Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 22

Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016 ✝ HólmfríðurOddsdóttir fæddist 27. nóv- ember 1926. Hún lést 5. ágúst 2016. Foreldrar henn- ar voru: Brynhild- ur Ingimundardótt- ir ættuð úr Meðallandi og Vestmannaeyjum, f. 20. maí 1898, d. 27. september 1973, og Oddur Jónsson frá Króki á Kjalarnesi, f. 5. október 1889, d. 28. ágúst 1981. Hólmfríður ólst upp með for- eldrum sínum og systkinum að Melum í Kjalarneshreppi, Laug- ardal í Reykjavík og frá 1935 að Fagradal í Sogamýri, þar sem faðir hennar stundaði jöfnum höndum búskap og verkamannavinnu. Systkini hennar voru: Sig- urður Þórarinn, f. 1920, d. 2013, Halldóra Petra, f. 1930, d. 2009, Jón, f. 1935, d. 1994, og fóst- urbróðirinn Baldur Einarsson, d. 1922, d. 1988. Hólmfríður var rúmliggjandi sjúklingur í heilt ár en eftir nám í Laugarnesskóla, við Kvennaskólann og Húsmæðra- Gústavsdóttir verslunarmaður og áttu þau soninn Gústav Smára, m. 2 (sk.) Sigrún Krist- mannsdóttir lögmaður og áttu þau tvö börn saman: Berg Hrannar og Ósk. 5. Brynjar f. 1959, prentari, m. Sigríður Björnsdóttir bókari, og eiga þau saman dótturina Birtu Ísey, en auk þess átti Sigríður syni tvo; Hlyn Gauta og Björn. 6. Atli f. 1963, d. 1997, versl- unarmaður og tónlistarmaður. 7. Brynhildur f. 1968, þroska- þjálfi, m. (sk.) Jón Ágústsson þroskaþjálfi og eiga þau tvo syni, Þengil Fannar og Þorgils Mána. Hólmfríður átti heima með fjölskyldu sinni í Fagradal, síð- ar byggðu þau Guðmundur hús við Hlíðargerði 8 í Reykjavík, en fluttu til Patreksfjarðar 1963 og þaðan til Akraness 1969, þar sem Guðmundur lést 41 árs að aldri. Þá flutti Hólmfríður með yngri börnin sín til Reykjavík- ur, gerðist starfsstúlka á Kleppsspítalanum og bjó í Breiðholti næstu tvo áratugi. Hún var Sóknarkona og háði á köflum harða lífsbaráttu. Að loknum starfsdegi flutti hún í íbúð aldraðra á Lindargötu við Vitatorg þar sem hún bjó uns henni brast heilsa fyrir um ára- tug. Eftir það var hún á hjúkr- unarheimilum, Eir og Skjóli. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 12. ágúst 2016, og hefst athöfnin kl. 15. skólann í Reykjavík fór hún á Reykja- skóla í Hrútafirði veturinn 1943-44, þar sem hún kynnt- ist 15 ára dreng, Guðmundi Kr. Ósk- arssyni og tókust með þeim ástir sem entust út lífið. Þau byrjuðu strax að búa og eignuðust sjö börn: 1. Lovísa f. 1946, fv. starfsleiðbeinandi. M. (sk.) Kristinn Jóhannes Guð- jónsson, 2006, og eignuðust þau þrjú börn, Thelmu, Hólmfríði og Guðjón. 2. Oddur f. 1949, fv. verslunarmaður og merkjagerðarmaður í Svíþjóð, m. (sk.) Hallveig Ingimarsdóttir og eignuðust þau fimm börn, Ingimar, Guðmund Kristin, Hólmfríði, Hallgrím og Auðnu en auk þess á Oddur eina dótt- ur, Evu Dögg, 3. Óskar Þorgils f. 1950, rithöfundur, m. Kristín Á. Ólafsdóttir aðjunkt og eiga þau eina dóttur saman, Mel- korku, en auk þess átti Kristín fyrir einn son, Hrannar Björn, og Óskar eina dóttur, Agnesi B. Bergsdóttur. 4. Guðmundur Hólmar, f. 1955, m. 1 (sk.) Inga Nú kveðjum við móður mína Hólmfríði Oddsdóttur. Hún var heitin í höfuð ömmu sinnar, sem varð ekkja ung að árum og barðist við kerfi, sem vildi setja hana á sveit í öðrum landshluta. Ömmu sem beit á jaxlinn og barðist við líf- ið. Náði að kaupa ættarjörð sína og ala upp sex börn. Lítil stúlka stendur við bæjar- lækinn og horfir á eldri bróður sinn veiða silung með höndunum einum. Hún er á sauðskinnsskóm og elsk- ar soðinn silung. Nýmetið ferskt. Mamman er veik og pabbinn ber hana í strigapoka, meðan hann gengur til verka. Hún er viðkvæm og hrædd við allar rollurnar. Litla stúlkan vex úr grasi, eignasst „danska skó“ og síðar 14 pör af nýtísku. Hún þróar við- kvæmnina til listar og leikur við listagyðjuna. Hefur mikinn áhuga á leiklist og framsögn. Verður góð- ur upplesari, elskar ljóð. Hún sækir menntun í Héraðs- skólann að Reykjum í Hrútafirði og kynnist þar lífsförunaut sínum. Ung að árum hefja þau búskap og eignast börn – mörg börn. Fyrst setja þau upp heimili í skjóli for- eldra hennar, kjallaranum í Fagra- dal, síðan smáhýsi við bæinn. Þau setja upp verslun. Þetta voru góðir tímar. Þá leggja þau í að byggja einbýlishús í Hlíðagerði. Þaðan voru fá skref heim í Fagradal. Fagrar listir voru hluti af upp- eldi okkar. Farið var oft í leikhús, allar stórmyndir í bíó og bókaskáp- urinn fullur af fegurð heimsbók- menntanna. Útvarpið stóð í stof- unni og kringum það var safnast og hlustað á uppbyggilegt efni. En ekki eru allir tímar góðir. Vel- gengni hefur margar hliðar. Eftir að hafa „fært sér í fang of mikið“ missa þau eigur sínar og hefja nýtt líf á Patreksfirði. Þar verður nýr uppgangur. Á náttborði hennar eru Svartar fjaðrir Davíðs Stefánssonar og lestur hennar smitar frá sér. Ég læri flest ljóðin utanbókar. Hún fær lítið kver með ljóðaþýðingum Magnúsar Ásgeirs- sonar að gjöf. Heillast af ljóðinu um ekkjuna sem „á sér tíu anga – fimm agnir, fimm snáða“. Finnur sam- hljóm við sitt eigið líf. Því börnin fá sinn eigin persónuleika og lífið verður ekki bara logn á jörðu. Eftir sex ár á Patreksfirði flutti fjölskyldan á Akranes. Þar lést maki hennar. Sjö barna móðir, ekkja með fimm börn heima. Aftur frá auði til örbirgðar. Nú þarf hún, líkt og amma hennar og alnafna, að bíta á jaxlinn, setja höfuðið upp í vindinn og berjast áfram. Það var ekki létt. Hún fer út á vinnumarkaðinn, verður starfsstúlka á Kleppsspítal- anum, fer á námskeið til að hækka í launaflokkum. Nokkrum árum síð- ar á hún íbúð í Breiðholti. Börnin fara að heiman, eitt eftir annað og hún endar í þjónustuíbúð á Lind- argötu. Lífið verður aldrei eins og við vonuðumst eftir, það veða bæði skin og skúrir. Nú kveð ég móður mína með þökkum fyrir allt, sem hún gaf mér. Stríðin gleymd, bara þakklæti eftir. Oddur Guðmundsson. Hefðbundinn sunnudagsmatur, hryggur með öllu tilheyrandi. Hið sérstaka var framreiðslan, kjötið listilega skreytt með grænmeti og öllu fallega komið fyrir á borðinu. Maturinn bragðmikill og góður. Þessi mynd tilheyrir fyrstu kynn- um okkar Fríðu þegar við Óskar sonur hennar vorum boðin í mat í Breiðholtið þar sem hún bjó ásamt tveimur yngstu börnum sínum, Brynhildi og Atla. Á þeim tæpu 40 árum sem síðan eru liðin kynntist ég nánar listfengi tengdamóður minnar. Hún var listamaður í frásögn, kryddaði vel til að draga fram kímni og drama. Það var sveifla í tjáningunni, rödd og líkamsmál kveiktu líf og gáfu viðhorf Fríðu til söguefnisins til kynna. Mörg óborganleg tilsvör hennar lifa á vörum fjölskyldunn- ar. Ljóðelsk var hún og flutti af- burðavel bæði bundið og óbundið mál. Þess naut fólkið sem dvaldist með henni í íbúðum aldraðra við Vitatorg. Þar fékk fagurkerinn Fríða einnig notið hæfileika sinna með form og liti. Hvort sem var mótun í leir eða gler, postulínsmál- un eða þrykk á tau lýsti listfengi af handverki hennar. Og svo var það sönglistin. Fríða naut þess að syngja, var lagviss með góða rödd. Það átti einnig við um afkomendur hennar, börn og barnabörn. Marg- radda söngur ómaði í Suðurhólun- um þegar stórfjölskyldan var þar saman komin forðum daga hjá ætt- móðurinni. Síðustu misserin henn- ar, eftir að heilabilun hafði tekið sinn toll, var söngurinn besta sam- gönguleiðin. Lög og textar sátu eft- ir í minninu og gamla glaða Fríða birtist í tjáningunni. Tengdamamma vildi hafa fallegt í kringum sig og hún kunni að skapa skemmtilegar stundir. Glað- værðin í Suðurhólum, brandarar og stríðnisskot lifa sterkast í minn- ingunni um fjölskyldusamveruna þar. Lífið hafði þó ekki alltaf farið um hana blíðum höndum. 43 ára, sjö barna móðir, varð hún ekkja. Eiginmaðurinn Guðmundur, stóra ástin hennar og fyrirvinna heimilis- ins, fór skyndilega úr hjartaáfalli. Yngsta barnið tæplega tveggja ára og aðeins tvö þau elstu komin yfir tvítugt. Fríða fluttist frá Akranesi til Reykjavíkur og gerðist sóknar- kona, starfaði lengst af við umönn- un á Kleppsspítala. Fjárráðin voru þröng og ekki hægt að mylja undir börnin. Áhyggjuefnin voru yfir- drifin. Samt sem áður fann ég aldr- ei fyrir biturð hjá tengdamömmu og hún var ekki kvartgjörn. Djúpt undir skynjaði maður þó sorgina. Fríða gat verið meinhæðin og sent í orðum eitraðar pillur. En húmor- inn og nautnin af því fagra var flot- holtið hennar yfir erfiðleikana. Með þökk í hjarta kveð ég Hólmfríði Oddsdóttur. Gengin er skemmtileg kona sem kunni að gera hvunndaginn spennandi og litríkan. Kristín Á. Ólafsdóttir. Þá er komið að leiðarlokum hjá góðri vinkonu og tengdamóður. Ég hélt reyndar í vor að hún myndi lifa 90 ára afmælið því ekki leiddist henni veisluhöld og allra síst ef þau voru henni sjálfri til heiðurs. En það fór á annan veg, í sumar fór henni snöggt aftur, lífsgleðin hvarf og það var þreytt kona sem kvaddi þessa jarðvist umvafin fjölskyldu sinni. Fríða var skemmtileg, fé- lagslynd og flott. Hún lagði mikið upp úr að vera smekkleg og vel til höfð og fram á síðustu viku var far- ið í lagningu enda hún með einstak- lega fallegt hár. Hún gat verið hár- beitt í tilsvörum, skemmtilega orðheppin og mörg tilsvörin og lýs- ingar hennar lifa í fjölskyldunni. Hún fylgdist alltaf vel með málefn- um líðandi stundar og hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Ófáir kaffibollarnir enduðu á hvolfi yfir ofni svo hægt væri að spá örlít- ið í framtíðina og draumar ræddir og ráðnir. Þegar ég kynntist henni bjó hún í Suðurhólunum en flutti fljótlega á Lindargötu 61 þar sem líf hennar tók stakkaskiptum. Þar komst hún í samfélag með öðrum heldri borg- urum, eignaðist nýja vini, stundaði bingó, söng með kórnum og lærði glerskurð, keramik, postulínsmál- un og fleiri handverk. Þar skapaði hún mikil listaverk, falleg og vel gerð. Hún var afar stolt af verkum sínum og fékk fyrir þau mikið hrós. Eftir 23 ára samfylgd á ég henni margt að þakka. Takk fyrir að taka vel á móti okkur Hlyni og Bjössa við kynni okkar Brynjars, takk fyr- ir að vera amma Birtu Íseyjar, takk fyrir allar skemmtilegar sam- verustundirnar, söng og sögur. Hvíl í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigríður Björnsdóttir. Elsku amma Fríða. Svo mjúk og hlý, eins og ömmur eiga að vera, en svo skrýtin og skemmtileg líka. Þú kenndir okkur barnabörnunum að sjúga kaffi í gegnum sykurmola, allt frá þriggja ára aldri. Þér fannst svo gaman að hafa fólk í kaffi – allir sitjandi í kringum eldhúsborðið þitt í Suðurhólunum, skrafandi og syngjandi, og svo gastu lesið í kaffi- bollann á eftir – galdrakerling! Og þar fannstu einhvern veginn alltaf ástina. Hana var líka að finna í bókahillunum þínum; Rauðu ástar- seríurnar eins og þær lögðu sig og Ísfólkið, sem mér tókst að stelast í allt of ungri. Kaffi og kryddaðar bókmenntir, þetta kenndi amma mér að meta. Og sögurnar maður! Aldrei að láta sannleikann spilla góðri sögu, sagði hún, og hún var stórkostleg sögukona. Ég get svar- ið að hún hafi sagt mér að hún og Elísabet Englandsdrottning væru laumusystur, og ég trúi því hálf- partinn enn, þær eru svo líkar. Ömmur eru samt aldrei neitt annað en ömmur þegar maður er lítill svo það var ekki fyrr en á full- orðinsaldri sem ég skildi fyrst hvað hún hafði gengið í gegnum margt á lífsleið sinni. Það var hvert höggið á fætur öðru. En samt man ég hana fyrst og fremst skríkjandi og skrallandi, alltaf eitthvað að stríða manni og auðvitað gefa manni eitt- hvað í gogginn. Hún var endalaus rómantíker og meira að segja þessi síðustu ár þegar hún var smátt og smátt að hverfa okkur sá maður ljósið kvikna þegar talað var um Guðmund hennar sem dó fyrir tæpum 50 árum. Nú fáið þið loksins að hittast aftur. Takk fyrir kaffið, elsku amma, og allt hitt. Melkorka. Í dag kveð ég yndislega vinkonu mína, hana Fríðu. Ég var 27 ára þegar við kynntumst, vorum að vinna við hjúkrunarstörf á Klepps- spítalanum, í Hátúni 10. Ég ný- byrjuð, heyri þennan yndislega söng að morgni, alveg eins og að Guðrún Á. Símonar væri að syngja! Þá var þetta Fríða að sinna sínum daglegu störfum; búa um rúmin, hjálpa fólki á fætur o.fl. Svona voru dagarnir í vinnunni hjá henni. Hún var elskuð og dáð af sjúklingunum, skapaði bros, gleði og skemmtileg- heit alla daga. Hún hafði einstakt lag á að eiga við þá sem voru erf- iðir. Ég dáðist að þessum eiginleik- um. Hún sem var nýlega orðin ekkja og átti sjö börn og þar af fjögur, sem enn voru mjög ung. Hvernig fer hún að þessu? Hvernig er hægt að vera svona jákvæður og dreifa svona mikilli gleði í kringum sig? Við urðum strax góðar vinkon- ur. Það var eins og enginn aldurs- munur væri. Hún hafði einstaka hæfileika til að gleðjast yfir litlu, t.d. að fylgjast með fuglshreiðri í þakinu á næsta húsi. Ég var vön að setja sumarblóm í útiker hjá henni á vorin. Hún hafði mikla ánægju af blómum, eins og við báðar. Helst átti að vera allt litrófið í kerinu. Eitt sumarið datt okkur í hug að setja nokkrar kartöflur í plastbox á svalirnar og hún fékk þessar fínu kartöflur. Hún sagði að krakkarnir hennar segðu: „Að hún Begga skuli láta þetta eftir þér.“ Þó að leiðir skildu í vinnu, þá héldum við alltaf sambandi og brölluðum ótal margt skemmtilegt saman. Börnin mín tvö hafa alltaf kallað hana „Fríðu ömmu“ og þrætt fyrir annað, „jú víst er hún amma mín,“ sögðu þau. Ég sendi innilegar samúðar- kveðjur frá mér og fjölskyldu minni til barna hennar og fjöl- skyldna þeirra. Hvíl í friði, mín kæra vinkona. Þín vinkona, Bergþóra (Begga). Hólmfríður Oddsdóttir ✝ HaraldurHannesson fæddist í Víðigerði í Eyjafirði 11. ágúst 1926. Hann lést á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Hlíð á Akureyri 24. júlí 2016. Foreldrar hans voru Hannes Krist- jánsson, f. 28. apríl 1887 í Víðigerði, d. 7. ágúst 1970, og Laufey Jóhann- esdóttir, f. 8. apríl 1893 í Æsu- staðagerði í Eyjafirði, d. 26. ágúst 1985. Systkini Haraldar voru: Hólm- fríður, f. 12. apríl 1918, d. 4. des- ember 1994, Kristín, f. 20. júní 1921, d. 30. september 1995, Kristján, f. 16. apríl 1928, d. 20. nóvember 2013. Haraldur kvæntist 11. júní 1955 Sólveigu Bennýju Jóhanns- dóttur, f. 25. desember 1932 að Vatnsleysu í Glæsibæjarhreppi, d. 30. nóvember 2001. Börn Har- aldar og Bennýjar eru: 1) Hjört- ur, f. 1956, maki Helga Björg Haraldsdóttir, 2) Hildur, f. 1957, maki Davíð Jónsson, 3) Hannes, f. 1958, maki Guðlaug Jóhanns- dóttir, 4) Kristín, f. 1960, maki Sigurður Óli Þórisson, 5) Dreng- ur, f. 1965, d. sama dag, 6) Lauf- ey, f. 1966, maki Bjarni Mar- onsson, 7) Guðrún, f. 1966, maki Harri Englund, 8) Sólveig, f. 1970, maki Unnsteinn Tryggva- son, 9) Snjólaug, f. 1972. Barna- börnin eru fimmtán og barna- barnabörn ellefu. Haraldur ólst upp í Víðigerði og bjó þar alla tíð, utan síðustu níu mánuði ævinnar er hann dvaldi á Hlíð. Hann hlaut fyrstu kennslu í æsku af foreldrum sínum og eldri systrum. Þegar Haraldur var átta ára var tekinn heim- iliskennari í Víðigerði í tvo vetur. Eftir það tók við nám í Farskóla Hrafnagilshrepps að Grund í Eyjafirði. Hann varð gagnfræð- ingur frá Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar 1945, og nam við Fergu- son Training School í Coventry í Eng- landi veturinn 1950- 1951. Í kjölfarið vann hann um tíma hjá Dráttarvélum hf. í Reykjavík, sem þá voru umboðs- aðilar Ferguson- véla. Með námi og eftir nám vann Haraldur að búi foreldra sinna í Víðigerði. Hann tók, ásamt foreldrum sínum og systk- inum, þátt í mikilli uppbyggingu á býlinu, þar sem byggð voru steinhús í stað torfhúsa, ræktun var mikil og tún margfölduðust. Þegar foreldrar hans brugðu búi 1955 stofnaði hann félagsbú í Víðigerði með bróður sínum, Kristjáni. Haraldur tók alfarið við jörð- inni og búskapnum, ásamt eig- inkonu sinni, 1956. Þau ráku bú þar allt til ársins 1991, síðustu árin í félagi við Hjört, son sinn, og Helgu, konu hans. Á þessum 36 árum í búskap Haraldar og Bennýjar var stöðugt haldið áfram að byggja og rækta, þróa verklag og búskaparhætti áfram til nýrri tíma. Þau reistu sér hús í Víðigerði 1992, þar sem Har- aldur bjó uns hann flutt á Hlíð síðla árs 2015. Haraldur tók virkan þátt í fé- lagslífi sinnar sveitar. Innan við þrítugt settist hann í hrepps- nefnd og sat þar í 32 ár, þar af níu ár sem oddviti. Hann sat í sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu, bygginganefnd Eyjafjarðarsýslu, sóknarnefnd Grundarsóknar, skólanefnd Hrafnagilsskóla, stjórn Búnaðarfélags Hrafnagils- hrepps, stjórn Minjasafnsins á Akureyri og stjórn Flags aldr- aðra í Eyjafjarðarsveit. Þá var Haraldur formaður sameining- arnefndar hreppanna í fram- anverðum Eyjafirði 1990, þar sem nú heitir Eyjafjarðarsveit. Haraldur verður jarðsunginn frá Grundarkirkju í dag, 12. ágúst 2016, klukkan 13.30. Starfið er margt. Því kynntist Haraldur bóndi í Víðigerði. Hann ólst upp fyrir tíma véltækni í land- búnaði og lærði bústörf þess tíma, sem flest voru unnin með hestum og handverkfærum. Þótt Harald- ur væri ekki mikill að vallarsýn bjó hann yfir þeirri snerpu og verkhyggni sem gerði hann að af- kastamiklum og fjölhæfum verk- manni, sem hlífði sér hvergi og miklaði ekki fyrir sér þau verkefni sem fyrir lágu hverju sinni. Þessir eiginleikar fylgdu Haraldi alla ævi og hafa löngum einkennt góða ís- lenska bændur. Haraldur vann ungur að vélaviðgerðum og vöru- bílaakstri en búskapur í Víðigerði varð ævistarf hans, ásamt marg- háttuðum félagsstörfum, sem sveitungar hans kusu hann til. Hann taldi ekki eftir sér stundir og spor í þágu þess samfélags sem hann lifði og starfaði í og vildi í engu á því níðast sem honum var trúað fyrir. Oft urðu frátafir frá bústörfum vegna félagsstarfa og kom þá til kasta konu og barna að annast búið. Það létti störfin að allt var skipulagt og í föstum skorðum hjá bóndanum og snyrti- mennsku þeirra hjóna utanhúss og innan var við brugðið. Árið 1955 tók Haraldur form- lega við búi í Víðigerði af foreldr- um sínum, þá kvæntur mikilhæfri konu, Sólveigu Bennýju Jóhanns- dóttur. Þau tóku við góðu búi en í hönd fóru ár mikilla umsvifa, bygginga, ræktunar og vélvæð- ingar. Víðigerði þótti ekki merki- leg jörð fyrir tíma vélvæðingar í landbúnaði en hefur um áratuga- skeið talist til eyfirskra góðbýla. Þar er þáttur þeirra Haralds og Bennýjar ærið stór. Þeim fæddust börnin eitt af öðru og urðu átta sem upp komust en dreng misstu þau í fæðingu. Börnin urðu Víði- gerðishjónum í senn auðlegð þeirra og ábyrgð. Oft sagðist Har- aldur hafa verið þreyttur á þess- um árum mikillar uppbyggingar og félagsmála. Haraldur var geðbrigðamaður nokkur og gat orðið hvass í bragði ef honum mislíkaði en ríkur þáttur í fari hans var engu að síður glað- værð og notaleg hlýja, sem hann var óspar á. Hann var með öllu laus við sjálfhælni og aldrei heyrði ég hann miklast af verkum sínum. Aftur á móti var ekki laust við að hann liti þá hornauga sem honum þótti miklir á lofti og sneiddi hjá samskiptum við þá. Hann var fróðleiksmaður mikill, flugnæmur á allt sem hann las og heyrði. Ætt- fræði, þjóðlegur fróðleikur og heimsmálin voru honum hugleik- in. Hann naut þess að miðla af þekkingu sinni og lífsreynslu og gaf mikið af sér í viðræðum. Ætíð kom undirritaður fróðari af fundi Haralds. Á ævikvöldi sínu leit Haraldur í Víðigerði sáttur yfir farinn veg. Hann átti barnaláni að fagna og börnin sýndu honum mikla ræktarsemi og því frekar sem þörf hans fyrir aðstoð jókst. Sonur hans og tengdadóttir tóku við jörð og búi í Víðigerði og sitja jörðina af myndarskap og mjög að skapi gamla bóndans. Helsta ósk hans hefur ræst, sú að börn þeirra Bennýjar væru traust manndóms- fólk, sem ræktu vel ættartengslin. Þrátt fyrir að ellin gengi á krafta Haralds hin síðari ár bjó hann á eigin heimili þar til á síðasta ári að hann fluttist á Dvalarheimilið Hlíð. Haralds minnist ég með virðingu og þökk. Bjarni Pétur Maronsson. Haraldur Hannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.