Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 13SJÓNARHÓLL BÓKIN Þegar orkumál eiga í hlut einblínir umræðan oft á það sem er við upphaf eða endi rafmagnslínunnar: verður orkan til með um- hverfisvænum hætti? Er nóg til af henni? Knýr raf- magnið mengandi verksmiðju eða há- tæknibíla? Mannfræðing- urinn Gretchen Bakke segir að við ættum – í það minnsta hvað Bandaríkin snertir – ekki síður að beina athygli okkar að sjálfu dreifikerf- inu. Bakke er höf- undur bókarinnar The Grid: The Fraying Wires Between Americans and Our Energy Future. Í bókinni bendir Bakke á hvernig gamalt og úr sér gengið rafmagns- dreifikerfi Bandaríkjanna stendur framförum fyrir þrifum. Þarf helst að hugsa kerfið alveg upp á nýtt ef Bandaríkin eiga að geta stigið mik- ilvæg skref inn í nýja framtíð í orku- málum. En að laga dreifikerfið er ekki létt verk og kallar á að aðilar með mjög ólíkar hugmyndir og ásetning leggist á eitt. Þarf ekki bara nýja tækni heldur verður að kljást við frumskóg laga og reglugerða og taka bæði peningahlið- ina og umhverfis- áhrifin með í reikn- inginn. Raflínurnar gætu litið út fyrir að vera minnst spennandi hlutur í heimi: litlaus málm-mannvirki sem teygja sig yfir landslagið. Raunin er að rafdreifi- kerfið ber samfélagið uppi og ef kerfinu er ekki rétt sinnt gæti það kippt fótunum undan samfélaginu. Bandaríska kerfið er komið að þol- mörkum, og alls ekki sjálfsagður hlutur að alltaf komi rafmagn úr næstu innstungu. ai@mbl.is Með augun á raf- magnsdreifikerfinu Undanfarið hafa svonefndar rafsígarettur veriðnokkuð á milli tannanna á fólki hérlendis ogmargir hafa velt því fyrir sér hvort notkun þeirra, meðal annars á veitinga- og kaffihúsum, sé leyfi- leg í ljósi tóbaksreykingabanns sem í gildi er á slíkum stöðum samkvæmt lögum nr. 6/2002 um tóbaksvarnir. Samkvæmt lögum um tóbaksvarnir eru tóbaksreyk- ingar óheimilar á ýmsum svæðum, t.d. í þjónusturými stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka, svo sem á veit- inga- og skemmtistöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram, þ.m.t. íþrótta- og tómstunda- starf. Sama gildir um tilsvarandi svæði utan húss séu þau ekki nægilega opin til að tryggja viðunandi loft- streymi. Með tóbaki er í lögun- um átt við tóbaksjurtir (e. nico- tiana) og allan varning unninn að öllu eða einhverju leyti úr þeim til neyslu, svo sem sígar- ettur, vindla, reyktóbak, nef- tóbak og munntóbak. Þrátt fyrir að nikótín sé aðeins eitt fjöl- margra efna sem finnast meðal annars í tóbaksjurt má færa rök fyrir því að svonefndur nikótín- vökvi geti fallið undir framan- greint ákvæði laganna, sé hann í það minnsta unninn úr slíkri jurt. Með reykfærum er í lögunum átt við áhöld og búnað tengdan tóbaksreykingum, svo sem sígarettu- pappír, reykjarpípur og tæki til að vefja sígarettur, svo og annan slíkan varning. Í áður gildandi tóbaksvarnarlögum nr. 74/1984 tóku lögin einnig til varnings sem ætlaður var til neyslu með sama hætti og tóbak, þótt hann innihéldi ekki tóbak, sbr. þágildandi 2. mgr. 2. gr. laganna. Í athugasemd við ákvæði þetta í frumvarpi til laga um tóbaksvarnir, sem síðar var samþykkt sem lög nr. 74/1984, voru svokallaðar „gervisígarettur“ teknar sem dæmi um slíkan varning, en með þeim var átt við sígarettur sem ekki innihéldu nikótín en sem kynnu að hafa önnur skaðleg efni að geyma, bæði fyrir neytendur og aðra er ekki kæmust hjá því að anda reyknum að sér. Árið 2001 var ákvæðið fellt brott með skírskotun til þess að eftirlitsstofnun EFTA hafði bent á að slíkt ákvæði kynni að brjóta gegn ákvæði EES samningsins um frjálst vöruflæði innan Evrópska efnahagssvæðisins. Er því ljóst að lögin taka ekki til varnings sem inniheldur ekki tóbak í framangreindum skilningi. Af fyrrgreindu virðist mega ráða að svonefndar raf- sígarettur er innihalda nikótínvökva unninn úr tóbaks- jurtum geti fallið undir ákvæði laga um tóbaksvarnir og notkun þeirra sé því ekki heimil á svæðum þar sem reyk- ingabann gildir. Má færa rök fyrir því að slíkt sé einnig í samræmi við markmið laganna, sem er meðal annars að virða skuli rétt hvers manns til að þurfa ekki að anda að sér lofti sem mengað er af tóbaksreyk af völdum ann- arra, en rannsóknir hafa bent til þess að nikótín og önnur efni í svo- nefndri „rafsígarettugufu“ mælist í blóði þeirra sem anda að sér guf- unni með óbeinum hætti. Á hinn bóginn má ætla að rafsígarettur sem hafa hvorki að geyma nikótín- vökva né önnur efni tóbaksjurtar falli ekki undir lög um tóbaksvarnir og því utan bannákvæðis laganna. Hins vegar verður ekki framhjá því litið að ákveðinnar óvissu gætir þegar kemur að því hvernig aðgreina megi rafsígarettur sem innihalda nikótínvökva frá rafsígarettum sem inni- halda hvorki nikótínvökva né önnur efni tóbaksjurtar, en slíkt getur reynst nokkuð erfitt. Þannig má yfirleitt ekki sjá á rafsígarettunni sjálfri neinar merkingar þar um, heldur iðulega einungis á glasi fyllingarvökva hennar, þótt fyrir liggi tilskipun Evrópusambandsins nr. 2014/40/ EU sem tekur meðal annars til merkinga rafsígaretta, sem hefur þó ekki enn verið innleidd í íslenskan rétt. Telji löggjafinn þörf á því að banna notkun hvers kon- ar rafsígaretta með sambærilegum hætti og hefðbund- inna sígaretta verður að ætla að til þurfi lagabreytingu, bæði í ljósi þess að hylki rafsígaretta innihalda ekki ávallt níkótín og vegna þess að nikótín í rafsígarettu- hylkjum getur, a.m.k. fræðilega, verið unnið úr öðrum jurtum en tóbaksjurtum og því, eftir atvikum, fallið utan gildissviðs laga um tóbaksvarnir. Lög um tóbaksvarnir og notkun rafsígaretta LÖGFRÆÐI Lára Herborg Ólafsdóttir héraðsdómslögmaður á Juris lögmannsstofu. ” Telji löggjafinn þörf á því að banna notkun hvers konar rafsígaretta með sambærilegum hætti og hefðbundinna sígaretta verður að ætla að til þurfi lagabreytingu Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.flugrutan.is • www.re.is BSÍ - Umferðarmiðstöðin Reykjavík Keflavíkurflugvöllur Kauptu miða núna á www.flugrutan.is *Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 4.000 kr. 2.200 kr.* FYRIR AÐEINS Alltaf laus sæti Alltaf ferðir Hagkvæmur kostur Frí þráðlaus internet- tenging í öllum bílum Ferðatími u.þ.b. 45 mínútur Umhverfisvænt VIÐ SKUTLUM ÞÉR! Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur & brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.