Morgunblaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016
TWIN LIGHT gardínum
Betri birtustjórnun með
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
40 ára
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Ég fæ alltaf klikkaðarhugmyndir. Þær komabara. Ég get ekkert annaðgert en framkvæmt þær,“
segir Svisslendingurinn Sara Hochuli
sem opnar Kumiko tehús við höfnina í
Grandagarði 8. október nk. Á boð-
stólum verða litríkar kökur, grænt te
frá Japan og kaffi. Sara er grafískur
hönnuður og kökugerðarmeistari en
hún er þekkt í heimalandi sínu,
Bandaríkjunum og Þýskalandi fyrir
litríkar kökur sem sækja innblástur
m.a. í japanskar manga-teiknimynd-
ir.
Heiti staðarins Kumiko vísar til
persónu sem Sara skapaði fyrir
nokkrum árum en stór mynd af henni
er það fyrsta sem blasir við gestum
þegar gengið er inn á staðinn. Ku-
miko er annað tehúsið sem Sara opn-
ar en fyrir tæpum sex árum opnaði
hún tehúsið Miyuko í Zürich í Sviss
sem hefur vægast sagt slegið í gegn.
Tehúsin eru eins konar systur, lík en
samt ekki eins.
Ætluðu fyrst að opna
á Íslandi
Sara kom í fyrsta skipti til lands-
ins árið 2009 með kærasta sínum
Dominik á tónlistarhátíðina Airwaves
og féll fyrir landinu.
„Þegar við fengum þessa hug-
mynd að opna tehús vildum við gera
það hér. Við sögðum að það yrði
miklu svalara en í Zürich. Þegar við
skoðuðum málið betur komumst við
að því að við þyrftum að þekkja fleira
fólk og einnig setti það strik í reikn-
inginn að hér var ekki framleitt nógu
gott súkkulaði sem við gátum notað,“
segir Sara, og Zürich varð því fyrir
valinu fyrst um sinn. Þegar Sara
komst í kynni við íslenska súkku-
laðifyrirtækið Omnomm fyrir nokkr-
um árum breyttist þetta og nú er hún
í samstarfi við það. Sara leggur mikið
upp úr því að hráefnið sem hún vinn-
ur með sé gott.
„Kökurnar verða að bragðast
vel, að minnsta kosti jafn vel og þær
líta úr fyrir að vera,“ segir hún. Kök-
unar sem Sara skapar eru engar
venjulegar kökur heldur eru þær
listaverk.
Áhugi á bakstri og kökugerð er
ekki nýtilkominn hjá Söru en hún
hefur bakað frá því hún man eftir sér.
Fyrir nokkrum árum fór hún í nám í
kökugerð í Þýskalandi. Hún segist
hafa lært mikið þar og ekki síst hefur
hún lært af reynslunni.
„Ég er oft spurð, af því ég er
grafískur hönnuður, af hverju ég hafi
snúið mér að kökugerð. Ég vil frekar
segja að ég bý til grafíska hönnun í
kökugerðinni,“ segir hún og bendir á
það sé hægt að skapa nánast allt úr
ætum efnivið eins og t.d. sykri og
súkkulaði.
Í þessu samhengi nefnir hún
einnig pappír sem er búinn til úr hrís-
grjónum og hægt er að prenta á.
„Þetta hefði ekki verið hægt fyrir tíu
árum. Efniviðurinn er endalaus og
þar með eru möguleikarnir til að
Íslendingar opnir
fyrir nýjungum
Svissneska listakonan og kökugerðarmeistarinn Sara Hochuli heillaðist af Ís-
landi á tónlistarhátíðinni Airwaves árið 2009. Nú er hún flutt til landsins og opn-
ar brátt Kumiko tehús í Grandagarði þar sem litríkar kökur og frumlegur matseð-
ill undir áhrifum japanskra manga-teiknimynda njóta sín. Hún á og rekur
sambærilegt tehús í Zürich sem nefnist Miyuko.
Ljósmynd/Ethan Oelman
Listakona Sara Hochuli á milli systranna Kumiko og Miyuko.
Nú þegar haustið hefur laumast upp
að okkur með sínu mjúka myrkri er
um að gera að huga að því hvað sé
hægt að gera til að stytta sér stund-
ir á köldum kvöldum. Ótal námskeið
eru í boði á hinum ólíkustu sviðum
en fyrir þá sem hafa gaman af því að
dansa og langar að ná tökum á ein-
hverju nýju er vert að minna á að síð-
ar í þessum mánuði, 22. september,
fer af stað í Kramhúsinu sex vikna
byrjendanámskeið í argentínskum
tangó. Þessi ástríðuþrungni og fagri
dans á rætur sínar að rekja til Bue-
nos Aires í Argentínu en hann er
dansaður úti um víða vestræna ver-
öld. Á námskeiðinu í Kramhúsinu
verður kennt einu sinni í viku, á
fimmtudagskvöldum, og nauðsyn-
legt er að hafa dansfélaga með sér.
Um kennsluna sjá þau Tryggvi Hjörv-
ar og Þórunn Sævarsdóttir. Nánari
upplýsingar og skráning á heima-
síðu Kramhússins:
kramhusid.is/events/tango/.
Þeim sem vilja taka þátt í nám-
skeiðinu en vantar dansfélaga er
vert að benda á að hægt er að nýta
sér Facebook-hóp sem nefnist Tango
club Reykjavík – Partnersearch.
Tangófélagið býður þátttakendum
á námskeiði Kramhússins ókeypis
aðgang að tangó-dansleikjum, eða
„milongum“ félagsins, á meðan á
námskeiðinu stendur. Tangófélagið
stendur fyrir tveimur slíkum dans-
leikjum í viku, á miðvikudögum kl.
21-23 á Kaffitári (Bankastræti 8) og
í Kramhúsinu (Skólavörðustíg 12) á
föstudagskvöldum kl. 21-24. Að-
gangur er opinn öllum sem vilja æfa
sig, kynna sér sporin, hlusta á tón-
listina og eiga notalega kvöldstund
með góðu fólki.
Sérstök athygli er vakin á því að
milli kl. 21 og 22 á föstudögum er
æfingastund í Kramhúsinu, en þá er
tilvalið að æfa nýju sporin sem
kennd voru á námskeiðinu kvöldið
áður hjá Tryggva og Þórunni.
Endilega …
AFP
Tangó Þessi tvö, Simone Facchini og Gioia Abballe, sem koma frá Ítalíu, kepptu
til úrslita í argentínskum tangó í Buenos Aires í Argentínu í sumar.
… skellið ykkur í sjóðheitan arg-
entínskan tangó
Tölvufíkn hefur orðið til með bless-
uðum tölvunum sem enginn virðist
geta verið án í nútímasamfélagi,
hvort sem það er í vinnu eða í einka-
lífi. Farsímarnir eru ekkert annað en
litlar lófatölvur og margir eru þreyttir
á samvistum með þeim sem geta
ekki sleppt því að vera sífellt að líta á
símaskjáinn í lófanum. Tölvufíkn er
alvarlegt mál eins og öll fíkn, og gott
getur verið að þekkja einkennin. Á
morgun, fimmtudag, kl. 18 er hægt
að fræðast um tölvufíkn og afleið-
ingar hennar í erindi sem haldið verð-
ur í Borgartúni 22, 3. hæð
(Flugfreyjusalnum). Geðheilsustöð
Breiðholts og Hugarafl standa að
fræðsluerindinu og fyrirlesari er Þor-
steinn Kristján Jóhannsson fram-
haldsskólakennari. Ókeypis og allir
velkomnir.
Vefsíðan www.hugarafl.is
Ókeypis fræðsla um tölvufíkn
Morgunblaðið/Ernir
Tölvufíkn Fyrirbærið tölvufíkn er alvarlegt og getur náð heljartökum á fólki.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.