Morgunblaðið - 01.09.2016, Side 19

Morgunblaðið - 01.09.2016, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 Nú er liðið eitt- hvað á annan ára- tug frá því ég birti myndir af því í sjónvarpi hvernig verið væri að þrengja að Reykja- víkurflugvelli með því að sækja að honum úr öllum áttum og sneiða búta af landinu í kringum flug- völlinn jafnt og þétt. Áformað var að flytja götur og vegi nær flugvellinum og skipuleggja lóðir undir hina ýmsu starfsemi allt um kring. Loks yrði búð að byggja meðfram flugbrautunum og inn á milli þeirra og þá yrði loks bent á að það gengi ekki að vera með flugvöll inn á milli húsanna. Samkvæmt áætlun Smátt og smátt hefur þetta svo gengið eftir. Hringbrautin var færð þannig að nú er beinlínis ekið undir lendingarljós einnar flugbrautarinnar og lóðaúthlut- anir hafa farið fram af meira kappi en forsjá. Valsmenn hf. hafa til dæmis búið við óvissu í meira en áratug vegna lóða- samkomulags við borgina. Stund- um hefur virst sem borgaryf- irvöldum þætti það bara ágætt ef hremmingar Valsmanna mættu verða til þess þrýsta á um lokun flugvallarins. Það er varla hægt annað en að hafa samúð með Valsmönnum vegna þeirra fyr- irheita sem borgin hefur gefið byggingafélaginu og ætlað svo ríkinu að uppfylla. Háskólinn í Reykjavík fékk líka að kynnast því að borgaryf- irvöld eiga það til að fara fram úr sér þegar kemur að lóðaúthlutunum í kringum flug- völlinn. Þegar þau óttuðust að skólinn kynni að flytja í annað sveitarfélag fékk hann snarlega lóð við flugvöllinn. Eftir að skipulag uppbyggingarinnar var kynnt kom í ljós að borgin hafði óvart lofað að gefa skólanum hluta af landi ríkisins og land innan öryggisgirðingar flugvall- arins. Það gerðist þrátt fyrir að nægt pláss hefði verið fyrir skól- ann og aðrar byggingar á landi borgarinnar og það utan flugvall- argirðingar. Málið var svo leyst með því að sópa því undir veg sem lagður var inn á flugvall- arsvæðið og með því að færa ör- yggisgirðinguna nær flugbraut- inni. Þannig gerðist það að eitt af flugskýlum Reykjavíkurflug- vallar stendur nú á umferðareyju utan flugvallargirðingar- innar. Samkomulagið Stærsti áfanginn í því að bola flugvell- inum burt átti að vera lokun NA/SV- flugbrautarinnar sem í daglegu tali er kölluð neyðarbrautin vegna þess að flugvélar lenda þar þegar ekki er talið eins öruggt að lenda á hinum flugbrautunum tveimur. Í október 2013 var þess farið á leit við mig sem forsætisráðherra að ég undirritaði samkomulag ríkisins, Reykjavíkurborgar og Flugfélags Íslands (eða Ice- landair Group) um að gerð yrði enn ein úttekt á því hvar best væri að hafa Reykjavíkurflugvöll. Fyrir vikið sögðust fulltrúar borgarinnar til í að eyða óvissu um flugvöllinn af sinni hálfu a.m.k. til ársins 2022. Óvissuna höfðu þeir reyndar skapað sjálfir með því að leggja fram tillögu að aðalskipulagi þar sem gert var ráð fyrir að norður/suðurbrautin, önnur af stóru brautum flugvall- arins, viki árið 2016. Í drögum að samkomulaginu var tekið fram að aðilar féllust á að NA/SV-brautinni yrði lokað. Þetta sagði ég vera fráleitt skil- yrði sem ekki kæmi til greina að samþykkja. Auk þess sem ég gerði athugasemdir við fleiri at- riði í drögunum. Ég kvaðst svo reiðubúinn að undirrita sam- komulagið gegn því skilyrði að umrædd atriði yrðu tekin út og það væri á hreinu að ekki væri verið að samþykkja lokun NA/ SV-brautarinnar. Þvert á móti væri ég að fallast á þátttöku í undirrituninni til að tryggja að ekki yrði samið um lokun braut- arinnar. Fallist var á þetta og sam- komulagið undirritað í viðurvist ljósmyndara og blaðamanna. Það kom mér því mjög á óvart að dómstólar skyldu telja ríkið skuldbundið til að loka neyð- arbraut flugvallarins þegar ég sem forsætisráðherra hafði bein- línis gert það að skilyrði fyrir undirritun samkomulags við borgina að horfið yrði frá því að semja um það. Lokun neyðarbrautarinnar Þeir sem annast sjúkraflug og ýmsir aðrir talsmenn íslenskra flugmanna og fyrirtækja í flug- rekstri hafa varað við lokun neyðarbrautarinnar og bent á að ekki hafi verið rétt staðið að ör- yggismati sem lá þar til grund- vallar. Nú síðast lýsti öryggis- nefnd Félags íslenskra atvinnu- flugmanna yfir vonbrigðum með drög að samgönguáætlun meðal annars með vísan til lokunar brautarinnar. Bent er á að ekki sé hægt að lenda flugvél á suð- vesturhorni landsins í stífri suð- vestanátt eftir lokunina. Brautin seld Ég læt vera að fjalla um tæknilegar forsendur lokunar- innar þótt ærið tilefni sé til að leiða þá umræðu til lykta eins fljótt og auðið er. En á meðan sú umræða stendur enn berast þær óvæntu og óskemmtilegu fréttir að ríkið hafi selt Reykjavík- urborg rúmlega 110.000 fermetra land sem nú er undir suðurenda umræddrar neyðarbrautar fyrir 440 milljónir króna. Þetta er al- gjörlega óskiljanleg ráðstöfun eftir það sem á undan er gengið í átökum ríkisvaldsins við núver- andi borgaryfirvöld um Reykjavíkurflugvöll og með hlið- sjón af stöðunni sem uppi er í þeirri deilu. Þar fyrir utan er verðið fárán- lega lágt fyrir svo stórt og verð- mætt land. Vandfundnar eru verðmætari lóðir í Reykjavík og ekki óvarlegt að ætla að verð- mæti þessarar ríkiseignar nemi 8 til 10 milljörðum króna sé litið til söluverðs byggingarréttar annars staðar í borginni, m.a. verðlagn- ingar borgarinnar sjálfrar á lóð- um sem ekki eru jafnverðmætar og þær sem hér um ræðir. Að vísu mun ríkið eiga að fá einhvern hlut í þeim tekjum sem fást af sölu byggingarréttar en ekki hefur komið fram hversu mikill sá hlutur verður að öðru leyti en því að tekið er fram að því meira sem fáist fyrir lóðirnar þeim mun stærri verði hlutdeild Reykjavíkurborgar. Óheimil sala Þessi sérkennilega sala, sem að óbreyttu mun kosta ríkið veikari stöðu í baráttunni um Reykjavík- urflugvöll og milljarða króna, er sögð gerð á grundvelli samnings sem tveir fyrrverandi varafor- menn Samfylkingarinnar gerðu rétt fyrir kosningar 2013. Þ.e. Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri og Katrín Júlíusdóttir, þáverandi fjármálaráðherra. Vís- að er í heimild í fjárlögum ársins 2013 til að réttlæta söluna nú. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, lýsti því reyndar yfir fyrir þremur árum að til stæði að vinda ofan af þessum gjörningi og heimildin var ekki endurnýjuð. Auk þess hafa lög- menn, þ.m.t. Jón Steinar Gunn- laugsson, fyrrverandi Hæstarétt- ardómari, bent á að salan nú standist ekki lög. Jafnvel þótt fjallað hefði verið um málið í fjárlögum þessa árs (sem ekki var gert) dygði það ekki til. Sam- þykkja þyrfti sérstök lög um söl- una. Ljóst má vera að sala á flug- vallarlandi ríkisins í Skerjafirði stenst hvorki lagalegar forsendur né fjárhagslegar forsendur og hún vinnur gegn því markmiði að standa vörð um Reykjavíkurflug- völl og öruggar flugsamgöngur milli höfuðborgarinnar og lands- ins alls. Annað getur því vart tal- ist forsvaranlegt en að rifta hin- um ólögmæta samningi. Sú riftun myndi vonandi marka umskipti í baráttunni um Reykjavíkurflug- völl og sýna að ríkisvaldið sé reiðubúið að gera það sem þarf til að stöðva tilraunir borgaryf- irvalda til að fjarlægja flugvöll- inn sneið fyrir sneið. Selt undan flugvellinum Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson »Annað getur vart tal- ist forsvaranlegt en að rifta hinum ólögmæta samningi. Riftun myndi vonandi marka umskipti í baráttunni um Reykja- víkurflugvöll. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Framsóknarflokksins. Samkomulag Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra og Dagur B. Eggertsson, sem staðgengill borgarstjóra, við und- irritun samningsins á Reykjavíkurflugvelli í mars 2013. Umræðan um hækkandi aldur þjóðarinnar er því miður oft á neikvæð- um nótum. Aukið álag á heilbrigðis- kerfið, hækkun út- gjalda almanna- trygginga og álag á lífeyriskerfið, er hin neikvæða mynd sem dregin er upp. Það sem gleymist er hið jákvæða. Öldrun þjóðar er ekki ann- að en að einstaklingar lifa lengur en áður – hafa lengri tíma til að njóta lífsins og nýta tækifærin. Við eigum að hætta að líta á öldr- un – hækkandi meðalaldur þjóðar – sem vandamál. Við eigum þvert á móti að gera okkur grein fyrir þeim fjölmörgu tækifærum sem í því felst, en um leið verðum við að mæta áskorunum. Hvetjum en ekki letj- um fólk til vinnu Þessar jákvæðu fréttir krefjast hins vegar þess að við komum til móts við fólk sem á nú fleiri góð ár en kynslóðirnar á undan. Kerfið er oft þunglamalegt og byggir á gömlum og úreltum hugmyndum. Eitt skýr- asta dæmið um það er bann við því að fólk vinni hjá hinu opinbera lengur en til sjö- tugs. Sú hugmyndafræði byggir á hugmyndum Otto von Bismarck árið 1891 þegar Þýskaland setti lífeyr- iskerfi fyrst á fót. Meðalævilengd var þá um 47 ár en til samanburðar er hún um 80 ár á Íslandi í dag. Þetta bann er hvorki réttlátt ná skynsamlegt. Kerfið á að taka mið af þjóðfélaginu eins og það er í dag, þjóðfélagi þar sem frelsi er fyrir alla, líka 70 ára og eldri. Við þurfum jafnframt að hækka eftirlaunaaldur í skrefum upp í 70 ára aldur enda getur það talist eðli- legt í samhengi lengra æviskeiðs. Æskilegt væri ef hækkunin ætti sér stað á fimmtán árum en það er ein- mitt í takt við þá þróun sem er að eiga sér stað í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Þá þarf hið opinbera að þróa áfram kerfi sem refsar fólki ekki fyrir að vinna lengur eins og gert er með skerðingum og skattlagningu. Á sama tíma þarf þróa áfram að- stæður, á vinnumarkaði og í lífeyr- iskerfinu, sem búa yfir auknum sveigjanleika við starfslok. Lífeyrismál í forgang Lengra líf skapar einnig áskor- anir í ríkisrekstrinum sem við verð- um að mæta. Þörf á heilbrigðisþjón- ustu mun aukast og lífeyrisgreiðslur einnig. Á undanförnum árum höfum við búið svo um hnútana að aðstæður eru til að greiða skuldir ríkisins hressilega niður enda hafa verið inn- leidd vinnubrögð sem byggja á aga, ráðdeild og langtímahugsun. Það hefur orðið til þess að við erum bet- ur í stakk búin til að forgangsraða í þágu grunnþjónustu, þ.e. heilbrigð- is- og almannatrygginga. Til þess að við getum mætt okkar áskorunum þurfum við að viðhafa slík vinnu- brögð áfram en fyrir liggur að sér- staklega þarf að bæta kjör þeirra verst settu í hópi eldri borgara. Það er aðeins hægt að gera með var- anlegum hætti ef byggt er á traust- um grunni ábyrgra ríkisfjármála. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki flokkur gylliboða. Vel má vera að aðrir kunni að yfirbjóða hann í lof- orðaflaumi nú þegar við höfum skap- að góðar aðstæður í ríkisfjármálun- um. Hins vegar má treysta því, þegar ég segi að málefni eldri borg- ara séu forgangsmál, að farið verði með þau sem slík. Það má treysta því að ég beiti mér fyrir því að bæta kjör þeirra verst settu og draga úr óhóflegum tekjuskerðingum. Því hér eru grunngildi sjálfstæðisstefn- unnar um samkennd með þjóðfélag- inu undir og á þau legg ég alla áherslu. Tækifæri og áskoranir með hækkandi aldri Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Öldrun þjóðarinnar er ekki annað en að einstaklingar lifa lengur en áður – hafa lengri tíma til að njóta lífsins og nýta tækifærin. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.