Morgunblaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016
✝ Þórður fæddist19. júlí 1928 á
Ísafirði. Hann and-
aðist á Landakoti 4.
september 2016.
Þórður var son-
ur hjónanna Sigur-
bjargar Eiríks-
dóttur sem ættuð
var frá Patreksfirði
og Júlíusar Sig-
urðssonar prentara
sem ættaður var
frá Akureyri. Systkini Þórðar
voru Sigurður, Aðalheiður,
Soffía Eydís, Gunnar og Krist-
ján, hálfbróðir. Þau eru öll látin.
Þórður flutti síðan með fjöl-
skyldu sinni til Siglufjarðar og
Vestmannaeyja og að lokum til
Reykjavíkur. Hann stundaði sjó-
mennsku á sínum yngri árum.
Lærði síðan rafvirkjun og vann
við iðn sína þar til hann lét af
störfum 70 ára gamall. Hann
vann lengst af hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur.
Eftirlifandi eig-
inkona Þórðar er
Þórdís Helga Guð-
mundsdóttir, f. 10.
desember 1927, og
gengu þau í hjóna-
band 6. desember
1958. Þau eign-
uðust þrjá drengi:
1) Birgir, f. 21. júlí
1956, giftur Unni
Maríu og eiga þau
þrjú börn, Þórð, Sigrúnu og
Lindu Maríu. 2) Leifur Ottó, f.
30. nóvember 1961, í sambúð
með Gróu. 3) Júlíus, f. 13. mars
1964, giftur Katrínu og eiga þau
tvo syni, Kristin og Níels Jó-
hann.
Barnabarnabörnin eru fjórir
drengir og er sá fimmti á leið-
inni.
Útför Þórðar verður gerð frá
Kópavogskirkju í dag, 14. sept-
ember 2016, klukkan 13.
Elsku afi okkar.
Takk fyrir allar yndislegu
samverustundirnar sem við átt-
um með ykkur ömmu. Það var
alltaf jafn gaman að koma og
gista hjá ykkur í Hófgerðinu og
leika sér úti í stóra garðinum,
hvort sem það var um sumar eða
vetur.
Þið hugsuðuð svo vel um
barnabörnin ykkar og síðar
barnabarnabörnin. Hlýrri og ást-
ríkari hjón er erfitt að finna og
eftir standa ljúfar minningar um
þig, kæri afi.
Elsku afi farinn er,
upp til himna sálin fer,
löngu lífi lifði hann,
ást hjá Dísu ömmu fann.
Fólkið þitt við sitjum saman,
rifjum upp sem er gaman,
pössum við hér Dísu þína,
og minningar sem munu skína.
Í Hófgerði var gleði og gaman,
eyddum við þar tímum saman,
við borðuðum og lágum fyrir,
biðjum við nú að heilsa yfir.
Þórður, Folda, Sigrún og
Linda María.
Þeim starfsmönnum sem áttu
samleið í starfi hjá Rafmagns-
veitunni sálugu og störfuðu í
Barónsfjósi fer nú óðum fækk-
andi. Í Barónsfjósi var starfsemi
framkvæmdadeilda Rafmagns-
veitu Reykjavíkur til húsa í ára-
tugi og þjónaði Reykvíkingum.
Nú hefur Þórður rafvirki
kvatt sína jarðnesku tilvist.
Þórður kom til starfa árið 1964 í
dreifistöðvardeild RR. Hún var
þá til húsa í norðurenda Baróns-
fjóss en auk þess var trésmíða-
verkstæði og vélsmiðja í sama
húsi.
Margar minningar sem tengj-
ast starfinu og starfsfélögunum
voru umræðuefni okkar Þórðar
þegar fundum okkar bar saman.
Vinna okkar í dreifistöðvardeild
var fjölbreytt á þessum árum og
reyndi á gott samstarf. Árni
Magnússon hafði þá nýtekið við
starfi í spennistöðvardeild af
Gísla Hannessyni sem tók við
starfi deildarstjóra. Árni var
verkstjóri okkar uns hann tók við
starfi vaktstjóra en þá tók Krist-
ján Jónsson rafvirki við starfi
hans. Allir þessir yfirmenn, vinir
okkar, voru miklir dugnaðar-
menn og samstarf við þá í gegn-
um árin bæði farsælt og ánægju-
legt.
Á þessum árum okkar Þórðar
var mikið um breytingar innan-
húss í gömlum dreifistöðvarhús-
um svo hægt væri að koma fyrir
nýjum rafbúnaði sem þjónaði
eldri hluta bæjarins.
Samfara þessari miklu vinnu
fjölgaði hratt nýjum íbúðarhverf-
um þar sem varanleg hús úr
steinsteypu risu með mikilli þörf
fyrir nýjar lagnir. Til að leysa
málin á meðan nýju hverfin voru
í byggingu varð oft að flytja
tilbúin timburhús á staðinn til
bráðabirgða.
Þar var nýr rafbúnaður m.a.
hýstur. Á þessu tímabili í sögu
fyrirtækisins reyndi mikið á
hæfa starfsmenn og þar gegndi
Þórður mikilvægu hlutverki.
Þórður fluttist síðar til starfa í
birgðadeild fyrirtækisins og
starfaði þar til starfsloka. Þórður
var farsæll og traustur í starfi og
mjög góður samstarfsfélagi. Það
var ætíð gott að eiga við hann
samskipti og ég minnist hans
með mikilli hlýju.
Fyrir nokkrum árum átti und-
irritaður viðtal við Sverri Sig-
mundsson, yfirmann Þórðar, í
Starfsmannablaði RR. Þar segir
Sverrir m.a. frá því að tveir
starfmenn sem unnu í birgða-
deildinni með honum lengst af,
þeir Jón Haukur Jóelsson og
Þórður Júlíusson, hafi komið á
þeirri festu og reglusemi sem
einkennt hafi birgðastöðina. Þar
er Þórði rétt lýst.
Við vinir hans minnumst Þórð-
ar með þökk og virðingu.
Guðmundur K. Egilsson,
fyrrverandi forstöðumaður
Minjasafns OR.
Þórður Kristinn
Júlíusson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Minningargreinar
Móðir okkar,
VIGDÍS PÁLSDÓTTIR
handavinnukennari,
verður jarðsett frá Neskirkju fimmtudaginn
15. september klukkan 15.
.
Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir,
Inga Lára Baldvinsdóttir,
Páll Baldvin Baldvinsson,
og fjölskyldur þeirra.
Elskulegur eiginmaður og bróðir,
FRIÐRIK BJARNI FRIÐRIKSSON
útgerðarmaður,
lést á heilbrigðisstofnun Norðurlands í
Fjallabyggð fimmtudaginn 8. september
2016. Útför hans fer fram frá Siglu-
fjarðarkirkju föstudaginn 16. september klukkan 14.
.
Gerða Pálsdóttir,
Björg Friðriksdóttir, Sveinn Sveinsson,
Jóhannes Friðriksson, Kristín Baldursdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN ÓLAFÍA JÓNSDÓTTIR
arkitekt,
Bergstaðastræti 81, Reykjavík,
sem lést 2. september, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 16. september,
klukkan 13. Þeir, sem vildu minnast hennar, láti Þingeyrakirkju
njóta þess (reiknnr. 307-13-785, kt. 710269-3439).
.
Hulda Sigríður Jeppesen,
Anna Salka Knútsdóttir Jeppesen,
Stefán Jón Knútsson Jeppesen,
Páll Jakob Líndal,
tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SIGURÐUR JÓSEFSSON
frá Torfufelli,
lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð,
Akureyri, fimmtudaginn 8. september. Útför
hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 23. september
klukkan 13.30.
.
Guðrún Sigurðardóttir, Loftur Sigvaldason,
Soffía Árnadóttir,
Árni Sigurðsson, Björg Brynjólfsdóttir,
Jón Hlynur Sigurðsson, Sigríður Steinbjörnsdóttir,
Bjarney Sigurðardóttir, Pétur H. Ágústsson,
Sigrún Lilja Sigurðardóttir, Einar Svanbergsson,
Hólmfríður Sigurðardóttir, Haukur Tryggvason,
Sigurður Torfi Sigurðsson, Ragnhildur Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
læknir,
Hrólfsskálavör 11, Seltjarnarnesi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
mánudaginn 5. september.
Útför hans verður frá Neskirkju mánudaginn 19. september
klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög.
.
Guðrún Þorbjarnardóttir,
Anna Guðmundsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir,
Sigurður Guðmundsson, Jón Guðmundsson.
Okkar ástkæra
SVALA DÍS,
Hafnargötu 8, Siglufirði,
verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 17. september klukkan 14.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á unglingadeildina Smástráka á
Siglufirði, 0348-26-310, kt. 551079-1209.
Þökkum auðsýndan hlýhug.
.
Guðný og Örvar,
Guðmundur og Ásta Sóllilja,
Kristinn Dagur,
Aníta Maren,
Haraldur Björn,
Andrea Sif
og aðrir ástvinir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
BJÖRN BJÖRNSSON
verslunarstjóri og sjómaður frá
Siglufirði,
Sóleyjarima 3, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 16.
september klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Slysavarnafélagið Landsbjörg, björgunarsveitina Stráka á
Siglufirði.
.
Hrönn Björnsdóttir, Jón Pálsson,
Katrín Björnsdóttir, Gunnlaugur Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kveðja til afa
Leiddu mína litlu
hendi,
ljúfi Jesús, þér ég
sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu,
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf, Jesús, vertu hjá mér.
(Ásmundur Eiríksson)
Takk, elsku afi, fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir okkur syst-
urnar og fyrir að vera alltaf svo
góður við okkur. Við vonum að
þér líði vel á himnum og að Guð
passi þig. Þú munt alltaf verða
besti afi í heimi. Við skulum
passa ömmu vel fyrir þig. Við
elskum þig mjög mikið og mun-
um sakna þín sárt.
Þínar afastelpur
Freyja Dögg, Kristjana
Birta og Aníta Bríet.
Ég var bara unglingur þegar
Björgvin kom inn í líf mitt og
eins og gefur að skilja þá var
enginn maður nógu góður fyrir
hana systur mína. Björgvin
fékk mig til að skipta fljótt um
Björgvin
Steindórsson
✝ Björgvin Stein-dórsson fædd-
ist 25. desember
1954. Hann lést 28.
ágúst 2016. Útför
Björgvins fór fram
6. september 2016.
skoðun með hóg-
værð sinni og hlý-
leika. Björgvin og
Anna voru skóla-
félagar úr Mennta-
skólanum en það
var nokkru seinna
að Anna var að
kenna á skíðum og
Björgvin pantaði
sér einkatíma hjá
henni og samrýmd
renndu þau sér svo
í gegnum lífið.
Ein af fyrstu minningum
mínum af Björgvin er þegar ég
veiktist á gamlárskvöld og
hann sat yfir mér með kalda
bakstra og strauk á mér hárið,
þannig var mágur minn alltaf
góður við mig. Björgvin féll
fljótt vel inn í fjölskylduna og
hann var fús og fær um að læra
og það voru ófáir tímarnir sem
hann og pabbi eyddu við smíðar
og aðra vinnu. Hann var með
eindæmum handlaginn þrátt
fyrir sínar stóru og klunnalegu
hendur og hafði meðal annars
fallega rithönd. Björgvin var
ákaflega hjálpfús og alltaf boð-
inn og búinn að hlaupa til ef
einhvern vantaði aðstoð. Björg-
vin var fjölhæfur og kom víða
við. Hann var góður íþrótta-
maður og stundaði lengi vel fót-
bolta, blak og skíði auk þess að
vera góður brids- og skákmað-
ur. Það var alltaf gaman að
dansa við Björgvin, hann var
léttur á sér og stjórnaði vel,
enda í gömludansaklúbbi í
mörg ár. Björgvin var búinn að
ná tökum á tölvutækninni nán-
ast áður en hún var fundin upp
og notaði sér hana bæði í vinnu
og áhugamálum. Björgvin var
mjög góður ljósmyndari og
hafði sérstaklega gaman af að
taka myndir í náttúrunni og af
gróðri. Garðyrkja var hans
hjartans mál og hann var eins
og alfræðiorðabók þegar kom
að plöntum. Ég hafði gaman af
að sitja og tala við Björgvin um
blóm en stundum rann út í fyr-
ir mér þegar hann romsaði upp
úr sér öllum latnesku heitunum
og ættgreindi plönturnar að
auki. Hann var vísindamaður í
eðli sínu og þó að Lystigarð-
urinn á Akureyri sé það sem
fólk sér af verkum hans þá er
það ekkert miðað við alla vinn-
una sem hann vann við rann-
sóknir, garða, fræsöfnun og
flokkun auk alþjóða samskipta
garðyrkjufræðinga.
Þegar Anna og Björgvin
keyptu heimili sitt Sjónarhól
við Hörgárbraut var ekki bara
húsið í lélegu ástandi heldur
var landsvæðið í kring að
mestu beitiland hesta. Þau
unnu saman mjög ötullega við
enduruppbyggingu hússins og
svæðið í kring varð að garði
fyrir börnin þeirra tvö og
áhugamálið. Nú stendur þar
annar lystigarður Akureyrar en
undanfarin ár hefur þetta verið
unnið og hannað af Önnu.
Björgvin var mikill fjöl-
skyldumaður og vissi fátt betra
en að vera heima með alla í
kringum sig. Hann tók virkan
þátt í bleiuskiptum, matargerð,
húsverkum og gestamóttökum í
gegnum tíðina. Þegar Björgvin
fór að veikjast komu þrír gleði-
gjafar inn í líf hans. Barnabörn
komu á stuttum tíma og hann
naut þess að hafa stelpurnar í
kringum sig og þær voru mjög
hændar að honum. Meiri
barnagæsku var vart hægt að
finna og það var unun að horfa
á þær klifra upp á afa sinn og
strjúka honum á meðan hann
var að sýna þeim eitthvað
skemmtilegt.
Ég og fjölskylda mín kveðj-
um Björgvin með miklum sökn-
uði.
Edda.