Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 26

Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016 Áslaug Björgvinsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi dómari viðHéraðsdóm Reykjavíkur, ætlar að fagna fimmtugsafmælinumeð fjölskyldum og vinum í garðveislu heima hjá sér. „Mér finnst skemmtilegt að verða 50 ára. Er svo þakklát fyrir fjölskyldu og vini og það sem lífið hefur fært mér.“ Áslaug hefur stærsta hluta starfsferilsins verið við héraðsdómstól- ana, dómarafulltrúi, framkvæmdastjóri Dómstólaráðs og dómari árin 2010-2015 og hefur einnig sinnt fræðimennsku og háskólakennslu. Eiginmaður Áslaugar er Ragnar Árnason hdl., forstöðumaður vinnu- markaðssviðs Samtaka atvinnulífsins. Börn þeirra eru Elín Ragnhild- ur 13 ára, Björgvin Hugi 11 ára og Þuríður Helga 9 ára. Áslaug sagði dómaraembætti sínu lausu á síðasta ári af prinsipp- ástæðum og hefur síðan beitt sér fyrir umbótum á lagarammanum um dómskerfið. „Í mínum huga snýst það um að lifa og starfa í samræmi við gildin sín. Það er auðvitað langskemmtilegast þótt það sé ekki allt- af létt. Ég er hugsjónamanneskja með mikinn faglegan metnað og áhuga á samfélagsmálum auk þess sem mér finnst lögfræði mjög skemmtileg. Traust til réttarvörslukerfis er jafn mikilvægt og sterk heilbrigðis- og skólakerfi. Réttarríkið snýst um að skapa traust, ör- yggi og vellíðan. Þegar fólk fær ekki réttláta málsmeðferð hjá stjórn- völdum eða dómstólum skapast vantraust, óöryggi og vanlíðan ekki bara hjá viðkomandi einstaklingi heldur hópum og samfélaginu í heild. Ef fólk skynjar ekki að það njóti réttlætis og mál þess séu með- höndluð með sanngjörnum og réttlætum hætti þurfum við að hlusta á það. Mig langar að breyta stjórnkerfinu og dómsvaldinu svo við stöndum í fararbroddi réttarríkja.“ Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir Fjölskyldan Við fermingu Elínar Ragnhildar síðastliðið vor. Fyrrverandi dóm- ari á tímamótum Áslaug Björgvinsdóttir er fimmtug í dag H ilda Friðfinnsdóttir fæddist 12. ágúst 1976 á Akureyri. Hún ólst þar upp til 12 ára ald- urs þegar fjölskyldan fluttist á Seltjarnarnes. „Ég bjó í Ed- inborg í Skotlandi 1978-1981 meðan faðir minn var þar við nám.“ Hilda gekk í Lundarskóla á Akur- eyri og Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi en þaðan lá leiðin í Kvennaskólann í Reykjavík þaðan sem hún útskrif- aðist sem stúdent árið 1996. Hún lauk B.Sc-prófi í hjúkrunarfræði frá Há- skóla Íslands árið 2001, embættis- prófi í ljósmóðurfræði árið 2012 og MS-gráðu í mannauðsstjórnun árið 2015. „Frá því ég var stelpa dreymdi mig um að verða ljósmóðir og stefndi alltaf að því þó að ég hafi ekki farið beinustu leiðina.“ Hilda starfaði sem hjúkrunar- fræðingur á hinum ýmsu deildum Landspítalans á árunum 2001-2005 Hilda Friðfinnsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur – 40 ára Í Stokkhólmi Hilda og Jóhannes ásamt yngri dótturinni, Örnu Maren, í Gröna Lund tívolíi. Ljósmóðurstarfið var alltaf draumurinn Á Hvalasafninu Hilda ásamt Örnu Maren og Þórnýju Athenu. Hvolsvöllur Ágúst Birgir Sigurðsson fæddist á Jóns- messu, 24. júní 2015 í Reykjavík, kl. 16.58. Hann var 3.724 g og 53 cm að lengd. Foreldrar hans eru Ólöf Sæmundsdóttir og Sig- urður Ágúst Guðjónsson. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 NÝ SENDING ICON MOTTA kr. 52.650 170X240 WOODLAND LAMPI kr. 24.300 BLACKWOOD STÓLL kr. 32.700 DIMOND PÚĐAR kr. 7.980

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.