Morgunblaðið - 01.09.2016, Side 8

Morgunblaðið - 01.09.2016, Side 8
Sigríður Á. Andersen alþingismaður 2. sæti www.sigridur.is Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 Virðing Alþingis er lítil, en vandiþess stór. Margt hefur ýtt und- ir þá útkomu. Eitt af því er tengsla- leysi flestra þingmanna við lífsbar- áttuna í landinu og söguna á bak við hana. Hún verður ekki dregin upp úr hatti né kaffi latti í 101.    Stundum virðistalvara umræðu um atvinnulífið vera í öfugu hlutfalli við mikilvægi þess.    Páll Jóhann Páls-son alþingismaður hnaut um þetta og sagði því eftirfarandi í um- ræðu um uppboðsleið í sjávar- útvegi, sem ýmsir hafa stokkið á harla fegnir:    Tölum skýrt en ekki í blekk-ingum.    Það er pólitísk ákvörðun ef viðviljum fækka einyrkjum í út- gerð og hafa fá og stór sjávar- útvegsfyrirtæki sem geta vafalaust greitt talsvert hærri veiðigjöld...    Eftir því sem við sáum fleirióvissufræjum fyrir kosningar fjölgar þeim einyrkjum sem fyllast ótta um starfsöryggi sitt og að- komu og selja. Hverjir kaupa?    Það eru þeir stóru. Mikið hefurverið rætt undanfarið um svo- kallaða uppboðsleið, líkt og Fær- eyingar gerðu tilraun með.    Hver var útkoman þar?   Örfá fyrirtæki keyptu sem vorumeira og minna í eigu útlend- inga.    Er það það sem við viljum?“ Páll J. Pálsson Hvað vilja menn? STAKSTEINAR Leikskólanum Barnaborg á Hofsósi hefur verið lokað vegna myglu- svepps sem fannst í þaki húss skól- ans. Verið er að kanna umfang vand- ans og leita að bráðabirgðahúsnæði fyrir leikskólann á meðan gert verð- ur við skemmdirnar. Um 10 börn eru í leikskólanum Barnaborg. Foreldrum þeirra hefur verið boðið leikskólapláss fyrir börn- in á Hólum, á meðan verið er að vinna að lausnum. „Við leysum þetta væntanlega með því að finna húsnæði til bráða- birgða á meðan við erum að skoða málið. Þegar niðurstöður rannsókna liggja fyrir metum við hversu um- fangsmiklar úrbætur þarf að fara í til að koma í veg fyrir að myglu- sveppur myndist,“ segir Gunnar M. Sandholt, staðgengill sviðsstjóra fjölskyldusviðs Skagafjarðar. Þegar starfsemi hófst í leikskól- anum eftir sumarleyfi urðu starfs- menn varir við óvenjulega rakalykt. Tæknimaður sem kallaður var til í síðustu viku fann raka og myglu undir þaki skólans. Sýni hafa verið send til rannsóknar. Fræðslunefnd og byggðaráð fund- uðu um málið síðastliðinn sunnudag og ákváðu að loka byggingunni. Gunnar segir það taka einhvern tíma að koma leikskólanum undir annað þak. Telur hann að það verði ekki í þessari viku og varla þeirri næstu. Leikskóla lokað vegna myglu  Börnin á Hofsósi í leikskóla á Hólum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hofsós Um 10 börn á leikskólanum. Veður víða um heim 31.8., kl. 18.00 Reykjavík 11 léttskýjað Bolungarvík 8 skýjað Akureyri 7 rigning Nuuk 7 heiðskírt Þórshöfn 12 skúrir Ósló 19 skýjað Kaupmannahöfn 21 heiðskírt Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 18 skýjað Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 25 heiðskírt Dublin 16 skýjað Glasgow 16 skúrir London 22 skýjað París 27 heiðskírt Amsterdam 24 léttskýjað Hamborg 25 heiðskírt Berlín 26 heiðskírt Vín 24 heiðskírt Moskva 14 rigning Algarve 23 heiðskírt Madríd 32 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 29 léttskýjað Róm 24 rigning Aþena 30 léttskýjað Winnipeg 16 skýjað Montreal 21 rigning New York 27 skýjað Chicago 23 skýjað Orlando 26 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 1. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:13 20:44 ÍSAFJÖRÐUR 6:10 20:56 SIGLUFJÖRÐUR 5:53 20:39 DJÚPIVOGUR 5:40 20:15

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.