Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 9VIÐTAL
mikið á markaðnum og leigum hafi fjölgað mik-
ið. „Árið 2008 voru líklega 57 bílaleigur starf-
andi. Núna eru þær yfir 150. Þessu hefur fylgt
stóraukin samkeppni. Það er samt þannig að Ís-
land er að verða uppselt í gistingu yfir háanna-
tímann þannig að frekari vöxtur mun þurfa að
fara fram utan þess tíma.“
Hann segir að stýra þurfi álaginu betur um
landið. „Með því að stýra betur ferðamönnum
um landið, byggja upp vinsælu ferðamannastað-
ina svo þeir geti betur annað fjöldanum. Bara
einföld slík stýring breytir öllu. Þetta er ekki
ósvipað því að fara á fótboltaleik erlendis. Það
hafa margir nýlega reynslu af því. Það virtist
ekki vera erfitt að stýra mannfjöldanum,
kannski 70 þúsund manns inn og út af keppn-
issvæðinu. Þetta eigum við að geta gert. Og sem
betur fer er sú vinna hafin.“
Mikill árlegur vöxtur í veltu
„Velta okkar árið 2008 var rúmlega 2 millj-
aðar. Á síðasta ári var veltan nærri 5,7 millj-
arðar. Þannig að vöxturinn hefur verið mikill.
Starfsmenn okkar voru í vetur 230 og við er-
um 280 í sumar. Ég reikna með að hér verði 250-
260 manns við störf á komandi vetri.“
Hann segir hagnað í hlutfalli við veltu hins
vegar hóflegan. „Við höfum aldrei skorað hátt
þegar skoðaður er hagnaður í hlutfalli af veltu.
Hagnaður hefur verið 5-7% af veltu í gegnum
tíðina. Árið 2014 var hagnaðurinn 260 milljónir
og í fyrra var hann ríflega 300 milljónir. Það
segir sig sjálft að í svona rekstri þarf að liggja
yfir hverri einustu krónu. Ef við vildum, gætum
við auðvitað aukið hagnaðinn með því að skera
niður útgjöldin en það væri þá á kostnað þjón-
ustunnar. Það kæmi fljótlega í bakið á okkur.
Þetta er harður markaður og miklar sveiflur.“
Viðskiptavinir krefjast gæða og öryggis
Viðskiptavinir bílaleiga eru kröfuharðir og
vilja nýlega bíla og ekki úr sér gengna. Það þarf
því stöðugt að endurnýja flotann.
„Það gengur ágætlega að afsetja flotann. Það
er hins vegar að þyngjast og það er ein ástæða
þess að við viljum ekki vaxa of hratt. Það er ljóst
að markaður fyrir notaða bíla hér á landi tekur
ekki endalaust við bílum úr leigustarfsemi. Ég
veit til þess að einhverjir eru farnir að huga að
útflutningi á notuðum bílaleigubílum. Haldi
markaðurinn áfram að vaxa eins og verið hefur
kviknar sú þörf í vaxandi mæli.“
Steingrímur segir að bílar þeirra séu í leigu
yfir tvö háannatímabil að jafnaði. „Okkar módel
er að við leigjum bíla út í tvær háannir. Við hjá
Bílaleigu Akureyrar tökum svo hluta flotans af
númerum og látum þá standa þar til eft-
irspurnin vex á ný með vorinu. Það er auðvitað
dýrt í vaxtaumhverfinu eins og það er, en þetta
borgar sig fyrir okkur.“
Steingrímur segir nýrri bíla og betri nú í boði
á íslenskum bílaleigum. „Sú þróun sem er mest
áberandi í rekstri bílaleiga hér á landi er að leig-
urnar bjóða nú nýrri, betri og öruggari bíla en
áður var. Sem betur fer hefur svonefndum
druslubílaleigum fækkað, sem voru mjög áber-
andi eftir hrunið. Leigurnar bjóða nú bíla sem
eru öruggari og með betri búnaði. Þær hugsa
ekki bara um að vera með hráa bíla með litlum
aukabúnaði, heldur hugsa meira um að bílarnir
séu öruggir. Ekki síður að þessa bíla þarf að
selja síðar og þá skiptir máli að þeir séu á pari
við það sem kaupendahópurinn, Íslendingar,
gerir kröfu um.“
Hann segir að hingað leggi leið sína fleiri
ferðamenn sem eru tilbúnir að eyða meira fé en
ferðamenn að meðaltali. „Það hefur orðið sú
þróun að hingað eru farnir að leggja leið sína
auðugir ferðamenn og við þurfum að eiga bíla
sem þeir vilja leigja. Þetta eru verðmætir gestir
sem skilja eftir meiri tekjur en ferðamannahóp-
urinn að meðaltali. Til landsins kemur nú rúmt
1% af þeim sem ferðast um í heiminum. Við eig-
um að einbeita okkur að þeim sem skilja meira
eftir sig. Þetta er kröfuharður hópur sem þarf
að upplifa gæði í takt við það sem þeir borga
fyrir. Þetta þurfum við að hafa í huga við upp-
byggingu ferðaþjónustunnar, öll aðstaða sé í
lagi, þjónusta sem og allir innviðir.“
Það heyrist oft sú gagnrýni að stóru að-
ilarnir, eins og til dæmis flugfélögin, séu að ein-
blína á að flytja sem flesta hingað. „Sú gagnrýni
er ekki á rökum reist. Módel íslensku flugfélag-
anna er að flytja farþega á milli heimsálfanna
Ameríku og Evrópu og fá þá til að staldra hér
við. Ferðir til Íslands eru ekki endilega meg-
ináhersla þeirra. Ég fullyrði að það er enginn
sem hugsar bara um magn. Menn vita að það
leiðir bara til þess að upplifun þeirra sem þannig
koma hingað verður ekki í takt við það sem þeir
væntu og þá hverfur eftirspurnin hratt.“
Framrúðutjón nema 100 milljónum
„Á margan hátt er bílaleigustarfsemi áþekk
frá einu landi til annars. Það eru hins vegar sér-
íslensk viðfangsefni sem við erum að fást við hér
og kollegar okkar erlendis skilja ekki alveg. Til
dæmis má nefna vegakerfið. Þó að úrbætur hafi
verið gerðar er margt óunnið. Hér tíðkast það
að ný olíuklæðning er þjöppuð niður af umferð-
inni og á meðan grjótmulningurinn binst olíunni
fylgir akstri á þessum köflum gríðarlegt grjót-
kast. Þetta veldur því að fyrir utan skemmdir á
lakki bílanna þá eru framrúðutjón hér óheyri-
lega algeng. Bara hjá okkur námu framrúðutjón
í fyrra tæplega 100 milljónum.“
Hann segir margt sem tengist þrifum og um-
hirðu bílanna gerólíkt.
„Þessar miklu árstíðasveiflur eru eitthvað
sem þeir þekkja ekki. Þeir eru vanir meira jafn-
vægi framboðs og eftirspurnar.“ Steingrímur
segir að fjármagnskostnaður hérlendis sé tölu-
vert umfram það sem samstarfsaðilar í öðrum
löndum þekkja. „Þrif bíla hér eru miklu dýrari
vegna allra malarveganna og veðurs. Þeir nota
til dæmis ekki vetrar- og sumardekk. Í Þýska-
landi og Hollandi eru ekki gúmmímottur í bíla-
leigubílum til dæmis. Hér verðum við að hafa
gúmmímottur í öllum bílum. Þjónustustigið er
líka almennt hærra hér en þekkist í bílaleig-
ustarfsemi annars staðar.“
”
Það gengur ágætlega að
afsetja notaða bíla úr
flotanum. Það er hins
vegar að þyngjast og
það er ein ástæða þess
að við viljum ekki vaxa
of hratt. Markaður fyrir
notaða bíla tekur ekki
endalaust við.
Morgunblaðið/Eggert
Steingrímur Birgisson hóf
15 ára að afgreiða bensín
með skóla hjá Höldi. Hann
er nú forstjóri fyrirtækisins.
bundinni bílaleigu til ferðamanna heldur
ns á svonefndri langtímaleigu, það þýðir
ánaða. Af um 4.500 bíla flota eru tæplega
ilinn á langtímaleigumarkaði fyrir bíla. Við
eðal annars til að dreifa áhættu í rekstr-
vaxandi þó að nokkuð hafi hægt á vext-
aðila. Við kunnum að reka bíla og þjón-
pti við umboðin. Hagur leigutakans er sá
erir út 20 bíla er ef til vill heilt stöðugildi í
murðir og farið með þá í skoðun og svo
til eins til þriggja ára en styttri tími þekk-
ttunni