Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 18

Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mannrétt-inda-yfirlýsing Sameinuðu þjóð- anna er afdrátt- arlaust skjal. Meðal forsendna hennar er að „viðurkenning þess að allir séu jafnbornir til virðingar og óafsalanlegra réttinda er und- irstaða frelsis, réttlætis og friðar í heiminum“. Í inn- gangi yfirlýsingarinnar er vísað til þess að ekki sé van- þörf á henni vegna þess að mannréttindi hafi verið „van- virt og smánuð“ og það hafi „leitt til siðlausra óhæfuverka sem ofboðið hafa samvisku mannkynsins“. Mannréttindayfirlýsingin var samþykkt árið 1948 í kjöl- farið á tveimur blóðugum heimsstyrjöldum. Í henni seg- ir einnig að hún sé tilkomin vegna þess að því hafi verið lýst sem „æðsta markmiði mannsins að lifa í heimi þar sem allir fái notið tjáningar- og trúfrelsis, séu óttalausir og þurfi ekki að líða skort“. Þótt ýmislegt hafi áunnist síðan yfirlýsingin var sam- þykkt er eins og blasir við að enn eru mannréttindi „van- virt og smánuð“. 33. fundur mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna var settur í gær og lýsti yfirmaður þess, Zeid Ra’ad Al Hussein, yfir því í setning- arræðu að þeim ríkjum færi fjölg- andi, sem neituðu ráðinu um aðgang til að hafa eftirlit með stöðu mannréttindamála. Gagnrýni hans á við um tugi ríkja og má nefna Sýrland, Íran, Kína og Venesúela. Mannréttindaráðið er ekki hafið yfir gagnrýni. Þar hafa setið fulltrúar ríkja sem þekkt eru fyrir annað en að vera með hreinan skjöld í mannréttindamálum. Eitt dæmi um það var ákvörðun um að skipa Faisal bin Hass- an Trad, sendiherra Sádi- Arabíu, til áhrifa í ráðinu. Áð- ur höfðu Sádar dregið til baka framboð til forustu í ráðinu. Á vef samtakanna UN Watch, sem fylgist með frammistöðu SÞ, segir að ráð- ið hafi aldrei beint sjónum að mannréttindabrotum í Sádi- Arabíu. Eftir stendur að allt of víða sitja við stjórnvölinn menn, sem sjá ekki aðra leið til að halda völdum en í krafti mannréttindabrota. Það segir sína sögu að þessir leiðtogar vilji ekki láta hnýsast í sín mál. Þeir eiga ekki að komast upp með að fremja glæpi sína á laun. Þeim sem brjóta mannréttindi er lítið gefið um athygli} „Vanvirt og smánuð“ Hillary Clintonog Donald Trump eru heppin með mótframbjóð- anda enda verður að telja líklegt að hvorugt þeirra ætti mikla möguleika gegn einhverjum öðrum. Trump hefur frá því að hann steig fyrst fram sem mögulegt forsetaefni Repúbl- íkanaflokksins slegið um sig með yfirgengilegum yfirlýs- ingum og eftir því sem líður á baráttuna bætist hringlanda- háttur við. Clinton hefur á síðustu dög- um afrekað það að fara út í svipaðan málflutning með um- mælum um helming stuðn- ingsmanna Trumps, sem hún hefur litlar mætur á. Hún hef- ur síðan hálfpartinn dregið í land með þau ummæli en þó ekki alla leið. Þá hefur Clinton verið ein- staklega ólánsöm þegar kem- ur að meðferð tölvupósta og skýringum á því hvernig þeim málum var háttað á meðan hún var utanríkisráðherra. Aug- ljóst er að þar vantar eitthvað upp á allan sannleikann en svo virðist sem margir kjósi að horfa framhjá því og telji vega þyngra að koma í veg fyrir að Do- nald Trump vermi hásætið í Hvíta húsinu. Það er hins veg- ar ekki víst að Clinton eigi mikið inni þegar kemur að því að segja satt og rétt frá og þess vegna gæti nýjasta málið, heilsufarsmál hennar, komið henni í koll og reynst Trump beitt vopn. Hann hefur þó sjálfur, aldrei þessu vant, stillt sig um að notfæra sér það til árása á andstæðinginn. Vandinn fyrir Clinton er ekki sá að hún hafi veikst í kosningabaráttunni, það gæti komið fyrir fleiri í langri bar- áttu. En það hvernig hún brást við veikindunum, reyndi að fela þau og sagði ekki strax allan sannleikann, gæti rifjað upp fyrir kjósendum fyrri mál þar sem forðast hefur verið í lengstu lög að segja satt og rétt frá. Hvort þetta dugar til að loka því minnkandi bili sem er á milli hennar og Trumps í könnunum er ekki hægt að fullyrða um en þó má telja lík- legt að framboð hennar þoli ekki mikið meira af felu- leikjum gagnvart kjósendum. Hillary Clinton hefur lag á að segja ekki allan sannleikann } Nú er það heilsufarið S vona er þetta bara, sagði maður fyrir aftan mig í röðinni við félaga sinn, þessu verður ekki breytt. Já, þær verða bara að sætta sig við þetta, sagði hinn og þá áttaði ég mig á því um hvað var rætt – þeir félagar voru ekki að ræða um náttúruhamfarir eða -lögmál, þeir voru að ræða um prófkjör Sjálfstæðisflokksins um helgina. Ímyndum okkur heim þar sem stór hluti íbúa, segjum helmingur, náði völdum í krafti líkamsburða fyrir 20.000 árum eða svo. Það sem síðan hefur gerst er að sá helmingurinn sem undirsettur hefur verið er smám saman að láta til sín taka, sækja sér völd til jafns við hinn, en rekst þá á kerfi sem er sniðið að þörfum þeirra sem fyrir eru á valdafleti, kerfi, stofnanir og fé- lög sem sett eru saman fyrir þá sem ráðandi eru og tryggir þeim yfirráðin að miklu eða mestu leyti. Þetta er náttúrlega engin ímyndun, heldur lýsing á mannheimi þar sem helmingurinn, karlar, hafa haft völdin lengst af, en konur sækja sér völd smám saman, til að mynda með því að sækja sér kosningarétt (sem hafðist fyrir 101 ári hér á landi). Það sem konur rákust aftur á móti á, þegar kosningarétturinn var kominn, er að það kerfi sem karlarnir höfðu byggt upp, stjórnkerfi þeirra og stjórnmálaflokkar, landsmálafélög og tengslanet, var byggt upp af körlum fyrir karla, nema hvað, og ekki hlaup- ið að því fyrir konur að komast þar að, ekki síst í ljósi þess að þar sem kona komst hátt varð einhver karlinn að lúffa. Á síðustu árum og áratugum hafa ýmsir stjórnmálaflokkar gert átak í að tryggja að karlar og konur séu jafnsett innan þeirra, kon- ur fái sömu tækifæri og karlar, séu jafn virkur þáttur í starfi þeirra og eigi sömu framamögu- leika. Einn flokkur hefur þráast við, áð- urnefndur Sjálfstæðisflokkur, enda er hann öðrum flokkum fremri í frelsisást, að eigin sögn – þar á bæ er fólk valið eftir verðleikum, þeir hæfustu komast að. Nú má segja sjálf- stæðismönnum það til hróss að fyrsta kona sem varð ráðherra kom úr þeirra röðum („Kona í ríkisstjórn“ sagði í þriggja dálka fyr- irsögn á forsíðu þessa blaðs 12. september 1970 – það vantaði bara upphrópunarmerkið), en ef það er rétt að innan flokksins eigi allir jafna möguleika vakna eðlilega spurningar um atgervi kvenna sem starfað hafa á vegum flokksins í ljósi þess sem gerðist í áðurnefndum próf- kjörum. Þeir sem æmta yfir þeirri kröfu að konur og karlar njóti sömu tækifæra innan stjórnmálaflokka, afgreiða raddir um slíkt gjarnan sem væl. Þeir, eða þau, hafa, að ég best veit, aldrei gert athugasemd við allan þann fjölda karla sem valdir eru fyrst og fremst fyrir það að vera karlar. Valdir vegna þess að þeir geta treyst á kerfi sem smíðað er af körlum fyrir karla og vegna þess að okkur er það inn- rætt að þykja það sem karlar segja merkilegra en það sem konur segja, ekki síst þegar völd eru annars vegar. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Konur og völd STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Já, þetta eru fyrstu breyt-ingar á íslenskum ritreglumsíðan árið 1974 fyrir utan aðárið 1977 voru ákveðin atriði látin ganga til baka sem óánægja var með,“ segir Guðrún Kvaran, for- maður Íslenskrar málnefndar, en á dögunum var auglýst endurskoðun á íslenskum ritreglum í Stjórnar- tíðindunum og hafa þær ritreglur tekið gildi. Árið 1974 hafði það verið sett í ritreglur að þjóðarheiti ættu að vera með litlum staf, þannig ætti til dæmis að skrifa danir og íslend- ingar. Því var breytt til baka árið 1977 vegna almennrar óánægju. Ekki stórvægilegar breyt- ingar á ritreglunum Í nýjum ritreglum er lagt til að öll tungumálaheiti, einnig þau sem leidd eru af sérnafni, verði rituð með litlum staf. Undantekningar geta þó verið samsett heiti þar sem fyrri lið- ur er sjálfstætt sérnafn: Finnlands- sænska og Svíþjóðarfinnska. Þá segir að að jafnaði eigi orða- sambönd með töluorðum að vera rit- uð í aðskildum orðum, sem dæmi: tólf spora kerfi og tuttugu og tveir. Einstaka sinnum megi þó töluorð og nafnorð renna í eignarfalli í eina heild með eftirfarandi nafnorði. Slíkur ritháttur verður þó að styðj- ast við hefð. Sem dæmi: fimmaura- brandari, fjórðapartsnóta. Enginn sinnt þessu í áraraðir Af hverju er svona langt síðan nýjar ritreglur komu fram? „Það var enginn með þetta beinlínis á sinni könnu, fyrr en fyrir tíu árum að stofnanir í íslenskum fræðum voru sameinaðar. Íslensk málnefnd fékk þá ýmis hlutverk sem hún hafði ekki áður. Eitt af þeim var að semja ís- lenskar ritreglur sem gilda meðal annars um stafsetningarkennslu í skólum og ráðherra gefur út. Ef þær eru umtalsverðar verður að leita samþykkis menntamálaráðu- neytisins. Þegar við vorum búin að semja íslenska málstefnu, sem var umtals- verð vinna, ákváðum við að láta fara yfir stafsetningarreglurnar. Unnið hefur verið við þetta í nokkur ár en við skiluðum þessu til ráðherra í vor. Engar athugasemdir komu úr ráðuneytinu. Þá er þetta auglýst. Þetta er ekki reglugerð um stafsetningu, heldur auglýsing um stafsetningu. Ef þetta væri reglu- gerðarbreyting þyrfti hún að fara í gegnum þingið. Þetta eru litlar breytingar í sjálfu sér. Annars vegar var ákveðið að festa skýrar hvort rita skyldi ákveðin sambönd í einu orði eða tveimur og sýna betur með dæmum og hins vegar að hafa skýrari reglur um hvort rita skyldi lítinn eða stór- an staf í orðum sem vafist hafa fyrir mörgum,“ segir Guðrún. Móðurmálskennarar fylgdust með ferlinu hjá málnefndinni En þið kláruðuð þetta í vor. Er ekki ráðuneytið seint að auglýsa þetta? „Það var kannski nokkuð seint en það voru sumarfrí í ráðuneytinu. En það var búið að láta vita af fyr- irhuguðum breytingum hjá Samtökum móð- urmálskennara, þau eiga fulltrúa í Íslenskri mál- nefnd, þannig að þetta á ekki að koma móður- málskennurum á óvænt.“ Hvort á að skrifa Danir eða danir? Morgunblaðið/Ómar Mannleg tengsl Tungumálið er mikilvægt í samskiptum fólks og að sjálf- sögðu skiptir máli hvernig er skrifað og hvort rétt er skrifað. Í nýju ritreglunum frá Íslenskri málnefnd sem birtar voru nýlega eru ekki boðaðar stórvægilegar breytingar. Þar segir þó meðal annars að dýra- og jurtanöfn sem samsett eru þannig að fyrri hlutinn er sérnafn skuli samt sem áður ætíð rituð með litlum staf. Lagt er til í nýjum reglum að þetta gildi um fleiri flokka orða, til dæmis matvæli og lækn- isfræðileg heiti, eins og til dæm- is jakobsfífill og maríustakkur. Sambönd orða með -konar og -kyns má rita sem eina heild en fremur er mælt með rithætti í tveimur orðum. Til dæmis alls kyns/allskyns, eins kon- ar/einskonar. Í stað orða- sambandanna alls stað- ar, sums staðar er heimilt að rita alstaðar og sumstaðar. Smávægileg- ar breytingar NÝJAR RITREGLUR ÍS- LENSKRAR MÁLNEFNDAR Guðrún Kvaran

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.