Morgunblaðið - 01.09.2016, Page 33

Morgunblaðið - 01.09.2016, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2016 Í seinasta Sunnudagsblaði Morgun- blaðsins birtist viðtal við myndlist- arkonuna Evu Ísleifsdóttur sem ásamt Sindra Leifssyni tekur þátt í sýningunni Skúlptúr/skúlptúr sem fram fer í Gerðarsafni. Í greininni sagði að staðsetning sýningarinnar væri menningarmiðstöðin Gerðu- bergi Breiðholti, en hið rétta er að sýningin er á Gerðarsafni í Kópavog- inum. Beðist er velvirðingar á þessu. Gerðarsafn, ekki Gerðuberg LEIÐRÉTT Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Við viljum vekja athygli á vægi lista í samfélaginu og reyna að fá fólk til að gera sér í hugarlund hvernig sam- félag án lista væri,“ segir Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Lista- háskóla Íslands (LHÍ), en skólinn stendur að pallborðsumræðum á Fundi fólksins í Norræna húsinu á laugardaginn 3. september kl. 16, en yfirskrift fundarins er „Samfélag án lista?“. „Við höfum hugsað þetta þannig að efnt sé til samtals við salinn og viljum endilega fá fram sem flest og ólíkust sjónarhorn svo við séum ekki að predika yfir kórnum líkt og hættan er þegar umræða á sér stað innan þröngs hóps,“ bætir Fríða Björk við, en fjölbreyttur hópur hefur verið kallaður í pallborðið, til viðbótar við gesti málþingsins. Þátttakendur eru Kristín Vals- dóttir, deildarforseti listkennslu- deildar LHÍ, Stefán Jónsson, pró- fessor við sviðslistadeild LHÍ, Guðni Tómasson, listsagnfræðingur og blaðamaður á Fréttatímanum, Tinna Gunnarsdóttir, prófessor við hönn- unar- og arkitektúrdeild LHÍ, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM, Ingi Rafn Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Karolina fund, Ragnheiður H. Magnúsdóttir, varaformaður hug- verkaráðs Samtaka iðnaðarins, Davíð Ingi Bustion, hollnemi LHÍ, og Sigrún Inga Hrólfsdóttir, deildar- forseti myndlistardeildar LHÍ ásamt Vigdísi Jakobsdóttur, aðjúnkt við listkennsludeild LHÍ og nýráðnum stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík. Þrýstingur frá almenningi og skattgreiðendum „Okkur finnst ástæða til að ræða áhrif listanna á samfélagið, hvort heldur sem litið er til hagrænna gilda – en þau eru gríðarleg og telja til dæmis um tuttugu þúsund störf í hin- um skapandi geira – eða listrænnar arfleifðar sem ekki verður metin til fjár og er afstæðari þáttur í sam- félagsmyndinni,“ segir Fríða Björk. „Listirnar eru mikið hreyfiafl og nær ómögulegt er að afmá þær úr sam- félaginu, sem sýnir áhrif þeirra á líf okkar. Við værum til dæmis að tala um allt skipulag, byggingarlist, lista- verk í almenningseign, bækur, geisla- diska, kvikmyndir, listahátíðir og flutning á efni í útvarpi og sjónvarpi – listirnar eru alls staðar undirliggj- andi og í forgrunni hvert sem við lít- um eða leið okkar liggur,“ bætir hún við og segir mikilvægt að átta sig á tækifærum til vaxtar bæði í stefnu- mótun sem miðar að auknum lífs- gæðum, þekkingarsköpun, skilningi og hagrænum þáttum. Fríða vonast til þess að stjórnmála- menn jafnt sem almenningur láti sig pallborðsumræðurnar varða. „Við vonum svo sannarlega að stjórn- málamönnum renni blóðið til skyld- unnar, þeir mæti og taki þátt í þessu samtali, en viljum líka hvetja almenn- ing í landinu til umhugsunar um gildi og áhrifasvið listanna í lífi sínu, þann- ig að samstaða um vægi lista komi frá sem breiðustum hópi kjósenda og skattgreiðenda.“ Listir eru iðulega skrefinu á undan öðrum greinum samfélagsins því þær takast stöðugt á við óvissu um niður- stöðu, þær ögranir sem felast í að greina tíðarandann hverju sinni. Því hafa þær sterkt pólitískt gildi fyrir samfélagsmyndina. „Listirnar segja iðulega tæpitungulaust það sem eng- inn annar kemur auga á eða vill segja í samfélaginu og í þeim skilningi vísa þær veginn til framtíðar,“ segir hún. Heimsminjar en ekki fánýti „Við viljum líka samtal um það hvernig við ætlum að varðveita þá arfleifð sem þegar er orðin til svo að hún geti orðið framtíðarkynslóðum aðgengileg – eins konar hugljómun eða orkugjafi,“ segir Fríða Björk. „Saga íslensks menningararfs á fag- legum grunni í listum er stutt ef bók- menntirnar eru undanskildar. Það eru mikil sóknarfæri í að skrá og varðveita menningararfleifð okkar því hún spannar ekki svo langan tíma,“ segir hún, en margir þættir arfleifðarinnar muni glatast endan- lega ef ekkert verði að gert. Listahá- skólinn hafi vakið athygli á því að ómetanleg verðmæti séu í húfi en þau ekki hlotið þann hljómgrunn eða fjár- magn sem þurfi til að bæta þar úr. „Við sjáum að þegar tíminn líður fram geta verk sem flestir töldu ein- hverju sinni fánýti hér á landi orðið að ómetanlegum heimsminjum,“ bæt- ir hún við og nefnir fornhandritin sem Árni Magnússon safnaði í því sam- hengi. Listir alltaf skrefinu á undan  „Samfélag án lista?“ verður rætt í fjölmennu pallborði á Fundi fólksins í Nor- ræna húsinu laugardaginn 3. september  LHÍ vill vekja athygli á vægi lista Tinna Gunnarsdóttir Fríða Björk Ingvarsdóttir Guðni Tómasson Ingi Rafn Sigurðsson Morgunblaðið/Kristinn List Fríða Björk, rektor LHÍ, segir litlu hægt að áorka í þágu lista ef fjármagns njóti ekki við. Hún hvetur stjórn- málamenn sem handhafa fjárveitingarvalds og almenning til að sækja málþing um Samfélag án lista á laugardaginn. Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Okkur langar að velta fyrir okkur hvort fjölmiðlar séu að birta nógu mikið um listir og fjalla nógu mikið um menningu,“ segir Jóna Hlíf Hall- dórsdóttir, formaður Sambands ís- lenskra myndlistarmanna (SÍM), en sambandið efnir til málþings um Sýnileika lista í fjölmiðlum á Fundi fólksins í Norræna húsinu laug- ardaginn 3. september kl. 13. Þátt- takendur í málþinginu verða Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistarmaður, gagnrýnandi og aðjúnkt við HÍ, Ás- gerður Gunnarsdóttir frá Danshöf- undafélagi Íslands, Aðalheiður Atla- dóttir, formaður Arkitektafélags Íslands, Helga Óskarsdóttir, mynd- listarkona og ritstjóri Artzine og fulltrúar fjölmiðlanna en Jóna Hlíf verður fundarstjóri. „Hvernig geta listamenn og fjöl- miðlamenn tekið höndum saman í baráttunni um aukinn sýnileika því þetta er alltaf samtal tveggja aðila,“ segir hún og bætir við að listir og fjölmiðlar hafi sameiginlegra hags- muna að gæta hvað varðar umfjöllun um listir og menningu. Í lýsingu viðburðarins segir að menningarumfjöllun í íslenskum fjölmiðlum einkennist öðru fremur af þörf menningarstofnana og lista- manna til að auglýsa list- og menn- ingartengda viðburði en síður af metnaði fjölmiðlanna til að bjóða upp á faglega umfjöllun. „Það er á ábyrgð fjölmiðla að fræða almenning og listir og menn- ing eru ekki að fá nógu mikinn skiln- ing í samfélaginu - ég tel að það sé á ábyrgð fjölmiðlanna. List í fjölmiðlum  Málþing um sýnileika listar í fjöl- miðlum í Norræna húsinu á laugardag Arnar Eggert Thoroddsen Aðalheiður Atladóttir Jóna Hlíf Halldórsdóttir Ásgerður Gunnarsdóttir mbl.is Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig aukapening? WAR DOGS FORSÝNINGAR 8, 10:25 BEN-HUR 10:30 NÍU LÍF 6 HELL OR HIGH WATER 5:50, 8, 10:10 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 4, 6 JASON BOURNE 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar FORSÝNINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.