Morgunblaðið - 01.09.2016, Page 13

Morgunblaðið - 01.09.2016, Page 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 SJÓNMÆLINGAR ERU OKKAR FAG Tímapantanir: Optical Studio í Leifsstöð, 4250500 Optical Studio í Smáralind, 5288500 Optical Studio í Keflavík, 4213811 Velkomin í verslun okkar á fríhafnar- svæðinu í Leifsstöð Á LEIÐ TIL ÚTLANDA AFP Tískuhönnuður Úkraínski hönnuðurinn Yuliya Magdych með útsaumaða kjóla sem hún sýndi á tískusýningu í Kiev í vor. Undirbúningur Starfsmenn sníða og sauma á vinnustofu Yuliya Magdych. Á Íslandi er stundum talað um bóhó tísku og hún kennd við hippana. Borgarleikhúsið frumsýnir síðar í þessum mánuði fjölskyldusýninguna Blái hnötturinn, leikrit byggt á bók Andra Snæs Magnasonar. Leikgerðin og leikstjórnin er í höndum Bergs Þórs Ingólfssonar, en hann ætlar í fyrsta leikhúskaffi vetrarins í Kringlusafni Borgarbókasafnsins næstkomandi fimmtudag 8. sept- ember kl 17.30, að ræða við gesti um uppsetningu sína á Bláa hnettinum. Eftir kynninguna verður rölt yfir í Borgarleikhúsið þar sem gestir Leik- húskaffis fá stutta kynningu á leik- mynd og annarri umgjörð sýning- arinnar. Í lok Leikhúskaffis býðst gestum að fá 10% afslátt af miðum á Bláa hnöttinn. Á vefsíðu Borgarleikhússins segir um verkið og sýninguna: Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðn- ast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau sofa þegar þau eru þreytt, borða þegar þau eru svöng og leika sér þegar þeim dettur í hug. Kvöld eitt birtist stjarna á himnum sem fellur til „jarðar“ með miklum látum. Í reyknum mótar fyrir skugga- legum verum og þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir börnin um dimma skóga, djúpa dali og loftin blá. Reynir þá á vináttu og ráðsnilld barnanna sem aldrei fyrr. Blái hnötturinn er hugmyndaríkt ævintýri, þar sem brýnt er fyrir fólki að sýna réttlæti og mannúð. Það er ábending um að varðveita æskuna í sjálfum sér. Vefsíðan www.borgarbokasafn.is Blái hnötturinn Tuttugu og tvö hæfileikarík börn taka þátt í sýningunni. Forvitnist um uppsetninguna Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.