Morgunblaðið - 12.08.2016, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
majubud.is
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Framkvæmdir eru komnar nokkuð á
veg við fyrirhugað Hafnartorg, en
svo munu byggingarnar nefnast sem
reisa á við hlið Tollhússins í Reykja-
vík. Tæplega tuttugu manns eru nú
við vinnu á reitnum og verður fjöld-
inn þannig áfram í fyrstu skrefum
uppsteypunnar. „Þegar mest verður
býst ég við að fjöldinn fari vel yfir
hundrað manns, þegar allt verður
komið í fullan gang jafnt innan húss
sem utan,“ segir Örn Tryggvi John-
sen, verkefna- og rekstrarstjóri ÞG-
Verks, í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta verður gríðarlega stór
vinnustaður og við erum þegar byrj-
uð að búa okkur undir það.“
„Gríðarlegt byggingarmagn“
ÞG-Verk fer með framkvæmdir á
svæðinu eftir að fyrirtækið keypti
hluta Reykjavík Development ehf. í
verkefninu í maí síðastliðnum.
Segist Örn búast við því að örla
fari á byggingum á reitnum þegar
líða fer á veturinn.
„Það eru fjórir til fimm mánuðir
þangað til eitthvað fer að stingast
upp úr holunni. Það tekur oft svolít-
inn tíma að fara upp á fyrstu plötu
en svo gengur þetta yfirleitt með
miklum hraða eftir það.“
Samkvæmt upplýsingum frá ÞG-
Verki verður á Hafnartorgi versl-
unar- og skrifstofuhúsnæði, auk
íbúða á efri hæðum fimm húsa af
þeim sjö sem byggð verða.
Heildarflatarmál bygginganna of-
an jarðar mun nema 23.350 fermetr-
um en Reginn hefur þegar fest kaup
á átta þúsund þeirra, sem hýsa
munu verslanir af ýmsum toga.
Rúmlega 250 herbergja hótel
Milli Tryggvagötu og Hafn-
arstrætis er unnið af fullum krafti
við byggingu nýs hótels og þá eru
framkvæmdir einnig í fullum gangi á
lóð Marriott Edition-hótelsins sem
rísa á við hlið Hörpunnar, ásamt
íbúðar- og verslunarhúsnæði. Í heild
verða rúmlega 250 herbergi í hót-
elinu auk 90 íbúða og verslana í þeim
fimm byggingum sem verða reistar
næst því. Undir bæði Hafnartorgi og
hótelbyggingunum verður mikill
bílastæðakjallari, að mestu leyti á
einni hæð, sem samtengdur verður
kjallaranum undir Hörpu.
Aðspurður segir Örn að verklok á
Hafnartorgi séu áætluð á nokkru
tímabili á komandi árum. „Þetta er
auðvitað gríðarlegt byggingarmagn
og verkið mun því klárast á ein-
hverju tímabili frá árslokum 2017 og
líklega fram á 2019,“ segir Örn.
Morgunblaðið/Ófeigur
Framkvæmdir Mikil uppbygging er beggja vegna Tryggvagötu. Bygging nýs lúxushótels við Hafnarstræti 17-19 er í fullum gangi og þrengt að umferð.
Grunnur lagður að glerhöllum
Örla fer á nýbyggingum við Hafnartorg um áramót Verklok áætluð frá árslokum 2017 til 2019
Vel yfir hundrað manns munu starfa við byggingu sjö húsa á torginu Grafið fyrir risahóteli
Við Austurbakka Unnið er í djúpum grunni fyrirhugaðs lúxushótels.Hafnartorg Sjö hús munu brátt rísa upp úr grunninum við hlið Tollhússins.
Undanfarin misseri hefur vinnuhóp-
ur á vegum Lögmannafélags Íslands
unnið að tillögum að heildarendur-
skoðun lögmannalaga nr. 77/1998 og
er sú vinna komin vel á veg, sam-
kvæmt því sem fram kemur í bréfi
stjórnar Lögmannafélagsins til fé-
lagsmanna.
Samkvæmt bréfinu er nauðsyn-
legt að endurskoða lögin vegna
breytinga sem gerðar hafa verið á
dómstólalögum, þar sem millidóm-
stigi er komið á laggirnar. Ljóst sé
að gera þurfi breytingar á lög-
mannalögum varðandi öflun réttinda
fyrir hinu nýja dómstigi og eftir at-
vikum skilyrðum réttindaöflunar
fyrir Hæstarétti.
„Í ljósi þess að innanríkisráðherra
hyggst leggja fram breytingar á fjöl-
mörgum lögum, þ.m.t. lögmannalög-
um, nú á sumarþingi, hefur áhersla
vinnuhópsins að undanförnu ein-
skorðast við ákvæði er lúta að um-
ræddri réttindaöflun,“ segir orðrétt í
bréfinu.
Fram kemur að tillögurnar feli í
sér breytingar sem telja megi æski-
legar í tengslum við stofnun Lands-
réttar. Tillögurnar fela í sér breyt-
ingar sem telja má æskilegar í
tengslum við stofnun Landsréttar.
Landsréttur tekur til starfa 1. jan-
úar 2018.
Með tillögunum sé leitast við að
tryggja að gæði málflutnings aukist
eftir því sem ofar dregur í réttar-
kerfinu.
Einnig felist í tillögunum að lög-
mönnum sem stunda málflutning sé
gert auðveldara fyrir að afla sér rétt-
inda til málflutnings á æðri dómstig-
um frá því sem verið hefur. Lög-
mönnum sem stunda málflutning í
nokkrum mæli hafi í núgildandi kerfi
reynst erfitt að fá réttindi í Hæsta-
rétti vegna lítils framboðs af próf-
málum þar. Lagðar séu til breyting-
ar sem leiði af sér að engin krafa
verði um prófmál í Hæstarétti. Slík-
ar kröfur verði aðeins gerðar í
Landsrétti. Þar geti hins vegar öll
mál, meira segja þau einföldustu, tal-
ist prófmál. agnes@mbl.is
Landsréttur kallar á breyt-
ingar á lögmannalögum
Lögmannafélag Íslands kynnir tillögur að breytingum