Morgunblaðið - 30.07.2016, Síða 32

Morgunblaðið - 30.07.2016, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016 Rekstur til sölu. Rekstur og lager fyrirtækis sem þjónustar byggingafyrirtæki í uppsteypu og fram- leiðendur steinsteypueininga til sölu. Um er að ræða rótgróið og þekkt fyrirtæki með rekstur í jafnvægi og góða markaðshlutdeild. Áhugasamir aðilar geta fengið aðgang að trúnaðargögnum rekstursins gegn stað- festingu á fjárfestingagetu upp á ca 200 milljónir. Fyrirspurnir sendist á orng05@simnet.is. Fyrirtæki Útboð Rifshöfn, endurbygging Norðurkants 2016 Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskar eftir tilboði í ofangreint verk Helstu verkþættir og magntölur eru:  Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi Norðurkanti.  Jarðvinna, uppúrtekt og þjöppun.  Reka niður 135 stálþilsplötur og ganga frá stagbitum og stögum.  Steypa um 207 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum. Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2017. Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku), og á hafnarskrifstofu Snæfellsbæjar, Norður- tanga 5, 355 Ólafsvík, frá og með þriðju- deginum 2. ágúst 2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. ágúst 2016 og verða þau opnuð þar samtímis kl. 14:15 þann dag. ÚTBOÐ LJÓSLEIÐARI RANGÁRÞINGI YTRA Verkís hf., fyrir hönd Rangárþing ytra, óskar eftir tilboðum í lagningu ljósleiðara í dreifbýli Rangárþings ytra. Leggja skal ljósleiðaralagnir, ganga frá yfirborði og inntökum á tengistöðum. Helstu magntölur eru: • Plæging ljósleiðararöra eða -strengja 250 km • Blástur ljósleiðara 320 km Tengingu ljósleiðaralagna skal að fullu vera lokið eigi síðar en 28. febrúar 2017. Verklok eru 31. maí. 2017. Útboðsgögn eru afhent á rafrænu formi hjá Verkís á Selfossi. Senda skal ósk um gögn á netfangið jons@verkis.is. Afhending ganga fer fram síðdegis 4. ágúst 2016. Tilboðum skal skila til skrifstofu Verkís, Austurvegi 10, 800 Selfossi, fyrir kl. 11:00 föstudaginn 19. ágúst, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess óska. 20248 Þingvellir – Hakið – Gestastofa - stækkun Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. forsætisráðu- neytisins, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við byggingu 1.057 m² gestastofu á Hakinu við Þingvöll. Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 3. september 2017. Vakin er athygli á breyttum opnunardegi tilboða, 24. ágúst kl. 11. Sjá þessa og aðrar útboðstilkynningar á utbodsvefur.is Smáauglýsingar Garðar Garða- og heimilisþrif Fáðu verðtilboð Við komummeð brosið og förummeð ruslið. Sími 861 8752 Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Til leigu Íbúð óskast strax 52 ára kona óskar eftir 2ja til 3ja herbergja íbúð. Trygging ekki vandamál. Reglusemi og skilvísi heitið. Upplýsingar í síma 777 9799. Til sölu Járnbakkar Tengijárnskúffur Framleiðum fjölmargar gerðir af járnbökkum Margar skeyti- lengdir í boði Vír og lykkjur ehf Lyngás 8, 210 Grb. víroglykkjur@internet.is víroglykkjur.is S. 772 3200/692 8027 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Húsviðhald VAÐNES - sumarbústaðalóð Til sölu fallegar sumarhúsalóðir m. aðgangi að heitu og köldu vatni í vinsælu sumarhúsahverfi í landi Vaðness í Grímsnes- og Grafnings- hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár. Allar nánari upplýsingar gefur Jón í síma 896-1864 og á facebook síðu okkar vaðnes-lóðir til sölu. Iðnaðarmenn Sólarfilma Til sölu báta- og skipamyndir frá Sólarfilmu. Heilt sett, 190 myndir. Verð 90 þúsund. Upplýsingar í síma 898 9475. Á fundi bæjarráðs Akraness í vikunni var samþykkt bókun þar sem skorað er á sam- gönguyfirvöld, að forgangs- raða fjárveitingum í þágu um- ferðaröryggis og hefja nú þegar breikkun á Vestur- landsvegi. Bæjarráðið fjallaði um skýrslu Vífils Karlssonar hag- fræðings um ástand vega á Vesturlandi. Í skýrslunni, sem var unnin fyrir samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, kemur fram að fjárveiting til Vesturlandsvegar nemur um helmingi af fjárveitingu til Reykjanesbrautar á 10 ára tímabili, eða á árunum 2005 til 2014. Í bókun bæjarráðsins seg- ir, að nýjustu tölur frá Vega- gerðinni sýni mikla aukningu umferðar á milli ára á flestum vegum landsins. Aukningin sé hvað mest á Vesturlandi en umferð um Hvalfjarðargöng hafi aukist um 21% á fyrstu 5 mánuðum ársins miðað við sama tímabil ársins 2015. Þannig hafi tæplega 8 þúsund bílar farið í gegnum göngin daglega í júní. Í yfirliti Vífils kemur fram að útgjöld til Vesturlands- vegar séu um helmingi lægri en til Reykjanesbrautar á tímabilinu frá 2005 til 2014 og um 15% lægri en til Suður- landsvegar. Í gildandi sam- gönguáætlun er gert ráð fyrir því að hefja breikkun Vest- urlandsvegar á árunum 2019 til 2022. „Að mati bæjarráðs á Akranesi er verkefnið svo brýnt að flýta verður fram- kvæmdum eins og kostur er. Það er með öllu óviðunandi að árið 2016 sé enn verið að keyra einbreiðan Vestur- landsveg og að sú verði raun- in næsta áratug eða svo,“ seg- ir m.a. í bókuninni. Morgunblaðið/Ómar Umferð Bílar á Vesturlandsvegi á leið frá Reykjavík. Vilja flýta vega- framkvæmdum  Bæjarráð Akraness krefst tvöföldunar Vesturlandsvegar Landverðir á Íslandi og um allan heim munu fagna al- þjóðadegi landvarða á morg- un en sá dagur var haldinn í fyrsta skipti 31. júli 2007 á 15 ára afmæli Alþjóðlega land- varðafélagsins. Fram kemur í tilkynningu, að Landvarðafélag Íslands sé eitt af 63 landvarðafélögum víðs vegar um heiminn sem eru hluti af Alþjóðlega land- varðafélaginu og muni halda upp á daginn. Sé dagurinn haldinn til að minnast þeirra mörgu landvarða sem hafi látist eða slasast við skyldu- störf. Einnig sé þessi dagur haldinn hátíðlegur til að fagna starfi landvarða um allan heim við að vernda náttúru- og menningarleg verðmæti heimsins. Hjá Umhverfisstofnun starfa um 20 landverðir yfir sumartímann vítt og breytt um landið. Í tilefni al- þjóðadags landvarða verður víða boðið upp á fræðslu- göngur í friðlöndum og þjóð- görðum landsins. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á vef Umhverfis- stofnunar, ust.is. Alþjóðadagur land- varða á sunnudag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Í Herðubreiðarlindum Þar verður dagskrá á sunnudag. FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.