta minningin um Ingvar er í forstofudyrunum. Stór og þrekinn, dökkur á að líta og með fallegt og satt bros þegar hann bauð mig velkominn. Á Sólheimum var kúabú og fjósið varð mín kennslustofa. Þau voru líka með angórukanínur, en það var einmitt áhugi minn á þeim sem leiddi mig að Sóheimum. Þessir 90 dagar voru ekki lengi að líða, frá páskum og fram til um 10. júlí. Mér er mjög minnisstætt eitt atvik þegar Siddý hafði brugðið sér af bæ í nokkra daga, að Ingv- ar tók sig til og eldaði grjóna- graut. Þegar ég kom inn í bæinn til hádegisverðar lagði megna brunastækju um húsið. Hafði karl þá einhverra hluta vegna dormað við eldamennskuna eftir að mjólkin hafði verið sett í og graut- urinn allur brunninn. Við reynd- um að borða þetta, en urðum að sætta okkur við súrmjólk, því þó að við reyndum að ímynda okkur að brunaagnirnar væru rúsínur þá dugði það ekki til. Þegar Siddý var í þessari ferð ákvað Ingvar að koma henni á óvart og byrja að grafa fyrir litlum sólskála framan við stof- una. Kom einhver á gröfu og gróf, en við Ingvar ókum uppmokstr- inum burtu. Sagði hann að það væri mikilvægt að gera eitthvað óvænt sem myndi gleðja konuna þegar hún kæmi heim og varð Siddý hin ánægðasta. Hef ég tam- ið mér þetta í mínum hjúskap, með mismikilli ánægju þó. Þetta vor voru sveitarstjórnar- kosningar. Ingvar var hreppstjóri og bað hann mig um að gegna hlutverki dyravarðar. Sagði hann hvernig ég ætti að bera mig að og forðast að eiga í orðaskiptum við kjósendur, í mesta lagi að taka undir kveðju, til að kosningarnar myndu ganga hratt fyrir sig og fólk þyrfti ekki að bíða lengi eftir að komast í kjörklefann. Þetta má segja að hafi verið fyrsta opin- bera samfélagslega verk sem ég tók mér fyrir hendur. Ingvar kenndi mér að keyra bíl. Ég hafði nú ekið traktorum, en aldrei bíl. Það var Austin Gipsy, sem notaður var fyrir slóðadragann. Ók ég honum um tún og grundir eins og herforingi. Dag einn var verið að vinna við tún á öðrum bæ. Ég var á drátt- arvél og hann kom síðan til að skipta við mig og ég átti að fara heim í Sólheima. Átti ég þá að aka gipsyinum heim eftir þjóðvegin- um, ekki orðinn 17 ára og því próflaus. Hafði ég áhyggjur af þessu en Ingvar sagði brosandi að hann væri yfirvald í þessum hreppi og skipaði mér að aka heim, sem ég og gerði. Já, þessi tími á Sólheimum varð mér eftirminnilegur og dýr- mætur sem innlegg í mína eigin framtíð sem bóndi. Það var gott að vera hjá þeim hjónum og því miður hefur það orðið þannig að samverustundir okkar eftir að þessum tíma lauk hafa ekki verið margar. Ég vil þakka fyrir að hafa feng- ið að kynnast Ingvari og njóta leiðsagnar hans og votta fjöl- skyldunni innilega samúð. Þorgrímur E. Guðbjartsson, Erpsstöðum. Fallinn er óvænt frá okkur góður vinur, Agnar Már Ólafsson. Agnari kynntist ég fyrst á ferðalagi á Kanaríeyjum, var það okkar griðastaður síðustu ár með Agnari yfir jól og áramót. Aldrei hefði mér dottið það í hug að sein- asta ferð hefði verið sú síðasta með honum, enda var Agnar á leið til Kanada núna í júlí og að sjálf- sögðu búinn að panta ferð til Kan- arí yfir vetrartímann. Við Ómar höfðum oft sagt við Agnar hvað okkur þótti hann vera reglulega seigur. Hann tók það nú ekki í mál. Sannleikurinn er sá að það er ekki hvaða persóna sem er sem lætur drauma sína rætast, fer sínar ferðir sem hún hefur hug á og það ein á ferð. Drifkrafturinn var einstakur. Það var auðvelt fyrir Agnar að kynnast nýju fólki og maður fann það hvað hann naut þess að flakka erlendis. Okk- ur þótti það fyndið þegar Agnar sagðist vera með ferðaumboðs- mann á Borgarnesi. Það dugði nú heldur ekkert minna til, því nú var hans tími kominn til að njóta lífs- ins, ferðast og slappa af, eftir að hafa unnið í rúm fimmtíu ár hjá Vírneti. Mikið afskaplega er ég þakklát fyrir að hafa kynnst honum Agn- ari og allar þær gæðastundir sem við höfum átt saman. Nú í sumar höfum við gert svo mikið saman. Aldrei var keyrt í gegnum Borgarnes án þess að koma við í kaffi hjá Agnari á æskuheimili hans, Borgarbraut 50, bíltúrarnir um Borgarnes og Borgarfjörðinn. Agnar dró okkur einnig með sér á Byggðasafnið á Akranesi. Allar þessar góðu minningar og þessar frábæru stundir sem við vorum svo heppin að fá að njóta með honum þessa síðustu mánuði hans. Þessar frábæru stundir verða að lifa í huga okkar og myndum sem við vorum sem betur fer dug- leg að taka. Agnar Ólafsson ✝ Agnar Ólafssonfæddist 4. janúar 1944. Hann andaðist 7. júlí 2016. Útför Agnars fór fram 19. júlí 2016. Það verður skrít- ið að keyra í gegn- um Borgarnes og hitta ekki Agnar, fara til Kanaríeyja í vetur og hafa ekki félagsskap af þess- um mikla meistara eða einfaldlega taka upp símann og heyra í honum hljóðið. Þetta snögga fráfall þessa góða vinar kennir manni að lifa í núinu og njóta lífsins á hverjum degi, því hver dagur er guðsgjöf. Ég vil þakka þér, okkar kæri vinur, fyrir allar samverustund- irnar og vona að vinur okkar Hemmi hafi tekið lagið fyrir þig þarna uppi, það hefði fengið þig til að brosa. „Einn dans við mig.“ Hvíldu í friði, elsku Agnar. Þó er eins og yfir svífi enn og hljóti að minna á þig þættirnir úr þínu lífi, þeir, sem kærast glöddu mig. Alla þína kæru kosti kveð ég nú við dauðans hlið, man, er lífsins leikur brosti ljúfast okkur báðum við. (Steinn Steinarr) Þinn vinur, Gréta Jóhanna Ingólfsdóttir. Elsku Agnar. Það var sárara en orð fá lýst að frétta af fráfalli þínu, hvernig gat þetta staðist, spurði maður sig, hljóta þetta ekki að vera einhver mistök? En guð bæði gefur og tekur, hann tók þig frá okkur en gaf okkur að sama skapi hafsjó minninga, fyrir það er ég þakk- látur. Það var mikill fengur og heiður að kynnast þér og ég veit að þú naust stundanna okkar saman, það þurfti aldeilis ekki að vera nein skemmtidagskrá til að hafa ofan af fyrir okkur, þú varst alltaf tilbúinn að fara hvert sem var, bæði hér heima og úti á Kanarí, þar sem við áttum margar af okk- ar bestu stundum. Þú varst skemmtilega glettinn og það eru ófá hlátursköstin sem rifjast hafa upp síðustu dagana, eins varstu vel lesinn og fróður sem kom svo skemmtilega fram Við Kristín Hall- dórsdóttir áttum ekki margra ára samleið. En svo ágæt voru okkar kynni að hún mun alla tíð lifa í minningu minni. Þessi minning er um ljúfa manneskju sem alltaf lagði gott til málanna, ekki með bægslagangi eða framapoti heldur með hófsemd, yfirvegun, velvild og visku. Fáar manneskjur á sviði stjórnmálanna var jafngott að hafa nærri á erfiðum stundum. Ég gleymi aldrei þeim hlýju móttökum sem Kristín auðsýndi mér þegar ég gekk til liðs við Vinstrihreyfinguna – grænt fram- boð. Kristín tók mér opnum örm- um og var örlát á hrós og heilræði. Að njóta stuðnings þessa braut- ryðjanda Kvennalistans var mér ekki einungis heiður heldur dýr- mæt andagift og hvatning til dáða. Það var líka svo gott að hlæja með henni. Á þessum árum var veðra- samt á Alþingi og á vettvangi flokksstjórnmálanna voru ekki all- ir allra alltaf. Í kringum Kristínu Kristín Halldórsdóttir ✝ Kristín Hall-dórsdóttir fæddist 20. október 1939. Hún lést 14. júlí 2016. Minningarathöfn fór fram 26. júlí 2016. Halldórsdóttur var hins vegar jafnan lognblíða sem fylgdi velvild hennar og góðmennsku. Hjá henni gátu allir fundið skjól og gott veganesti. Kristín var mikils metin af mörgum enda greind, vel máli farin og ráðagóð. Aldrei mátti finna að hún hefði ofmetnast á sinni merku vegferð. Hið gagn- stæða var fremur upp á teningn- um. Framsækni hennar og fram- sýni á sviði umhverfismála og náttúruverndar verður lengi í minnum höfð og framlag hennar til kvenfrelsis- og jafnréttismála sem og annarra þjóðþrifaverkefna mun halda áfram að veita öðrum innblástur, ekki síður en hógværð hennar. Með mildri festu byggði Kristín vörður sem standast tím- ans tönn og fékk aðra í lið með sér til að gera slíkt hið sama. Eftir að ég kvaddi stjórnmálin og við fjölskyldan fluttum til Frakklands fyrir rúmum þremur árum hef ég verið í litlum tengslum við fyrri veröld. Ég sá Kristínu síðast í sundlaug Sel- tjarnarness þegar ég kom í sum- arfríi heim til Íslands. Hún var frískleg í hefðbundnum sund- spretti og það var yndislegt eins Af heilum hug þökkum við samúð og hlýhug vegna andláts FRIÐRIKS KRISTJÁNSSONAR, fv. framkvæmdastjóra. Þökkum einnig virðingu sýnda minningu hins látna. . Bergljót Ingólfsdóttir, Kolbrún Kristjánsdóttir, Vala Friðriksdóttir, Sigurður Magnússon, Friðrik Friðriksson, Elín Hirst, Kristján Friðriksson, Vilborg Einarsdóttir, Kolbrún Friðriksdóttir, Bergljót Friðriksdóttir og afkomendur. Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, amma og langamma, ANNA CARLA ÖRLYGSDÓTTIR, Ægisgarði, Hjalteyri, lést föstudaginn 8. júlí. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. . Jón Lárus Ingvason, Árni Már Mikaelsson, Þórður Ámundason, Sigurbjörg Ámundadóttir, Helga Bryndís Ámundadóttir, ömmu- og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ELSA VIOLA BACKMAN sjúkraliði, lést 21. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. . Ernst Björnsson, Þóra Sigurðardóttir, Ingrid Björnsdóttir, Katrín Súsanna Björnsdóttir, Anna Soffía Björnsdóttir, Þráinn Bj. Jónsson, Elsa Birna Björnsdóttir, G. Gunnar Björnsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu, dóttur, móður, tengdamóður og ömmu, BIRNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Steinahlíð 3, Egilsstöðum, sem var jarðsungin frá Egilsstaðakirkju 4. júní. . Stefán B Guðmundsson, Guðmundur Þorleifsson, Anna Hólm Stefánsdóttir, Skúli M. Júlíusson, Íris Dögg Stefánsdóttir, Ásgeir Páll Baldursson, systkini og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.