Morgunblaðið - 12.08.2016, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Brauð dagsins alla föstudaga
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Við munum spila ákveðna blöndu
sem við þekkjum vel. Við verðum
með suður-ameríska tóna og eitt-
hvað af frumsömdu efni í bland við
Ornette Coleman, svo eitthvað sé
nefnt,“ segir sænski djasspíanó-
leikarinn Bobo Stenson en hann
kemur fram ásamt tríói sínu annað
kvöld klukkan 20 í Norðurljósum
en tónleikarnir
eru hluti af
Jazzhátíð
Reykjavíkur.
Stenson hefur
ýmsa fjöruna
sopið á ferli sín-
um og meðal
annars leikið
með djass-
stjörnum á borð
við Dexter Gord-
on, Toots Thielemans og Stan
Getz. Þá hljóðritaði Stenson einn af
fyrstu diskunum sem ECM-
útgáfan gaf út og er enn hjá þeim
en ECM er einn virtasti útgefandi í
djassheiminum í dag samkvæmt
upplýsingum frá skipuleggjendum
tónleikanna.
Sænski djassheimurinn hefur
breyst
Hinir tveir meðlimir tríósins eru
þeir Anders Jormin á bassa og
trymbillinn Jon Fält sem er
nokkru yngri en samleikarar hans.
„Við Jormin höfum þekkst lengi
og ég held að samband okkar hafi
haldist mjög stöðugt í gegnum ár-
in. Við höfum alltaf verið á sömu
bylgjulengdinni í djassinum og við
treystum hvor öðrum svo vel þegar
við spilum saman að við þurfum
varla að tala saman fyrir eða eftir
tónleika. Það liggur við að við les-
um hugsanir hvor annars. Jon hef-
ur spilað með okkur í nokkur ár
núna og hann hefur komið mjög vel
inn. Þó svo hann sé hluti af nýrri
djasskynslóð í Svíþjóð þá er hann
búinn að koma sér vel fyrir í sen-
unni í Stokkhólmi. Það er meira að
segja yngri djasskynslóð komin á
stjá þar núna,“ segir Stenson og
bætir við að djasssenan þar í landi
hafi breyst nokkuð mikið frá því
hann steig sjálfur sín fyrstu skref.
„Það eru fleiri djasshljómsveitir
til í dag. Það eru komnir skólar
sem kenna djass út um allt og það
er mjög ólíkt því sem var þegar ég
var að vaxa úr grasi. Við vorum
bara með plötuspilara sem við
lærðum af en í dag geta allir fundið
tónlist og nótur á netinu. Þetta er
allt annar heimur. Tónleikastöð-
unum hefur samt ekki fjölgað sam-
hliða hljómsveitunum og því er
samkeppnin líka orðin ennþá
meiri,“ segir hann og bætir við að í
dag sé meira um atvinnudjassara,
áður fyrr hafi menn þurft að vera í
öðrum störfum samhliða tónlist-
inni.
Djassinn skal spila í hópi
„Þetta verður í annað skiptið
sem ég spila á Íslandi. Ég kom þar
fram í byrjun áttunda áratugarins
og þá lékum við meira af klassískri
tónlist. Okkur var boðið að koma
fram í Reykjavík sem tríó en einn
meðlimurinn festist í Júgóslavíu,
eins og landið var kallað þá, vegna
veðurs svo við neyddumst til að
koma fram sem dúó. Við skiptum
bara hlutverki þess þriðja á milli
okkar og skemmtum okkur kon-
unglega. Þessu tríói sem ég er hluti
af í dag var síðan boðið að koma
fram á Jazzhátíð Reykjavíkur í
fyrra en það hittist þannig á að við
komumst ekki. Við vorum spurðir
aftur í ár og við slógum til. Þetta er
áhugaverð hátíð og ég er mjög
spenntur að koma aftur til lands-
ins. Við hjónin ætlum að vera þar í
aukadag eftir tónleikana og reyna
að sjá aðeins meira en bara inn-
réttingar tónleikastaðarins,“ segir
Stenson kíminn. Hann kveðst ekki
þekkja mikið til íslensku djasssen-
unnar og það litla sem hann viti
tengist sænsk-íslenska trommu-
leikaranum Pétri „Island“ Östlund.
Stenson segir að eitt það mikilvæg-
asta við djassinn sé að spila nógu
mikið saman með öðrum, til þess sé
leikurinn gerður.
„Ég segi alltaf við mína nem-
endur að maður þurfi vissulega að
hlusta mikið á tónlist og æfa sig á
hljóðfærið til að verða betri. Það sé
þó ekki síður mikilvægt, ef ekki
mikilvægara, að spila í hópi. Það
þýðir ekkert að læra bara af bók-
unum. Djassinum er ætlað að vera
spilaður í hópi og það er mjög mik-
ilvægt að fólk átti sig á því. Maður
verður ennfremur að nálgast djass-
inn með opnum hug og vera viðbú-
inn því sem meðleikurunum dettur
í hug. Þetta snýst allt um réttu
blönduna af reglum og frjálsræði.
Þetta eru opnar samræður eftir
ákveðnum reglum,“ segir hann.
Charles Lloyd stendur upp úr
Eins og áður segir hefur Stenson
leikið með ýmsum stórstjörnum í
heimi djassins og segir hann það
hafa gefið sér gífurlega mikla og
fjölbreytta reynslu.
„Það samstarf sem gaf mér ef-
laust hvað mest var þegar ég vann
með Charles Lloyd. Við spiluðum
saman í ellefu ár og það voru mjög
góðir tímar. Það var líka yndislegt
að vinna með Don Cherry. Hann
var auk þess mikill innblástur fyrir
sænsku djasssenuna í heild sinni.
Ameríski djassinn hefur haft mikil
áhrif á mig í gegnum tíðina, það
var í raun tungumálið sem ég lærði
þegar ég nam djassinn til að byrja
með. Síðan fór maður að drekka í
sig djass frá öðrum heimshornum
og úr hefur orðið mjög skemmti-
legur suðupottur sem er eilítið
öðruvísi en þessi hefðbundni amer-
íski djass,“ segir hann og bætir við
að tríóið sé um þessar mundir að
vinna að nýrri hljómplötu.
„Við erum á leið í hljóðver í des-
ember og ég vona platan komi út á
næsta ári. Hún verður keimlík því
sem við höfum áður verið að gera,
okkar eigin tónverk í bland við
spunatónlist og fleira. Við komum
til með að spila allavega tvö verk af
þeirri plötu á tónleikunum annað
kvöld,“ segir Stenson að lokum.
Opnar samræður innan ramma
Tríó Bobo Sten-
son í Norðurljós-
um annað kvöld
Bobo Stenson
Djass Tríóið skipa píanóleik-
arinn Bobo Stenson, Anders
Jormin á bassa og trymbill-
inn Jon Fält. Stenson hefur
unnið með stjörnum á borð
við Dexter Gordon, Toots
Thielemans og Stan Getz.
Listahátíðin PLAN-B art festival
verður haldin í fyrsta sinn í Borg-
arnesi um helgina. Hátíðin hefst í
dag og henni lýkur á sunnudag. „Um
tuttugu listamenn frá allt að sex mis-
munandi þjóðernum munu taka þátt
í að sýna á Plan-B listahátíðinni,
listamenn eru fjölbreyttir og verða
verk úr öllum miðlum nútíma mynd-
listar. Mörg helstu kennileiti bæj-
arins verða nýtt sem sýningarrými á
meðan á hátíðinni stendur og verður
hægt að sjá m.a. vídeóverk og gjörn-
inga inni í rýmum sem flest hafa
þjónað verslunarmönnum á síðustu
öld og íbúar eiga að þekkja í annarri
notkun,“ segir í tilkynningu, en þar
kemur fram að aðgangur er ókeypis.
Meðal sýningarstaða eru Gamla
mjólkursamlagið, Pakkhúsið í Eng-
lendingavík og Pakkhúsið sem hýsir
Landnámssetur Íslands.
Samkvæmt upplýsingum frá
skipuleggjendum fá allir listamenn
sem þátt taka greitt fyrir vinnu sína.
„Listamenn sem voru valdir höfðu
einnig möguleika á að nýta sér mán-
aðaraðgang að listasetri í Valfelli.“
Allar nánari upplýsingar um hátíð-
ina má sjá á planbartfestival.is.
Málning Verk eftir Katorinu Pling sem þátt tekur í hátíðinni.
Ný listahátíð haldin í
Borgarnesi um helgina
Listahátíðin PLAN-B art festival
Jazzhátíð Reykjavíkur 2016