Morgunblaðið - 01.09.2016, Qupperneq 36
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 245. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Afdrifarík mistök 17 ára pilts
2. Bréf án heimilisfangs slær í gegn
3. Sofnaði á fundi og tekinn af lífi
4. Þurftu að hafa mikið fyrir …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
A! gjörningahátíð hefst á Akureyri í
dag og stendur til sunnudags, en
þetta er í annað sinn sem hátíðin er
haldin. Á hátíðinni fremur mynd-
listar- og sviðslistafólk gjörninga og
setur upp gjörningatengd verk. Með-
al listamanna og hópa sem taka þátt
að þessu sinni eru Aðalheiður S. Ey-
steinsdóttir, Aðalsteinn Þórsson,
Anna Richardsdóttir, Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir, Borgarasviðið, Lárus H.
List, Leikfélag Akureyrar, Michael
Terren, Sara Björnsdóttir, Sebastian
Franzén og Theatre Replacement.
A! gjörningahátíð
hefst á Akureyri í dag
Sænski ljós-
myndarinn Jens
Olof Lasthein
heldur opinn fyrir-
lestur um verk sín
og vinnuaðferðir í
fyrirlestrarsal
myndlistardeildar
á Laugarnesvegi
91 á morgun kl.
13. Lasthein lauk námi 1992 í The
Nordic Photo School í Stokkhólmi og
hefur haldið yfir 50 einkasýningar í
söfnum og galleríum víðs vegar um
heiminn.
Fyrirlestur um verk
sín og vinnuaðferðir
Fyrstu hádegistónleikar vetrarins í
tónleikaröðinni Á ljúfum nótum verða
í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag k. 12.
Viðfangsefnið er Ástir og ástríður, en
fluttar verða óperu-
aríur úr óperum eftir
Catalani, Boito,
Puccini og Leonca-
vallo. Flytjendur eru
Guðbjörg Tryggva-
dóttir sópran og
Antonía Hevesi
píanóleikari.
Fyrstu hádegistón-
leikar vetrarins
Á föstudag Austlæg átt, 5-13 m/s, syðst en breytileg átt, 3-8
m/s, annars staðar. Bjartviðri norðan jökla, annars skýjað með
köflum og lítils háttar rigning. Hiti 6 til 13 stig, mildast norðan til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt, léttskýjað
norðan jökla, annars skýjað með köflum. Áfram dálítil rigning á
Suðausturlandi. Hiti 4 til 10 stig.
VEÐUR
„Það væri mjög gott að leika
af meiri stöðugleika en ég er
samt afskaplega ánægður
með leikinn. Þeir skoruðu
síðustu átta stig fyrri hálf-
leiks og það fyllti þá sjálfs-
trausti. Sem betur fer vor-
um við búnir að búa til
nógu gott forskot,“ sagði
Craig Pedersen, landsliðs-
þjálfari í körfuknattleik,
eftir sigur íslenska lands-
liðsins í fyrsta leik
undankeppni EM. »2
Meiri stöðugleiki
væri æskilegur
Knattspyrnukappinn Eiður Smári
Guðjohnsen hefur leik í ind-
versku ofurdeildinni með
Pune City 3. október. Eiður
hlakkar til að fara til Ind-
lands, en hann
verður fyrsti Ís-
lendingurinn
sem leikur í
indversku
ofurdeild-
inni, sem var
stofnuð 2013.
»4
Eiður Smári hefur leik í
Indlandi í næsta mánuði
Valur hleypti spennu í baráttuna um
Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu
kvenna þegar liðið vann Stjörnuna,
2:1, á Valsvelli í gærkvöldi. Laufey
Björnsdóttir skoraði sigurmarkið á
síðustu mínútu leiksins. Stjarnan
hefur enn þriggja stiga forskot á Val
og fjögur á meistara Breiðabliks þeg-
ar fjórar umferðir eru eftir. KR, Þór/
KA og ÍBV unnu einnig sína leiki. »2
Spenna á toppnum
eftir sigur Valskvenna
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Guðmundur Kristinsson í Innrömm-
un Guðmundar á Eiðistorgi hefur
verið á vinnumarkaðnum í 67 ár og
segir að áhugamálin verði að bíða að
mestu enn um stund.
Hann var ekki hár í loftinu þegar
hann lét til sín taka. „Þegar ég var
níu ára fór ég með línuveiðaranum
Turid til afa og ömmu í Hrísey,“ rifj-
ar Guðmundur upp. „Við Árni
Björnsson, síðar læknir, vorum uppi
í brú allan tímann. Skipstjórinn
hafði aldrei farið þessa leið og ætlaði
að leggja að bryggju þar sem sker
var fyrir framan. Ég stóð á kassa,
vissi að þetta var ekki rétta bryggj-
an og stoppaði hann af. Bjargaði
þannig skipinu, því annars hefðu
þeir strandað.“
Guðmundur fór 13 ára á síld á
Sverri EA. Hann var á bolfisk-
veiðum á togaranum Úranusi í fjög-
ur ár og síðan á olíuflutningaskipinu
Kyndli í 13 ár áður en hann venti
kvæði sínu í kross og sneri sér að
húsgagna- og grindarsmíði í um sjö
ár. Þegar um hægðist í greininni
keypti hann sér Sómabát og var á
handfærum í um áratug. Á þessum
árum kom hann sér upp ramma-
verkstæði á Vesturgötunni í Reykja-
vík. „Ég rammaði inn á milli túra og
eftir að ég kom í land á kvöldin og
hef verið í römmunum í um 40 ár,“
segir handverksmaðurinn, sem hélt
upp á 80 ára afmælið á dögunum.
„Ég flutti reyndar inn og seldi föt í
nær þrjú ár,“ bætir hann við og
minnir á að hann hafi einnig verið
með sýningarsalinn Listaver á Sel-
tjarnarnesi.
Stoppar aldrei
Snemma byrjaði Guðmundur að
mála, málar einkum vatnslitamynd-
ir, pastelmyndir og olíumyndir, og
hefur verið með samtals 13 einka- og
samsýningar. „Sonur minn tók við
fyrirtækinu fyrr á árinu og því geri
ég orðið lítið annað en að sópa, svara
í símann og laga kaffi.“
Reksturinn hefur alla tíð gengið
mjög vel, að sögn Guðmundar.
„Þegar ég byrjaði auglýsti ég einu
sinni í Vísi. Það kostaði 350 krónur
gamlar og ég hef ekki auglýst síðan.
Kúnnarnir eru mín auglýsing og ég
hef fengið myndir sendar alls staðar
að á landinu til innrömmunar.“
Sverrir EA var áður ferjan Smyr-
ill sem sigldi á milli Færeyja og
Danmerkur. „Ég dunda mér við að
búa til líkan af Smyrli,“ segir Guð-
mundur og bendir á nær tilbúna
eftirlíkinguna.
Handverkið er úti um allt á verk-
stæðinu og Guðmundur vill ekki
gera upp á milli „barna“ sinna. „Það
er eiginlega alveg sama hvað ég geri,
mér finnst allt skemmtilegt,“ segir
hann og leggur áherslu á að hann sé
alltaf að.
Guðmundur og eiginkonan Þór-
unn Erlendsdóttir, sem sá um rekst-
ur skipafélagsins Jökla í tæp 40 ár,
eiga sumarbústað í Grímsnesinu og
eru að byggja þar vinnuskúr. „Þegar
ég verð orðinn gamall og hætti að
vinna ætla ég að vera þar og einbeita
mér að áhugamálunum, mála, smíða
og skera út,“ segir hann.
Af sjónum í innrömmun
Í vinnunni í 67
ár og kom níu ára
í veg fyrir strand
Morgunblaðið/Eggert
Hagleiksmaður Guðmundur Kristinsson innrammari er aldrei verklaus og málar í frístundum.
Líkan Sverrir EA var áður ferjan Smyrill og er á vinnuborðinu.