Morgunblaðið - 14.09.2016, Side 4

Morgunblaðið - 14.09.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 Ólympíuskákmótinu sem staðið hef- ur yfir í Bakú í Aserbaídsjan frá því í byrjun mánaðarins lauk í gær. Ís- land sendi sveitir til leiks bæði í opnum og kvennaflokki. Reyndist síðasta umferðin íslensku keppend- unum erfið og lauk liðið í opnum flokki keppni í 60. sæti af 180. þjóð- um. Kvennaliðið endaði í 78. sæti af 140. þjóðum. Ísland mætti Argentínu í opnum flokki í lokaumferðinni. Þeir Hann- es Hlífar Stefánsson, Jóhann Hjart- arson og Guðmundur Kjartansson gerðu jafntefli í sínum skákum en Hjörvar Steinn Grétarsson tapaði. Þótt íslenska liðið tapaði viðureign- inni með minnsta mun, 1,5-2,5, lækkaði það um 14 sæti, úr 46. sæti niður í það sextugasta. Íslenska kvennaliðið mætti liði Grikklands í lokaumferðinni. Bæði Lenka Ptácníková og Guðlaug Þor- steinsdóttir töpuðu sínum skákum en Hallgerður Helga Þorsteins- dóttir og Hrund Hauksdóttir gerðu jafntefli þótt þær væru að fást við mun stigahærri andstæðinga. Hall- gerður endaði með 6,5 vinninga úr 10 skákum og tryggði sér FIDE- meistaratitil kvenna. Við tapið í lokaumferðinni lækkaði íslenska lið- iðum 11 sæti og endaði í 78. sæti eins og áður sagði. Bandaríkin og Kína unnu Bandaríkjamenn unnu sigur í opnum flokki, í fyrsta skipti frá árinu 1976. Úkraína varð í öðru sæti og Rússland í því þriðja. Kínverjar unnu sigur á Rússum í úrslitaviðureigninni í kvennaflokki og tryggðu sér jafnframt sigur í mótinu. Pólverjar enduðu í öðru sæti og úkraínska sveitin hlaut brons. Grátleg endalok á Ólymp- íuskákmótinu í Bakú Ljósmynd/Skáksamband Íslands Úrslit Frá viðureign Íslands og Arg- entínu í lokaumferð mótsins í gær.  Kína og Banda- ríkin sigruðu Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er vitað hvaðan regnbogasil- ungur sem sést hefur og veiðst í ám víða á Vestfjörðum í rúma viku er kominn. Talið er að hann komi úr fiskeldi. Engin sjókvíaeldisstöð hef- ur tilkynnt um slysasleppingar og stjórnendur þeirra kannast ekki við nein slys. Fiskistofa fékk tilkynningu á mánudaginn í síðustu viku um að eldisfiskur hefði veiðst í Mjólká í Arnarfirði. Eftirlitsmaður stofn- unarinnar staðfesti eftir eftirlitsferð að regnbogasilung væri að finna í ám í Patreksfirði, Tálknafirði, Arnarfirði og Dýrafirði. Þá leikur grunur á að regnbogasilung sé einn- ig að finna í Ísafjarðardjúpi og er verið að kanna það. Eftirlitsmaður- inn kannaði fyrst og fremst út- breiðslu silungsins en ekki hversu mikið kynni að vera á ferðinni á hverjum stað, samkvæmt upplýs- ingum Fiskistofu. Enginn tilkynnt um slys Regnbogasilungur er notaður í fiskeldi og er ekki náttúrulegur í ís- lenskum ám. Hann er alinn á fjórum eða fimm stöðum á Vestfjörðum. Umfangsmesta regnbogasilungs- eldið er í Dýrafirði en einnig er fisk- urinn alinn í kvíum í Ísafjarðardjúpi og Önundarfirði og svo í Tálknafirði í litlum mæli. Fiskeldismönnum ber að tilkynna slysasleppingar en engar slíkar til- kynningar hafa borist Fiskistofu, að því er fram kemur í tilkynningu stofnunarinnar í gær. Matvæla- stofnun hefur eftirlit með fiskeldi og reyna starfsmenn þess nú að finna út hvaðan fiskurinn kemur. Landssamband fiskeldisstöðva hefur haft samband við stærstu stöðvarnar og kannast stjórnendur þeirra ekki við að fiskur hafi sloppið. Nýlega er búið að yfirfara allar kví- ar hjá stærsta framleiðandanum. Höskuldur Steinarsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands fisk- eldisstöðva, segir mikilvægt að rót vandans finnist svo unnt sé að fyrir- byggja frekara tjón. Hann bendir á að gerðar séu miklar kröfur til gæða búnaðar sem notaður er í sjókvíum. Innleiddir hafa verið norskir staðlar í íslenskar reglur um búnað fiskeldisstöðva. Slapp í Berufirði Stjórn Landssambands veiði- félaga lýsir yfir þungum áhyggjum vegna slysasleppinga í fiskeldi. Bent er á að fréttirnar af Vestfjörðum komi til viðbótar slysasleppingu í Berufirði í vor þar sem kví með 120 þúsund regnbogasilungum opnaðist með þeim afleiðingum að regnboga- silungur veiðist nú um alla Austfirði. Ekki vitað hvaðan silung- ur sleppur  Regnbogasilungur um alla Vestfirði  Talið að hann hafi sloppið úr sjókví Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kví Regnbogasilungur er mest alinn í sjókvíum, austanlands og vestan. Gestur í náttúrunni » Regnbogasilungur er ekki náttúrulegur fiskur í íslenskum ám. Hann er eingöngu notaður í fiskeldi en honum er einnig stundum sleppt í vötn til sport- veiða. » Regnbogi hrygnir á vorin og hrognin klekjast út á haustin. Seiðin lifa ekki af veturinn á norðlægum slóðum og tímgast silungurinn því ekki í íslenskri náttúru. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Á umhverfissýningu sem haldin var í Perlunni í Öskjuhlíð um helgina var m.a. kynnt ný lausn á hirðu úrgangs frá heimilum með svonefndum djúpgámum, en búið er að gera ráð fyrir slíkum gám- um á nokkrum skipulagsáætlun- um í Reykjavík. „Um er að ræða gámaeiningu sem komið er fyrir neðanjarðar og er í raun steyptur kassi, en á yfirborðinu er lúga með opi sem tekur á móti úrgangi,“ segir Ey- gerður Margrétardóttir, deildar- stjóri umhverfis- og úrgangs- stjórnunar hjá Reykjavíkurborg, og bætir við að með djúpgámum megi spara pláss og gera alla um- hirðu mun skilvirkari. Margir sýnt gámunum áhuga Við endurskoðun samþykktar fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavík, sem unnin var í vor, var bætt við nýju ákvæði þar sem gert er ráð fyrir hirðu úrgangs með djúpgámum við heimili. „Er þar gert ráð fyrir fimm gámum við heimili sem taka á móti papp- ír, plasti, gleri, málmum og blönduðum úrgangi. Þetta er því mjög heppileg lausn í stærri fjöl- býlum og eru djúpgámar nú komnir á skipulag í Vesturbugt, Hlíðarenda, Vogabyggð og Efstaleiti,“ segir Eygerður og bætir við að fleiri framkvæmda- aðilar hafi einnig sýnt þessari lausn mikinn áhuga. Ákjósanlegt fyrir fjölbýli Spurð út í helstu kosti djúp- gáma svarar Eygerður: „Þetta hvetur mjög til þess að fólk flokki úrgang. Þannig hefur það t.a.m. sýnt sig að flokkun í svona gáma er mun betri en þegar fólk skilar af sér endurvinnanlegum úrgangi í hefðbundnar sorp- geymslur. Einnig er auðveldara að losa þessa gáma en tunnur sem geymdar eru í sorp- geymslum.“ Þá nefnir Eygerður einnig að einn fimm rúmmetra djúpgámur taki jafn mikið magn af úrgangi og 21 hefðbundin 240 lítra tunna. „Þetta er því ákjósanlegur kost- ur fyrir fjölbýli,“ segir hún. Morgunblaðið/Kristján H. Johannessen Hagkvæmni Til eru tveir sorpbílar í Reykjavík sem m.a. eru útbúnir sérstaklega til að losa úrgang úr djúpgámum. Djúpgámar á skipu- lagsáætlun í borginni  Stuðla mjög að flokkun úrgangs og spara dýrmætt pláss Innan borgarmarka má nú finna alls 57 grenndarstöðvar fyrir endurvinnanlegan úrgang. Ey- gerður Margrétardóttir, deildar- stjóri umhverfis- og úrgangs- stjórnunar, segir djúpgáma geta hentað afar vel á þeim svæðum þar sem byggð er þéttust og pláss lítið. Stóð t.a.m. til að setja upp grenndarstöð á bílastæði við Túngötu. „Það vantar grenndarstöð á þetta svæði og bíða íbúar eftir því,“ segir Eygerður, en sendiráð Frakklands, sem stendur við göt- una, lagðist gegn djúpgámum á þessu svæði og benti á öryggis- ógn. Er nú verið að leita að hent- ugri lausn í málinu til að geta þjónustað íbúa í Vesturbæ norð- an Hringbrautar, en þar vantar grenndarstöð. Hentar vel þéttri byggð 57 GRENNDARSTÖÐVAR Ökuland ehf. Ökuskóli Akstursþjálfun hjá Mercedes-Benz í Þýskalandi fyrir ökumenn og eigendur vörubíla sem og aðra áhugasama • Metin til endurmenntunar bílstjóra • Heimsókn í vörubílaverksmiðju • Mercedes safnið í Stuttgart • Unimog safn Fararstjóri: Guðni Sveinn Theodórsson 899 1779 gudni@okuland.is Verð: 185.000.kr. Hægt er að sækja um styrki til ferðarinnar. Nánari upplýsingar um ferðatilhögun: www.okuland.is Skráningu fer að ljúka. 22.–25. október 2016

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.