Morgunblaðið - 01.09.2016, Page 9

Morgunblaðið - 01.09.2016, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, sækist eftir þriðja sæti í prófkjöri flokksins í Reykja- vík fyrir alþing- iskosningarnar, sem fer fram næstkomandi laug- ardag. Brynjar greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Brynjar segist leggja áherslu á áframhaldandi aðgerðir til að treysta efnahagslegan stöðugleika með aðhaldi í ríkisfjármálum. „For- senda velferðar allra er öflugt at- vinnulíf og stöðugleiki. Og for- senda öflugs atvinnulífs er trú á einstaklinginn og að sköpuð sé eðli- leg umgjörð fyrir hann til athafna og sköpunar,“ segir hann m.a. um stefnuáherslur sínar. Sækist eftir 3. sæti Stjórnmálaflokkarnir velja þessa dagana frambjóðendur á lista fyrir komandi þingkosningar. Morgun- blaðið birtir fréttir af þeim sem gefa kost á sér. Prófkjör árið 2016 Inga Björk Bjarnadóttir há- skólanemi gefur kost á sér í 1.-2. sæti í flokksvali Samfylking- arinnar í Norð- vesturkjördæmi sem fer fram dagana 8. –10. sept- ember n.k. „Ég tel að margir hópar samfélagsins geti speglað sig í mér. Mig langar til þess að vera málsvari unga fjölskyldufólksins sem getur ekki keypt sér íbúð, konunnar sem lenti á örorku og nær ekki lengur endum saman, námsmannsins sem er nýbúinn með háskólanám og get- ur ekki flutt aftur í heimasveitina, allra þeirra sem hafa rekið sig á ósýnilega veggi ríkisstofnana þeg- ar við þurfum mest á þeirra stuðn- ingi að halda og þeirra ótal kvenna sem hafa lent í kynbundnu ofbeldi,“ segir hún m.a. í færslu á síðu um framboð hennar á Facebook. Sækir í 1.-2. sæti Steinunn Ýr Ein- arsdóttir, kennari og ritari kvenna- hreyfingar Sam- fylkingarinnar, býður sig fram í þriðja til fjórða sæti í opnu próf- kjöri Samfylkingarinnar í Reykja- vík, sem fer fram 8. til 10. sept- ember næstkomandi. Í tilkynningu kemur fram að Steinunn er fimm stúlkna móðir, hún hóf ung afskipti af pólitík og starfaði með Ungum jafnaðar- mönnum um tíma en fann sig betur í grasrótinni og síðustu ár hefur hún einbeitt sér að jafnréttisbar- áttu. „Ég legg áherslu á mannrétt- indi, femínisma, lýðræði og um- hverfisvernd,“ er meðal annars haft eftir henni í tilkynningunni. Framboð í 3.-4. sæti Birgir Ármanns- son alþingismaður sækist eftir 2. til 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík á laugardaginn. Birgir segir m.a. í tilkynningu að Sjálfstæðisflokk- urinn eigi mörg sóknarfæri í kom- andi alþingiskosningum. Góður ár- angur náist hins vegar ekki án fyrirhafnar. „Allir þurfa þar að leggja sitt af mörkum, vinna af krafti og vanda sig. Góð þátttaka í prófkjörinu á laugardaginn og öfl- ugir framboðslistar í Reykjavík- urkjördæmunum skipta gríðarlega miklu máli í því sambandi.“ Framboð í 2.-4. sæti Ný stjórn Vinnslustöðvarinnar hf.var sjálfkjörin á hluthafafundi í gær. Guðmundur Kristjánsson, útgerð- armaður í Brimi hf., og Hjálmar Kristjánsson tilkynntu um að þeir drægju framboð sín í stjórn og vara- stjórn til baka í ljósi þess að þeir teldu fundinn ólöglegan. Ósættis gætti fyrr í sumar að loknum aðalfundi 6. júlí sl., þegar kjósa átti í stjórn og varastjórn. Færri atkvæði bárust í kjörkassann en útbýtt var og tekin var ákvörðun um að kjósa aftur. Leiddi það til þess að kjörin var stjórn sem Guð- mundur og Hjálmar voru ekki hluti af. Sú stjórn var síðan endurkjörin í dag, því einn stjórnarmanna hafði ekki skrifað undir skjöl sem senda þyrfti Hlutafélagaskrá. Mánaðar- frestur til senda skjölin rann út og því var endurkjör nauðsynlegt. Á fundinum í gær lét Lögmaður Brims hf., sem á tæplega 33% í Vinnslustöðinni, bóka að Brim hf. teldi að fyrra stjórnarkjörið á aðal- fundi 6. júlí hefði verið löglegt, ólög- lega hefði verið boðað til hluthafa- fundarins í gær og að fyrri stjórn hefði ekki vikið frá störfum áður en ný tæki við. Í tilkynningu frá Guð- mundi og Hjálmari segir að um sé að ræða „ólöglega og grófa valdníðslu af hálfu meirihluta hluthafa og gróft brot á reglum hlutafélaga.“ Fundarstjóri ber af sér sakir Málið er nú til umfjöllunar hjá Hlutafélagaskrá, en ekki liggur fyr- ir hvenær úrskurður lítur dagsins ljós. Í niðurlagi bókunar lögmanns- ins í gær, segir að Brim áskilji sér allan rétt til að bera lögmæti og ákvarðanir fundarins undir dóm- stóla. Arnar Sigurmundsson, fund- arstjóri á aðalfundinum 6. júlí sl., segir að fundarskapa og ákvæða laga hafi verið fylgt í hvívetna. Í heimildum fundarstjóra hafi falist að hann gæti látið kjósa aftur, eftir að færri atkvæði bárust í kjörkassann en útbýtt var á fundinum. jbe@mbl.is Telja stjórnarkjörið ólögmætt  Ný stjórn Vinnslustöðvarinnar  Deilur um kjörið gætu farið fyrir dómstóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.