Morgunblaðið - 14.09.2016, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.09.2016, Qupperneq 8
Vinna við lokafrágang fangels- isins á Hólmsheiði gengur hægar en vonast hafði verið eftir. Fang- elsið var formlega tekið í notkun í fyrri hluta júnímánaðar og gerðu þá áætlanir ráð fyrir fyrstu föngum síðsumars. ,,Þetta gengur hægar en við vonuðumst eftir. Við vinnum núna undir mikilli tímapressu og gerum ráð fyrir fyrstu föngunum í lok mán- aðarins. Það er þó að því gefnu að öll öryggiskerfi virki og að starfsmenn verði búnir að læra á þau,“ segir Páll Winkel fangels- ismálastjóri. Hann gerir ráð fyrir að fyrstu fangarnir verði konur sem nú af- plána dóma. Það megi gera ráð fyrir að innan þriggja mánaða verði komnir á bilinu 25-30 fang- ar upp á Hólmsheiði. Þar er rými fyrir 56 fanga sem sæta gæsluvarðhaldi og ein- angrun auk sérstakrar álmu fyrir langtímavistun kvenna. Kvenfangar fyrstir til að flytja í fangelsið á Hólmsheiðinnni Morgunblaðið/Árni Sæberg Fangelsi Gert er ráð fyrir fyrstu föng- unum á Hólmsheiði í lok september. 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 þegar þú vilt kvarts stein á borðið Blettaábyrgð Viðhaldsfrítt yfirborð Slitsterkt Bakteríuvörn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is By Cosentino Vef-Þjóðviljinn segir um-ræðuna eftir prófkjör helg- arinnar sýna að aðeins tveir frambjóðendur voru í kjöri:    Frambjóð-andinn Allir Karlar, og hann vann og frambjóð- andinn Allar Konur, sem tapaði. Í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík buðu sig fram 15 einstaklingar, 8 karlar og 7 kon- ur. Þegar 15 bjóða sig fram verður niðurstaðan sú að 9 fram- bjóðendur ná því ekki að verða meðal sex efstu. Í þessu próf- kjöri voru það 5 karlar og 4 kon- ur sem ekki náðu í hóp sex efstu. Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi buðu sig einnig fram 15 einstaklingar og aftur voru það 8 karlar og 7 konur. Þar voru það 4 karlar og 5 konur sem ekki náðu í hóp sex efstu.    Í suðurkjördæmi buðu 11 ein-staklingar sig fram hjá Sjálf- stæðisflokknum, 8 karlar og 3 konur. Aðeins voru birt úrslit í fimm efstu sætin. Af frambjóð- endunum 11 voru fimm karlar og ein kona sem ekki náðu í hóp fimm efstu. Í norðvesturkjördæmi buðu 10 einstaklingar fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, 7 karlar og 3 konur. Röðun fjögurra efstu var birt eftir prófkjörið, karl- maður í fyrsta og þriðja sæti, kona í öðru og fjórða. Þannig sést að fimm karlar og ein kona náðu ekki í hóp fjögurra efstu.“    Síðar segir: „Sá sem ekki kýseinhvern kvenframbjóðanda sleppir líka mörgum karl- frambjóðendum. Af hverju halda menn að konunni sé sleppt af kynjaástæðum en körlunum af einhverjum betri ástæðum?“ Kynleg umræða STAKSTEINAR Veður víða um heim 13.9., kl. 18.00 Reykjavík 11 léttskýjað Bolungarvík 9 heiðskírt Akureyri 7 alskýjað Nuuk 8 skýjað Þórshöfn 12 heiðskírt Ósló 22 léttskýjað Kaupmannahöfn 24 heiðskírt Stokkhólmur 21 léttskýjað Helsinki 17 heiðskírt Lúxemborg 29 heiðskírt Brussel 31 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 17 rigning London 30 heiðskírt París 30 heiðskírt Amsterdam 30 heiðskírt Hamborg 30 heiðskírt Berlín 30 heiðskírt Vín 27 heiðskírt Moskva 11 heiðskírt Algarve 26 léttskýjað Madríd 17 léttskýjað Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 29 léttskýjað Róm 23 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 9 skýjað Montreal 21 léttskýjað New York 24 léttskýjað Chicago 22 rigning Orlando 27 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 14. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:50 19:57 ÍSAFJÖRÐUR 6:52 20:05 SIGLUFJÖRÐUR 6:35 19:48 DJÚPIVOGUR 6:19 19:28 Fé verður slátrað í sláturhúsinu á Seglbúðum í Landbroti í haust. Er- lendur Björnsson bóndi segir umfang þess þó enn ekki ljóst. Sláturhúsið á Seglbúðum hefur verið rekið í tvö ár og slátrað á annað þúsund fjár á hausti. Það hefur lent í ýmsum þrengingum að undanförnu. Vegna ágreinings eigenda og Mat- vælastofnunar var sett sölubann á af- urðir þess um tíma snemma á þessu ári. Þá þornuðu upp vatnslindir og heimarafstöðin stöðvaðist. Hún var mikilvæg forsenda rekstursins. Loks má nefna að erfitt hefur verið að selja lambakjöt vegna samkeppni á mark- aðnum og birgðir safnast upp. Greiðir hærra verð „Ég hef getað fengið þau lömb sem ég hef viljað enda borgað hærra verð en aðrir. Það er dýrara að slátra í litlum sláturhúsum en það hefur gengið vel og skilar sér í meirigæð- um. Kjötið verður því dýrara og menn eru ekki alltaf tilbúnir til að greiða fyrir það sem þarf,“ segir Er- lendur. Seglbúðamenn hafa slátrað fé fyrir sauðfjárbónda sem tekur kjötið heim og selur beint frá býli. Erlendur seg- ir reksturinn mikilvægan fyrir þenn- an viðskiptavin og það hafi ýtt á þau að halda áfram. helgi@mbl.is Slátrað verður í Seglbúðum í haust  Ekki ljóst hversu mörgum lömbum verður slátrað  Erfitt að selja kjötið Hausaverkun Slátrun er er hafin í öllum stærri sláturhúsum landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.