Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Læknar á yfirráðasvæðum upp-
reisnarmanna í borginni Aleppo í
Sýrlandi hafa skorað á Barack
Obama Bandaríkjaforseta að gera
þegar í stað ráðstafanir til að bjarga
hundruðum þúsunda íbúa borgar-
innar sem eru í mikilli hættu vegna
grimmilegra árása.
Einn læknanna, Abu al-Baraa,
segir að í mörgum tilvikum geti þeir
ekki hjálpað sjúklingum vegna
skorts á lyfjum og lækningatækjum.
„Börn og sært fólk deyja í örmum
okkar,“ hefur fréttaveitan AFP eftir
honum. „Börn eru með skelfilegustu
sárin sem við höfum séð… Við höfum
neyðst til að horfa upp á börn deyja
án þess að geta gert neitt til að
hjálpa þeim vegna ástandsins.“
„Þurfum ekki tár“
Fimmtán af 35 læknum, sem
starfa í Aleppo, sendu Obama bréf
þar sem þeir skora á hann að gera
þegar í stað ráðstafanir til að binda
enda á neyðarástandið í Aleppo. Þeir
segja að stjórn Obama hafi ekkert
gert til að hjálpa íbúunum eða knýja
fylkingarnar í stríðinu til að hlífa
saklausu fólki. „Við þurfum ekki tár
eða samúð eða jafnvel bænir, við
þurfum aðgerðir. Sannaðu að þú sért
vinur Sýrlendinga.“
Um 250.000 manns búa á yfirráða-
svæði uppreisnarmanna í austur-
hluta Aleppo og um 1,2 milljónir í
vesturhlutanum sem er á valdi ein-
ræðisstjórnarinnar í Sýrlandi.
Stjórnarhernum tókst að einangra
austurhlutann algerlega 17. júlí þeg-
ar hann náði mikilvægum þjóðvegi á
sitt vald. Uppreisnarmenn rufu um-
sátrið á laugardaginn var og hafa
sent vopn og liðsauka til borgarinnar
síðustu daga til að undirbúa mikla
orrustu sem gæti reynst sú mikil-
vægasta í stríðinu til þessa. Talið er
að baráttan um borgina verði löng og
mannskæð.
Tólf hreyfingar hafa barist saman
í Sýrlandi, þeirra á meðal Fateh al-
Sham, sem hefur tengst al-Qaeda, og
íslamistahreyfingin Ahrar al-Sham.
Talið er að þetta bandalag sé með
alls 30.000 til 40.000 menn undir
vopnum, þar af 10.000 í Aleppo-hér-
aði. Á meðal liðsmanna bandalagsins
eru þúsundir íslamista sem eru frá
öðrum löndum.
AFP hefur eftir Charles Lister,
sérfræðingi í málefnum Sýrlands, að
uppreisnarmennirnir í Aleppo beiti
nú í fyrsta skipti bandarískum vopn-
um sem til þessa hafi aðeins verið
ætluð uppreisnarmönnum sem njóta
stuðnings Bandaríkjastjórnar í bar-
áttunni við Ríki íslams, samtök ísl-
amista.
Skortur á nauðsynjum
Stjórnarher Sýrlands hefur notið
stuðnings rússneska hersins sem
hefur gert loftárásir í landinu.
Óstaðfestar fregnir herma að Rúss-
ar hafi einnig sent unga málaliða á
laun til Sýrlands, að sögn fréttasjón-
varps Sky. Hermenn og sjálfboðalið-
ar frá Íran, Írak og Hizbollah, sam-
tökum sjíta í Líbanon, hafa einnig
barist með stjórnarhernum í Sýr-
landi.
Varnarmálaráðuneytið í Rúss-
landi sagði í fyrradag að gert yrði hlé
á loftárásum á Aleppo í þrjár
klukkustundir á dag, frá klukkan
10.00 til 13.00 að staðartíma, til að
greiða fyrir neyðaraðstoð við íbúana.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna sögðu að þetta væri alltof
skammur tími til að koma nægum
hjálpargögnum til borgarinnar, til
þess þyrfti vopnahlé í að minnsta
kosti tvo sólarhringa.
Ástandið í Aleppo er skelfilegt.
Ekkert rennandi vatn hefur verið
þar síðustu daga og umsátrið olli
miklum skorti á matvælum og öðrum
nauðsynjum. Vestrænir stjórnarer-
indrekar telja að stjórnarherinn í
Sýrlandi og bandamenn hans hafi
ákveðið að gera árásir á sjúkrahús á
yfirráðasvæði uppreisnarmannanna
í því skyni að hræða íbúana, knýja þá
til að gefast upp eða flýja borgina, að
sögn breska blaðsins The Guardian.
Horfa upp á börn deyja
Læknar í Aleppo geta ekki hjálpað særðu fólki vegna skorts á lyfjum og tækjum
Umsátur olli mikilli neyð Stefnir í langa og mannskæða baráttu um yfirráð
Fylkingarnar í stríðinu hafa lagt mikla áherslu á að ná borginni á sitt vald
Samtökin
Ríki
íslams
Sveitir sýrlenskra
stjórnarandstæðinga
Uppreisnarmenn og íslamistar
réðust inn í suðurhluta
Aleppo 6. ágúst til að
rjúfa umsátrið
Stjórnarherinn hóf umsátur
um austur- og norðurhluta
Aleppo 17. júlí eftir að hafa
náð mikilvægum þjóðvegi
á sitt vald
Stjórnarher
Sýrlands
Herlið
Kúrda
Barist um Aleppo
Heimild: ISW/CarnegieMiddleEast/ConflictNews
Alþjóða-
flugvöllur
Aleppo
Yfirráðasvæði
skv. síðustu
fréttum
Íbúar borgarinnar
eru um 1,5 milljónir
Aleppo
Thomas de Mai-
zière, innanríkis-
ráðherra Þýska-
lands, kynnti í
gær nýjar til-
lögur um aðgerð-
ir í baráttunni
gegn hryðju-
verkastarfsemi
og kvaðst m.a.
vilja að Þjóð-
verjar, sem væru
með ríkisfang í tveimur löndum,
yrðu sviptir ríkisborgararétti í
Þýskalandi ef þeir gengju til liðs við
hryðjuverkasamtök í öðrum löndum.
Þýskir fjölmiðlar segja að mikil
andstaða sé við þessa tillögu í Sósíal-
demókrataflokknum sem er í stjórn
með Kristilegum demókrötum.
Francois Hollande, forseti Frakk-
lands, hafði lagt til að Frakkar, sem
dæmdir yrðu sekir um aðild að
hryðjuverkum, yrðu sviptir þegn-
rétti en hann féll frá þeirri tillögu
vegna mikillar andstöðu við hana.
Hafnar búrkubanni
Um 820 manns hafa farið frá
Þýskalandi til að berjast með sam-
tökum íslamista í Sýrlandi og Írak.
Um þriðjungur þeirra hefur snúið
aftur til Þýskalands.
Þýskir fjölmiðlar höfðu skýrt frá
því að Maizière vildi að sett yrði
bann við búrkum, hefðbundnum
klæðnaði múslímakvenna, sem hylur
allan líkamann nema augun, en
innanríkisráðherrann kvaðst í gær
hafa hafnað slíku banni.
Verði
sviptir
þegnrétti
Thomas de
Maizière
Ecco búðin, Kringlunni · Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind · Skóbúðin, Húsavík · Golfbúðin, Hafnarfirði · Golfskálinn, Reykjavík
Skóbúðin, Keflavík · Nína, Akranesi - Skóbúð, Selfossi · Axel Ó. Vestmannaeyjum · Skór.is, netverslun · Örninn, Reykjavík
ÚTSÖLUSTAÐIR
15152459394
Biom Hybrid
Verð: 25.995 kr.
13250457828
Golf Cage
Verð: 28.995 kr.
11107359581
Biom Hybrid
Verð: 25.995 kr.
10151354510
Biom G2
Verð: 30.995 kr.
14161459389
Tour Hybrid
Verð: 25.995 kr.
12023301001
Biom Hybrid
Verð: 29.995 kr.
Annað árið í röð leika Íslandsmeistararnir
í golfi í ecco skóm.
Við óskum þeim Birgi Leifi og Ólafíu
innilega til hamingju með titilinn.
Meistararnir velja ecco
Herra
Dömu