Morgunblaðið - 14.09.2016, Side 19

Morgunblaðið - 14.09.2016, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 Á verði Steingerð tröll leynast víða í íslenskri náttúru. Hvað þau hugsa og gera er ekki alltaf ljóst en sum þeirra fylgjast vel með öllu sem fyrir augu ber. RAX Sjálfstæðismenn hafa alla tíð lagt áherslu á að leikreglur samfélagsins séu skýr- ar, einfaldar og gagn- sæjar og umfram allt að allir skulir standa jafnir fyrir lögum og reglum. Stjórnlyndir andstæðingar Sjálf- stæðisflokksins – sem oftar en ekki vilja kenna sig við frjáls- lyndi – eru hins vegar sannfærðir um ágæti þess að setja lög og reglur um flest ef ekki allt er viðkemur mannlegri hegðun. Þar skiptir jafn- ræði einstaklinganna minnstu – mik- ilvægast er að ná fram ákveðnum pólitískum markmiðum. Þess vegna er talið eðlilegt að breyta stöðugt leikreglunum til að fá „hina einu réttu niðurstöðu“. „Almenningur er fávís og því þarf að hafa vit fyrir honum og verja gagnvart sjálfum sér. Auðvitað er þetta aldrei sagt upphátt en er þó grunnstefið í hugmyndafræði stjórn- lyndra manna, sem telja nauðsyn- legt að ríkið sé alltumlykjandi.“ Þannig hófst grein sem ég skrifaði hér í Morgunblaðið í byrjun mars síðastliðins. Ég hélt því fram að hug- myndafræði stjórnlyndis hefði gegn- sýrt stjórnsýslu, fjölmiðla og stjórn- mál. Ídeólógía barnfóstru ríkisins sé ráðandi þar sem ekkert vandamál er talið of lít- ið eða of stórt til að barnfóstran sé ekki kölluð á vettvang. Nomenklatúran Hinir stjórnlyndu vilja að barnfóstran sé alltaf á vaktinni – passi að almenningur taki „réttar“ ákvarðanir og grípi til sinna ráða ef hann villist af leið. Þetta er ný-frjálslyndi samtímans. Nomenklatúra hins pólitíska rétt- trúnaðar tekur ákvörðun um hvað sé rétt og hvað rangt. Elítan telur sér skylt að beita öllum tiltækum ráðum til að „leiðrétta“ ákvarðanir kjós- enda sem taldar eru skaðlegar og vitlausar. Nomenklatúran – elítan – er sann- færð um að lýðræðið sé af hinu góða, enda fylgi almenningur leiðsögn þeirra sem best eru til þess fallnir að taka mikilvægar ákvarðanir. Það er sagt merki um heilbrigt og opið starf stjórnmálaflokks að leyfa flokks- mönnum að velja með beinum hætti á framboðslista fyrir kosningar, en allt undir vökulu auga elítunnar sem fær barnfóstruna til að „lagfæra“ það sem miður fer. Þetta þykir sjálf- sagt meðal stjórnlyndra stjórnmála- flokka en Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur neitað að gangast undir völd fámennrar nomenklatúru. Grunnstef Öflug millistétt og sjálfstæðir at- vinnurekendur eru burðarásar allra velferðarsamfélaga. Þessir burðar- ásar þrífast aðeins ef allir eru jafnir fyrir lögum og reglum. Velmegun frjálsrar þjóðar er undir því komin að þessari einföldu reglu réttarríkis- ins sé fylgt. En með sama hætti og nauðsyn- legt er að tryggja jafnræði verður að tryggja stöðugleika og koma í veg fyrir að leikreglum sé breytt í tíma og ótíma (jafnvel eftir á), þannig að útilokað sé að taka skynsamlegar ákvarðanir um framtíðina. Einstaklingar og fyrirtæki taka mikilvægar ákvarðanir á hverjum degi og skipuleggja framtíðina. Ákvarðanir sem teknar eru í góðri trú eru að engu gerðar þegar leik- reglum er breytt. Fjárhagslegum forsendum fjölskyldu, sem ræðst í íbúðarkaup, er gjörbreytt þegar stjórnmálamenn ákveða að hækka opinber gjöld og skatta. Stjórnendur fyrirtækis geta ekki tekið ákvörðun um fjárfestingar í nýjum tækjum, fasteignum og fjölgun starfsmanna, vegna ótta við að skattkerfinu sé breytt eða lögum umbylt og stoð- unum kippt undan rekstrinum. Þeir eiga það jafnvel á hættu að stjórn- völd geri ívilnunarsamninga við keppinauta, sem í krafta sérréttinda stunda undirboð á vöru og þjónustu, jafnt innanlands sem utan, eins og dæmi eru um. Heimilin og atvinnulífið halda að sér höndum í umhverfi þar sem regluverkið er síbreytilegt og jafn- ræði er brotið. Afleiðingin er stöðn- un og verri lífskjör. Jafnræði, stöð- ugleiki og skýrar leikreglur eru forsenda framfara, ekki aðeins í efnahagslífinu heldur í samfélaginu öllu – í menningu, listum og stjórn- málum. Og það segir sig sjálft að eft- ir því sem leikreglurnar eru einfald- ari og skýrari því minni ástæða er til þess að breyta þeim. Súrefni stjórnlyndis Stjórnlyndi og pólitísk rétthugsun ganga þvert á grunnstefnu Sjálf- stæðisflokksins um frelsi ein- staklingsins til orðs og æðis. Birgir Kjaran var einn merkasti þing- og hugsjónamaður Sjálfstæðisflokks- ins. Í erindi sem hann flutti árið 1959 sagði hann meðal annars: „Í krafti trúarinnar á manninn telja Sjálfstæðismenn, að ein- staklingurinn skuli njóta mannhelgi, og að frumréttur hans sé frelsið, andlegt frelsi og efnahagslegt frelsi. Æðsta takmark samfélags á því að vera að veita einstaklingunum allt það frelsi, sem þeir þarfnast til þess að fá að fullu notið hæfileika sinna og mannkosta, án þess að þrengja eða óvirða rétt annarra einstaklinga eða tefla öryggi þjóðarheildarinnar í hættu. Sérhver einstaklingur er því verðmætasta eining þjóðfélagsins, en ekki sérhver stétt eða aðrar fé- lagseiningar, eins og sumar aðrar þjóðmálastefnur vilja láta í veðri vaka.“ Hugmyndafræði stjórnlyndis sækir súrefni sitt í átök. Lands- byggð gegn höfuðborg. Landbún- aður á móti neytendum. Stétt gegn stétt. Tækifæri stjórnlyndra liggja í því að reka fleyga milli kynslóða, á milli launamanna og atvinnurekenda og ekki síst á milli karla og kvenna. Þá er alltaf hægt að réttlæta inngrip í mannlega hegðun – færa rök fyrir nauðsyn þess að barnfóstra nomen- klatúrunnar sé vakin og sofin, tilbú- in til að leiðrétta „rangar“ ákvarð- anir. Þannig er tryggt að niðurstaðan sé í samræmi við póli- tíska rétthugsun. Eftir Óla Björn Kárason » Það er sagt merki um heilbrigt og opið starf stjórnmálaflokks að leyfa flokksmönnum að velja á framboðslista, en allt undir vökulu auga elítunnar. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Vökult auga stjórnlyndrar elítu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.