Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af
öryggisvörum
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur einbeitt þér um of að and-
legri líðan þinni og um leið vanrækt líkama
þinn. Hafðu það í huga að góður göngutúr er
líkamsrækt.
20. apríl - 20. maí
Naut Hikaðu ekki við að segja hug þinn, hver
sem í hlut á. Vertu opin/n fyrir þeim tækifær-
um sem þér bjóðast því það eru miklar líkur á
að þú dettir í lukkupottinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að leita í félagsskap þér
eldri í dag. Ekki láta slá þig út af laginu þó þú
fáir leiðinlegar athugsemdir hvað varðar mat-
aræði þitt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú mátt ekki vanmeta vinsældir þínar
en mátt heldur ekki misnota þér velvild ann-
arra. Líkur eru á að þú farir óvænt í frí fljót-
lega.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur hefnt sín síðar að reyna að
leyna hluta málavaxta, þeim sem óþægilegir
eru. Ekki ofgera þér á félagslega sviðinu.
Hvíld er góð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Taktu höndum saman með vinum og
félögum og hjálpaðu öðrum að ná mark-
miðum sínum. Þér fellur allur ketill í eld í upp-
eldinu, en ekki gefa eftir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hælir fólki og finnur eitthvað jákvætt
við alla sem þú hittir og uppskerð velvilja í
staðinn. Skilningur þinn á líðan annarra er
eitthvað sem á eftir að fleyta þér langt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einhver atburður sem gerist í
nágrenni þínu snertir þig dýpra en flesta
aðra. Reyndu að komast að því hvers maki
þinn þarfnast.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hugsanlegt er að þú hellir þér í
nám á komandi vetri. Passaðu samt að hafa
dagskrána ekki of þétta. Þér hættir nefnilega
til að kaffæra þig í verkefnum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú vekur athygli annarra og finnst
notalegt að láta hana leika um þig. Snúðu þig
út úr erfiðum aðstæðum á meðan kostur er.
Finndu tíma fyrir ræktina.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú verður ekki lengur undan því
vikist að sinna því fólki sem þú hefur vanrækt
að undanförnu. Vertu þakklát/ur þeim sem
hjálpuðu þér og leiðbeindu í æsku.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú eru síðustu forvöð að ganga frá
þeim málum, sem þú hefur tekið að þér. Ekki
eyða tíma þínum í nöldur, það breytir engu
nema að aðrir verða pirraðir.
Jóhanna Guðríður Linnet skrifaðimér tölvupóst og þakkaði mér
fyrir Vísnahornið í gær um Höllu á
Laugabóli, en benti mér jafnframt
á, að þar hefði slæðst inn sú villa, að
Halla hefði aðeins átt eina systur,
sem upp komst, Sigrúnu. Systurnar
voru tvær. Eldri var Jórunn ljós-
móðir í Reykjavík (1857-1931),
langamma Jóhönnu Guðríðar. Hún
var tekin í fóstur í Garpsdal en Eyj-
ólfur, faðir þeirra systra, var sonur
prestshjónanna þar. Skýringin á
þessari ónákvæmni er sú, að í ævi-
ágripi Höllu í síðari ljóðabók henn-
ar, Kvæðum, er Jórunnar ekki get-
ið.
Hreinn Guðvarðarson segir „nú-
tíma ástarsögu“ á Boðnarmiði:
Svo skotin sem hún var í honum
en hann var jú stundum með konum.
Svo stungu þau af
og stundin þeim gaf
svipmynd af villtustu vonum.
Guðmundur Halldórsson yrkir
hér um túrhesta, en víkur nokkuð
frá venjubundinni hrynjandi limr-
unnar. Rímnahættir eru fjölmargir
þó ferskeytlan sé e.t.v. frumhátt-
urinn. Ég spái því að eins fari um
limruna. Háttum undir „limrulagi“
fjölgi og verði að sérstakri íþrótt, –
e.t.v. með mismunandi dýrleika í
rími!
Trítlar víða túristanna her
um tinda, dali, móa og eyðisker.
Margt er hér að sjá
mest þó allir þrá
brekkuna þar sem Bieber velti sér.
Limrur kallast á, – líka milli
Boðnarmjaðar og Leirsins, þar
sem Pétur Stefánsson yrkir:
Hún Guðbjörg er frá á fæti
og full af galsa og kæti.
Tvo tíma langa
það tók hana að ganga
upp brekkuna í Bankastræti.
Og ofan úr Mývatnssveit barst
þessi limra á Leirinn frá Friðriki
Steingrímssyni:
Þær báðar hann Örnólfur elti
og upp í loft síðan þeim velti.
Og gerði þeim skil
það gekk þannig til,
að þykkna þær brátt undir belti.
Það má kannski segja að þessi
ferskeytla Höllu sé undir limru-
lagi!
Ástin mín er engin synd –
ekki má því gleyma –
hún er öll fyrir ofan þind, –
á þar líka heima.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nútíma ástarsaga
og limrur kallast á
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
… eitthvað sem
ekki er hægt að bæta.
ÖMM… HVAÐ!? ÞETTA VIRKAR
EKKI SVONA.
HEY! ER ÉG
KÖNGULÓ, EÐA ÞÚ!?
HÁR ÞITT
ER EINS
OG SILKI,
AUGUN
GLITRA SEM
DEMANTAR,
VARIR ÞÍNAR
ERU EINS
OG RÓSIR.
EKKI
HÆTTA.
EEE…
ÖMM
ÉG VERÐ AÐ
HEYRA HVAR
ÞETTA ENDAR.
FYRIR
ALLA MUNI!
KL
II
NG
G
HEFURÐU
HEYRT?
ÞEGAR ORÐRÓMUR KEMST Á KREIK
ER ERFITT AÐ STÖÐVA HANN,
SÖKUM HJARÐHEGÐUNAR.
ÞETTA ER NÝR LEIKUR.
HANN HEITIR TITILBARDAGI.
Nánast hvar sem Víkverji hefurverið og farið undanfarna mán-
uði hefur fólk verið með ónot í hálsi
og hóstandi, verið með nefrennsli,
snýtandi sér í tíma og ótíma og talað
um berkjubólgu og pensilín.
x x x
Þessi kvilli hefur líka hrjáð Vík-verja í sumar. Hann hefur geng-
ið óvenjulangt til þess að losna við
kverkaskítinn, jafnvel flogið til suð-
rænnar sólar án þess að losna við
óþægindin nema tímabundið.
x x x
Fyrstu viðbrögð voru að rifja uppráð Óla fyrrverandi landlæknis,
fara snemma að sofa og tryggja góð-
an og langan svefn, fara fyrr á morg-
ana en áður út með hundinn, ganga
meira og oftar og anda að sér súrefni
í miklu magni eins og verið væri að
dæla í loftbelg.
x x x
Þegar þetta breytti engu varnæsta stig að fá sér hunangste
fyrir svefninn. Í kjölfarið lá beinast
við að fá sér prestate, minnugur
þess að það hefur að margra mati
verið allra meina bót í aldir. Meira
prestate og enn meira prestate.
Hálsbrjóstsykur var soginn og
bruddur, mixtúrur frá Óla apótekara
reyndar, treflar hertir að hálsi og
farið í síðum á völlinn með rennt upp
í háls.
x x x
Besta lausnin reyndist nær ennokkurn grunaði, þó fljúga
þyrfti yfir hafið til Austur-Evrópu til
þess að fá leiðsögn, sem bar árang-
ur. Víkverji hóstaði svo eftir var tek-
ið hjá Óla og þá tók húsbóndinn til
sinna ráða, færði honum bolla með
tvöföldum vodka, gegnumvætti
bómullarhnoðra í vökvanum og sagði
Víkverja að anda vel að sér úr
hnoðranum í gegnum nefið.
x x x
Áhrifin létu ekki á sér standa, Vík-verji var sem annars heims í
nokkrar sekúndur og síðan birti til
og allar leiðslur hreinsuðust á auga-
bragði. Bragðið virkaði meðan á
dvölinni ytra stóð en eftir heimkom-
una í vikunni fór allt í fyrra horf.
víkverji@mbl.is
Víkverji
En réttlátir gleðjast, fagna fyrir augliti
Guðs og fyllast gleði.
(Sálm. 68:4)