Morgunblaðið - 14.09.2016, Side 13
Morgunblaðið/Ófeigur
Ísland og Sviss „Það hentar mér mjög vel að búa í Sviss og á Íslandi til skiptis. Aðallega af því mér finnst alltof
heitt á sumrin í Sviss og það er mun þægilegri hiti á Íslandi yfir sumartímann,“ segir Sara Hochuli.
skapa endalausir. Ef maður er skap-
andi þá skiptir ekki máli hver efnivið-
urinn er. Auðvitað lærir maður
tæknina og aðferðina með sérhvert
efni en svo lengi sem maður hefur
hugmyndir og ímyndunarafl þá er
þetta spurning um æfingu,“ segir
hún.
Fjölskyldan hjálpar til
Frá því um miðjan júnímánuð
hafa Sara og kærastinn hennar,
Dominik, ásamt fjölskyldu og vinum
unnið hörðum höndum að því að inn-
rétta staðinn á Grandagarði. „Við höf-
um gert mikið sjálf því við höfum ekki
alltaf haft efni á því að vera með iðn-
aðarmenn. Við erum líka mjög heppin
og höfum fengið mikla aðstoð frá fjöl-
skyldunni. Dagarnir hafa verið langir
og oft erfiðir en þetta hefur verið al-
gjört ævintýri,“ segir hún og tekur
fram að faðir hennar sé trésmiður og
hafi reynst þeim betri en enginn.
Húsgögnin í tehúsinu eru að stórum
hluta frá Póllandi en Dominik er það-
an og hefur fjölskylda hans aðstoðað
þau við að flytja þau til landsins.
„Mér finnst líka gaman að gera
þetta líka sjálf því maður lærir svo
mikið á því,“ segir Sara sem er greini-
lega margt til lista lagt.
Tehúsin systur
Tehúsin tvö í
Reykjavík og í Zü-
rich eru ólík þrátt
fyrir að þemað og
matseðillinn sé
svipað. „Við ætl-
um að vera með
kökur sem eru
frábrugðnar því
sem við höfum
verið með. Þær
verða líka litríkar
en við ætlum líka
að skapa eitthvað nýtt. Ég ákvað
strax að hafa tehúsin ekki eins. Það
er svo leiðinlegt og hérna passar
Miyuko ekki því þetta er allt annað
umhverfi. Ég lít á tehúsin frekar eins
og systur. Mér fannst Kumiko passa
beint hér inn því gæludýrið hennar er
kolkrabbi sem er fullkomið fyrir
þennan stað,“ segir hún.
Japanskar manga-teikningar
höfðuðu fljótlega til Söru þegar hún
hóf nám í listaháskólanum en það
voru einkum bjartir litir og grafík
með svörtum útlínum sem heillaði.
Sjálf skartar Sara hári í öllum regn-
bogans litum eins og persóna úr
manga-teiknimynd.
Kökudiskurinn tómur
Sara segist búa vel að þeirri
reynslu sem fylgir því að setja á lagg-
irnar tehús í Zürich og reka það. Mót-
tökurnar við tehúsinu fóru fram úr
þeirra björtustu vonum. Fjölmiðlar
veittu þeim mikla athygli jafnt, prent-
og ljósavakamiðlar þegar tehúsið
opnaði. Fljótlega eftir opnun var
strax mikið að gera.
„Við bjuggumst aldrei við því að
það yrði svona mikið að gera. Vissu-
lega var þetta ánægjulegt en þetta
var líka svakalega mikil vinna. Kö-
kudiskurinn var alltaf tómur í lok
dags. Við verðum betur undirbúin
hérna,“ segir hún og brosir. Hún tek-
ur fram að það sem vanti upp á núna
sé helst kökugerðarmeistari til starfa
á tehúsinu.
Sara er vongóð um góðar mót-
tökur Íslendinga og líka erlendra
ferðamanna sem eru áberandi á hafn-
arsvæðinu. „Ef ég ætti að bera saman
Þjóðverja eða Svisslendinga við Ís-
lendinga held ég að Íslendingar séu
mjög opnir fyrir nýjungum og mér
virðist þeir alltaf tilbúnir fyrir
nýtt ævintýri.“
Of heitt á sumrin í Sviss
Sara og Dominik hafa
komið sér vel fyrir á Íslandi
og líkar vel. Þau búa þó áfram í
báðum löndum. „Það hentar mér
mjög vel að búa í Sviss og á Ís-
landi til skiptis. Aðallega af því
mér finnst alltof heitt á sumrin í
Sviss og það er mun þægilegri hiti á
Íslandi yfir sumartímann,“ segir hún
og hlær sínum smitandi hlátri. Hún
bætir við að það henti sér vel að
ferðast á milli staða því það veiti
henni innblástur. Kökur
Ævintýralega
litrík lista-
verk.
Hér er hægt að sjá heimasíðu
Söru http://kumiko.is/
Ef maður er skapandi þá
skiptir ekki máli hver
efniviðurinn er [...] svo
lengi sem maður hefur
hugmyndir og ímynd-
unarafl þá er þetta
spurning um æfingu
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016
Átta manna hljómsveit ætlar að flytja
„stríðsáraswing“ í hádeginu á morg-
un, fimmtudag, í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Flytjendur eru Lilja Egg-
ertsdóttir, söngur, Gunnar Gunnars-
son, píanó, Scott McLemore, tromm-
ur, Ásgeir Ásgeirsson, gítar, Þor-
grímur Jónsson, kontrabassi, Örn
Arnarson, söngur, Örn Ýmir Arason,
söngur, og Þorkell H. Sigfússon,
söngur. Lögin sem sungin verða eru
mörg kunnugleg, Someone to Watch
Over Me, What a Difference a Day
Makes, Moonlight Serenade, Ne-
vertheless I Wish you Love, Beautiful
Dreamer, I’ll Be Seeing You og Old
Cape Cod.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og að-
gangseyrir er 1.500 kr. Ekki er tekið
við greiðslukortum.
Fríkirkjan í Reykjavík
Söngkona Lilja Eggertsdóttir.
Stríðsára-
sveifla í hádegi
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Trommuleikari Scott McLemore.
Seint ætlum við mannskepnurnar að læra að
koma fram við hinar skepnurnar af virðingu en
þó mjakast barátta dýraverndunar hægt áfram.
Bannað hefur verið á Spáni að halda hátíð sem
kallaðist „Toro de la Vega“, þar sem nauti var
sleppt lausu og á hlaupunum fóru menn á hest-
um að því og stungu það og særðu með spjót-
um. Á dögunum var blásið til annarrar hátíðar í
staðinn, „Toro de la Pena“ þar sem allt er með
sama hætti nema að í stað spjóta eru prik, og
nautið því ekki sært eða drepið. Fóru þessi
hlaup fram í Tordesillas en sumir mótmæltu og
drógu í efa að þetta væri góð meðferð á dýrum.
Einn mótmælandinn hafði látið klippa og lita
hár sitt með mynd af nauti og áletrun: Virðing.
Spánverjar hlaupa hratt undan hyrndu nauti
Umdeild hátíð í Tordesillas
AFP
Hlaupið Sumum finnst spennandi að verða hræddir og hlaupa undan nauti.