Morgunblaðið - 01.09.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016
Framkvæmdum við nýja bolfisk-
vinnslu HB Granda á Vopnafirði
miðar vel og ef allt gengur að óskum
gæti bolfiskvinnsla á vegum félags-
ins hafist í nóvembermánuði nk., að
því er segir á vef HB Granda.
Vinnslan er til húsa þar sem Tangi
hf. starfrækti áður frystihús og er
vinnslusalurinn um 500 fermetrar að
flatarmáli. Þar munu 35 til 40 manns
vinna við bolfiskvinnsluna.
Haft er eftir Bárði Jónassyni,
tæknistjóra HB Granda á Vopna-
firði, að von sé á frystivélum nú um
mánaðamótin sem og loftræsti-
samstæðunni fyrir loftræstikerfið.
Annar búnaður sé á áætlun.
,,Við verðum hér með hausara og
tvær flökunarvélar frá Curio ehf. í
Hafnarfirði. Karabúnaður, roðkælir
og roðrifubúnaður kemur frá Skag-
anum hf. á Akranesi og Flexicut
vatnsskurðarvél og snyrti- og pökk-
unarlína er frá Marel,“ segir Bárður
á vefsíðunni, en áður en hægt verður
að koma öllum fiskvinnslubúnaði
fyrir þarf að leggja lokahönd á frá-
gang vinnslusalarins. Mælifell, tré-
smiðja á Vopnafirði, hefur haft veg
og vanda af framkvæmdinni.
Ljósmynd/HB Grandi
Vopnafjörður Vinnslusalur bolfiskvinnslunnar er í undirbúningi.
Vinnan langt komin
HB Grandi stefnir að því að opna
bolfiskvinnslu á Vopnafirði í nóvember
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Til að koma til móts við það og gefa
svigrúm fyrir vinnu við að kanna
aðra kosti hefur Reykjavíkurborg
fallist á að gera þá breytingu á fyrir-
liggjandi tillögu að aðalskipulagi
Reykjavíkur að norður-suður-braut-
inni verði áfram tryggður sess í að-
alskipulagi Reykjavíkur til ársins
2022, í stað 2016 eins og fyrirliggj-
andi tillaga gerir ráð fyrir.“
Þetta sagði orðrétt í samkomulagi
sem ríkisstjórnin og Reykjavíkur-
borg gerðu og undirritað var 25.
október 2013. Samkomulagið undir-
rituðu Hanna Birna Kristjánsdóttir,
þáverandi innanríkisráðherra, og
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Nú hefur Ólöf Nordal innanríkis-
ráðherra ritað Degi B. Eggertssyni
borgarstjóra bréf. Þar áréttar ráð-
herra að afar mikilvægt sé að ríki og
Reykjavíkurborg vinni saman að því
að ná víðtækri sátt um framtíð
Reykjavíkurflugvallar. Í því sam-
bandi verði að leggja áherslu á að
tryggja að þeim fjölþættu og mikil-
vægu almannahagsmunum sem
tengist innanlandsflugi verði ekki
stefnt í hættu og að tekið verði mið
af þeim lögbundnu markmiðum sem
innanríkisráðherra er gert að fram-
fylgja, m.a. við undirbúning sam-
gönguáætlunar. „Í því felst að ganga
verður út frá því að Reykjavíkur-
flugvöllur verði í Vatnsmýrinni um
lengri tíma en til 2022. Staðsetning
flugvallarins verði óbreytt svo lengi
sem ekki liggur fyrir skýrt sam-
komulag við yfirvöld samgöngumála
um annað sem samræmist vilja Al-
þingis,“ segir orðrétt í bréfi Ólafar
Nordal til borgarstjóra.
Bundið samkomulagi við ríkið
Ráðherra segir í bréfi sínu að í
aðalskipulagi Reykjavíkurborgar
2001-2024 og 2010-2030 hafi verið
gert ráð fyrir því að flugvöllurinn
færi. Skipulagið hafi þó alla tíð verið
bundið fyrirvara af lögbærum
stjórnvöldum. Í bréfinu segir orð-
rétt: „Þannig segir í fyrirvara Skipu-
lagsstofnunar við gildandi aðal-
skipulag 2010-2030: Uppbygging í
Vatnsmýri og tímasetning hennar er
háð frekara samkomulagi við sam-
gönguyfirvöld ríkisins um flutning
flugstarfsemi af svæðinu. Þá segir í
athugasemdum við kafla 3.5, um
sjálfbærar samgöngur, þingsálykt-
unartillögu um landsskipulagsstefnu
sem samþykkt var á Alþingi í mars
2016: Innanlandsflug gegnir mikil-
vægu hlutverki í samgöngum milli
landshluta. Stýrihópur um sameigin-
lega athugun ríkis, Reykjavíkur-
borgar og Icelandair Group á flug-
vallarkostum á höfuðborgarsvæðinu
var settur á laggirnar 23. október
2013 og skilaði hann skýrslu um at-
hugunina í júní 2015. Niðurstaða
stýrihópsins var sú að Hvassahraun
sem flugvallarkostur hefði mesta
þróunarmöguleika til framtíðar, bor-
ið saman við aðra flugvallarkosti
sem skoðaðir voru, þó að ýmis atriði
þyrfti að skoða nánar. Lagði starfs-
hópurinn því til að flugvallarskilyrði
í Hvassahrauni yrðu fullkönnuð. Þar
til samkomulag ríkis og Reykja-
víkurborgar liggur fyrir um annað
miðast landsskipulagsstefna við nú-
verandi staðsetningu Reykjavíkur-
flugvallar.“
Með hliðsjón af framansögðu
leggur ráðherra til að ríki og
Reykjavíkurborg hefji hið fyrsta
formlegar viðræður um framtíð
Reykjavíkurflugvallar þar sem
byggt sé á framangreindum for-
sendum. Jafnframt þurfi að kalla
eftir sjónarmiðum annarra sveitar-
stjórna og hagsmunaaðila.
Skipulag í Vatnsmýri
bundið fyrirvörum
Ráðherra vill viðræður um framtíð flugvallarins
Morgunblaðið/RAX
Harpa 2013 Ríki, Reykjavíkurborg og Icelandair undirrituðu samkomulag um flugvöllinn og innanlandsflugið.
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
30% afsláttur
Fimmtudag, föstudag og langan laugardag
Buxna,- úlpu- og
leðurjakkasprengja