Morgunblaðið - 30.07.2016, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2016
Bandaríski leik-
arinn Jerry
Doyle lést á dög-
unum en hann
er hvað helst
þekktur fyrir
leik sinn sem
Michael Gari-
baldi í vís-
indaskáldskap-
arseríunni
Babylon 5 sem
naut mikilla vinsælda á tíunda
áratug síðustu aldar. Þá hafði
leikarinn einnig látið mikið á sér
bera í útvarpi en hann var for-
svarsmaður útvarpsþáttarins The
Jerry Doyle Show.
Leikarinn Jerry
Doyle látinn
Leikari Doyle sem
Michael Garibaldi.
Söngvararnir Sigríður Ósk Krist-
jánsdóttir mezzósópran og Ágúst
Ólafsson barítón koma fram á
lokatónleikum í tónleikaröðinni
Englar og menn á morgun í
Strandarkirkju en með þeim leik-
ur Jón Bjarnason á orgel.
Yfirskrift tónleikanna er Stóð-
um tvö í túni og koma þrímenn-
ingarnir til með að flytja dagskrá
sem hæfir vel gömlu íslensku
sveitakirkjunni og harmóníum
orgelsins eins og segir í tilkynn-
ingu.
Flutt verða trúarleg lög, meðal
annars sálmar og Maríubænir eft-
ir Bach og Pál Ísólfsson ásamt ís-
lenskum og erlendum þjóðlögum
og sönglagaperlum. Í tilkynningu
segir að hátíðin hafi verið einkar
vel sótt í sumar og að heimamenn
hafi stutt vel við viðburðina. Tón-
leikarnir á morgun hefjast að
venju klukkan 14.
Morgunblaðið/Ómar
Sálmar Það verða m.a. fluttir sálmar og Maríubænir eftir Bach og Pál Ísólfsson.
Harmóníur orgels
Sigríður Ósk og Ágúst koma fram
á lokatónleikum Engla og manna
Fáar myndir þessa árs hafavakið jafnmikið umtal ogendurgerð hinnar sí-vinsælu myndar um
Draugabana (e. Ghostbusters) frá
1984. Umræðan hefur að miklu leyti
hverfst um þá staðreynd að í stað
upphaflegu draugabananna, sem allir
voru karlkyns, eru nú fjórar gaman-
leikkonur mættar í slaginn. Hvað
sem þeirri umræðu líður er varla
hægt að segja annað en að markaðs-
herferðin hafi farið út um þúfur og
stiklur mynd-
arinnar hafa að
mati undirrit-
aðs verið ákaf-
lega fráhrind-
andi.
Þó að mynd-
in sé ekki jafn slæm og ég óttaðist
getur það varla talist mikil meðmæli
með henni, því að ekki er því að leyna
að þessi mynd er verulega misheppn-
uð.
Sökina er þó alls ekki að finna í
kynferði aðalleikaranna, nema síður
sé, heldur má hana rekja algjörlega
til stórgallaðs handrits og viðvanings-
legrar leikstjórnar Pauls Feig (Bri-
desmaids, Heat, Spy) og hlýtur það
að koma nokkuð á óvart miðað við
fyrri myndir hans.
Myndin nær aldrei neinu flugi sem
gamanmynd. Misfyndnum brönd-
urum er dembt yfir áhorfandann, en
magn er ekki sama og gæði. Sumir
þeirra eru fyndnir en langflestir
lenda kylliflatir. Í stað hárbeittrar ír-
óníu og persónusköpunar upphaflegu
myndarinnar eru ælur og prump í
fyrirrúmi fyrri hluta myndarinnar.
Það ríkti vandræðaleg þögn í salnum
yfir stórum hluta myndarinnar, á
meðan hún leið átakalaust hjá. Mynd-
in er ekkert sérstaklega spennandi
og ekki kitlar hún hryllingstaugarnar
svo neinu nemi, fyrir utan einu sinni.
Leikstjórnin er í molum og svo
virðist sem vel hafi verið fiktað í
myndinni á klippiborðinu. Nokkrum
sinnum tók undirritaður eftir vand-
ræðalegum klippingum og svo-
nefndum „samfellu-villum“ (e. cont-
inuity), þar sem augljóst var að
eitthvað hafði dottið úr. Þá er stórt
dansatriði klippt út á einstaklega
klaufalegan hátt en aðdragandi þess
skilinn eftir í myndinni, án nokkurrar
ástæðu eða útskýringa.
Það er raunar á síðasta þriðj-
ungnum sem botninn dettur endan-
lega úr myndinni. Á það ekki síst við
um tæknibrellurnar, sem framan af
eru stórfínar. Þegar kemur að til-
gangslausum „lokabardaga“ á
Times-torgi New York-borgar er
hins vegar alveg pínlega augljóst að
leikkonurnar eru einar í herbergi
með grænan skjá á bak við sig að kýla
út í loftið. Áhorfandinn dettur fyrir
vikið út úr myndinni þegar hann ætti
að vera að komast í gírinn.
Það er í þessu umhverfi sem vesa-
lings leikararnir þurfa síðan að gera
sitt besta til þess að bjarga því sem
bjargað verður. Ég ætla að leyfa mér
að segja að Leslie Jones standi sig
langbest af aðalleikkonunum. Þegar
fyrsta stiklan kom út leit út fyrir að
karakter hennar, Patty Tolan, væri
ekkert annað en stereótýpísk reið
blökkukona. Sem betur fer er það
ekki svo. Þvert á móti sýnir Patty
jarðtenginguna sem hinar þrjár
skortir og er þar af leiðandi sá kar-
akter sem nær bestum tengslum við
áhorfendur. Jones á þannig sum af
fyndnustu atriðum myndarinnar, eins
fá og þau eru.
Það vekur hins vegar athygli
hversu illa þær Kristen Wiig og Mel-
issa McCarthy ná saman á skjánum,
og gæti maður haldið að þessar hæfi-
leikaríku gamanleikkonur, sem slógu
svo í gegn í Bridesmaids, hefðu aldrei
leikið saman áður.
Kate McKinnon er hins vegar
langlökust af fjórmenningunum. Kar-
akter hennar, Jillian Holtzman, á að
vera „tæknigúrú“ hópsins, og þar af
leiðandi sérvitur með eindæmum.
Kjánalæti hennar verða hins vegar
fljótlega býsna þreytandi. Líkt gildir
um Chris Hemsworth, sem leikur
hinn nautheimska Kevin, aðstoðar-
mann draugabananna. Hann er fynd-
inn í fyrstu en öllu má ofgera. Þá er
illmennið Rowan (Neil Casey) veru-
lega illa skrifað, en hvatir hans til ill-
mennsku eru óljósar og karakterinn
er vondur til þess eins að vera vond-
ur.
Ekki verður skilið við myndina án
þess að nefna að allir upphaflegu
draugabanarnir sem enn eru á lífi
koma fyrir í myndinni í gestahlut-
verkum. Þeir leika þó ekki sömu kar-
aktera og í fyrri myndinni, enda ger-
ist hún í öðrum söguheimi. Innkomur
þeirra eru um margt ágætar, en
stöðva á stundum framvindu sögu-
þráðarins um of.
Myndinni er augljóslega ætlað að
vera fyrsta myndin í stórum mynda-
bálki, sem hefði við fyrstu sýn átt að
geta malað gull fyrir Sony. Miðað við
þessa frammistöðu verður hins vegar
að telja ólíklegt að framhaldsmynd
verði gerð. Ég skal þó játa það í lokin,
að eins döpur og mér fannst þessi,
myndi ég líklega gefa slíkri fram-
haldsmynd tækifæri. Söguheimurinn
býður nefnilega upp á tækifæri sem
hægt hefði verið að nýta miklu betur.
Því miður var það ekki gert hér.
Hvern á að hringja í? Þær Melissa McCarthy, Kate McKinnon, Kristen Wiig og Leslie Jones standa í ströngu.
Gleðibanar
Laugarásbíó, Smárabíó, Há-
skólabíó og Borgarbíó Akureyri
Ghostbusters bmnnn
Leikstjórn: Paul Feig. Handrit: Paul Feig
og Katie Dippold. Aðalhlutverk: Melissa
McCarthy, Kristen Wiig, Leslie Jones,
Kate McKinnon, Chris Hemsworth og
Neil Casey. Bandaríkin 2016. 116 mín-
útur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu
Miðasala og nánari upplýsingar
FORSÝND ÁMÁNUDAGINN
OPIÐ ALLA VERSLUNARMANNAHELGINA
Sýningartíma má finna á
midi.is og laugarasbio.is
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS