Morgunblaðið - 14.09.2016, Side 31
Kosning um framlag Íslands til Óskarsverð-
launanna á næsta ári er hafin. Kosið er á milli
þeirra fjögurra íslensku kvikmynda sem uppfylla
skilyrði bandarísku kvikmyndaakademíunnar og
eru frumsýndar á bilinu 1. október 2015 til 20.
september 2016. Myndirnar eru, í stafrófsröð:
Eiðurinn í leikstjórn Baltasars Kormáks; Fyrir
framan annað fólk í leikstjórn Óskars Jónassonar;
Reykjavík í leikstjórn Ásgríms Sverrissonar og
Þrestir í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar.
Kosning
hafin um fram-
lag Íslands
Uppselt Um eitt þúsund tónleikagestir hlýddu á vinsælustu lög Freddie Mercury á fjölmennum tónleikum í Hofi.
»Góð stemning var í
menningarhúsinu
Hofi á Akureyri um
liðna helgi þegar fluttar
voru helstu perlur
Freddie Mercury sem
orðið hefði sjötugur 5.
september sl. hefði
hann lifað. Vegna mik-
illar eftirspurnar Norð-
lendinga var boðið upp
á tvenna tónleika og
var uppselt á hvora
tveggja, sem þýðir að
um eitt þúsund gestir
hlýddu á tónlistina.
Fullt hús á minningartónleikum um Freddie Mercury
Rokkarar Eyþór Ingi og Magni þöndu raddböndin saman í dúett.
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016
Sjávarútvegur er einstökgrein iðnaðar. Verksmiðj-urnar eru ekki staðbundn-ar heldur á fleygiferð úti
um allan sjó að eltast við aðföng
framleiðslunnar. Óvissa ríkir um
framleiðsluna, hve mikil hún verð-
ur næsta tímabil og ekki er með
öllu ljóst hvað verður framleitt,
hvað kemur upp úr kafinu. Vegna
kostnaðar við mælingar og aðgrein-
ingu er eignarréttur á aðföngunum
– á einstökum sjávardýrum – yf-
irleitt ekki virkur, de facto, fyrr en
þau eru dregin úr sjó. Ágúst Ein-
arsson hefur samið fróðlega og
skemmtilega bók, með alfræðilegu
ívafi um þessa undirstöðu íslensks
atvinnulífs. Strax og bókinni er
flett blasir við yfirburðaþekking
Ágústs á viðfangsefninu. Faðir
hans var umsvifamesti útgerð-
armaður landsins, Ágúst hefur
sjálfur gert út togara, rekið sjáv-
arútvegsfyrirtæki, lokið dokt-
orsprófi í hagfræði í Hamborg,
gegnt starfi prófessors í rekstr-
arhagfræði við Háskóla Íslands og
á Bifröst, staðið að stofnun fisk-
markaða á Íslandi, setið á þingi,
verið formaður bankaráðs Seðla-
bankans og formaður samninga-
nefndar ríkisins, meðal annars.
Bókin er tileinkuð öfum og ömmum
Ágústs. Föðurafi Ágústs, sem líkist
honum í útliti og sennilega skap-
ferli, var Sigurður Sigfinnsson,
hreppstjóri og útvegsbóndi í Vest-
mannaeyjum. Um Sigurð formann
orkti Magnús Stefánsson, sem tók
sér skáldaheitið Örn Arnarson,
mikið ljóð. Þar segir:
Flestir þeir, er Sigurð sáu
sitja skrift og reikning við,
heldur kusu að hafa séð hann
herklæddan að fornum sið.
Ágúst hefur að hætti afa síns
setið við skrift en einnig barist frá
fyrstu tíð fyrir félagslegum umbót-
um. Hann hefur óeigingjarn fylgt
sannfæringu sinni og reynt að láta
gott af sér leiða. Ég sé minn fyrr-
verandi samstarfsmann í Háskóla
Íslands oft fyrir mér herklæddan
að fornum sið í glímu við þursa og
nátttröll sem setja svip sinn á ís-
lenskt landslag.
Ritið Íslenskur sjávarútvegur er
efnismikið og fjallar um ólíklegustu
málefni, að hætti þýskra. Meðal
annars er rætt um upphaf mann-
legra samfélaga og sjávarútvegs,
hafið og lífríki þess, fiskafla á
heimsvísu, markaðslögmál í sjávar-
útvegi, veiðar við Ísland að fornu
og nýju, aðferðir við stjórnun fisk-
veiða hér á landi og erlendis.
Fjallað er um vinnslu og markaðs-
setningu sjávarfangs af mikilli
þekkingu og rækilega greint frá
innri fjármálum í sjávarútvegi.
Rætt er um konur og sjósókn, lög
og stofnanir í tengslum við sjávar-
útveg, menntun og rannsóknir og
slysavarnir í sjávarútvegi. Bókin
notar dæmisögur til að skýra efnið
og æviágrip einstaklinga sem mót-
að hafa íslenskan sjávarútveg.
Ágúst er ritfær, bókin er skemmti-
leg og fjarri því að vera þurr eða
þunglamaleg. Sá sem bókina les
verður margs vísari, til dæmis að
eldi sjávarfangs hefur vaxið hratt
og mest í Asíu, og nú er svo komið
að heimsaflinn skiptist nokkuð
jafnt milli veiða og eldis.
Rauði þráðurinn eða kjarninn í
Íslenskum sjávarútvegi er hag-
fræði: hvaða skipulag veiða, vinnslu
og sölu er líklegast til að hámarka
sköpun verðmæta í greininni. Höf-
undur bendir á að í sjávarútvegi
(og öðrum greinum atvinnulífsins)
komi önnur markmið til greina en
verðmætasköpun, svo sem byggða-
stefna á kostnað hagkvæmni. Að
hætti hagfræðinnar fjallar Ágúst
fyrst og fremst um áhrif af ólíku
skipulagi á hagkvæmni í sjávar-
útvegi og greining hans er í senn
fagleg og í samræmi við meg-
instrauma í fræðunum. Umfjöllunin
er stálheiðarleg og sanngjörn. Það
er til fyrirmyndar að Ágúst hleypir
sínum sjónarmiðum ekki að fyrr en
í lok bókarinnar í stuttum und-
irkafla sem
nefnist „til-
lögur til um-
bóta“. Hann
hefur
áhyggjur af
því að óviss-
an sem
fylgir lát-
lausum deil-
um um
stjórnun
fiskveiða
kunni að
skaða þjóð-
arbúskapinn
og mælir
með skyn-
samlegri málamiðlun.
Ég lýk þessari umfjöllun með
eigin hugleiðingum um rentu-
hugtakið. Hagræn rök fyrir því að
ríkið skattleggi auðlindarentuna í
sjávarútvegi byggjast á hug-
myndum sem mótuðust í frum-
bernsku hagfræðinnar. Auðlinda-
rentan er gjöf náttúrunnar en ekki
verk framleiðandans og þess vegna
breytist hegðun hans ekki þótt rík-
ið taki til sín alla auðlindarentuna.
Framleiðandinn á ekki annars kost
en að sætta sig við lágmarks-
afrakstur af erfiði sínu og fjárfest-
ingum. Skattur á auðlindarentuna
er hlutlaus og þess vegna er rentan
besti skattstofn sem kostur er á. Í
þessari gömlu mynd af atvinnulíf-
inu eru þöglar forsendur sem
skipta máli: Umgerð atvinnulífsins,
svo sem lagaramminn, er þegar til
staðar. Skipulag og tæknistig fram-
leiðslunnar eru gefin stærð. Eft-
irspurn eftir afurðinni ákvarðast af
þáttum sem framleiðandinn hefur
enga stjórn á, svo sem fólksfjölgun
eða tekjum neytenda.
Ef forsendurnar um skipulag,
tækni og eftirspurn eru rýmkaðar,
kemur til sögunnar ný tegund af
rentu, sem nefnist ýmsum nöfnum
svo sem gervi-renta, Schumpeter-
renta eða frumkvöðla-renta. Gróða-
von og samkeppni rekur framleið-
endur til að bæta framleiðslu-
tæknina, endurskipuleggja
reksturinn og jafnframt leitast við
að auka eftirspurnina með fjárfest-
ingu í vöruþróun og bættri mark-
aðssetningu. Ef Schumpeter-rentan
er fjarlægð með sköttum eða upp-
boðum breytist hegðun framleið-
enda. Þeir draga úr fjárfestingu í
tækni og nýsköpun, þegar til lengri
tíma er litið. Jafnframt er nær
ógerlegt fyrir stjórnvöld að mæla
sitt í hvoru lagi gömlu auðlinda-
rentuna og Schumpeter-rentuna og
taka til sín aðeins þá fyrrnefndu.
Auðveldara og farsælla er að styðj-
ast við almenna skattlagningu á
starfsemi framleiðandans. Mynd
2.5 í bók Ágústs, sem hann nefnir
grindvíski nútímaþorskurinn, und-
irstrikar vaxandi mikilvægi
Schumpeter-rentunnar í íslenskum
sjávarútvegi. Virði þorsksins er
5.000+ krónur. Þar af eru flök,
flött og söltuð 2.200 kr.; auka-
afurðir (haus, beingarður, hrogn,
lifur, sundmagi o.fl.) 1.100 kr.; og
loks viðbótarhráefni, þar á meðal
lyf, smyrsl og margt fleira, 1.800+
kr. Dæmið sýnir að frumkvöðlar
bókstaflega framleiða Schumpeter-
rentuna með langvarandi tilraunum
sem líkja má við leit í myrkri.
Bók Ágústs er afrek. Hann stíg-
ur fram á ritvöllinn herklæddur að
fornum sið en jafnframt brosmild-
ur, vitur, sanngjarn og afskaplega
fróður um viðfangsefnið. Og bókin
er skemmtileg.
Fræðirit
Íslenskur sjávarútvegur í alþjóðlegu
samhengi
eftir Ágúst Einarsson. Útg. Háskólinn á
Bifröst og Háskólinn á Akureyri. 376
bls. innb.
ÞRÁINN
EGGERTSSON
BÆKUR
Á hafi kólgu og ströngu
Ágúst Einarsson
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 16/9 kl. 20:00 86. sýn Sun 2/10 kl. 20:00 94. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 102. s.
Lau 17/9 kl. 20:00 87. sýn Fim 6/10 kl. 20:00 95. sýn Fim 20/10 kl. 20:00 103. s.
Sun 18/9 kl. 20:00 88. sýn Fös 7/10 kl. 20:00 96. sýn Fös 21/10 kl. 20:00 104. s.
Fös 23/9 kl. 20:00 89. sýn Lau 8/10 kl. 20:00 97. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 105. s.
Lau 24/9 kl. 20:00 90. sýn Sun 9/10 kl. 20:00 98. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 106. s.
Sun 25/9 kl. 20:00 91. sýn Fim 13/10 kl. 20:00 99. s. Fim 27/10 kl. 20:00 107. s.
Fös 30/9 kl. 20:00 92. sýn Fös 14/10 kl. 20:00 100. s. Fös 28/10 kl. 20:00 108. s.
Lau 1/10 kl. 20:00 93. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 101. s. Lau 29/10 kl. 20:00 109. s.
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 24/9 kl. 13:00 Frums. Lau 1/10 kl. 13:00 3. sýn Lau 8/10 kl. 13:00 5. sýn
Sun 25/9 kl. 13:00 2. sýn Sun 2/10 kl. 13:00 4. sýn Sun 9/10 kl. 13:00
Verðlaunasaga Andra Snæs Magnasonar
Sending (Nýja sviðið)
Fim 15/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 17/9 kl. 20:00 4. sýn Lau 24/9 kl. 20:00 6. sýn
Fös 16/9 kl. 20:00 3. sýn Mið 21/9 kl. 20:00 5. sýn Sun 25/9 kl. 20:00 8. sýn
Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00
Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00
Hannes og Smári (Litla sviðið)
Fös 7/10 kl. 20:00 Frums. Fös 14/10 kl. 20:00 3. sýn Sun 16/10 kl. 20:00 5. sýn
Lau 8/10 kl. 20:00 2. sýn Lau 15/10 kl. 20:00 4. sýn Fim 3/11 kl. 20:00 aukas.
Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar
NJÁLA – ★★★★ „Unaðslegt leikhús“ S.J. Fbl