Morgunblaðið - 01.09.2016, Side 4

Morgunblaðið - 01.09.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Hverfisgötu 105 www.storarstelpur.is Munið bílastæði á bak við hús Við erum á facebook NÝ SENDING Guðmundur Magnússon Kristján H. Johannessen Um 500 færri umsóknir um náms- lán höfðu borist Lánasjóði íslenskra námsmanna í gær en á sama tíma í fyrra. Að sögn Hrafnhildar Ástu Þorvalds- dóttur, fram- kvæmdastjóra LÍN, er umsókn- arfrestur um námslán fram í nóvember og gæti því fækkun- in gengið til baka. Hún telur þó ekki ólíklegt að mun færri umsóknir berist þegar árið verður gert um. Hún kvaðst engar sérstakar skýringar hafa á þessari fækkun. María Árnadóttir, starfsmaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, sagði að þar á bæ hefðu menn frétt af þessari fækkun og reynt að leita skýringa. Mjög óformleg athugun benti til þess að margir námsmenn hefðu ákveðið að taka ekki fram- færslulán á haustönn vegna auk- inna auraráða. „Ýmislegt bendir til þess að margir stúdentar hafi nú meiri pening handa á milli en áður,“ sagði hún. „Inn í þetta getur líka spilað nei- kvæð umræða um námslán,“ sagði María. „Hún snýst bæði um núver- andi lánakjör og frumvarpið til breytinga á lögum um LÍN sem liggur fyrir Alþingi.“ Að sögn Hrafnhildar gæti um- sóknum fækkað um allt að eitt þús- und ef núverandi þróun heldur áfram fram í nóvember. Það væri meira en 10% fækkun umsókna. Færri sækja um námslán hjá LÍN  Aukin auraráð stúdenta gætu skýrt samdráttinn  Um 500 færri en í fyrra  Neikvæð umræða gæti líka spilað inn í Hafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir Morgunblaðið/Ernir Háskólanemar Færri hafa sótt um námslán nú en á sama tíma í fyrra. Forystumenn BSRB hafa undan- farna daga átt í viðræðum við emb- ættismenn í fjármálaráðuneytinu og fulltrúa sveitarfélaganna um líf- eyrismál, en ekki er á þessu stigi hægt að greina frá efnisatriðum viðræðnanna að sögn Brjáns Jón- assonar, fjölmiðlafulltrúa sam- bandsins. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann vissi ekki hver staða viðræðnanna væri. Verkalýðshreyf- ingin og atvinnurekendur líta svo á að jöfnun lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna og launþega á almenn- um markaði sé ein af forsendum SALEK-samkomulagsins og fyrir mótun nýs samningalíkans á vinnu- markaði. Breytingar í lífeyrismál- um opinberra starfsmanna séu hluti af rammasamkomulaginu um SA- LEK frá því í október í fyrra og launaskriðstrygging opinberra starfsmanna sé skilyrt niðurstöðu um lífeyrismál. Brjánn segir aftur á móti að BSRB líti svo á að viðræðurnar um lífeyrismálin við ríkið tengist ekki SALEK. „Í huga BSRB hefur þetta verið aðskilið mál frá SALEK þótt aðrir aðilar samkomulagsins horfi á þetta öðrum augum.“ Að sögn Brjáns eru lífeyrismálin hlutur sem ríkið hefur viljað klára. „Þeir skulda okkar háar fjárhæðir í líf- eyrissjóði. En frá okkar bæjardyr- um séð er þetta klárlega alveg að- skilið frá SALEK-viðræðunum,“ sagði hann. Sigurður Bessason, formaður Efl- ingar, segir í viðtali við nýútkomið fréttablað samtakanna að unnið sé að gerð nýs samnings um lífeyris- mál fyrir félagsmenn verkalýðs- hreyfingarinnar. Eldri samningur um þau mál er frá 1995. „Samkomu- lag aðila um viðbótarframlag at- vinnurekenda frá 1. júlí 2016 sem og breytingar á umhverfi lífeyris- sjóða kallar á endurskoðun þessa samnings,“ er haft eftir honum. „Tengist ekki SALEK“ Morgunblaðið/Ernir Lífeyrir SALEK-samkomulagið er m.a. byggt á jöfnun lífeyrisréttinda.  BSRB í viðræðum um lífeyrismál við ríki og sveitarfélög Eggvopn komu við sögu í báðum málum Tvö morð voru framin á höfuð- borgarsvæðinu 2015. Hið fyrra átti sér stað í vesturbæ Hafnar- fjarðar um miðjan febrúar. Fannst þar karlmaður um fertugt látinn í kjallaraíbúð og voru stungusár á líkinu. Gerandinn, kona á sextugs- aldri, var handtekinn á staðnum og síðar dæmdur í 16 ára fangelsi. Hitt morðið var framið seinni hlutann í október, en þá var til- kynnt um alvarlega líkamsárás í húsi við Miklubraut. Hinn látni, karlmaður um sextugt, var myrtur með eggvopni. Gerandinn, karl- maður á fertugsaldri, var handtek- inn á vettvangi og síðar metinn ósakhæfur. Margvísleg verkefni komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu árið 2015, en í nýútkom- inni ársskýrslu embættisins kem- ur m.a. fram að skráð hegningarlagabrot í umdæminu hafi verið rúmlega 9.000, um 25 slík brot að jafnaði á degi hverj- um. Ofbeldisbrotum fjölgaði á höfuð- borgarsvæðinu árið 2015 og bár- ust embættinu á annað þúsund til- kynningar um líkamsárásir. Þannig voru meiri háttar líkams- árásir um 150 talsins, sem er ámóta og árið á undan. Mikil aukning varð hins vegar í fjölda minni háttar líkamsárása og fóru þær úr rétt innan við 700 árið 2014 í um 1.000. Þessi breyting á milli ára er sögð skýrast í breyttu verklagi lögreglu í heimilisofbeldismálum og skrán- ingu þeirra brota hjá embættinu. Þá er hátt hlutfall ofbeldisbrota framið í miðborginni, aðallega að kvöld- og næturlagi um helgar. „Við þessu vill lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu sporna,“ segir í ársskýrslu embættisins. Ofbeldis- brotum fjölgaði Morgunblaðið/Júlíus Reykjavík Ársskýrsla embættisins fyrir árið 2015 er komin út.  Rúmlega 9.000 hegningarlagabrot „Skólagjöldin hafa farið hækkandi ár frá ári og ef heildarupphæð námslána verður 15 milljónir króna mun það ekki duga okkur fyrir bæði skólagjöldum og framfærslu,“ segir Leifur Þráinsson, formaður Félags íslenskra læknanema í Ungverja- landi (FÍLU), og vísar til frumvarps til laga um námslán og námsstyrki. FÍLU hefur sent stjórnvöldum umsögn um frumvarpið þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum. Er þar m.a. bent á að læknisfræði sé 6 ára nám, eða 360 ECTS- einingar. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lánshæfum einingum verði fækkað úr 480 í 420. Þetta segir FÍLU koma í veg fyrir svigrúm í námi komi eitthvað upp á í miðjum námsfeli. „Þess utan útilokar frum- varpið lánshæfi allra þeirra sem þegar hafa lokið B.Sc.-námi á lán- um áður en þeir fara í læknisfræði, þar sem þeir nemendur fara langt fram yfir lánshæfan einingafjölda, eða upp í 540 ECTS,“ segir í um- sögn félagsins. Þá er einnig bent á að fyrirhugað sé að greiðslur námslána hefjist einu ári eftir að námi lýkur í stað tveggja. „Eitt ár hrekkur bersýni- lega ekki til að létta þá skuldabyrði sem safnast upp í gegnum sex ára nám.“ Kemur sér illa fyrir marga LÆKNANEMAR Í UNGVERJALANDI Fjölbreyttu fuglalífi við Kasthúsatjörn á Álftanesi verður skapað aukið svigrúm með endurheimt votlend- is í umhverfi tjarnarinnar. Þegar ljósmyndari blaðsins sótti svæðið heim í gær voru ungir krakkar, sem allir eru nemendur við Álftanesskóla, búnir að taka sér skóflu í hönd og voru þegar byrjaðir á framkvæmdinni. Kasthúsatjörn er friðlýstur fólkvangur, en markmið- ið með endurheimt votlendis þar sem og annars staðar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá fram- ræstu votlendi og efla um leið lífríki þess. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir af- ar ánægjulegt að verkið sé nú komið af stað. „Garða- bær leggur þunga áherslu á umhverfismál og hefur m.a. staðið að friðun á stórum hluta af landsvæði sínu. Endurheimt votlendis er stórt umhverfismál sem snert- ir okkur öll og enn frekar þá sem á eftir koma,“ segir hann í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Í framkvæmdinni verður fyllt upp í alls 675 metra af skurðum og vatnsstokkur settur upp við Jörfaveg. Landgræðsla ríkisins hefur umsjón með verkinu og styrkir það auk þess sem fyrirtækið Toyota á Íslandi leggur framkvæmdinni lið með fjárveitingum. Morgunblaðið/Eggert Endurheimta votlendi í Garðabæ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.