Morgunblaðið - 30.07.2016, Síða 38
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Heiða Eiríksdóttir á að bakilangan og fjölskrúðuganferil sem tónlistarmaður.
Hún er með ýmis járn í eldinum
um þessar mundir og fyrir stuttu
kom út sex laga plata, Third-Eye
Slide-Show, sem inniheldur til-
raunakenndar smíðar.
Það er óþarfi að eyða mörg-
um orðum í margháttaðan feril
Heiðu og ef ég gerði það spryngi
plássið hérna fljótt. Hún hefur
starfað með hljómsveitum eins og
Unun, Heiðingjunum, Dys og
Hellvar en einnig sem sólólista-
maður. Sem slík gaf hún út plöt-
una Svarið árið 2000 en hún hef-
ur líka starfað sem Heiða
trúbadúr eða Heidatrubador og
við ætlum að einbeita okkur að
henni hér. Auk
þess að skapa
tónlist er Heiða
líka umsvifa-
mikil í annars
konar tónlistar-
störfum, situr
t.d. í dómnefnd-
um, skrifar um tónlist og stýrir
hinum frábæra þætti Langspil á
Rás 2, þar sem einblínt er á nýja
íslenska tónlist.
Tildrög Heidatrubador má
rekja allt aftur til ársins 1989 en
Heiða var þá stödd í Marseille og
hóf að koma þar fram ein með
kassagítar. Sjálfur man ég eftir
því að hafa séð hana á 22 stuttu
eftir 1990. Það hefur verið 9́1 eða
9́2. Í ár og í fyrra hefur Heida-
trubador verið ansi virk en í end-
aðan maí kom hin tilraunakennda
Third-Eye Slide-Show út og það á
mektarmerkinu FALK sem hefur
verið ansi duglegt að hlúa að ís-
lenskri grasrót, einkanlega þeirri
sem er nokkuð langt úti á jaðr-
inum. Platan kom út á kassettu í
50 eintökum en einnig er hægt að
nálgast hana á bandcamp (og
fleira efni er á bandcamp-setri
Heiðu). Þá kom ansi lagleg sjö-
tomma út í takmörkuðu upplagi í
febrúar. Kallast hún Root og er
tónlist á a-hliðinni en myndverk á
b-hliðinni. Um er að ræða smá-
skífu sem er undanfari lág-
stemmdrar, þjóðlagaskotinnar
plötu sem væntanleg er með
hausti og kallast Fast. Heiða lék
það efni á tónleikum í Mengi fyr-
ir rúmri viku.
Third-Eye Slide-Show hefst í
raun á stílbroti þar sem fyrsta
lagið er gítarlag. Surgandi,
skældur gítar og söngur yfir og
minnir smíðin doldið á Sonic
Tónlist, alltaf tónlist
Ljósmynd/Krummi Björgvinsson
Innlifun Tónlistarkonan Heiða Eiríksdóttir á útgáfutónleikum Third-Eye
Slide-Show sem fram fóru á Dillon í síðasta mánuði.
Youth/Kim Gordon. Strax í næsta
lagi erum við komin í ósunginn
tilraunaheim hins vegar; drunga-
legt og naumhyggjulegt „ambi-
ent“ stýrir málum og í því þriðja,
„Bald Nun“, sem er fimmtán mín-
útur, erum við komin út í „ind-
ustrial“ hljóðlykkju. Þetta er gott
stöff, og virkar. Það er þægilegt
að hlusta (endurtekningin er eitt-
hvað svo áhrifarík) en líka spenn-
andi (surg og hávaði gerir vart
við sig reglulega). Í hinu frábær-
lega nefnda „Arnim“ erum við
komin ofan á hafsbotn, manni
finnst eins og maður sé kominn
inn í kafbát (ég veit ekkert nota-
legra en kafbátakvikmyndir!).
Smávegis söngur og gítar gerir
vart við sig í fimmta laginu og
svo er plötunni slitið á líkan hátt
og hún byrjaði, með lagi fremur
en stemmu.
Vel heppnað verk verð ég að
segja, Heiða veldur alveg þessu
afstrakt dæmi og ég hlakka til að
heyra „hina“ hliðina í haust.
» Það er þægilegt að hlusta (endur-
tekningin er eitthvað
svo áhrifarík) en líka
spennandi (surg og
hávaði gerir vart við
sig reglulega).
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
Söfn • Setur • Sýningar
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Með kveðju – Myndheimur íslenskra póstkorta í Myndasal
Dálítill sjór – Ljósmyndir Kristínar Bogadóttur á Vegg
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
Norðrið í norðrinu á 3. hæð
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
LISTASAFN ÍSLANDS
BERLINDE DE BRUYCKERE 21.5 - 4.9.2016
LJÓSMÁLUN – LJÓSMYNDIN OG MÁLVERKIÐ Í SAMTÍMANUM 7.5 - 11.9.2016
UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST
UPPHAF KYNNINGAR Á ÍSLENSKRI MYNDLIST Í KAUPMANNAHÖFN
21.1 - 11.9 2016
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016
HRYNJANDI HVERA 17.6 - 11.9 2016
Gagnvirk videó-innsetning eftir Sigrúnu Harðardóttur
Leiðsagnir á ensku alla þriðjudaga og föstudaga kl. 12:10
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið daglega í sumar kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
GYÐJUR 5.2. - 4.9.2016
Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
KAFFISTOFA heimabakaðar kökur - Sumartónleikar næsta þriðjudagskvöld kl. 20:30
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI 5.2.-16.9.2016
Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýningar
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Reykjanesbæjar
MANNFÉLAGIÐ
4. júní – 21. ágúst
ÍSLENSK NÁTTÚRA, verk úr safneign
15. janúar – 21. ágúst
Byggðasafn Reykjanesbæjar
ÞYRPING VERÐUR AÐ ÞORPI
SÖGUR ÚR BÆNUM
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið alla daga 12.00-17.00
Duusmuseum.is
DUUS SAFNAHÚS
DUUS MUSEUM
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Sýningin opin daglega frá 10-17
Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Það verða tvennir tónleikar á
lokahelgi Sumartónleika við Mý-
vatn um helgina en í kvöld klukk-
an 21 munu tenórinn Benedikt
Kristjánsson og píanóleikarinn
Bjarni Frímann Bjarnason koma
fram í Reykjahlíðarkirkju. Á efn-
isskrá verða sönglög eftir Emil
Thoroddsen, Árna Thorsteinsson,
Jón Leifs, F. Schubert, R. Schu-
mann, R. Strauss og J. Brahms.
Annað kvöld verða síðan tón-
leikar klukkan 21 í Skútustaða-
kirkju en þar munu Benedikt og
Bjarni Frímann aftur koma fram
en í þetta skiptið leika aríur eftir
G.F. Händel, J.S. Bach, Dowland,
sönglög eftir Emil Thoroddsen,
Jón Leifs og lög úr Malarastúlk-
unni fögru eftir Schubert. Þá má
þess einnig geta að á morgun
klukkan 14 verður messa í Bæn-
húsinu á Rönd við Sandvatn. Að-
eins einu sinni áður hefur verið
messað þar, en það var á tvítugs
afmæli Sumartónleika við Mý-
vatn.
Sumartónleikum við Mývatn lýkur
um helgina með tvennum tónleikum
Benedikt
Kristjánsson
Bjarni Frímann
Bjarnason
Bandaríski organistinn Douglas Cleveland efnir til
tónleika í Hallgrímskirkju í hádeginu í dag en þar
mun hann leika á hið volduga Klais-orgel. Þetta er í
þriðja skiptið sem Cleveland kemur hingað til lands
til þess að leika á orgelið og mun hann leika á
tvennum tónleikum undir hatti Alþjóðlega orgel-
sumarsins nú um helgina. Cleveland kemur til með
að leika blöndu af gamalli og nýrri orgeltónlist á
hljómleikunum, sem spannar allt frá Bach og Mar-
chand til bandarískra samtímatónskálda. Þannig
gefst ekki aðeins tækifæri fyrir þennan tónlistar-
mann til að leyfa áheyrendum að njóta fjölhæfni
sinnar heldur einnig til að sýna margar hliðar hljóð-
færisins, eins og segir í tilkynningu.
Cleveland ólst upp í borginni Olympia í Wash-
ington og lærði við Eastman School of Music og Há-
skólana í Indiana og Oxford. Hann öðlaðist al-
þjóðlega viðurkenningu árið 1994 þegar hann hlaut
fyrstu verðlaun American Guild of Organists fyrir
unga orgelleikara og hefur síðan þá leikið í 49 ríkj-
um Bandaríkjanna ásamt frægustu kirkjum og tón-
leikasölum í Evrópu, Ástralíu, Singapúr og Japan.
Síðari tónleikar Cleveland verða á sunnudaginn
klukkan 17.
Cleveland snýr aftur
Orgel Douglas Cleveland leikur blöndu af gamalli og
nýrri orgeltónlist í hádeginu í dag og á sunnudaginn.
Alþjóðlega orgelsumarið í Hallgrímskirkju heldur áfram