Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 27
Bæjarfulltrúi á Akureyri Úlfhildur var bæjarfulltrúi á Akur- eyri fyrir Framsóknarflokkinn í þrjú kjörtímabil frá 1982-1994 og starfaði í ýmsum nefndum. Hún var ritari verkalýðsfélagsins Einingar í nokkur ár meðan hún vann hjá Sameiningu og við ræstingarnar. Þegar hún hóf störf hjá FVSA var hún kjörin í stjórn Landssambands íslenskra verslunarmanna og í mið- stjórn ASÍ. Úlfhildur hefur áhuga á þjóðfélags- málum, stundar útivist og ferðalög. „Nú er ég hætt að vinna og þá hefst sá kafli að maður getur lifað og leikið sér. Þá er maður þakklátur fyrir að vera við góða heilsu og geta notið lífsins.“ Fjölskylda Eiginmaður Úlfhildar er Hákon Hákonarson, f. 6.2. 1945, vélvirki og fv. formaður Félags málmiðnaðar- manna á Akureyri. Foreldrar Helga Gunnarsdóttir f. 5.10. 1921, d. 9.3. 2005, umsjónarmaður og verkakona á Akureyri, og Hákon Pálsson, f. 19.6. 1910, d. 7.11. 2004, rafveitustjóri á Sauðárkróki. Börn: 1) Hákon Gunnar Hákonar- son, f. 8.8. 1967, matreiðslumaður, málarameistari, nú flugvirki hjá Ice- landair, bús. í Hafnarfirði. Unnusta: Svala Hrönn Sveinsdóttir, grafískur hönnuður. Barnabörn: Álfhildur Rögn Gunnarsdóttir, f. 1994, og Há- kon Birkir Gunnarsson, f. 1997; 2) Helga Hlín Hákonardóttir, f. 18.4. 1972, lögmaður hjá Strategíu bús. í Garðabæ. Maki: Unnar Sveinn Helgason söluráðgjafi hjá Nova. Barnabörn: Aðalborg Birta Sigurðar- dóttir, f. 1992, bús. á Akureyri, sam- býlismaður: Róbert Davíðsson og þeirra sonur er Nói, f. 2015, Úlfhildur Arna Unnarsdóttir, f. 2005, og Arn- hildur Ylfa Unnarsdóttir, f. 2011. Systir: Margrét Rögnvaldsdóttir, f. 26.5. 1940, kennari á Akureyri. Börn Margrétar: Rögnvaldur Dorfi Pét- ursson, f. 1960, löggiltur endurskoð- andi á Seltjarnarnesi, Stefán Tryggvi Brynjarsson, f. 1965, bifvélavirki á Akureyri, Guðrún Hlín Brynjars- dóttir, f. 1967, kennari í Kópavogi, og Björn Ágúst Brynjarsson, f. 1977, flugvirki á Akureyri. Foreldrar: Rögnvaldur Rögnvalds- son, f. 21.10. 1912, d. 15.11. 1987, um- sjónarmaður, kaupmaður, húsvörður og hagyrðingur á Akureyri, og k.h. Hlín Stefánsdóttir, f. 21.10. 1915, d. 5.11. 2009, saumakona, verslunar- maður og verkakona á Akureyri. Úr frændgarði Úlfhildar Rögnvaldsdóttur Úlfhildur Rögnvaldsdóttir Hjörtur Líndal Benediktsson bóndi og hreppstj. á Efra-Núpi í Miðfirði, f. í Hnausakoti Elínborg Gísladóttir húsfreyja á Ósi í Staðarsveit, f. Hvarfsdal á Skarðsströnd, Rögnvaldur Hjartarson Líndal búfræðingur og bóndi á Efra-Núpi og Hnausakoti í Miðf. V.Hún. Margrét Björnsdóttir húsfreyja á Fossi í Hrútafirði Rögnvaldur Rögnvaldsson húsvörður, kaupmaður og hagyrðingur á Akureyri Björn Björnsson bóndi á Fossi, f. á Óspaksstöðum í Hrútaf. Ingibjörg Pálsdóttir húsfreyja á Fossi, f. í Hrútaf. Kristján Helgason bóndi á Skútu- stöðum í Mývatns- sveit Yngvi Kristjáns. bóndi á Skútu- stöðum Kristján Elvar Yngvas. glímukappi og húsasmíðam. í Reykjavík Yngvi Ragnar Kristjánsson hótelstjóri Sel-Hótel Mývatn Jakobína Sigurðardóttir húsfreyja á Hömrum í Reykjadal Ragnheiður Rögnvaldsd. Líndal húsfr. í Reykjavík Grétar Óskarsson verkfræð- ingur í Reykjavík Björn Svanbergss. frkvstj. í Reykjavík Hrafnkell Björnsson fv. deildarstj. VÍS í Reykjavík Aðalsteinn Hrafnkelss. forstm. Sundst. Hafnarfj. Helgi Jónsson bóndi í Haganesi, f. á Gautlöndum Guðbjörg Ásmundsdóttir húsfreyja í Haganesi, f. í Heiðarseli í Bárðardal, S-Þing. Stefán Helgason bóndi í Haganesi í Mývatnssveit Áslaug Sigurðardóttir húsfreyja í Haganesi í Mývatnssveit Hlín Stefánsdóttir saumakona, kaupmaður og verkak. á Akureyri Sigurður Magnúson bóndi á Arnarvatni, f. á Jódísarstöðum í Aðaldal, S-Þing. Guðfinna Sigurðardóttir húsfreyja á Arnarvatni í Mývatnssveit, í Stafni í Reykjadal, S-Þing. Guðfinna Jónsdóttir skáldkona frá Hömrum Málmfríður Sigurðardóttir húsfreyja á Arnarvatni Freydís Sigurðard. húsfreyja í Álfta- gerði í Mývatnssveit Arngrímur Geirsson kennari í Álftagerði Sigurbjörn Árni Arngríms. skólastj. á Laugum í Reykjadal og frjálsíþr.fröm. Hjördís Stefánsdóttir húsfreyja á Akureyri Ívar Haukur Stefánsson b,. grenjaskytta og skíðagöngum. í Haganesi Bryndís Ívarsdóttir ferðamála- fræðingur á Staðarhóli í Aðaldal Kolbrún Ívarsdóttir athafnakona í Haganesi Eiríkur Jónsson verkfræðingur á Akureyri Teitur Jónsson dósent við Tannlæknadeild HÍ Stefán Jónsson málarameistari á Akureyri ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 Vilhjálmur Þórarinsson Þór varfæddur 1. september 1899 áÆsustöðum í Eyjafirði. For- eldrar hans voru Þórarinn bóndi þar Jónasson barnakennara í Sigluvík á Svalbarðsströnd Jónssonar og k.h., Ólöf Þorsteinsdóttir Thorlacius bónda á Öxnafelli í Eyjafirði. Fimm ára gamall fluttist hann með for- eldrum sínum til Akureyrar. Vilhjálmur Þór naut ekki annars skólanáms en fjögurra vetra í barna- skóla og varð sendill hjá Kaupfélagi Eyfirðinga sumarið 1912. Hann varð fastráðinn starfsmaður félagsins við verzlunarstörf 1913, fulltrúi 1918 og framkvæmdastjóri þess 1923. Á árunum 1938–1940 var hann aðalframkvæmdastjóri og fulltrúi Íslands við heimssýninguna í New York. Hann var verzlunarfulltrúi ríkisstjórnar Íslands í New York frá 1. september 1939 til 1. maí 1940 og aðalræðismaður Íslands í Bandaríkj- unum um fjögurra mánaða skeið á árinu 1940. Haustið 1939 var hann síðan skipaður bankastjóri Lands- banka Íslands. Vilhjálmur Þór var utanríkis- ráðherra og atvinnumálaráðherra 1942-1944 í utanþingsstjórn Björns Þórðarsonar Tók hann þá aftur við bankastjórastörfum og gegndi þeim til ársloka 1945. Hann var forstjóri Sambands íslenzkra samvinnufélaga árin 1946-1954, bankastjóri Lands- banka Íslands 1955–1957 og aðal- bankastjóri Seðlabanka Íslands 1957–1964. Í október 1964 var hann kosinn til tveggja ára sem fulltrúi Norðurlanda í stjórn Alþjóðabank- ans í Washington og að því tímabili loknu skipaður aðstoðarfulltrúi Norðurlanda í bankastjórninni til tveggja ára. Eiginkona Vilhjálms Þór var Rannveig Elísabet Jónsdóttir, f. 10.6. 1903, d. 28.4. 1988, dóttir Jóns Finnbogasonar, kaupmanns á Reyð- arfirði, síðar bankaritara á Akur- eyri, og k.h. Bjargar Ísaksdóttur. Börn Vilhjálms Þórs og Rannveigar: Borghildur Fenger, Örn Þór og Hjördís Ólöf McCrary. Vilhjálmur Þór lést 12.7. 1972. Merkir Íslendingar Vilhjálmur Þór 85 ára Ásta Kristjánsdóttir Beta Guðrún Hannesdóttir Hilmar H. Bendtsen Ólöf Guðlaug Sigurðardóttir Páll Ingi Valmundsson 80 ára Örn Jónsson 75 ára Jakobína Ólafsdóttir Jón Hákon Jónsson Konný Hansen Sverrir Sandholt Þorbjörg Ingólfsdóttir 70 ára Agnar Loftsson Björn Bjarklind Dröfn Pétursdóttir Guðlaug Jónsdóttir Ingveldur Jóna Guðnadóttir Ólafur Ágúst Theódórsson Ómar Valdimar Franklínsson Úlfhildur Rögnvaldsdóttir 60 ára Anna Sigurðardóttir Árni Ómar Snorrason Ása Kristbjörg Karlsdóttir Eyrún Þóra Guðmundsdóttir Guðrún Sigurðardóttir Helga Jónsdóttir Jón Grétar Þorsteinsson Ragnar Karlsson Ragnar Ólafsson Salóme Anna Þórisdóttir Signý Birna Rafnsdóttir 50 ára Guðni Þór Guðmundsson Guðrún Haraldsdóttir Guðrún Katrín J. Gísladóttir Maria Helena Sarabia Ómar Már Jónsson Þóra Jónasdóttir Þórunn Scheving Elíasdóttir 40 ára Anna Lóa Aradóttir Jón Elvar Steindórsson Jón Smári Sigursteinsson Kolbeinn Páll Erlingsson Lilja Gunnarsdóttir Linda Björk Guðjónsdóttir Miroslaw Piotr Skraba Víðir Reynisson Þóra Gísladóttir 30 ára Arnar Elí Ágústsson Bergþóra Aradóttir Eva Carema Melgar Rada Grzegorz Marcin Wójcik Hjalti Brynjarsson Hörður Míó Ólafsson Jökull Rafn Jónsson Kelsey Paige Hopkins Kolbrún Gísladóttir Kumari Sonal Ranjit Choudhary María Lilja Þrastardóttir Snorri Páll Þórðarson Unnur Sveinsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Víðir er fæddur á Akureyri en ólst upp og býr í Mosfellsbæ. Hann er rafvirki hjá Tengi ehf. Maki: Berglind Sigur- geirsdóttir, f. 1979, kenn- ari í Seljaskóla. Börn: Hrafnkell, f. 2006. Kári, f. 2008, og Tinna, f. 2011. Foreldrar: Reynir Brynj- ólfsson, f. 1945, múrara- meistari, og Elísabet Erla Kristjánsdóttir, f. 1943, hjúkrunarfræðingur. Víðir Reynisson 30 ára Hjalti er Hafnfirð- ingur og er arkitekt hjá Al- ark arkitektum. Maki: Íris Huld Christers- dóttir, f. 1985, stjórnmála- fræðingur. Börn: Sóley, f. 2012, og Birkir og Emil, f. 2016. Foreldrar: Brynjar Harð- arson, f. 1961, viðskipta- fræðingur, bús. í Reykja- vík, og Ragnhildur Ragnarsdóttir, f. 1960, vinnur í versluninni Systur og makar, bús. í Hafnarf. Hjalti Brynjarsson 30 ára Hörður er Akur- eyringur en býr í Reykja- vík og er leiðsögumaður hjá The Cave. Sonur: Birkir Freyr, f. 2014. Systkini: Stefán og Una Stefánsbörn og Íris og Rósa Ólafsdætur. Foreldrar: Ólafur Harð- arson, f. 1963, verktaki í Colorado, BNA, og Þór- halla Laufey Guðmunds- dóttir, f. 1964, kennari í Lundarskóla á Akureyri. Hörður Míó Ólafsson Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón SALA ÚTSAL A ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚT ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA Ú ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA ÚTSAL A ÚT SALA Ú lÍs en ku ALPARNIR s Faxafeni 8, 108 Reykjavík • sími 534 2727 • netfang alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is allt að 70% afsl. síðustu dagar útsölunnar EKKI MISSA AF ÞESSU, FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ! ÚTSALA LA Ú TSALA ÚTSAL A T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.