Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 4
STÖÐUTÁKNIÐ
Þó að Yves gamli sé fallinn
frá þá lifir franska tísku-
húsið sem hann stofnaði
enn góðu lífi. Meðal
nýjustu sköpunarverk-
anna sem koma úr
saumastofunum er
þessi bráðsnotra axl-
artaska.
Eins og myndin
sýnir er kvenleikinn
og rómantíkin ráð-
andi, og YSL-merkið
fær að njóta sín vel á
rauðum hjartalaga
fletinum. Kögrið gef-
ur síðan töskunni líf
og hreyfanleika og
jafnvel að gæti hippa-
tóna í hönnuninni.
Hvort þessi lit-
sterka rúskinnstaska
fer vel með vinnudragt-
inni skal ósagt látið, en
þetta er svo sannarlega
aukahlutur sem myndi vekja
athygli eftir vinnu, hvort sem
stefnan er sett á verslanirnar, kaffi-
húsin eða kvöldstund í leikhúsi.
Töskuna má kaupa hjá Net-a-Porter á 990 evrur, jafnvirði um 130.000 króna.
ai@mbl.is
Fylgdu hjartanu
Á SKRIFBORÐIÐ
Límbandsstatífið er yfirleitt af-
gangsstærð í vinnurýminu; óspenn-
andi lítill plasthlutur sem er falinn
ofan í skúffu, engum til yndisauka.
Þýski hönnuðurinn Pascal Heiler
á heiðurinn að Zyp-Zyp límbands-
statífinu, sem er þó ekki statíf held-
ur mun frekar eins konar flipi. Í stað
þess að festa límbandið í statífi er
flipinn festur á rúlluna.
Hönnunin er eins mínímalísk og
hugsast getur, en virkar, og heldur
rúllunni snyrtilegri. Er stykkið gert
úr blöndu af kopar, nikkel og tini og
gefur blandan fallegan lit.
Hefur Heiler tekist að gera leiðin-
legan hlut spennandi, og um leið
snúa eldgamalli hönnun á hvolf.
Nánari upplýsingar má finna á
slóðinni zyp-zyp.de. Kostar stykkið
24 evrur auk sendingarkostnaðar.
ai@mbl.is
Naumhyggja á rúllunni
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016FRÉTTIR
NAV
Vertu í skýjunummeð okkur
í mánaðarlegri áskrift að bókhaldskerfinu
Microsoft Dynamics NAV
+
kynntu þér málið á www.navaskrift.is
Aðgangur að Office 365 fylgir með!*
Lágmarkaðu kostnaðinn og
Borgartún 26, 105 Reykjavík » Hafnarstræti 93-95, 600 Akureyri
sími: 545 3200 » wise@wise.is »www.wise.is
9.900Kr. pr. mán.án VSK
* gildir til 30. júní 2018 þegar keypt er fyrir 30. september 2016
Athafnamaðurinn Gísli Gíslason
hefur leikið stórt hlutverk í raf-
bílabyltingunni á Íslandi. Hann
rekur bílaumboðið Even og flytur
meðal annars inn bílana marg-
umtöluðu frá Tesla.
Hverjar eru stærstu áskor-
anirnar í rekstrinum þessi
misserin?
Að nýta þekkinguna og reynsl-
una sem ég hef aflað mér varð-
andi rafbílavæðingu hérlendis á
erlendum mörkuðum.
Hvaða hugsuður hefur haft
mest áhrif á hvernig þú starfar?
Uppáhaldið mitt er Einar
Benediktsson. Búinn að lesa öll
ljóðin hans og bækur. Á einnig
skrifpúltið hans sem hann notaði
á ferðalögum um heiminn og
eiginhandaráritun á veðbók-
arvottorði sem hann gaf út sem
sýslumaður árið 1904. Einar var
fyrsti íslenski frumkvöðullinn.
Hver myndi leika þig í kvik-
mynd um líf þitt og afrek?
Hilmir Snær – hann er hæfilega
kærulaus.
Hvernig heldurðu við þekkingu
þinni?
Ég ferðast og hitti frumkvöðla
um allan heim. Hef náð að hitta
nokkra áður en þeir urðu frægir,
sem er mikilvægt þar sem að-
gangur að frægu og mikilvægu
fólki er takmarkaður í heiminum í
dag. Einnig nota ég Google
Alerts, sem sendir mér upplýs-
ingar um fréttir af þeim málum
sem ég hef áhuga á.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ég borða hollan og góðan mat
og fæ mér rauðvínsglas (glös) á
kvöldin. Ég er duglegur að hreyfa
mig og reyki ekki. Þarf ekki mik-
inn svefn, 5-6 tímar duga, enda er
ég bæði A- og B-maður, þ.e.a.s.
fer seint að sofa og vakna
snemma. Lífið er svo skemmti-
legt.
Ef þú fengir að bæta við þig
nýrri gráðu, hvað myndirðu
læra?
Viðskiptafræði, ekki spurning.
Ég hef litla þolinmæði gagnvart
Excel-skjölum. Það gæti hins veg-
ar lagast ef ég tæki nokkra alvöru
kúrsa í viðskiptafræði.
Hvaða kosti og annmarka
sérðu við rekstrarumhverfið?
Ísland er frábært land, en það
er mikilvægt að átta sig á því að
Ísland er örmarkaður. Ísland er
gott æfingasvæði til að þróa hug-
myndir og kanna hvað virkar og
virkar ekki. Hér heima er hvatt til
nýsköpunar, en ef einhverjir inn-
lendir fjárfestar koma að verk-
efnum, þá má helst ekki umbuna
frumkvöðlunum. Þessu er þver-
öfugt farið t.d. í Bandaríkjunum.
Tryggt er að frumkvöðullinn
hagnist vel á hugmynd sinni, enda
eru þá meiri líkur á að hann þrói
aðra góða hugmynd og leiti aftur
til sömu fjárfesta.
SVIPMYND Gísli Gíslason, forstjóri Even
Með litla þolinmæði
gagnvart Excel-skjölum
Morgunblaðið/Eggert
Gísli heldur mjög mikið upp á Einar Benediktsson. „Einar var fyrsti íslenski frumkvöðullinn,“ segir hann.
NÁM: Verslunarskóli Íslands, 1980; Háskóli Íslands, lögfræði
1986.
STÖRF: Sumarvinna með námi á ýmsum stöðum. Ekki verið í
launaðri vinnu hjá öðrum en sjálfum mér frá útskrift úr lögfræði.
Starfaði sem lögfræðingur á Íslandi og í Danmörku í 20 ár. Hef
unnið að rafbílavæðingu á Íslandi og erlendis frá árinu 2008 á
vegum Northern Lights Energy.
ÁHUGAMÁL: Ferðalög og lestur.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Jóhönnu Björnsdóttur í 36 ár.
Eigum fimm börn og fimm barnabörn.
HIN HLIÐIN