Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016SJÓNARHÓLL
Vinnumarkaðurinn er á fleygiferð, störfum erað fjölga og einnig er nokkuð um að fólk séað færa sig á milli starfa. Því er mikið um
ráðningar og þá getur verið gott að hafa í huga
máltækið „Í upphafi skyldi endinn skoða“.
Í gegnum ráðningarferli, og við undirskrift form-
legs ráðningarsamnings, verður samhliða til annar
óskrifaður samningur, hinn svokallaði sálfræðilegi
samningur.
Hann inniber þær væntingar sem aðilar gera
hvor til annars. Sé misræmi í þessum væntingum
getur það leitt til riftunar ráðningarsamnings, að
frumkvæði annars hvors að-
ilans.
Með breyttum tímum
breytast væntingar, og þar
með þessi gagnkvæmi sál-
fræðilegi samningur, sem
þarf að vera í jafnvægi. Nú
er því góður tími til að upp-
færa hugmyndir um hvað
skiptir máli við að búa til
góðan vinnustað árið 2016.
Nýlega hlustaði ég á
mjög áhugaverðan fyr-
irlestur á netinu, frá er-
lendri fræðsluveitu, sem ég
mæli reyndar með við alla
sem hluta af því að viðhalda og bæta við þekkingu
sína. Í þessum fyrirlestri var mikið rætt um þennan
sálfræðilega samning og hverjir eru helstu áhrifa-
þættir á hann í dag.
Nokkur af helstu atriðunum sem nefnd voru:
Þekktu fólkið þitt: Það er erfitt að mæta vænt-
ingum starfsfólksins þegar þú veist ekki hvað það
vill. Leggðu þig fram við að þekkja það, styrkleika
þess, getu, hvernig það vinnur best, hvað hvetur
það o.s.frv. Hafðu áhuga á því sem einstaklingum,
en ekki bara sem vinnuafli. Einstaklingar hafa mis-
munandi þarfir og væntingar, ekki hugsa bara um
að gera eins fyrir alla, mættu hverjum og einum
þar sem hann er.
Hjálpaðu fólkinu þínu að blómstra: Aðstæður og
umhverfi í vinnu hafa áhrif á heilsu fólks, lík-
amlega, andlega, félagslega o.fl. Skapaðu aðstæður
þar sem fólki líður vel. Þar sem það langar til að
leggja sig fram og ná árangri fyrir sig og fyr-
irtækið. Hvetjandi aðstæður geta líka dregið úr
ýmsum kostnaði, svo sem vegna veikinda og lítillar
virkni. Hjálpaðu fólkinu þínu til að efla sig og þróa
í starfi, en líka sem einstaklinga.
Vertu áhugaverður vinnustaður: Hæfileikaríkt
fólk þarf ekki að vinna á leiðinlegum vinnustöðum,
og fæst þeirra gerir það reyndar. Skapaðu
vinnustaðarmenningu sem veitir þér
samkeppnisforskot um gott fólk. Það
langar alla að vinna hjá eftirsókn-
arverðustu vinnustöðunum, þar sem
starfar sterkt og samheldið keppnis-
lið. Leikherbergin eru fín en það
skiptir enn meira máli að fólk upplifi
að það geti blómstrað sem fagfólk og
einstaklingar.
Horfðu til framtíðar: Það hvað
starfsfólk er tilbúið að gera í dag
mótast af því hvaða áhrif það telur að
þetta muni hafa fyrir það, til fram-
tíðar litið.
Fyrirtæki sem leggja sig fram með
starfsmanninum um að búa til áhuga-
verða framtíð fyrir hann ná því besta fram úr
starfsfólki sínu. Það skiptir metnaðarfullt starfsfólk
líka miklu máli að það hafi trú á að fyrirtækið eigi
eftir að gera flotta hluti, og sé með góðan tilgang,
til framtíðar litið.
Fagnið velgengni: Sá árangur sem næst og fær
enga athygli er ekki líklegur til að verða endurtek-
inn. Gerið meira en minna úr afrekum starfsfólks.
Það er mikilvægt að búa til þannig aðstæður að
metnaðarfullt starfsfólk trúi því að það geti afrekað
meira í núverandi starfi en það gæti annars staðar,
þannig að það langi ekki til að vinna annars staðar.
Skapið stemmingu fyrir sigrum og þá verða þeir
fleiri.
MANNAUÐSMÁL
Herdís Pála Pálsdóttir
ráðgjafi og markþjálfi
Kúnstin að mæta vænting-
um starfsfólks árið 2016
”
Í gegnum ráðningar-
ferli, og við undir-
skrift formlegs ráðn-
ingarsamnings,
verður samhliða til
annar óskrifaður
samningur, hinn
svokallaði sál-
fræðilegi samningur.
GOLLI
FORRITIÐ
Ekki alls fyrir löngu tók viðskipta-
miðillinn Fortune saman lista yfir
gagnlegustu
snjallforritin fyr-
ir stjórnendur.
Var listinn
byggður á vand-
aðri mælingu
tæknirannsókna-
fyrirtækisins
ARC sem gaum-
gæfði ummæli og
stjörnugjafir
milljóna
Android- og iOS-
notenda.
Ofarlega á
lista lenti gamalt
en gott app sem
Viðskipta-
Mogginn hefur
ekki fjallað um:
tungumála-
forritið Duolingo
(www.duo-
lingo.com).
Það hlýtur að
teljast nokkuð vel af sér vikið þegar
snjalltækjaforrit er enn í mikilli
notkun eftir að hafa verið nærri fimm
ár í loftinu.
Styrkleiki Duolingo felst einkum í
því að leikjavæða upplifunina svo að
tungumálanámið
verður lifandi og
skemmtilegt
frekar en þurrt
og leiðinlegt.
Reynt er á tungu-
málaþekkinguna
frá ýmsum hlið-
um og þarf not-
andinn bæði að
tala, hlusta, þýða
og æfa lesskiln-
inginn.
Í dag eru 20
tungumál í boði,
allt frá ensku og
frönsku yfir í
víetnömsku og
tyrknesku. Fyrir
fagfólkið væri
kannski ekki gal-
ið að hafa Duo-
lingo í símanum
og skerpa á kunn-
áttunni í flugvél-
inni á leiðinni á fund í París eða ráð-
stefnu í Róm. ai@mbl.is
Tungumálanámið
verður leikur einn
Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 9 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is
Úrval útiljósa