Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is STURTUKLEFAR Mælum, framleiðum, útvegum festingar og setjum upp. ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú kannt að bjarga þér út úr erfiðri aðstöðu, sem þú lendir í. Það verður glatt á hjalla næstu helgar hjá þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert ánægður þegar þú hefur mikið að gera. Fólk þarf ekki að skilja þig til að kunna að meta þig. Þú ert með hjartað á rétt- um stað. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Íhugaðu hvernig þú getur bætt samskipti þín við samstarfsfólk þitt. Ekki tefla á tvær hættur í fjármálum, farðu frekar öruggu leiðina, talaðu við þjónustufulltrúann þinn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú átt þér marga talsmenn og þarft því ekki að örvænta um þinn hlut þegar ákvarðanir verða teknar um framtíðarstöðu þína. Gamalt mál úr fortíðinni lifnar við og kemur þér á óvart. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er merki um þroska að geta við- urkennt mistök sín og lært af þeim. Ný tækni eða breyttar aðferðir munu gera lífið skemmtilegra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sérkennileg atburðarás kann að verða til þess að þú hljótir loks umbun erfiðis þíns. Þú hættir í miðju kafi í verkefni sem aldrei höfðaði til þín, gott hjá þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Lausn verkefnis þíns liggur nær þér en þig grunar í fljótu bragði. Ef þú kemur inn í herbergi og finnst eitthvað að, skaltu ganga aftur út. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Allir vilja vera hluti af heildinni, þú þráir það svo heitt en ekki teygja þig of langt. Njóttu þess að fá þér eitthvað virkilega gott að borða. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt þú sért að farast úr forvitni skaltu ekki skipta þér af því sem þér kemur ekki við. Þér finnst þú ekki nýta hæfileika þína og bíður eftir tækifæri til að sýna þá. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér finnst sál þín og einhvers sem þú ert hrifin(n) af mætast í dag. Ekki láta sem þú heyrir ekki þegar einhver biður þig um aðstoð. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gagnrýni frá vini þínum kemur þér úr jafnvægi og dregur úr sjálfstrausti. Þú jafnar þig þó fljótt og verður sterkari á eftir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt það sé stundum gott að fá at- hygli skaltu gæta þess að það sé ekki á ann- arra kostnað. Ef fjölskyldan er höfð með í ráðum gengur allt betur Jón B. Guðlaugsson skrifaði mérog spurði hvort ég þekkti höf- und vísu, sem Þórður refaskytta frá Dagverðará kenndi honum. Vísan rifjar upp fyrir mér að Guð- mundur G. Hagalín segir frá því í Andvara í ævisögu afa míns, Bene- dikts Sveinssonar, að einn fremsti fræðimaður sinnar tíðar á Íslandi á forn fræði, séra Þórleifur á Skinnastað, var tíður gestur á heimili foreldra hans. Benedikt hafði alla ævi gaman af að minnast þessa einkennilega og stórbrotna klerks og fór stundum með vísu hans, sem sumum þótti lítt prests- leg: Sólin gyllir haf og hauður heldur svona myndarlega. Ekki er Drottinn alveg dauður, ekkert ferst honum kindarlega. Davíð Hjálmar Haraldsson skrif- ar á Boðnarmjöð: Ég skokk’ekki, skylmist né hjóla né skálma um brekkur og hóla né kasta og stekk en kvöld eitt ég gekk og komst milli hægindastóla. Hallmundur Kristinsson bætti við: Ég lærði í lífsins skóla. Löngum var eitthvað að dóla. Trekk oní trekk þá tilfinning fékk að á mig væri ekkert að stóla. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir yrkir á Boðnarmiði þar sem hún horfir út á fjörðinn sinn – Dýra- fjörð: Fallegur er nú fjörðurinn, fyrir utan gluggann minn. Sjávar ilminn anga finn, ekki er mikill stormurinn. Dagbjartur Dagbjartsson skrifar á Boðnarmjöð „gamla sjálfslýsingu með örlítið afbrigðilegum fram- burði“: Með andlit sjúskað, úfinn brúsk, er með búskap lítinn. oft við fúskar fræðagrúsk. Fjandans ússkup skrítinn. Pétur Stefánsson á það til að vera gamansamur: Ég er heldur heimakær, hangi að mestu inni. Álpaðist þó út í gær með eiginkonu minni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af séra Þórleifi, skokki og lífsins skóla Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita að það sé alltaf eitthvað nýbakað í smákökukrúsinni.„NEI … ÉG ER VISS UM AÐ ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ FARA ÚT Í KANT.“ „SKO, EF ÞÚ KAUPIR ÞENNAN JAKKA, SKULUM VIÐ BRENNA ÞANN SEM ÞÚ ERT Í, ALVEG ÓKEYPIS.“ ODDI SKRIFAÐI RITGERÐ UM ÞAÐ HVERNIG HUNDAR ERU BETRI EN KETTIR. ROP. SÍÐAN ÁT HANN HANA. ÉG MYNDI GJARNAN VILJA SETJAST NIÐUR MEÐ ÞÉR OG JAFNA ÚT ÁGREINING OKKAR! JÆJA… ÞAÐ ER MJÖG ÞROSKAÐ AF ÞÉR! ÓKEI… HVERNIG VILTU BYRJA? MEÐ MJÓLK OG SMÁKÖKUM! Jæja, þá er íslenska knattspyrnu-sumarið nánast á enda, jafnvel þó að rúmur mánuður sé eftir af því. Eina keppikefli liðanna í efstu deild núna er að ná Evrópusæti, og svo á Fylkir örlitla möguleika á því að bjarga sér frá falli. Sumarið hefur verið brokkgengt fyrir flest liðin, en verðandi Íslandsmeistarar FH hafa líklega haldið mesta stöðugleik- anum, aðallega með því að vinna líka „lélegu“ leikina sína, sem hafa verið fleiri í sumar en oft áður. x x x Eitt hefur Víkverja þótt hvimleitt ísumar, og það eru dómaramál deildarinnar. Á hverju einasta sumri gerist það að einhver dómaramistök koma upp, en Víkverja rekur ekki minni til þess að hafa heyrt um jafn- mörg og jafnalvarleg slík tilvik og á þessu sumri. Þannig getur þjálfari Fylkis vart opnað á sér munninn án þess að dómarann beri á góma, sem og þjálfari Víkinga frá Ólafsvík. Fyrrverandi þjálfari KR hafði á orði minnst einu sinni að lið sitt hefði þurft að vera betra en bæði and- stæðingurinn og dómarinn og fleiri dæmi má nefna. x x x Eflaust er margt af þessum um-kvörtunum einungis komið til vegna þess að það er sárt að tapa. En getur verið að þetta sé allt sam- an bara væl í tapsárum þjálfurum? Nú horfði Víkverji á Valsmenn vinna mjög sanngjarnan sigur á erkifjend- um sínum í KR á dögunum. Valsliðið var betra á nær öllum sviðum knatt- spyrnunnar það kvöldið, í það minnsta í seinni hálfleik. En það náði ekki að brjóta ísinn fyrr en dómari leiksins hafði rekið einn varnarmann KR út af fyrir engar sakir og gefið vítaspyrnu sem hefði varla talist aukaspyrna úti á miðjum vellinum. x x x Þetta er ekki í fyrsta sinn í sumarsem kvartað er undan þessum tiltekna dómara, raunar virðist hann oftar fá gagnrýni en hrós fyrir störf sín. Leikmenn sem standa sig illa trekk í trekk enda á varamanna- bekknum, en hvað með dómarana? Eiga lið í efstu deild ekki betra skilið? víkverji@mbl.is Víkverji Óttastu ekki og láttu ekki hugfallast því að Drottinn, Guð þinn, er með þér hvert sem þú ferð. (Jós. 1.9)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.