Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 10

Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 „Rjúpnastofninn fór að dala í takt við fjölgun tófunnar,“ sagði Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp. „En það er eins og að nefna snöru í hengds manns húsi að minnast á ref sem skaðræð- isdýr hvort sem er í rjúpu eða öðru fuglalífi.“ Heimaslóðir Indriða voru mikið rjúpnaland en það hefur mikið breyst. „Ég hef ekki séð rjúpu með unga í allt sumar og í haust á þess- um mögnuðu rjúpnaslóðum í kjarr- lendinu hér í kringum mig og norð- an Djúps,“ sagði Indriði. Hann er þess fullviss að fjölgun refa sé aðalorsökin fyrir vandræð- um rjúpnastofnsins. Það sé ómögu- legt að ætla að ná rjúpnastofninum upp í sömu stærð og hann var í meðan miklu minna var af ref í landinu en nú. „Rétt fyrir 1980 var talið að hér væru um 2.000 refir. Núna held ég að það sé verið að velta því fyrir sér hvort þeir séu 14–16 þúsund. Allir sem koma eitthvað nálægt grenja- vinnslu og vetrarveiði vita hvílík ógnarleg fjölgun hefur orðið á ref alls staðar á landinu,“ sagði Indriði. Hann telur að meint streita af völdum skotveiða á rjúpuna sé lítil miðað við áhrif refsins. „Hlíðarnar hér eru flúraðar á haustin af tófu- slóðum eftir að kominn er snjór og ríkisrefurinn kominn norðan af Hornströndum. Rjúpurnar fá ekki neinn einasta frið, hvorki til að safna í sarpinn eða hvíla sig.“ gudni@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Rjúpa á hreiðri Indriði á Skjaldfönn segir refinn stöðugt eltast við rjúpur. Refurinn orsök fækkunar rjúpu  Rjúpu fækkaði þegar ref fjölgaði Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðin stefnir að því að um- hverfisskýrsla vegna lagningar Vest- fjarðavegar um Gufudalssveit verði tilbúin fyrir áramót. Takist það munu undirbúningsframkvæmdir í Djúpa- firði hefjast á fyrri hluta næsta árs. Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa fyrir nokkru lokið við að endurskoða frummatsskýrslu, meðal annars vegna ábendinga Skipulagsstofnun- ar, og er beðið eftir grænu ljósi þaðan svo hægt sé að kynna skýrsluna og auglýsa eftir athugasemdum. Umhverfismatið nær yfir veginn frá Skálanesi í Bjarkarlund. Fram- kvæmdin felur í sér þveranir Gufu- fjarðar, Djúpafjarðar og Þorska- fjarðar og leiðin mun liggja um Teigsskóg í Þorskafirði. Vegur að framkvæmdasvæðinu Magnús Valur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar, segir að stefnt hafi verið að því að umhverfisskýrsla yrði tilbúin nú á haustmánuðum en það hafi dregist, meðal annars vegna anna hjá Skipulagsstofnun. Nú sé stefnt að því að umhverfismati ljúki í desember. Fyrr sé ekki hægt að sækja um framkvæmdaleyfi til sveit- arfélagsins og ganga til samninga við landeigendur. Yngvi Árnason, svæðisstjóri Vega- gerðarinnar í Vesturlandsumdæmi, vonast til að hægt verði að fara í upp- hafsframkvæmdir snemma á næsta ári. Byrjað verður á lagningu vegar út Djúpafjörð sem mun þjóna sem að- komuvegur að framkvæmdasvæði við þveranir Gufufjarðar og Djúpa- fjarðar og sem framtíðarvegtenging við bæinn Djúpadal. Í ósamþykktri vegaáætlun er gert ráð fyrir fjárveitingum til vegagerðar í Gufudalssveit næstu árin. Umræddur vegur er gamall mal- arvegur sem liggur um brattar brekkur hálsanna. Er þetta orðið eini malarkaflinn á leiðinni frá sunnan- verðum Vestfjörðum til höfuðborgar- svæðisins. Undirbúningsfram- kvæmdir á næsta ári  Reynt að ljúka umhverfismati Vestfjarðavegar fyrir áramót Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vegabætur Teigsskógur liggur út með Þorskafirði og sést í hann af veg- inum niður Hjallaháls. Vestfirðingar hafa lengi beðið um betri veg. Langvarandi deilur » Deilur hafa lengi staðið um lagningu nýs kafla Vest- fjarðavegar um Gufudalssveit. » Landeigendur í Teigsskógi fengu fyrri áformum um veg um Teigsskóg hnekkt. » Málið komst í pattstöðu þar til Vegagerðin fékk heimild til endurupptöku á umhverf- ismatinu sem dæmt var ógilt og sú vinna stendur enn yfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.