Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.08.2016, Blaðsíða 1
RAFBÍLAVÆÐING FLUTT ÚTLAUSN FYRIR ÞJÁLFARA Lítið og smekklegt límbandsstatíf sem prýðir skrifborðið. 4 Unnið í samvinnu við Strivo hefur þróað hugbúnaðarlausn fyrir sjúkraþjálfara og einkaþjálfara til að halda utan um fjarþjálfun. 15 VIÐSKIPTA 4 Gísli Gíslason hjá Even hyggst nýta reynslu sem hann hefur aflað sér varðandi rafbílavæðingu hérlendis á erlendum mörkuðum. FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Viðræður um Arion í frosti Viðræður sem íslenskir lífeyris- sjóðir hafa átt við stjórnendur Kaupþings um möguleg kaup sjóð- anna á umtalsverðum hlut í Arion banka eru í algjöru frosti og hafa engir fundir verið boðaðir um fram- haldið. Annað hljóð virðist hafa komið í strokkinn í viðræðum milli aðila í kjölfar þess að nauðasamningur slitabús Kaupþings var samþykktur, slitastjórn félagsins hvarf frá störf- um og nýir forystumenn voru fengn- ir að borðinu. Frá því var greint í Morgunblaðinu þann 14. nóvember í fyrra að undir forystu fjögurra líf- eyrissjóða, Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins, Lífeyrissjóðs versl- unarmanna, Gildis og Frjálsa, myndi hópur lífeyrissjóða gera til- boð í umtalsverðan hlut í bankanum og að ef af kaupunum yrði myndi al- menningi bjóðast að kaupa hlut í bankanum í opnu útboðsferli og verðið í útboðinu yrði hið sama og sjóðirnir myndu kaupa á. Formlegar viðræður milli aðila áttu sér stað í kjölfarið og fengu lífeyrissjóðirnir Þórarin V. Þórarinsson hrl. og ráð- gjafarfyrirtækið Icora Partners til að hafa umsjón með þeim fyrir sína hönd. Ekki hafa fengist upplýsingar frá Kaupþingi um hvort formlegar við- ræður við aðra aðila en lífeyrissjóð- ina standi yfir. Það vakti þó nokkra athygli, í ljósi þeirra viðræðna sem áttu sér stað á útmánuðum, þegar Arion banki sendi tilkynningu í gegnum Kauphöll þann 16. júní síð- astliðinn þess efnis að formlegt sölu- ferli á bankanum væri hafið. Í tengslum við þá tilkynningu var upplýst að bankinn hefði ráðið Citi- bank til ráðgjafar við söluferlið. Undir mikilli tímapressu Þegar Kaupþing samdi í lok síð- asta árs um stöðugleikaframlög í ríkissjóð í tengslum við framlagn- ingu nauðasamnings gekkst félagið undir þá kvöð að selja allan 87% hlut sinn í Arion banka innan 36 mánaða. Samkomulagið byggði á útgáfu skuldabréfs sem Kaupþing gaf út upp á 84 milljarða króna. Þá féllst félagið á það skilyrði að bréfið yrði gert upp í tvennu lagi, á öðru og þriðja ári samkomulagsins, en einn- ig að skuldabréfið yrði aðeins greitt upp fyrir andvirði af sölunni á hlut þess í bankanum. Skilningur stjórn- valda mun vera sá að takist Kaup- þingi ekki að losa nægilegt fé úr hlut sínum í bankanum fyrir árslok 2018 hafi greiðslufall orðið hjá félaginu og að ríkinu sé heimilt að leysa til sín allan hlut þess í Arion banka. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Engar viðræður eiga sér stað milli lífeyrissjóða landsins og Kaupþings um mögulega fjárfestingu sjóðanna í Arion banka. Morgunblaðið/Júlíus Kaupþing á 87% hlut í Arion banka en ríkissjóður heldur á 13% hlut. Úrvalsvísitalan EUR/ISK 2.000 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 24. 02. ‘16 24. 02. ‘16 24. 08. ‘16 24. 08. ‘16 142 140 138 136 134 132 131,53 142,2 Á margan hátt er bílaleigustarfsemi áþekk frá einu landi til annars. Stein- grímur Birgisson, forstjóri Hölds sem rekur Bílaleigu Akureyrar, elstu og stærstu bílaleiguna hérlendis, seg- ir nokkur séríslensk viðfangsefni bílaleiga sem erlendir kollegar þeirra skilja ekki til fulls. Hér sé til dæmis ástand vega al- mennt verra en víða í Evrópu. „Hér tíðkast að ný olíuklæðning á vegum landsins er þjöppuð niður af umferðinni og á meðal grjótmulning- urinn binst olíunni fylgir akstri á þessum köflum gríðarlegt grjótkast.“ Auk lakkskemmda segir hann að framrúðutjón af þessum völdum séu mjög algeng. „Bara hjá okkur í Bíla- leigu Akureyrar námu framrúðutjón í fyrra tæplega 100 milljónum.“ Hann segir einnig að þrif bíla- leigubíla hér séu mun dýrari vegna allra malarveganna og ís- lenskrar veðráttu. Framrúðutjón nær 100 milljónir Morgunblaðið/Eggert Steingrímur Birgisson er forstjóri Hölds, eiganda Bílaleigu Akureyrar. Mörg af viðfangsefnum ís- lenskra bílaleiga eru sér- íslensk. Umfang fram- rúðutjóna er eitt þeirra. 8 Forystumenn í frönsku við- skiptalífi bera af þegar kemur að klæðaburði, sem iðulega einkennist af fág- un og einfaldleika. Fagurkerar í Frakklandi 10 Stærstu bankar heimsins veðja nú í auknum mæli á inn- leiðingu rafmynta til þess að draga úr við- skiptakostnaði. Bankar leita á náðir rafmynta 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.